Morgunblaðið - 17.08.2000, Page 31

Morgunblaðið - 17.08.2000, Page 31
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 31 F8RÐAMALARAÐ K y N NIR A1 Gore tekur formlega við leiðtogahlutverkinu í Demókrataflokknum Reynt að róa frjálslynd- ari öflin í flokknum Hvað er að gerast9 í landinu. Dagskrd vikuna 17. - 23. ágúst Skömmu eftir að Clinton hafði með táknrænum hætti falið Gore leiðtogahlutverkið í Demókrataflokknum fóru forsetahjónin og fengu sér bita á McDonalds-veitingastað. Clinton sagði að á meðan hann hefði verið almennur borgari, áður en hann varð forseti, hefði hann jafnan fengið sér að borða á McDonalds. „Svo að kannski fer maður að gera meira af þessu aftur,“ sagði hann. „Eg bara stóðst ekki mátið.“ AL GORE tók á þriðjudag formlega við hlutverki leiðtoga Demókrata- flokksins í Bandan'kjunum úr hendi Bill Clintons forseta. Skilaboð for- setaefnisins Gores til kjósenda eru þessi: „Þetta á enn eftir að batna.“ Samkvæmt áætlun átti Gore í gær- kvöldi að fá formlega þann atkvæða- fjölda fulltrúanna á landsþingi flokksins sem dugar til að hljóta út- nefningu sem forsetaframbjóðandi. En áður en að því kæmi átti Jos- eph Lieberman að hljóta formlega útnefningu sem varaforsetaefni og taka við henni í ávarpi til þingfull- trúa. í ræðunni ætlaði hann að kynna sig fyrir bandarísku þjóðinni, að því er fréttastofan AP hafði eftir honum, og „tala um þann A1 Gore sem ég þekki og held að margir Bandaríkjamenn hafi enn ekki kynnst" og vara við því að sigur repúblíkana í forsetakosningunum 7. nóvember nk. muni snúa landinu af þeirri gæfubraut sem það nú er á. Skiptu um hlutverk Gore var væntanlegur til Los Ang- eles í gær, en þar fer landsþing flokksins fram. Því lýkur í kvöld með ávarpi Gores, sem tekur þá formlega við útnefningunni sem forsetafram- bjóðandi flokksins. Gore og Clinton komu fram á útifundi í Monroe, skammt suður af Detroit, á þriðju- dag, þar sem þeir skiptu um hlutverk á táknrænan hátt með löngu faðm- lagi og lofsyrðum um hvorn annan. ,jUlt það sem vel hefur gengið, það sem stjórn okkar hefur áorkað undanfarin átta ár, Gore gegndi þar lykilhlutverki," sagði Clinton. „Bandaríkjunum hefur vegnað vel,“ sagði Gore, „en ég get sagt ykkur það, að þetta á enn eftir að batna. Við stefnum fram á við til enn betri tíð- ar.“ Fréttaskýrandi The New York Times segir í gær að á landsþinginu á þriðjudag hafi verið reynt að róa frjálslyndari öfl innan flokksins, sem hafi haft auknar áhyggjur af þeirri áherslu sem hafi verið lögð á að höfða til miðjusinnaðra kjósenda. Hafi Lieberman í þessu augnamiði fundað með blökkumönnum meðal þingfulltrúa og lýst skilyrðislausum stuðningi sínum við jákvæða mis- munun. Ræðumenn á þinginu á þriðju- dagskvöldið voru allir af frjálslynd- ari væng flokksins, þ. á m. tveir for- setar launþegasamtaka, tveir kunnir umhverfisverndarsinnar, leiðtogar samkynhneigðra og fylgjenda rétt- inda til fóstureyðinga, auk blökku- mannaleiðtogans Jesse Jacksons. Fjórir meðlimir Kennedy-fjölskyld- unnar ávörpuðu þingið. Óánægja frjálslyndra Fréttaskýrandi The New York Times segir að erfitt sé að átta sig á því hversu djúpstæð óánægjan sé meðal svartra kjósenda, félaga í launþegasamtökum og annarra traustra kjósenda flokksins. Val Gores á Lieberman í hlutverk vara- forsetaefnis kann að hafa auldð óánægjuna, því Lieberman hefur lýst sig eindreginn miðjusinna í ýms- um grundvallaratriðum á borð við já- kvæða mismunun, hernaðarútgjöld og almannatryggingar. Þessi viðhorf kunna að vera tals- verð ógn við Gore vegna þess að svartir kjósendur og samtök laun- þega eru á meðal stærstu og dygg- ustu stuðningshópa flokksins. Sumir þessara kjósenda kynnu að veita flokki græningja liðsinni og greiða framjóðanda hans, Ralph Nader, at- kvæði, en meiri hætta er þó á því fyr- ir Gore að þetta fólk haldi sig ein- faldlega heima á kjördag, og þá verður erfiðara fyrir demókrata að hafa betur í ríkjum á borð við Michigan og Arkansas, þar sem bar- áttan milli stóru flokkanna tveggja er jöfnoghörð. Fréttaskýrandi The Washington Post bendir á að það sé líka eitt helsta verkefni flokksforystunnar núna að brúa kynslóðabil sem sé að koma í ljós í flokknum. Á þinginu sé mestri athygli beint að „gamla frjáls- lyndinu“ með áherslu á launþega- samtök, borgaraleg réttindi, rétt til fóstureyðinga, kynhneigðarvíðsýni og Kennedyfjölskylduna. Jesse Jackson og Edward Kennedy öld- ungardeildarþingmanni hafi verið fagnað gífurlega. En dagskránni á þriðjudagskvöld- ið lauk með ávarpi Harolds E. Fords yngra, þrítugs þingmanns frá Tenn- essee. Hann er talsmaður viðskipta- frelsis og hátækniiðnaðar, sem er kjarninn í hinni nýju demókratahug- sjón hinnar komandi - ekki hverf- andi - kynslóðar. Fréttaskýrandi The Washington Post segir gömlu og nýju demókrat- ana eiga margt sameiginlegt, en að hagsmunir þeirra séu ekki að öllu leyti þeir sömu. Líta megi á komandi forsetakosningar sem prófstein á það hvort nokkur nema Bill Clinton geti haldið þessum tveim kynslóðum saman. 17. ágúst fimmtudagur Reykjavík Tónleikar. Bjartar Nætur. Odd-Arne Jacobsen (NOR) og Rune Gustafsson (SVÍ) gítar- leikarar. Norræna húsið. 18. ágúst föstudagur Reykjavík Tónleikar. Baldur eftir Jón Leifs. Sinfóníuhljómsveit Islands. Stjórnandi er Leif Segerstam. Laugardalshöll. Reykjavík Menningarborg Evrópu 2000. Reykjavík Sýning. Opnun Safnahússins við Tryggvagötu sem hýsa mun Borgarskjalasafnið, Skjalasafn Reykjavíkur og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Reykjavík Sýning. „Stafrófið stórkostlega11. www.rvk.is/bokasafn. Borgarbókasafnið. Reykjavík Menningarborg Evrópu 2000. 18.-20. ágúst Stykkishólmur Hótíð. Danskir dagar. Fjölskylduhátíð með dönsku ívafi. Vestmannsvatn Þingeyjarprófastdæmi. Lifandi kirkja í Ijósi sögunnar. Æskulýðsmót haldið við Kirkjumiðstöðina við Vestmannsvatn. Kristnihátíðarnefnd. Reykjavík Sýning. „Logandi list". Keramikbrennsla, stórkostleg sýning á samspili elds, lofts, vatns og reyks. Miðbær Reykjavíkur og hafnarsvæðið. Reykjavík Menningarborg Evrópu 2000. 18. ágúst - 17. september Reykjavík Sýning. Edvald Fuglö, Færeyjum. Det vingede marke. Myndskreytingar við skáldsögu Williams Heinesens. Norræna húsið. 19. ágúst laugardagur Reykjavík íþróttir. Reykjavíkurmaraþon. Arlegur viðburður með þátttakendum hvaðanæva að úr heiminum. Reykjavík Menningarnótt í miðborginni. ýmsir menn- ingarviðburðir í miðborginni fram á nótt. Reykholt Borgarfjarðarprófastdæmi. Trúarbókmenntir miðalda. Málþing í Snorrastofu Reykholti. Kristnihátíðarnefnd. 19.-27. ágúst Fljótsdalshérað Hátíð. Ormsteiti. Uppskeruhátíð þar sem gefur að líta fagurt handverk og listiðnað frá svæðinu. Utimarkaður og menningarlegir viðburðir af ýmsu tagi. Matur og skemmtun. 19. ágúst - 10. september Reykjavík Sýning. „Grasrót 2000". Sýning 7 útskriftar- nema úr Myndlista- og handíðaskóla íslands. Umsjón: Osk Vilhjálmsdóttir og Ráðhildur Ingadóttir. Nýlistasafnið. 20. ágúst sunnudagur Reykjavík Tónleikar. Sumarkvöld við orgelið. Jaroslav Tuma, Prag. Hallgrímskirkja. Stykkishólmur Tónleikar. Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju. Trio Islandica. Hekla Rangárvallaprófastdæmi. Pílagrímsganga á Heklu. Messa á Heklutindi. Kristnihátíðarnefnd. 21. -25. ágúst Roykjavík Sýning. RauSa plánetan. Önnur alþjóðlega ráðstefnan um athuganir á Mars og skoðuð gögn frá geimferðum til Mars. Reykjavík Menningarborg Evrópu 2000. I Listinn er ekki tæmandi. ~ LeitiS nánari upplýsinga * áupplýsingamiÍstöSvum § sem er að finna víða i umland. www. icetourist.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.