Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 37
LISTIR
í
Loki, hið myrka afl, sem girnist allt sem
Baldur stendur fyrir.
Ást Baldurs og Nönnu á sér enga von í heimi þar sem
myrk öfl eru ríkjandi.
hættur tónninn um
salinn, vart greinan-
legur en nógu lengi
til þess að hlust-
andinn hætti að
veija sig með því að
nú sé Jón nokkuð
væminn. Tilfinning
Jóns Leifs fyrir því
sem er fagurt og
gott í manni og
náttúru á sér ekki
takmörk frekar en
tilfinning hans fyrir
öðrum þáttum.
Kannski höfum
við átt erfitt með
verk Jóns Leifs
vegna þess að hann
er ekki bara að
skrifa tónlist. Hann
er að krefja hlust-
anda sinn um reikn-
ingsskil.
Það sem í okkur
býr er í verkum hans - líka það
sem við viljum ekki sjá eða vita
af sem lifum á þannig tímum að
það er betra að blekkja sjálfan
sig og aðra, lifa aðeins að hluta
og láta allt líta vel út. Þannig
tímar hafa reyndar lengi fylgt
manninum. Jón Leifs fann hvorki
upp þá tíma né aðra.
Hann sá þá bara; sá þetta tvö-
falda eðli og skrifaði verk sem er
nógu sterkt og nógu veikt til að
afhjúpa það.
Það er aðcins ein leið til að
horfa á uppfærsluna á Baldri.
Hún er sú að njóta hennar til
fulls, leyfa tóniistinni og dansin-
um að þenja hvern streng sem
bærist í mennsku hjarta, gangast
inn á myrkrið og ljósið vitandi að
það sem gerist á sviðinu og í
tónlistinni er hvorki goðsagna-
kennt, yfirskilvitlegt né dular-
fullt. Það er allt innra með okk-
vissan tíma af birtu og visst magn af
raka og svo skiptir samkeppnin í
kringum þær miklu máli.
En hver jurt bíður eftir besta and-
artakinu til að blómstra. Nótur eru
hins vegar mjög sveigjanlegar í tíma.
Þær er hægt að færa til, halda aftur af
þeim, gefa þeim rými. Ef við tökum
sem dæmi hljómsveitarkaíla upp á
þrjár mínútur, þá geta málmblásturs-
hljóðfæri alveg beðið í eina og hálfa
mínútu á meðan óbóið leikur einleiks-
kafla...“ Og hér birtist hin fræga
glettni hljómsveitarstjórans, þegar
hann bætir við: „Þótt þú sért málm-
blásturshljóðfæri þarftu ekkert endi-
lega að drepa litla óbóið.“ Trúr sínum
eigin tíma, sem Leif skiptir á milli
ferðalaga um heiminn á vetuma og
kyrrlátra sumardaga þar sem hann
situr að skriftum, hefur hann verið í
fríi frá hljómsveitarstjómun frá því í
vor, þegar hann fór með Hljómsveit
Síbelíusar akademíunnar til Turku,
þeirri sömu og hann mun eftir helgi
leggja af stað með í tónleikaferð til
Berlínar, Hannover, Frankfurt, heim
til Helsinki og síðan á Síbelíusarhátíð-
ina í Járvenbee.
Nú er hann kominn til íslands til
þess að stjóma Baldri eftir Jón okkar
Leifs.
Jón Leifs er að sýna
íslandi lotningu
Það hefur margt verið sagt um
tónlist Jóns Leifs, meðal annars, að
hún sé dálítið frumstæð. Hvað segir
þú um það?
„Jón Leifs er einfari í tónsköpun -
og jú, vissulega getur hann verið
frumstæður. Hins vegar getur það
verið mikill kostur vegna þess að þeg-
ar hann fer að skrifa um eins stór átök
og eiga sér stað í Baldri era engin boð
og bönn að þvælast fyrir honum.
Hann finnur sinn eiginn ryþma og
hefur engar áhyggjur af því að vera
grófur. Ef hann þarf að skrifa níst-
andi bræði, dýrslega eyðileggingu eða
banvænt afl, þá er það til staðar; hann
leyfir sér að framkvæma þetta allt og
tónlistin er eini staðurinn þar sem þú
getur leyft þér það vegna þess að ef
þú leyfðir þér að hegða þér svona í líf-
inu yrðir þú tekin úr umferð.
Við skulum ekki heldur gleyma því
að þetta tónverk er sótt í söguna af
Baldri, þar sem kristallast öll þau
átök sem eiga sér stað í ykkar nátt-
úra.
Mér finnst Jón Leifs vera á sinn
hátt að sýna menningu Islands, sögu
og náttúru lotningu með þessu verki
og öðram sem hann skrifaði. Hann er
ykkar Síbek'us.
I auðmýkt sinni gefur hann allt sem
hann hefur fengið frá íslandi til baka
á sinn persónulega hátt. Og hann gef-
ur af fullum krafti.
Það era miklir kraftar að verki í
tónlist Jóns Leifs og ég er viss um það
að við flutninginn á Baldri verður það
ekki tónlistin ein sem mun hríslast
um æðar áheyrenda. Það verða ekki
síður þær myndir sem Jón Leifs er að
bregða upp. Ég hef orðið var við for-
dóma gagnvart tónlist hans hér og
finnst það undrum sæta. Ég held að
áheyrendum yrði mjög hollt að hlusta
vel og leyfa þeim miklu kröftum sem
tónlistin býr yfir að leysast úr læðingi.
Því hvað er tónlist? Svarið við því
hefst á neitun: Tónlist er ekki það sem
hljómar, heldur hvers vegna það sem
hljómar, hljómar eins og það hljómar,
þegar það hljómar.
Sé þessi skilningur hafður í huga
verður tónlist aðeins að hávaða þegar
þeir sem flytja hana láta hana ekki
hljóma eins og hún ætti að hljóma
þegar hún hljómar. Ef þeir vita ekki
hvemig hún á að hljóma geta þeir
ekki komið kraftinum og myndunum
sem i henni felast til þeirra sem á eiga
að hlýða.
Leyfið ykkur að vera hluti af þess-
um mikla krafti Ég er sannfærður um
að þið íslendingar eigið eftir að hríf-
astaf Baldri.
Þið skLljið þessa tónlist vegna þess
að þið þekkið eldsumbrot og ég skil
hana vegna þess að ég er tónlistar-
maður. Þetta era þær forsendur sem
við þurfum. Þegar þið hlustið, þá ver-
ið frjáls. Leyfið ykkur að vera hluti af
hinu mikla hraunflæði, þessum mikla
krafti. Það hefur tekið hljómsveitina
tíma til að finna þetta frelsi en það er
að koma og verður öragglega tH stað-
ar á frumsýningunni.
Það má auðvitað ekki gleyma því að
í Baldri er líka mikil sorg og þar er
Jón Leifs langt á undan sinni samtíð í
tónsköpun, vegna þess að þar ríkir
naumhyggjan í skrifum hans. Það er
ekki fyrr en á seinustu áratugum sem
naumhyggjutónskáldin verða fræg.
Það minnir mig á það að í þessu
verki er mjög margt sem fólk getur
fundið hjá Mahler og kannski finnst
einhverjum hæpið að fá að láni frá
öðram tónskáldum. Það er hins vegar
misskilningur. Tónar era náttúra-
auðlind og það er hverjum frjálst að
ganga í þá auðlind. Það á hana enginn.
Hvað tónasambönd varðar era þau
ekki heldur einkaeingn. Ef svo væri
hefði tónlistin í heiminum verið skrif-
uð í eitt skipti fyrir öll. Það sem er
spennandi við að vísa í verk eldri
mestara, með því að nota tónasam-
bönd frá þeim, er að sjá hvemig menn
vinna á ólíkan hátt úr þeim, allt eftir
því á hvaða tíma þeir eru uppi. Jón
Leifs túlkar þessi tónasambönd, þar
sem hann vísar í Mahler, á sinn hátt.
Það getur enginn gert það eins og
hann. Hann er svo óttalaus. Hann er
ekkert hræddur við að tjá viðkvæmni.
Hann er ekki heldur hræddur við
straumana sem felast í myrkum rödd-
um. Hann er ekkert feiminn við að
gera yfirskilvitlega þætti að raunsæi
og á sama hátt verða þeir sem hlusta
á verkið að vera tilbúnir að vera opnir
fyrir öllum þessum þáttum. Það er
hlutverk mitt sem stjórnanda að
tímasetja hvem tón þannig að áhorf-
andinn sé tilbúinn að gangast inn á
þann heim sem verkið fjallar um með
óvæntum viðbrögðum og ofsafengn-
um hljómum sem kunna að virðast
þungir. En einu get ég lofað: Á morg-
un munu sprengikraftur og hugljóm-
un verða leyst úr læðingi.“
7 '$0 £
Gyðjan Nanna, tákn hreinleikans, er tignuð af öllu sem lifir.
Stökktu til
Costa del Sol
31. ágúst
29.955
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol þann 31. ágúst, en vinsældir þessa staðar hafa
aldrei verið meiri. Hér finnur þú frábæra gististaði, glæsilega
veitinga- og skemmtistaði, frægustu golfvelli Evrópu,
glæsilegar snekkjubátahafnir, tívolí, vatnsrennibrautagarða,
glæsilega íþróttaðstöðu og spennandi kynnisferðir í fríinu.
Þú getur nú tryggt þér ótrúlegt tilboð í sólina, þú bókar núna,
og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og látum þig vita
hvar þú gistir.
Verðkr. 29*955 Verðkr. 39*990
M.v. hjón meö 2 böm, 2-11 éra, vika. M.v. 2 í stúdíó, vikuferð. 31. ágúst,
31. ágúst, stökktu tilboð. flug, gisting. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.600.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is