Morgunblaðið - 17.08.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 33
„ Morgunblaðid/Jim Smart
Asgeir Friðgeirsson, framkvæmdastjóri íslandsnets, og Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra sem opnaði Söguvefinn.
Söguvefur
UwSbeininew
j .fwwijfcsðsKntett!***?
Nt\A 80KAftlAGlD______________
meá tmoti’jm toards
jgiMnrtcn-jsð^.
b a i
i Esr.-pUíand eá» 6V-J oafri Bl^NHv p U ' ,
I. heiirte.-vjumh*8»í!r«';an «
i ter^aptationri. U»3000 ■ Kr.
t«stu perV.r tcv*myrdasóíM«ar
»**&saÍG
.twfíxfcarrinuosöessu
Uppöettisrrfn
: Wi&lum «9 nctóri vaSrivorsr
'.syMaArQt* tt sxcíu'* »ÍF4»iaáí
•' sút/jvi **<*■ y«4Ji$ h*r*.
: ‘-jx- •*< rtíir. nCtraSts
i t V«raaW»<»*: i atHí: 8« « er.
Hér má sjá forsíðu Söguvefjarins.
Morgunblaðið/Jim Smart
að rafrænu menntakerfi og benti á
að það yrði að undirbúa á mörgum
sviðum. „Ég tel það merkilegt skref
að menn skuli í sagnfræði vera fyrst-
ir til að koma fram með nýtt kennslu-
efni samkvæmt nýju námskránni og
að þeir skuli líka hafa sameinað bæk-
ur og Net með þeim hætti sem hér er
gert.“ Hann sagðist vonast til að
þetta frumkvæði ætti eftir að nýtast
sem flestum í skólakerfinu vel.
Margt að finna á vefnum sem
áður var í kennslubókum
Ásgeir Friðgeirsson fram-
kvæmdastjóri Islandsnets veitti við-
stöddum leiðsögn um nýja Söguvef-
inn sem hann kvað vera með einföldu
leiðarkerfi. Söguvefurinn væri unn-
inn með hliðsjón af kennslubókinni
og því væri uppbygging vefjar og
bókar ámóta, þ.e. skipting í fornöld,
miðaldir og nýöld. Hann benti einnig
á aðra efnisþætti á vefnum eins og
námsaðstoð, prófabanka, uppflettis-
krá, myndasafn og söguannál. Auk
þess verður þar m.a. að finna rit-
gerðarefni, sýnishorn listaverka frá
fyrri tíð, safn korta og tengla þar
sem vísað er á aðra vefi sem geyma
upplýsingar sem gagnast áhuga-
mönnum í sögu. Að auki nýtast sam-
skiptatól Striksins til skoðanaskipta
á Söguvefnum og má þar helst nefna
spjallþræði þar sem nemendur geta
skipst á skoðunum auk þess sem
kennarar munu geta átt í samskipt-
um við ritstjórn vefjarins.
„Ég er sjálfur mjög ánægður með
vefinn eins og hann lítur út í dag en
þetta er í rauninni bara brot af því
sem á eftir að koma inn í framtíðinni.
Uppbyggingin á vefnum var ekki
mikið verk því við notum hugbúnað
sem við áttum fyrir. Mér finnst einn-
ig mikilvægt að uppbyggingin var
ekki kostnaðarsöm en það ætti að
auðvelda okkur enn frekar að bæta
vefinn.“
Ásgeir sagði að með samstarfi NB
og Islandsnets væru stigin ný skref í
samvinnu útgáfufyrirtækis og net-
miðils hér á landi og einnig benti
hann á að það væri ánægulegt að hér
væri ferðinni samstarf skóla við at-
vinnulíf.
NORRÆNA HUSIÐ
Myndskreytingar
Edwards Fuglo
SYNING á myndskreytingum Fær-
eyingsins Edward Fuglp við smá-
sögu Williams Heinesens, Vængjað
myrkur, verður opnuð í anddyri Nor-
ræna hússins á laugardaginn.
Fyrir rúmum tíu árum las Edward
Fuglo smásagnasafn Heinesens, I
töfrabirtu, sem þá var gefið út í
fyrsta sinn með smásögunni Det
vingede mprke. Edward Fuglo las
margar bækur Heinesens og varð
eins og margir aðrir heillaður af
ótrúlega víðáttumiklum og hug-
myndaríkum heimi þeirra, sem er
slíkur innblástur fyrir sjónræna tján-
ingu í leikhúsum, kvikmyndum og
myndlist.
Við lesturinn fékk hann hugmynd-
ina að myndskreyta eina af smásög-
um bókarinnar en þær voru á allra
vörum. Hann valdi smásöguna
Veingjaða myrkrið (Vængjað myrk-
ur) sem er skrifuð handa börnum.
í ár hefur Mál og menning gefið út
þessa bók á íslensku og Gyldendal á
dönsku.
Sýningin Vængjað myrkur er sett
upp í tengslum við bókmenntahátíð í
Reykavík í september og einnig til að
minnast stórskálds Færeyinga,
Williams Heinesens. Sýningin
Heima á foldu - William Heinesen
100 ára, verður opnuð í sýningarsöl-
um Norræna hússins 2. september.
Edward Fuglp (fæddur 1965) býr í
Færeyjum og starfar sem listamað-
ur, sviðshönnuður og búningahönn-
uður og myndskreytir bækur. Árin
1985-1991 bjó Edward Fuglo í Kaup-
mannahöfn en þar lauk hann prófi frá
Skolen for brugskunst 1991. Hann
hefur myndskreytt margar bækur en
barnabækur eru sérgrein hans.
Edward Fuglo hefur haldið nokkrar
einkasýningar, þá síðustu í Norður-
landahúsinu í Færeyjum nú í sumar.
Edward Fuglo hefur unnið mikið
við leikhúsið í Færeyjum við sviðs-
og búningahönnun og hefur m.a.
unnið með íslenskum leikstjónim við
uppsetningu á íslenskum og erlend-
um leikverkum í Færeyjum og á Ak-
ureyri.
Þá hefur hann gert sviðmyndir
fyrir færeyskar kvikmyndir.
Sýningin verður opin daglega kl. 9-
17, sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er
ókeypis.
Arkitektúr á
A
Islandi kynntur í
Edinborgarhúsinu
Raddir Evrópu
syngja fyrir
starfsfólk
Samskipa
ISLENSKU ungmennin, sem valin
voru í kórinn Raddir Evrópu, sungu
fyrir starfsmenn Samskipa, í gær,
en Samskip eru samstarfsaðilar
menningarborgarinnar.
Sungið var fyrri starfsmenn í
tveimur mötuneytum, fyrst fyrir
skrifstofufólkið og síðan fyrir
starfsmenn hafnarinnar.
Hópur evrópskra ungmenna á
aldrinum 16-23 ára mun á næstu
dögum safnast saman í Reykholti í
Borgarfjarðarsveit og er það lokaá-
fangi undirbúnings að tónleikum
kórsins í Hallgrímskirkju 26. og 27.
ágúst, en þaðan heldur kórinn í tón-
leikaför um Evrópu sem stendur til
13. september.
BIRGIT Abrecht kynnh’ bók sína,
Arkitektúr á Islandi, í Edinborgar-
húsinu, Aðalstræti 7 á ísafirði á
sunnudaginn kl. 17. Birgit flytur er-
indi um íslenska byggingarlist með
yfirskriftinni „Frá torfhúsum til nú-
tíma byggingarlistar: ferð um ís-
lenska byggingarsögu". Þar mun höf-
undurinn gefa innsýn í áhugaverðan
arkitektúr á Islandi með myndum og
teikningum frá ýmsum tímabilum i
byggingarsögu landsins. Einnig
verður farið stuttlega yfir byggingar-
sögu ísafjarðar en þar er að finna
dæmi frá flestum tímabilum íslenskr-
ar byggingarsögu.
Birgit Abrecht er arkitekt að
mennt og hefur rekið eigin teikni-
stofu í Keltem í Suður-Þýskalandi frá
1989. Hún er tíður gestur á íslandi.
Að kynningunni standa Mál og
menning, Bókaverslun Jónasai- Tóm-
assonar á Isafirði og Menningarmið-
stöðin í Edinborg og flytur bæjar-
stjórinn í ísafjarðarbæ, Halldór
Halldórsson, inngangsorð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Islensku raddirnar í Röddum Evröpu syngja fyrir starfsfólk Samskipa.
Hlutabréfarabb
Kvöldkaffi með VÍB og Súfistanum bókakaffi í Máli og menningu, Laugavegi 18.
í kvöld: 17. ágúst kl. 20:30 - 21:30
Aðallistinn — hvernig er best að velja hlutabréf.
Soffía Gunnarsdóttir, starfandi deildarstjóri Fjárvörslu
einstaklinga hjá VÍB.
Sjáumstl
VÍB
VÍB er hluti af Íslandsbanka-FBA hf.
Kirkjusandi • Sími 560-8900 • www.vib.is • vib@vib.is