Morgunblaðið - 17.08.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 39
LISTIR
Taka mið af þörfum
hinnar fróðleiksfúsu
og jákvæðu konu
Lengi hefur það verið skoðun þeirra Hildar Hermóðsdóttur og
Þóru Sigríðar Ingólfsdóttur að konum sé ekki gert nógu hátt undir
höfði í bókaútgáfu. Það leið hinsvegar stuttur tími frá því að þær
ákváðu að taka málið í sínar hendur þar til þær höfðu sett á stofn
bókaforlag sem leggur áherslu á bókmenntir eftir konur og fyrir
konur. Eyrún Baldursdóttir ræddi við þær stöllur.
Morgunblaðið/Sverrir
Hildur Hermdðsdóttir og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir leggja áherslu á
að þð að þær séu sjálfstæðir útgefendur sé náin samvinna
milli Bjarts og Sölku.
BÓKAFORLAGIÐ Salka er á
Bræðraborgarstíg 9, í sama húsnæði
og bókaforlagið Bjartur. Þær Hildur
Hermóðsdóttir og Þóra Sigríður Ing-
ólfsdóttir keyptu nýverið hlut í Bjarti
og stofnuðu Sölku sem hliðarbóka-
forlag við Bjart og munu þessi forlög
eiga í nánu samstarfi. Á síðustu mán-
uðum hafa þær komið sér upp að-
stöðu og hófu rekstur fyrir skömmu.
Bókaforlagið Salka mun „taka mið
af þörfum hinnar fróðleiksfúsu og já-
kvæðu konu“, eins og Hildur kemst
að orði, en í þeim kristallast markmið
forlagsins. Áhersla verður lögð á
bækur sem falla að áhugamálum
kvenna og einnig verða kvenhöfund-
ar í brennidepli.
Þóra og Hildur hafa lengi verið
þeirrar skoðunar að konur fái ekki
viðunandi athygli á bókamarkaðin-
um. „Það er alkunna að konur eru í
meirihluta lesenda og því fínnst okk-
ur sjálfsagt að gera eitthvað sérstak-
lega fyrir þær,“ útskýrir Þóra. „Við
viljum samt leggja áherslu á að þrátt
fyrir að við höfum starfsemina
kvenmiðaða, þá ætlum við að vera
óháðar þeim feminísku kenningum
sem tekist er á um. Ætlunin er bara
að gera góða hluti og hafa gaman af
því um leið.“
Báðar hafa þær langa reynslu af
bókaútgáfu hjá Máli og menningu.
Þar sá Hildur um barnabókaútgáf-
una í tólf ár og Þóra var aðstoðar-
maður útgáfustjóra í rúm sex ár.
Skáldsögur, bökaseríur, hand-
bækur og barnabækur
Bókaforlagið Salka mun gefa út
skáldsögur, bókaseríur, handbækur
og örfáar barnabækur. Stefna þeirra
er að gefa út tíu bækur nú fyrir jólin.
Af þeim bókaseríum sem forlagið
mun gefa út má nefna Mynd af konu
en það eru að sögn Hildar viðtals-
bækur við áhugaverðar konur.
„Fyrsta bókin í seríunni kemur út
um jólin og það er engin spm-ning að
hún mun gleðja marga,“ segir Þóra
kímin og bætir við að ekki sé hægt að
segja að svo stöddu um hvaða bók
ræðir. Önnur sería á þeirra snærum
eru sígildar bækur eftir gengna
kvenhöfunda, íslenska og erlenda.
„Það eru höfundar sem ekki hefur
verið sinnt sem skyldi," segir Hildur.
„Og við munum bytja á hinum umtöl-
uðu Þórubókum Ragnheiðar Jóns-
dóttur. I haust kemur líka út hjá okk-
ur umtöluð bók byggð á átakanlegri
lífsreynslu Kathelyn Harrison sem
er ung amerísk skáldkona. Einnig
má nefna að væntanleg er fyrir jólin
bók eftir danska höfundinn Marianne
Eilenberger sem fjallar á skondinn
hátt um það hvernig er að vera á
lausu á markaðnum."
Bókaforlagið Salka mun gefa út
handbækur sem miðaðar eru við
þarfír kvenna og allrar fjölskyldunn-
ar. Þar á meðal er bók um sjálfs-
styrkingu og einnig um heilsufar
kvenna. Hvað varðar bækur fyrir
bömin er ýmislegt efni í deiglunni,
bæði íslenskt og þýtt.
Þetta nýja bókaforlag mun sér-
staklega hafa augun opin fyrir ís-
lenskum kvenrithöfundum og segist
Þóra vona að tilurð bókaforlagsins
hvetji kvenhöfunda til dáða. „Konur
era svo frábærar og era mjög næmar
þegar kemur að bókmenntum,“ segir
hún. „Stundum mættu þær bara vera
aðeins framfærnari.“
Þær Hildur og Þóra vonast til að
bækur, fyrir og eftir konur, verði
sýnilegri á markaðnum með tilkomu
útgáfunnar. Til að svo megi verða
ætla þær að auðvelda aðgengi að
bókunum og til dæmis dreifa þeim
víðar en í bókabúðir.
Þær stöllur hafa kynnt sér kven-
miðaðar útgáfur annars staðar og
hafa til dæmis verið í sambandi við
Women and Publishing í Bretlandi
og einnig við útgáfu í Kanada.
„Reynsla þeirra sýnir að það gengur
mjög vel að hafa útgáfu sem hefur
konur í brennidepli," segir Hildur og
Þóra bætir við: „Það er mjög upp-
örvandi að heyra af bókaforlaginu í
Kanada. Tvær konur stofnuðu það
fyrir nokkram áram en nú er það
orðið eitt stærsta bókaforlagið þar í
landi. Þeim virðist hafa tekist að
stýra því af skynsemi og hitt mjög vel
inn á markaðinn."
Það mun vera litið um konur í
stjómunarstörfum hjá bókarforlög-
um, bæði hér heima og ytra. „Ég hef
tekið eftir því á alþjóðlegum bóka-
messum að konur eru í meirihluta
þeirra sem vinna við bókaútgáfu, þeir
sem stjórna era aftur á móti karl-
menn,“ segir Hildur. „Það sýnir að
áhugi á bókmenntum og vinnan við
útgáfuna hvílir að mjög miklu leyti á
herðum kvenna. Hví ættu konur þá
ekki að taka ákvarðanirnar líka?“
„Við hugsum mjög stórt,“ segir
Þóra og Hildur samsinnir því. „Við
geram okkur auðvitað grein fyrir því
að við eram lítið forlag í samkeppni
við stóra risa. En þegar allt kemur til
alls þá kaupir fólk ekki bækur eftir
því hver gefur þær út heldur er það
rétta efnið sem skiptir máli.“
Skráðu þig $
/ vefklúbbinn
www.husa.is
afsláttur af Ice-Lux frystikistuiu
Verð frá
Kr.23.995,-
240 Ktra kr. 23.995.-
320 Ktra kr. 28.995,- 39t99Q
370 Ktrakr. 31.995,- ^990.
460 Ktra kr. 35.995,- ^9^90.
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is