Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 53
--------------------------‘C
MINNINGAR
KJARTAN DAVIÐ
HJARTARSON
+ Kjartan Davíð
Hjai-tarson fædd-
ist á Hornafirði 9.
mars 1994. Hann lést
af slysförum 6. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Hafnarkirkju 12.
ágúst.
Elskulegur frændi
og vinur er allur.
Hljóðlátt hvísl um
hugann fer,
hræðir ungu blómin mín,
þegarsólinsælastskín,
sækir að mér daga og nætur.
Pegar jörð og himinn hlær,
hvíslar einhver dapur blær:
Alltaf er einhver sem grætur.
Hvenær þagnar þetta hvísl,
þetta ömurleikamál?
Er það máski einhver sál,
sem alein vakir dimmar nætur
ogvill minnamigáþað,
að margur guð til einskis bað
og alltaf er einhver sem grætur?
Viðkvæmt eins og hörpuhljóð
Huldunnar í klettaborg
hvíslar dagsins dulda sorg
um draum sem hvergi festi rætur.
Himinninn er hreinn og blár.
Hrynja samt um gluggann tár,
þvi alltaf er einhver sem grætur.
(Jakobína Sigurðardóttir.)
Elsku Hjörtur, Nanna, Hjördís
Klara og aðrir ástvinir. Megi Guð
gefa ykkur styrk til að takast á við
þessa þungu sorg.
Pálína, Grétar og fjölskylda.
Elsku Hjörtur, Nanna og Hjördís
mín. Þegar stór er sorgin eru fá orð-
in en hugur okkar er með ykkur er
við kveðjum litla Kjartan Davíð sem
var svo stutt með okkur. En minn-
ingin mun lifa með okkur um
ókomna tíð. Nú er hann kominn til
Gunnu ömmu og fær að kynnast
kleinunum hennar og skonsunum
sem við þekktum svo vel. Ég hitti
Kjartan Davíð oft á hjólinu sínu og
alltaf veifaði hann til mín og brosti
sínu einstaklega fallega brosi og þótt
Birting afmæl-
is- og minning-
argreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Greinunum er veitt viðtaka á
rítstjórn blaðsins í Kringlunni 1,
Reykjavík, og á skrifstofu
blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur
unnt að senda greinamar í sím-
bréfi (569 1115) og í tölvupósti
(minning@mbl.is). Nauðsyn-
legt er, að símanúmer höfundar/
sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í blað-
inu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð
takmarkast við eitt til þrjú er-
indi. Greinarhöfundar era beðn-
ir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinun-
um.
Við bmtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins era
birtar greinar um fólk sem er 70
ára og eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir ásamt
mynd í Dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni.
við værum að hittast í
fjórða eða fimmta
skipti sama dag var
kveðjan alltaf jafn inni-
leg. Sú minning er
greipt í huga minn og
hana mun ég alltaf
varðveita. Um leið og
við kveðjum Kjartan
Davíð með miklum
söknuði biðjum við al-
góðan Guð að styrkja
ykkur og hugga og
blessa góða og bjarta
minningu okkar um dá-
samlegan dreng.
Þungt er um ykkar
hjarta, Hjörtur, Nanna og Hjördís
Klara, fölnuð eru blómin og söngur-
inn er hljóður.
Minningamar lifa þó margt sé við
að stríða. Mikið var hann fagur, hann
Kjartan Davíð, ljúfi vinur.
Þinn frændi.
Gunnar Ingi og fjölskylda.
Elsku Kjartan Davíð minn.
Það hefur komið stórt skarð í
hjartað mitt núna þegar þú ert far-
inn. Þú varst á leikskólanum Löngu-
hólum sem ég vann. Það var alltaf
gaman að sjá þegar þú komst, þú
varst alltaf svo glaður og mjög
ánægður á leikskólanum.
Þú áttir marga vini, þó voru það
sérstaklega tveir, Sævar og Eiður
Tjörvi, þið voruð alltaf saman.
Það var gaman að hafa þig á leik-
skólanum og þú varst í mínum hópi,
Kisuhópi, þú varst mjög duglegur í
einu og öllu. Ég man hvað þér fannst
gaman að gera skólaverkefnin, þú
varst að undirbúa þig fyrir skólann
þar sem þú áttir að byrja haust og
hlakkaðir svo mikið til.
Ég man þegar við á Blómadeild,
elstu krakkarnir eða skólabörnin
vorað þið kölluð, fórum með ykkur í
útskriftarferð í sumarbústaðinn
Arasel og þið þrír voruð varla komn-
ir út úr rátunni þegar þið byrjaðir í'
fótbolta eins og þið voruð í á leikskól-
anum. Svo um kvöldið þegar allir
áttu að fara að sofa þá varst þú í
miðjunni á milli tveggja bestu vina
þinna.
Elsku Kjartan Davíð, nú ert þú
kominn til Gunnu ömmu. Guð varð-
veiti þig um alla eilífð.
Ég votta Hirti, Nönnu og Hjördísi
Klöru og öllum ástvinum mína
dýpstu samúð í þessari miklu sorg.
Þín frænka,
Jenný Víborg og fjölskylda.
Núleggégaugunaftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mínverivömínótt.
Æ.virstmigaðþértaka,
méryfirláttuvaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson.)
Þín nýjasta vinkona,
Auður Guðmundsdóttir.
Ég fékk ekki tækifæri til að kynn-
ast Kjartani litla mjög vel. Ég
gleymi þó aldrei þegar ég sá hann
fyrst - nokkurra vikna eða mánaða
gamlan. Hann var svo ótrálega sæt-
ur og áberandi brosmildur. Þessum
eiginleikum hélt hann og voru ófáar
skemmtisögumar sem ég heyrði af
honum frá ættingjum mínum, oftast
pabba sem fannst hann alveg meiri-
háttar - eins og reyndar öllum sem
kynntust drengnum.
Það að hann sé strax farinn frá
okkur er ótrálegt. Sorgin í mínu
hjarta og hjörtum allra sem tengd-
ust Kjartani Davíð er óbærileg.
Elsku Hjörtur, Nanna og Hjördís
Klara, ég vona að þrátt fyrir þetta
áfall séuð þið eins og tréð sem bogn-
ar en brestur ekki.
Sannfæring mín er að dauðinn er
ekki endalok, heldur fyrst og fremst
nýtt upphaf.
Okkar dýpstu samúðarkveðjur,
Inga Rún og íjölskylda.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Klambraseli,
sem lést laugardaginn 12. ágúst, verður jarðsungin frá Grenjaðarstaða-
kirkju iaugardaginn 19. ágúst kl. 14.00.
Jóhannes Kristjánsson,
Kristján Jóhannesson, Kolbrún Friðgeirsdóttir,
Guðrún Jóhannesdóttir, Jón ísaksson
Ragnheiður Jóhannesdóttir, Gunnar Hallgrímsson,
og barnabörn.
+
ÞÓRARINN FJELDSTED GUÐMUNDSSON,
Ásvallagötu 17,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn
18. ágústkl. 15.00.
Þeir sem vilja minnast hans látið Hjartavernd
njóta þess.
Rannveig Sveinsdóttir.
+
Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og sonur,
ÞÓRHALLUR BENEDIKTSSON
frá Beinárgerði,
Miðgarði 5b, Egilsstöðum,
lést 12. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Egils-
staðakirkju laugardaginn 19. ágúst kl. 14.00.
Elín Björg Valdórsdóttir,
Ingibjörg Helga Þórhallsdóttir, Bjami Broddason,
Sigurveig Benedikta Þórhallsdóttir,
Jóna Sigurbjörg Þórhallsdóttir,
Helga Bjarnadóttir.
+
og
Unnusti minn, sonur okkar, fóstursonur,
bróðir,
BJÖRN HÓLM ÞORSTEINSSON,
írabakka 12,
Reykjavik,
sem lést af slysförum 9. ágúst sl., verður
jarðsunginn frá Seljakirkju í dag, fimmtudag-
inn 17. ágúst, kl. 13.30.
Edith Oddsteinsdóttir,
Járnbrá Hilmarsdóttir, Ómar Matthíasson,
Gunnlaug Hallgrímsdóttir, Gestur Þorsteinsson,
Þorsteinn Gestsson, María Þorkellsdóttir,
systkini og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HJÁLMAR KRISTIANSEN,
Álftarima 3,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugar-
daginn 19. ágúst kl. 13.30.
Guðrún Steindórsdóttir,
Gunnar Svanur Hjálmarsson, Guðrún Katla Kristjánsdóttir,
Margrét Anna Hjálmarsdóttir, Jón Rúnar Gíslason,
Dóra Kristin Hjálmarsdóttir, Magnús Hafsteinsson
og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn,
KRISTINN HALLUR JÓNSSON
frá Dröngum, Strandasýslu,
sem lést miðvikudaginn 9. ágúst, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn
18. ágúst kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeir sem vilja minnast hans láti líknarfélög
njóta þess.
Fyrir hönd bama okkar og annarra aðstandenda,
Anna Jakobína Guðjónsdóttir.
+
Jarðarför
VILHJÁMS H. JÓHANNESSONAR,
elliheimilinu Grund,
áður Freyjugötu 3b,
sem lést 4. ágúst, hefur farið fram í kyrrþey
samkvæmt ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfókls B.V.2.
Vandamenn.
+
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför
dr. BENJAMÍNS H. J. EIRÍKSSONAR.
Kristbjörg Einarsdóttir,
Þórunn Benjamínsdóttir, Magnús K. Sigurjónsson,
Eiríkur Benjamínsson,
Einar Benjamínsson, Erla Indriðadóttir,
Sólveig Benjamínsdóttir, Árni Páll Jóhannsson,
Guðbjörg Benjamínsdóttir, Gunnar Harðarson
og fjölskyldur.
Lokað
Vegna jarðarfarar GUNNARS VIÐARS ÁRNASONAR verður
verslunin lokuð frá kl. 14.00 f dag.
HllB
Bæjarlind 6,
sími 554 6300.