Morgunblaðið - 17.08.2000, Síða 50

Morgunblaðið - 17.08.2000, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengda- faðir, RAGNAR ÞORGRÍMSSON fyrrv. eftirlitsmaður hjá SVR og ökukennari, Árskógum 8, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju föstu- daginn 18. ágúst kl. 13.30. Margrét Helgadóttir, Kolbrún Ragnarsdóttir, Egill Hallset, Guðrún Ragnarsdóttir, Stefán Ingólfsson. Ástkær eiginmaður minn, GUÐJÓN MAGNÚSSON bóndi frá Hrútsholti, Ánahlíð 14, Borgarnesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 15. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Erla Hulda Valdimarsdóttir. + Eiginkona mín, JÓNÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Klængshóli í Skíðadal, andaðist þriðjudaginn 15. ágúst. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hermann Aðalsteinsson. + Frændi okkar, POUL SANDVIG PEDERSEN, Hvidovre, Danmörku, lést mánudaginn 31. júlí síðastliðinn á heimili sínu. Jarðarförin hefur farið fram. Aðstandendur. + Ástkær unnusti minn, faðir okkar, sonur, bróðir og tengdasonur, JÓN ANDRÉSSON, Gyðufelli 16, sem lést mánudaginn 7. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn 18. ágúst kl. 13.30. Elísabet Lára Tryggvadóttir, Aron Franklín, Aþena Marey, Brynja Sól, Andrés Jón Bergmann Ásgeirsson, Valdís G. Jónsdóttir, systkini og tengdaforeldrar. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR ÞORSTEINSSON fyrrv. bóndi á Grund í Svínadal, er andaðist á Héraðssjúkrahúsinu á Blöndu- ósi 8. ágúst, verður jarðsunginn föstudaginn 18. ágúst kl. 14.00 frá Blönduóskirkju. Jarðsett verður í Auðkúlukirkjugarði. Guðrún Jakobsdóttir, Lárus Þórðarsson, Valdís Þórðardóttir, Ragnhildur Þórðardóttir, Sigurður H. Pétursson, Þorsteinn T. Þórðarson, Guðrún Atladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. HEIÐA BJÖRK VIÐARSDÓTTIR + Heiða Björk Við- arsdóttir fæddist í Reykjavík 19. júní 1980. Hún andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut fimmtu- daginn 10. ágúst. Foreldrar hennar eru Auður Erla Sig- friedsdóttir, f. 9.3 1940, d. 19.6. 1988, og Viðar Stefánsson, f. 20.5. 1947. Stjúp- móðir Heiðu er Anna Ólafsdóttir, f. 9.6 1949, dóttir hennar er Inga Huld Hermóðsdóttir, f. 7.7.1972. Systir Heiðu sammæðra er Bryndís Scheving, f. 27.10. 1959, maki Haraldur Ólafsson, f. 12.7. 1960. Bræður Heiðu eru Stefán Fannar Við- arsson, f. 28.5. 1976 og Ægir Þór Viðars- son, f. 26.10. 1978. Unnusti Heiðu er Björn Líndal Traustason, f. 7.2. 1978. Foreldrar Björns eru Dóra Kr. Traustadóttir, f. 7.1. 1961 og Trausti Ól- afsson, f. 15.8.1955. Heiða var nem- andi í Borgarholts- skóla. Hún vann með námi hjá Á stöðinni, Gylfaflöt og nú í sumar einnig hjá Hverfisstöð borgarinnar, Jafnarseli. Utför Heiðu fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. 19. júní 1980, síminn hringir hjá mér í vinnunni, mamma komin með hríðir og barnið að fara að fæðast. Hleyp af stað og á leiðinni út kallar vinnufélagi minn „veðja við þig að þetta verður stelpa". Það fannst mér nú harla ólíklegt þar sem ég átti 5 bræður og hlaut því að verða eina stelpan áfram. En svo gerðist undr- ið, litla systir mín fæddist og það sem meira var, ég var viðstödd fæð- inguna. Síðan hef ég fylgst með þess- ari litlu mannveru sem fæddist fyrir 20 árum stækka og þroskast og verða að ungri, fallegri konu. Minng- arnar eru margar og allar góðar um þessa vel gerðu stúlku. Ég var ákaf- íega stolt af henni Heiðu minni, enda ekki annað hægt þar sem hún var eldklár í skólanum og allt sem hún tók sér fyrir hendur var vel og vand- lega gert. Elsku Heiða mín, ég veit að nú ert þú komin á góðan stað og mamma hefur tekið vel á móti þér. Allt það sem ég vildi segja og gera með þér verður bara að bíða þar til ég hitti þig aftur. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera með þér fram á síðustu stundu þína hér á jörð og bið og vona að Guð gefi okkur öllum styrk til þess að takast á við lífið á ný. Þóaðkaliheiturhver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei raun ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Bless engillinn minn. Þín systir Bryndís. Elsku Heiða mín. Það er eflaust alltaf sárt að kveðja þá sem manni hefur þótt vænt um. Mér finnst næstum óbærilegt að sætta mig við brottför þína þar sem hana ber allt of brátt að. Þú hefðir orðið yndisleg móðir Heiða, það sá ég á því hvernig þú varst við son minn, sem þú kallað- ir alltaf litla frænda. Þú kunnir á honum lagið en það gera alls ekki all- ir. Hafsteinn hitti þarna jafnoka sinn, því eins og þú sagðir ef hann var frekur þá varst þú bara frekari. En ef hann var góður við þig, þá fékk hann það margfalt til baka. Þannig var það bara með þig, þú vildir allt fyrir alla gera. Sólarhringurinn var bara einfaldlega ekki nógu langur til þess að þú gætir sinnt öllum eins og þú hefðir viljað. Þú áttir líka svo marga vini sem er alls ekki skrítið, það vilja allir vera nálægt fólki sem er svona opið og innilegt og þar að auki alltaf í góðu skapi. Þegar móðir mín kynntist föður þínum þá tókst þú okkur báðum með opna arma og þó að það væru átta ár á milli okkar þá gátum við talað saman um hvað sem er. Mér þótti ótrúlega vænt um þegar þú fórst að kalla mig stjúp- systur, því þú varst systirin sem mig dreymdi alltaf um að eiga. Ég vildi bara að ég gæti sagt þér hversu miklu máli samband okkar skipti fyrir mig. Ég vildi líka að ég hefði haft tækifæri til þess að gera eins mikið fyrir þig eins og þú gerðir fyrir mig. Lífið allt mun léttar falla. Ljósið vaka í hugsun minni. Ef ég má þig aðeins kalla. Yndið mitt í fjarlægðinni. (Friðrik Hansen.) Við ætluðum að hittast eftir helgina örlagaríku. Ég ætlaði að koma til þín og Bjössa og færa ykkur innflutn- ingsgjöf. Þú varst svo ánægð með nýju íbúðina og vildir að ég sæi hversu vel þið höfðuð komið ykkur fyrir. Ég er nú búin að fara til Bjössa og fá að skoða og sá að þú hafðir rétt fyrir þér. Þú hafðir náð að hreiðra svona vel um þig á skömmum tíma. Hvers vegna svona ungt fólk í blóma lífsins er tekið frá okkur fæ ég lík- lega aldrei skilið. Ég þakka bara fyr- ir að ég og þínir nánustu fengum að vera hjá þér þína síðustu stund og kveðja þig í ró og friði. Þú komst eins og engill inn í líf mitt og ég kvaddi þig líka sem slíkan. Þín mun verða sárt saknað Heiða mín og þú skilur eftir þig stórt tóma- rúm sem aldrei verður fyllt en þú munt lifa áfram í hjörtum okkar sem þótti vænt um þig. Ég þakka fyrir þann tíma sem ég fékk að þekkja þig og kveð þig með þessum orðum sem koma upp í hug- ann er ég hugsa til þín. Þú varst svo einlæg, opin og fögur og hafðir svo margt að gefa. Skildir eftir þig hvert sem þú fórst margar góðar sögur. Nú tími okkar hér ásamt þér hefur tekið enda. Því kveð ég þig nú, en kveðjan er full af sorg og trega. Þín stjúpsystir, Inga. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýjug og vináttu við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður og sonar, SIGURÐAR RAGNARS GUNNLAUGSSONAR lýtaskurðlæknis, Ránargötu 30a, Reykjavík. Sérstakar þakkirtil hjúkruarfólks deildar 11-E á Landspítalanum. Jóhanna Kristín Tómasdóttir, Unnur Svava Sigurðardóttir, Sigríður L. Sigurðardóttir. Elsku Heiða mín. Að þú skulir vera farin frá okkur er óbærilega sár staðreynd, öllum sem elska þig. Við spyrjum af hverju, af hverju þú svona ung, falleg og góð. Þú og Bjössi voruð búin að taka á leigu íbúð og hreiðra fallega um ykkur þar. Það gladdi mig að fylgjast með ykkur. En eftir tveggja vikna sam- búð dundi ógæfan yfir. Flugslys, og þú, elskan mín, farþegi, stórslösuð. Við tók tími sorgar og kvíða, þú lifðir í tvo sólarhringa en þá kom kveðjustundin svo þungbær okkur öllum. En við vissum að þó þú lifðir værir þú farin frá okkur í þeirri mynd sem við þekktum þig. Einhvern tímann þegar mér leið illa þá flugu mér þessi orð í hug: „í sárustu kvölinni og í svartasta myrkrinu sé ég þrjá ljósa punkta." Þessir ljósu punktar eru börnin mín og allar mínar stundir og minningar með þeim. Nú lýsa minningarnar um þig, Heiða mín, upp þetta myrk- ur sem við erum öll í sem elskum þig; Ég man eitt kvöld í Laufrima. Við vorum að borða saman. Ég horfði á þig og Bjössa, írenu og Gest og Steinar Trausta. Ég fylltist stolti og gleði yfir því að þessi fallegi hópur var börnin mín og tengdabörn. Ég lít svo á að nú kveðjum við Heiðu í bili. Ég bið guð að hjálpa Viðari og Önnu sem nú sjá að baki yndislegri dóttur og stjúpdóttur. Einnig bið ég almættið að vera með bræðrum hennar, Stefáni og Ægi. Ég bið guð að styrkja Bryndísi syst- ur hennar og fjölskyldu. Einnig Ingu og Hafstein. Guð hjálpi þér, Rannveig mín, svo og öllum öðrum vinum hennar Heiðu. Björgunarmönnum, starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítalans og séra Maríu Ágústsdóttur þakka ég ómetanlega hjálp undanfarna daga. Við þig, elsku Bjössi minn, vil ég segja þetta. Þú ert búinn að reyna mikið undanfarna daga, Heiða þín tekin frá þér, verra getur það ekki orðið. Nú tekur við erfiður tími söknuðar og ég á svo fá ráð. Þegar þú og Irena voruð lítil sögðuð þið „mamma redd- ar öllu og getur allt“ en það er orðið langt síðan þið gerðuð ykkur grein fyrir því að svona einfalt er lífið ekki. En ég geri allt sem ég get til að milda þetta högg. Bjössi minn, þú átt frábæra systur og vini sem standa með þér nú sem fyrr. Svo bið ég guð að hjálpa þér og vera með þér alltaf. Nú er Heiða hjá mömmu sinni sem hún missti svo ung. Megi minn- ingin um ást hennar og bros vera þér hjálp á erfiðum tímum. Elsku Heiða mín, þakka þér fyrir allt, þú hjálpaðir mér oft og ég sakna þín og gleymi þér aldrei. Ég bið guð að geyma þig, yndið mitt. Þegar ég hugsa um engla, hugsa ég til þín. Þín tengdamamma, Döra Kr. Traustadóttir. Elsku besta Heiða mín. Ég á margar góðar minningar um þig og þá sérstaklega þegar við vorum litlar og þú komst oft til okkar og gistir hjá okkur og ég kom líka stundum til þín og gisti hjá þér. Mér fannst alltaf svo gaman að vera með þér því þú varst 3 árum eldri en ég og ég leit mjög mikið upp til þín. Svo þegar árin liðu og þú varðst unglingur þá minnkaði samband okkar mikið, þú varst svo mikil pæja. En þó að sambandið hafi minnkað gátum við alltaf spjallað um allt milli himins og jarðar þegar við hittumst. En ég hitti þig síðast í apríl í fermingunni hennar Ernu systir minnar. Þú varst svo dugleg og lífs- glöð stelpa, alltaf brosandi og í góðu skapi. Eg sakna þín mjög mikið, Heiða mín, og á mjög erfitt með að trúa því að ég eigi aldrei eftir að hitta þig og tala við þig aftur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blesssun þinni sitji guðs englar saman í hring sænginniyfirminni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku Viddi, Bjössi og fjölskyldur ég votta ykkur mína dýpstu samúð og vona að guð styrki ykkur á þessari sorgarstund. Þín frænka, Hrefna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.