Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 47

Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 47 MINNINGAR BJÖRN HÓLM ÞORSTEINSSON + Björn Hólm Þor- steinsson fæddist á Akureyri 1. apríl 1980. Hann lést af slysförum 9. ágúst síðastliðinn. Móðir hans er Jámbrá Hilmarsdóttir, gift Ómari Matthíassyni og börn þeirra eru Einar Sigmundur, Gunnlaug Hólm, Birna Hólm, Rosien Ruth og Matthildur. Faðir hans er Þor- steinn Gestsson, kvæntur Maríu Lilju Þorkelsdóttur og börn þeirra eru Brynhildur Ösp og Gestur. Bjöm ólst upp hjá föðurforeldr- um sínum, Gunn- laugu Hólm Hall- grímsdóttur og Gesti Þorsteinssyni. Fyrstu árin bjuggu þau í Keflavík og fluttust síðan til Raufarhafn- ar. Björn fluttist til Reykjavikur fyrir fjómm ámm og bjó þá hjá Jóni Gestssyni, föðurbróður sínum, og konu hans, Stellu Ólafsdóttur. Síðustu tvö árin bjó hann hjá móður sinni og Óm- ari. Útför Bjöms fer fram frá Selja- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku frændi okkar. Nú er komið að því að kveðja. Það er ekkert sem fær því lýst hve sárt við söknum þín, en minningar um þig eiga alltaf eftir að lifa í okkur, þó aðallega þegar þú varst níu ára gamall og bjóst á Hringbrautinni hjá ömmu og afa og við vorum að sippa inni í herbergi og þú sippaðir af svo miklum krafti að allt hrundi niður um þig og við hlóg- um og hlógum en þér líkaði það ekki og varðst alveg brjálaður en sú fýla var nú fljótt að renna af þér og við héldum áfram að sippa. Já, minningamar eru nú margar af Hringbrautinni, ekki satt? Og við viljum þakka þér fyrir þær jafnt sem allar þær stundir sem við áttum með þér, elsku Bjössi okkar. Við elskum þig og söknum þín sórt, og kveðjum þig með þessum orðum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Þínar frænkur, Eva Dögg og Alma Yr. Elsku frændi. Þá er komið að kveðjustund. Á slíkri stund er svo mai'gs að minnast að það verður ekki skrifað í fáum orðum. Þegar ég frétti að þú hefðir látist í þessu hræðilega bflslysi vildi ég ekki trúa því að þú værir dá- inn, að guð hefði tekið þig svo fljótt frá okkur, þú sem varst nýorðinn tvítugur og áttir allt lífið framundan. Það er liðinn langur tími frá því ég hitti þig seinast, en ég mun alltaf eiga minningar okkar frá barnæsku og fermingardeginum heima á Raufar- höfn. Og þær minningar mun ég geyma í hjarta mínu þangað til leiðir okkar liggja saman aftur. Ég sakna þín sárt. Ég votta fjölskyldu Bjöms Hólms og öðrum ástvinum innflegustu sam- úð og bið þeim blessunar. Ég kveð vin minn og frænda með þessum orð- um. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín frænka og vinkona, Berglind Mjöll Tómasdóttir. Mig langar til að minnast í nokkr- um orðum yndislega góðs vinar sem lést af slysförum miðvikudaginn 9. ágúst. En hvað getur maður sagt? Maður skilur ekki af hverju ungt fólk sem á allt lííið framundan er tekið frá okkur allt í einu. Ég man eftir svo ótal mörgu sem við gerðum okkur til skemmtunar, elsku Bjössi minn, og þegar þið Bjössi Ragg komuð alltaf til mín í vinnuna mína og fenguð að borða hjá mér, það var alltaf svo gaman að hitta þig. Við skemmtum okkur svo vel saman um verslunarmannahelg- ina í fyrra heima hjá mér á Akureyri og Boysen vinur okkar líka, en hann lést af slysförum helgina eftir versl- unarmannahelgina, nú hafið þið ör- ugglega hist á ný, hver veit? En elsku Bjössi minn, nú ertu far- inn frá okkur en kannski hittumst við einhvern tímann aftur. Ég bið Guð um að styrkja fjölskylduna þína og vini og gefa okkur skilning og hugg- un. Þín vinkona, Rakel Jóna. Þegar Rúnar sagði mér að þú hefðir lent í bflslysi, þið Fjóla væruð dáin og Helga í lífshættu, hélt ég fyrst að þú hefðir sett þetta á svið til að hrekkja okkur krakkana. En það kom annað í Ijós og ég neyddist tii að horfast í augu við að þú værir dáinn og að þetta væri enginn hrekkur. Þú varst frábær vinur Bjössi, mikill húmoristi og alltaf tilbúinn að hjálpa og gera öðrum greiða. Allar stundir með þér voru góðar, hvort sem við vorum að skemmta okkur, rúnta í bænum, glápa á vídeó, stússa í bfln- um eða bara tala saman í gamni eða alvöru. Þú varst líka í góðu sambandi við fjölskylduna þína og það var gott að koma á Irabakkann þar sem allir vinir þínir voru velkomnir og gátu verið eins og þeir vildu. Það er eigin- lega of erfitt að sætta sig við að eiga aldrei eftir að hitta þig aftur, en ég veit að þú ert á góðum stað núna, betri stað en við erum á, og örugg- lega að hjálpa öðrum og gera eitt- hvað frábærlega skemmtilegt. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og fyrir að vera besti vinur minn þennan alþt of stutta tíma sem við þekktumst. Ég verð áfram í sam- bandi við fjölskylduna þína á Ira- bakkanum sem saknar þín svo sárt og ég lofa að reyna að sinna litlu systrunum þínum vel eins og ég veit að þú myndir vilja. Fjölskyldunni þinni þakka ég fyrir allan stuðning- inn sem hún hefur gefið mér þegar hún syrgir svo sárt sjálf og öllum sem eiga um sárt að binda vegna dauða þíns votta ég dýpstu samúð. Karl (Kalli). Elsku frændi, þá er komið að kveðjustund, ég trúi því vart að þú sért farinn frá okkur. Fréttin af and- láti þínu kom eins og reiðarslag. Á þessari stund er svo margs að minn- ast. Ég gleymi seint okkar fyrstu kynnum, en þau voru þegar þú varst þriggja ára og ég var sex ára, þú komst með ömmu þinni Gullu heim til mín daginn áður en Alma Yr frænka okkar var skírð 1983. Svo fórstu til Keflavíkur eftir áramótin, en árin liðu og þú fluttir norður til Raufarhafnai'. Þegar þú varst orðin fullorðinn man ég að ég fékk að láni hjá þér geisladisk. Þegar ég svo ætlaði að skila honum sagðir þú við mig að ég mætti eiga hann því þú hlustaðir aldrei á hann og hann geymi ég eins og sjáaldur augna minna. Svona varstu gjafmildur og gafst oft og tíð- um meira af sjálfum þér heldur en þú í raun og veru gast, eða ég að minnsta kosti kynntist þér þannig. Þetta er aðeins brot af þeim ótal minningum sem ég á um þig, hinar minningarnar mun ég geyma í hjarta mér um ókomna tíð og minnast þeirra á góðum stundum. Ég þakka Guði fyrir að fá að kynnast þér og umgangast af og til í 17 ár. Með þessum orðum kveð ég þig, elsku frændi, og bið góðan Guð að styrkja foreldra þína, systkini, afa og ömmur og aðra aðstandendur. Hví var þessi beður búinn, bamið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljáma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: „Kom til mín!“ Kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með þóssins öndum. (B. Halld.) Hugrún Elva Þorgeirsdóttir. Elsku Bjössi, nú þegar komið er að kveðjustund hrannast upp allar þær minningar sem við eigum um þig, elsku vinur. Það er erfitt að skiifa þær allar hér en alltaf munum við vera þakklát fyrir þann tíma sem gaf okkur og okkar bömum hvað mest, það eru þau tæpu tvö ár sem þú bjóst V hjá okkur. Það mun búa 1 hjarta okk- ar að þrátt fyrir að margt væri erfitt í þínu lífi þá gastu alltaf fyrirgefið og reyndir alltaf að gera gott úr hlutun- um. Við kveðjum þig með mikilli sorg og söknuði elsku vinur en nú munu Guð og englarnir passa þig.Við biðj- um Guð að veita afa þínum og ömmu, foreldrum, ættingjum og vinum styrk á þessari sorgarstund. Komin er nú kveðjustundin, kistu þinni stend ég hjá. Miskun guðs og náð er fundin, Líknar hann og lokar brá. Hvar er upphaf hvar er endir? Hvemig fæ ég svar við því? Eilífðin þó oss á bendir, að við hittumst öll á ný. Biðjum því og treystum trúna, tignum sjálfan skaparann, hann oss styður yfir brúna, Beinaleiðíhimnarann. (Hjördís Björg Kristinsdóttir.) Kveðja, Jón, Stella, Birna, Ólafur og Birgitta. SESSELJA JOHANNA GUÐNADÓTTIR + Sesselja Jóhanna Guðnadóttir fædd- ist í Reykjavík 21. nóv- ember 1929. Hún lést á líknardeild Landspíta- lans 2. ágúst síðastlið- inn og fór útfor hennar fram frá Háteigskirkju 10. ágúst. Eg sendi þér kæra kveðju, núkominerlífsinsnótt Þig umvefji blessun og bænir, égbið að þú sofir rótt Þótt svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví. Þú laus ert úr veikinda viðjum, þínverölderbjörtáný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, éghittiþigekki umhríð, þín minning er Ijós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Hlýleiki og hóg- værð einkenndu framkomu Sessýjar í samskiptum fjöl- skyldna okkar á bemskuárum okkar. Alltaf var hún áhugasöm um líðan okkar og gengi. Hún reyndist móður okk- * ar og okkur öllum einstaklega vel er faðir okkar lést fyrir aldur fram og var okkur stoð og stytta alla tíð. Ánægjulegar voru samverustundirnar ýmist um jól eða áramót. Minnumst við sérstaklega vorferðanna um hvítasunnu. Við þökkum þessari ljúfu konu samfylgdina og biðjum góðan Guð að styrkja eiginmann, böm, tengda- börn og barnabörn í þeirra miklu sorg. Ibsen, Bára, Auður, Haukur, Ólafur og Guðrún Angantýsbörn. + Kristbjörg Jó- hannesdóttir fæddist að Hlíð í Álftafirði við ísa- fjarðardjúp 26. niaí 1915. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 6. ágúst síðast- liðinn og fór útför hetuiar frani frá Áskirkju 16. ágúst. Hún Bogga frænka var einstök kona, lítil- lát, ljúf og góð, aldrei veit ég til þess að hún hallmælti nokkrum manni. Börnum systkina sinna var hún einstök frænka og vildi veg okk- ar allra sem mestan. Ég veit að mömmu var það mikill styrkur hve vel Bogga sinnti Nonna bróður mín- um sem fór frá fjölskyldunni 16 ára gamall suður á Kópavoghæli, og hve hún, að öllum öðrum ólöstuðum, sýndi honum mikla ræktarsemi og elsku, en þá var seinfarnara frá Hnífsdal til Reykjavíkur en nú er. Og eins og við vitum þá var Nonni alltaf barn. En þótt Boggu hafi ekki þótt þetta tiltökumál verður henni seint fullþakkað. Kristbjörg, eða Bogga frænka eins og hún var alltaf kölluð, var ein systranna úr stóra barnahópnum frá Hlíð í Álftafirði, alls voru þau systkinin 17 en aðeins 11 komust á fullorðins ár. Ekki þekki ég önnur systkin sem eru svo samheldin og náin sem þau voru, þó þau væru ekki öll alin upp saman. Þau systkinin sögðu aldrei nafnið eitt, held- ur fylgdi alltaf systir eða bróðir. Þær voru þrjár systurnar sem fóru í fóstur, þeirra á meðal var móðir mín, Daníela Jóna, sem fór til Sigurðar móðurbróður síns og Friðgerðar konu hans, sem þá bjuggu í Hnífsdal. Daníela Jóna, dóttir mín, á kort sem Bogga skrifar mömmu 19. júní 1926 og þar kemur kærleikurinn og vænt- umþykjan berlega í ljós: „Kjæra systir nú skrifa jeg þér á þetta kort að gamni mínu. Jeg hef einlægt ætl- að að skrifa þér en jeg skrifa svo illa að jeg kem mér aldrei að því elsku Dana mín. Jeg bið þig að fyrirgefa okkur hvað við trössum að skrifa þér. Mamma biður innilega að heilsa ykk- ur öllum og pabbi og við öll. Skrifaðu mér elsku Dana mín þú skrifar svo vel. Vertu blessuð og sæl þín Bogga.“ Það mætti margur vera stoltur af skriftinni sinni væri hún eins góð og hjá þessari 11 ára gömlu stúlku. Átján ára eignaðist hún einkadótt- urina Agnesi, sem þau Helena systir hennar og Jóhannes Jónsson gengu í foreldra stað, en það var aldrei um annað talað en að hún Bogga væri al- vöru mamma hennar Oddu, þó þau Hella og Jói ættu hana líka. Bogga fór síðan suður til Reykjavíkur um tvítugt en Jónína systir hennar var þá farin suður. Allan sinn starfsaldur þjónaði hún síðan öðrum. í þrjá ára- tugi sá hún um heimili Guðbjargar Bergþórsdóttur kaupkonu á Öldu- götu 29 en starfaði síðar í mötuneyti Áburðarverksmiðjunnar meðan hún hafði aldur til. Þegar hún hætti störfum á Öldu- götunni keypti hún sér notalega íbúð á Vífilsgötu og þar bjó hún meðan hún hafði heilsu til. Foreldrar mínir fluttu um svipað leyti á Gunnars- braut, svo stutt var á milli þeirra systra og naut mamma þess þegar hún var ein er pabbi fór aftur á sjó- inn. Þá var oft talað um að fara til Boggu systur eða að Bogga systir væri að koma. Það er líka Boggu að þakka að myndir eru til af fjölskyldunni frá ýmsum tímum því hún eignaðist snemma myndavél og notaði hana óspart þegar hún kom í heimsókn vestur. Og listfeng var hún, fór á tón- leika og sótti leikhús. Síðustu árin hennar Boggu frænku minnar urðu erfið, en þá naut hún umönnunar á Hjúkrunarheimil- inu Skjóli. Ég skil nú betur orðin hennar föðurömmu minnar sem hún sagði við mig fyrir hart nær fjórum áratugum, að Guð ætti að taka gamla fólkið til sín en ekki litlu börnin. Elsku Adda, Ilelena, Jóhanna og Svava, við vitum að sárt er að sjá sína nánustu fara svona illa eins og hún gerði, en án alls efa er Bogga sæl nú og áreiðanlega hefur verið tekið vel á móti henni. Guð blessi okkur minningu hennar Boggu. Fyrir hönd systkina minna, Diddýjar, Hafsteins og Inga. Bára Björk. Það eru um 60 ár síðan Kristbjörg Jóhannesdóttir, Bogga, kom inn í líf okkar, þá ung kona, en við börn. Hún gerðist ráðskona hjá frænku okkar, Guðbjörgu Bergþórsdóttur, kaupkonu. Hjá henni starfaði hún, það sem Guðbjörg átti eftir ólifað, en hún lést 1968. Hún reyndist henni af- ar vel, ekki síst þegar Guðbjörg var orðin gömul og farin að heilsu og kunnum við henni miklar þakkir fyr- ir það. Heimili Guðbjargar að Öldugötu 29 var sannkallaður miðpunktur fjöl- skyldunnar, þangað komu allir og voru alltaf velkomnir á hvaða tíma sólarhrings sem var. Vissulega lenti þessi gestagangur ekki síst á Boggu. Oft hlýtur hún að hafa verið þreytt á þessum fyi-irferðarmiklu gestum. En aldrei, ekki í eitt einasta skipti, sýndi hún okkur nokkuð annað en elsku- legt viðmót og vinsemd. Við krakkarnir komum okkur saman um, að Bogga gæti ekki orðið reið, og okkur þótti vænt um hana. Það var svo notalegt að vera í eldhús- inu hjá henni og rabba um heima og geima, og kökurnar hennar voru heldur betur vinsælar og þeim gerð góð skil. Svo urðum við fullorðin, eins og lög gera ráð fyrir, og við bættist næsta kynslóð, sem sótti ekki síður í að koma í eldhúsið til Boggu, opna neðstu skúffuna, sem hafði að geyma alls konar dót, t.d. sleifar, kökukefli, kleinujárn, allt mjög spennandi fyrir fólk, sem nýlega var farið að ganga Já það var oft glatt á hjalla að Öldu- götu 29 og mikill söknuður, þegar það tímabil leið undir lok. En minn- inguna eigum við, og hana bjarta. Eftii- lát Guðbjargar keypti Bogga íbúð að Vífilsgötu, þar sem hún bjó meðan heilsan leyfði. Þangað var líka gott að koma, hún hafði lag á að láta fólki líða vel í kring um sig. Við þökkum Boggu innilega fyrir allt, sem hún gerði fyrir okkur, en hún reyndist okkar heimili ákaflega vel í veikindum móður okkar. Það verður seint fullþakkað. Agnesi dóttur hennar, dóttur- dætrum, barnabörnum og öðrum aðstandendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Kristbjargar Jóhannesdóttur. Helga B. Sveinbjömsdóttir, Jón Sveinbjömsson. KRISTBJORG JÓHANNESDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.