Morgunblaðið - 17.08.2000, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 17.08.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Island og 01- ympíuleikarnir NÚ FER að styttast í Ólympíuleikana í Sydney í Astralíu. Flestir íslensku þátt- takendanna halda utan um mánaðamótin næstu og setning leik- ana fer fram 15 sept. Alls munu átján ís- lenskir íþróttamenn keppa á leikunum en þeim til aðstoðar verða sautján þjálfarar, flokkstjórar og farar- stjóri. Við val á keppendum og rétt til þátttöku hef- ur alþjóðaólympíu- nefndin sett lágmörk sem íslensku sundmennirnir og frjálsíþróttafólkið hefur náð. Rúnar Alexandersson fimleikamaður hefur unnið sér þátttökurétt með árangri sínum í alþjóðamótum og skotmað- urinn og siglingamaðurinn fara á svokölluðu „wild card“, er m.ö.o. boðið að taka þátt í samræmi við kvóta sem viðkomandi íþróttagrein fær á leikunum. Olympíuleikar Enginn vafí er á því að hugsanleg þátttaka ---7------------------ á Olympíuleikum, segir Ellert B. Schram, er mikill hvati fyrir æsku- fólk sem leggur stund á íþróttir. Nokkur umræða spannst vegna vals á þátttakendum okkar í sundinu þar sem Sundsamband Islands setti hærri og strangari viðmiðanir en al- þjóðaólympíunefndin gerði en féll svo frá þeim kröfum þegar í ljós kom að eingöngu tveir sundmenn náðu þeim lágmörkum. Sú afstaða SSI setti íþrótta- og ólympíusambandið í nokkurn vanda en mat framkvæmdastjórnar ÍSÍ var að lokum það, að ekki væri stætt á því að hafna beiðni SSÍ um að láta alþjóðalágmörkin gilda í Ijósi þess að sú regla hefur gilt um þátttöku frjálsíþróttafólks og ÍSÍ hefur þegið boð í öðrum íþróttagreinum um þátttöku einstaklinga sem ekki hafa náð neinum tilsettum skilyrðum öðr- um en þeim að vera bestir hér á landi í sínum íþróttum. Það skal og tekið fram að íslenska sundfólkið hefur allt með tölu sett Islandsmet í sínum greinum og margbætt árangur sinn á undan- förnum misserum. Er vonandi að ágreiningi um þátttöku þessa glæsi- legu ungu sundmanna og -kvenna hafi linnt og þeim fylgi góður hugur allra þeirra sem íþróttum unna. Sannleikurinn er líka sá, að þátt- taka íslands í Ólympíuleikum snýst ekki einvörðungu um að vinna til verðlauna, heldur og að senda fram- bærilegt lið sem gerir sitt besta og er landi og þjóð til sóma. Við getum öll verið stolt af því unga fólki sem keppir undir fána íslands og mætir til Sydney í nafni lands og þjóðar. Ef markmiðið er það eitt að kom- ast á verðlaunapall er hætt við því að landslið íslands verði fáliðað á slíkum íþróttahátíðum í framtíðinni. Raun- ar er ástæða til að hafa áhyggjur af þeirri þró- un að í krafti atvinnu- mennsku, vísinda og yfirburða líkamsburða verði hinir bestu í heiminum sífellt betri og fjarlægist hinn breiða fjölda íþrótta- fólks sem við Islend- ingar erum hluti af. Ellert B. Það væri dapurleg Schram stund ef og þegar ís- land gæti ekki teflt fram íþróttafólki á Ólympíuleikum vegna þess hve aftarlega við værum á merinni. Ólympíuleikar eru íþróttahátíð, mesta íþróttahátíð ver- aldar og það er og á að vera keppi- kefli allra þjóða að eiga sér þar full- trúa í nafni sjálfstæðs og fullvalda ríkis. Jafnvel þótt sigurvon sé engin. Það væri lítið varið í þá íþrótta- keppni þar sem þeir einir tækju þátt sem geta gert sér vonir um fyrsta sætið. Enginn vafi er á því að hugsanleg þátttaka á Ólympíuleikum er mikill hvati fyrir æskufólk sem leggur stund á íþróttir. Unga fólkið í sund- inu hefði aldrei lagt á sig þrotlausar æfingar um margra ára skeið nema vegna þess möguleika að eiga von um að komast til Sydney. Það var og er hápunktur ferilsins. Einmitt í ljósi þess sem hér hefur verið tíundað hef ég reifað þá hug- mynd við samstarfsmenn mína og aðra áhrifamenn, að íþróttahreyf- ingin eigi að ýta undir áhuga ungs fólks á íþróttaiðkun og -afrekum með því að styrkja og styðja sér- staklega þá einstaklinga sem þykja framúrskarandi efnilegir í sínum íþróttagreinum. Með því að halda þeim við efnið og undirbúa jarðveg- inn fyrir Ólympíuleika framtíðarinn- ar; með því að örva þá til dáða og sýna stuðning í verki. Það er góð fjárfesting, ekki aðeins fyrir þá sjálfa, ekki aðeins fyrir íþróttirnar, heldur og fyrir þjóðina sem vill og verður að eiga verðuga fulltrúa á al- þjóðavettvangi í samfélagi þjóðanna. íslenski hópurinn í Sydney sam- anstendur af ungu fólki sem hefur lagt sig fram í íþrótt sinni, sem lofar engu öðru en að gera sitt besta. Við reisum enga loftkastala né heldur gerum við óraunhæfar kröfm-. En þetta æskufólk og aðrir sem með eru í för strengja þess heit að vera sér og þjóð sinni til sóma innan sem ut- an vallar. Höfundur erforseti Iþrótta- og ólympíusambands íslands. SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR jáfa PLÖTUR í LESTAR , fTk SERVANT PLÖTUR I I I I I SALERNISHÓLF BAÐÞILJUR ELDSHÚSBORÐPLÖTUR Á LAGER-NORSK HÁGÆÐAVARA PP &co Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚIA 29 S: S53 >640 > S68 6100 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 57 Samkvæmt nýjum kjarasamningi VR og SA eiga félagsmenn VR að fá greidda orlofsuppbót kr. 9.400 miðað við fullt starf é orlofsárinu, annars hlutfallslega. Orlofsuppbót skal greiða fyrir 15. ágúst. eflir Verzlunarmannafélag Reykjavíkur haustlitirnir NOKIA 321Q Ásamt aukahlutapakka Handfrjáls búnaður með gormasnúru og svarhnappi, taska, bílhleðslutæki og mælaborðsfestíng. 16 .980 eru komnir NOKIA 511Q Asamt aukahlutapakka Handfijáls búnaður með gormasnúru og svarhnappi, taska, bilhleðstutæki og mælaborðsfesting. 14 .980 kr. stgr. Hallarmúla 2, Rvík. Austurstræti 18, Rvik. Strandgötu 31, Hfj. Bókval, Hafnarstræti 91-93, Ak.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.