Morgunblaðið - 17.08.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 17.08.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 49 JÓHANNES SIGFÚSSON + Jóhannes Sigfús- son fæddist í Sandholti í Tjöm- eshr. S-Þing. 6. febr- úar 1923. Hann lést 7. ágúst síðastliðinn. Faðir hans var Sigfús Jóhannesson, af- greiðslumaður hjá Kaupfélagi Þingey- inga á Húsavík, f. 22. júní 1890, d. 9. maí 1951. Móðir hans var Sigurlaug Björns- dóttir, húsfreyja á Ilúsavík, f. 8. júní 1897, d. 30. jan. 1934. Jóhannes kvæntist 10. mai 1946, Kristínu Sigurðardóttur, hús- freyju, f. 24. mars 1927. Börn þeirra: 1) Sigríður Val- gerður, f. 1. febrúar 1946, maki Stefán Baldursson. 2) Sigfús, f. 12. nóvember 1952, maki Guðbjörg Ámadóttir. 3) Sigurlaug Jakobína, f. 8. júlí 1955, maki Sigurður Þ. Karlsson. 4) Sigurður Gunnar, f. 26. október 1958, maki Yvonne Williams. 5) Sigþór Ogmundur, f. 3. október 1963, maki Gíslína G. Hinriksdóttir. 6) Sigrún Ósk, f. 20. ágúst 1967, maki Ól- afur Kr. Sigurðsson. Barnabörnin em 18 og bamabarna- börnin 9. Jóhannes varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri 1945. Hann var skrif- stofumaður á skömmtunarskrif- stofu ríkisins í Reykjavík 1947-51. Bókhaldari hjá Raf- magnsveitum ríkis- ins og sá um bókhald fyrir Laxár- virkjun II í S.-Þing. 1951-54. Bæjarstjóri á Seyðisfirði 1954-58. Framkvæmdastjóri fyrir togarafé- lagið Austfirðing hf. á Eskifirði 1958-59. Bókhaldari hjá Sjóla- stöðinni hf. (útgerð) í Hafnarfirði 1974-78 og hjá Sæfinni hf. (tog- araútgerð) í Reykjavík frá 1978- 88. Bílstjóri hjá BSR til 1998. Utför Jóhannesar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Okkur langar að minnast pabba okkar og tengdapabba með nokkrum orðum. Hann andaðist 7. ágúst. Hann var fæddur á Húsavík 6. feb. 1923 og ólst þar upp. Síðan lá leiðin til Akureyrar í menntaskólann, þaðan sem hann útskrifaðist sem stúdent 1945. Á Akureyri kynntist hann mömmu og voru það hans gæfuspor, síðan eru liðin 54 ár. Við minnumst hans sem íslensku- manns og ósjaldan leiðrétti hann rit- að og mælt mál. Pabbi stytti aldrei nöfn barna sinna eða tengdabarna, allir í fjölskyldunni voru nefndir full- um nöfnum. Hann fylgdist vel með skólagöngu barna sinna og barna- barna. Pabbi var höfðingi og gott var að leita ráða hjá honum. Hann vildi allt fyrir okkur gera sem hann gat. Fyrir tveimur árum greindist hann með illkynja sjúkdóm og hafa síðustu mánuðir verið honum erfiðir en hann var ekki tilbúinn að gefast upp. Fyrir tveimur mánuðum fóru hann og mamma til Afríku að heimsækja Sig- urð, þessa ferð ætlaði hann að fara og ekkert gat stöðvað hann. Hann naut þess að ferðast og eru okkur minnisstæðar hinar mörgu ferðir til Hjalteyrar, þá var pabbi í essinu sínu, með yfirfullan bíl af börnum, dýrum og farangri. Ferðin tók oftast tvo daga og þetta fannst honum á sig leggjandi til þess að geta gert það sem honum fannst einna skemmti- legast að dorga og nálgaðist það að vera eina tómstundagaman hans. Vegna þess hve mikið pabbi vann voru þessar stundir okkur mjög dýr- mætar. Pabbi var mikið snyrtimenni en hann var líka sérvitur Þingeying- ur, hann varð ævinlega að nota sömu hnífapörin og sama bollann og hann varð að vera þunnur annars kólnaði kaffið, helst þurfti að hita diskana. Pabbi tók mjög nærri sér að vera orðinn veikur, það var frekar hans að hjálpa öðrum en þiggja aðstoð. Elsku pabbi, kannski skaparinn hafi verið að hlífa þér við frekari þrautum er hann hreif þig frá okkur. Þú hafðir átt mjög góðan dag, keyrt upp í Borgarfjörð í sumarbústaðinn. Þennan bústað byrjaði hann að byggja fyrir 11 árum ásamt Sigfúsi og Arna tengdaföður hans. Pabbi hafði mjög gaman af að dvelja þarna og á hverju vori var gróðursett nýtt tré fyrir það sem kindurnar höfðu gætt sér á en engar voru lúpínurnar. Pabbi minn, nú ert þú leystur frá þrautum. Við munum hugsa vel um mömmu og halda áfram að hittast á jóladag. Hvíl í friði. Börn og tengdaböm. Við Jóhannes Sigfússon hittumst fyrst í 3. bekk Menntaskólans á Ak- ureyri haustið 1941. Hann hafði ver- ið í skólanum veturínn áður en ég ekki. Veturinn eftir bjuggum við saman í kjallarakompu í heimavist skólans sem nefndist Undirveggur ef ég man rétt. Það herbergi telst ekki mannabústaður í dag. í dag eru kröfurnar allt aðrar heldur en á okk- ar tíma. Þá var nálega allt gert til að komast í skóla. Þeir, sem á heima- vistinni bjuggu, áttu að vera komnir í skólahúsið kl. 10 að kvöldi, nema á laugardagskvöldum, þá kl. 11.30. Við kvörtuðum ekki. Við töluðum ekki saman um þetta en besti vitnisburð- urinn um það hvemig okkur líkaði vistin og ófrelsið er það, að haustið 1943 vorum við báðir búnir að útvega okkur einstaklingsherbergi úti í bæ og vorum þar uns við lukum stúd- entsprófi 17. júní 1945. Við höfum haft nokkurt samband allar götur síðan og rifjað upp atburði frá liðinni tíð okkur til óblandinnar ánægju. Jóhannes Sigfússon var manna fríðastur, vel vaxinn og meðalmaður á hæð. Hann hafði mikið ljóst, liðað hár. Jóhannes hafði rólega og aðlað- andi framgöngu og bar sig vel. Hafði stundað nokkuð íþróttir. Var m.a. talinn góður bakvörður í knatt- spyrnu. Hann fór stundum á fætur kl. 8 á sunnudagsmorgnum, þegar við vorum í 4. bekk, til þess að iðka þessa íþrótt sína. Ég skildi þetta aldrei. Jóhannes bar aldurinn vel fram á síðustu vikur. Jóhannes kunni að velja sér falleg föt og gerði það óspart. Hann eign- aðist á þessum tíma okkar mjög fal- legan bláan frakka sem fór honum vel. Ég hefi ekki í annan tíma séð bláan frakka sem nálgaðist meir bláa frakkann hans Jónasar Hallgríms- sonar, skálds, sem hann stikaði í um götur Reykjavíkur áður en hann hélt til háskólanáms í Kaupmannahöfn. Það vantaði að vísu logagyltu hnapp- ana á frakka Jóhannesar en það breytir þessu ekki. Þá má ekki gleyma fallegu brúnu jakkafotunum sem Jóhannes notaði í 5. og 6. bekk. Enginn var í eins vel burstuðum skóm í M.A. og Jóhannes og eru kennarar þá ekki undan skildir. Eftir að við Jóhannes vorum laus- ir úr heimavistinni í M.A. fórum við að líta í kringum okkur í mannlífinu. Við fórum á skemmtistaði á Akur- eyri og nágrenni. Verður það ekki rakið nánar hér. Ekki fór það á milli mála, að hinn myndarlegi og vel búni Jóhannes vekti talsverða athygli kvenna á góðum aldri. Afleiðingarn- ar af þessum skemmtiferðum okkar urðu þær, að við vorum báðir orðnir ábyrgir fjölskyldumenn innan til- tölulega skamms tíma. Ekki þurftum við aðstoðar Bakkusar gamla til þess að skemmta okkur. Ekki lutum við heldur svo lágt, að troða upp í okkur sígarettum með eld i öðrum endan- um. Jóhannes fékkst við margvísleg störf um dagana. Á skólaárunum vann hann t.d. í síldarverksmiðju. Eitt sumarið vann hann hjá amer-' íska hernum við þýðingar, m.a. á því, sem sagt var um herinn í fjölmiðlum á íslandi. Þetta leiddi til þess, að hann varð vel mæltur á enska tungu. Hann átti kunningja í hemum sem ég hitti. Haustið 1947 kom mikil og óvænt síld í Hvalfjörð. Þar var mikill fjöldi skipa að veiðum. Á einu þeirra var Jóhannes og eignaðist góðan hlut. Jóhannes Sigfússon lærði snemma að rita óvenjulega fallega rithönd. Hann hafði glöggt auga fyr- h- smekklegri uppsetningu á skjöl. Hann vann margvísleg skrifstofu- störf um ævina og munu þessir hæfi- leikar bera honum glöggt vitni þar. Jóhannes vann á skömmtunar- skrifstofunni í fjögur ár. Þar hitti hann fyrir skólafélaga okkar, Björn Baldursson. Vel fór á með þeim. Hann var bókhaldari hjá þessum fyr- irtækjum: Rafmagnsveitum ríkisins vegna Laxárvirkjunar II, Sjóla- stöðinni hf. og Sæfinni hf. Hann var bæjarstjóri á Seyðisfirði 1954-1958, framkvæmdastjóri togarafélagsins Austfirðings hf. á Eskifirði um tíma, leigubifreiðastjóri á BSR. Jóhannes var hörkuduglegur maður til allra stafa. Hann þurfti á því að halda því að hann eignaðist stóra fjölskyldu. Segja má, að hann hafi oft unnið tvöfaldan vinnudag. Fyrst á skrifstofunni og síðan við akstur. Þann 10. maí 1946 kvæntist Jó- hannes eiginkonu sinni, Kristínu Sigurðardóttur frá Hjalteyri. Þau hittust ung. Hjónaband þeirra var langt og farsælt. Þau eignuðust sex mannvænleg börn sem öll eru fjöl- skyldufólk. Þau eru: Sigríður Val- gerður, húsfreyja, Sigfús, forstjóri, Sigurlaug Jakobína, húsfreyja, Sig- urður Gunnar, vélvirki, Sigþór Ög- mundur, bakari og Sigrún Ósk, gæslukona. Kristín og börnin þakka góðum og umhyggjusömum fjöl- skylduföður. Ég vil ítreka þá skoðun mína, að hér er ekki um neinn dauða að ræða heldur aðeins vistaskipti. Hún er reist á frábænim fundum aðallega hjá Hafsteini Bjömssyni, svo og á mörgum bókum sem ég á. I viðtali við mig minntist Kristín mikilvægrar hjálpar Einars á Einarsstöðum þeg- ar mikið var í húfi hjá henni. Að lokum þakka ég Jóhannesi löng og góð kynni. Kristínu og af- komendum þeirra votta ég samúð mína. Hér hefir aðeins skeð hið óhjá- kvæmilega. Ámi Stefánsson. Frágangur af- mælis- og minningar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Blómabwðin Öa^ðskom v/ Fossvo0sUi»*!<jwgar3 Símii 554 0500 SÖLSTEJNAR Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 t Elskulegur, indæll sonur okkar, bróðir, bama- barn, mágur og ástkærfrændi, VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON, er látinn. Vilhjálmur Ketilsson, Garðar Ketill Vilhjálmsson, Margeir Vilhjálmsson, Svanur Vilhjálmsson, Vala Rún Vilhjálmsdóttir, Ólafur Björnsson, Ketill Vilhjálmsson, Ásgeir Elvar, Brynjar Freyr Sigrún Ólafsdóttir, Kristín Jóna Hilmarsdóttir, Guðmundur K. Steinsson, Hrefna Ólafsdóttir, Valgerður Sigurgísladóttir, ktor Thulin, I Katla Rún. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS INGVARSSON, Þóristúni 5, Selfossi, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn 15. ágúst. Ingveldur Kristmannsdóttir, Ingvar Jónasson, Örlygur Jónasson, Rannveig Þórðardóttir, Guðrún Jónasdóttir, Guðmundur Gunnarsson, barnaböm og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður, faðir, stjúpfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, BJARNIINGIMAR JÚLÍUSSON, Hagamel 30, Reykjavík, andaðist miðvikudaginn 16. ágúst. Áslaug Stefánsdóttir, Guðrún Hallfríður Bjarnadóttir, Hildur Sveinsdóttir, Júlíus Bjarnason, Stefán Ingimar Bjarnason, Rannveig Júníana Bjamadóttir, Bjarni Þórður Bjarnason, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. I Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 www.utfor.is í Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. 1 / Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Eimrsson útfararstjóri, sími 896 8242 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.