Morgunblaðið - 17.08.2000, Síða 73
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 73
FÓLK í FRÉTTUM
U mferðar öngþ veiti
KVIKMYNDAKLUBBURINN
Filmundur sýnir í kvöld myndina
„Trafic“ frá árinu 1971 eftir Jacq-
ues Tati. Myndin var sú síðasta
sem hann gerði áður en hann dó
árið 1981.
Eins og í svo
mörgum myndum
eftir Tati fylgjumst
við með ævintýrum
Monsieur Hulot
sem mætti líkja við
teiknimyndasögu-
persónuna Viggó viðutan hvað
hegðun og uppátæki varðar. I
þessari mynd hefur Hulot hannað
sérstakan útileigubíl sem hann
verður svo ásamt fylgdarliði sínu
að koma frá París til Amsterdam á
bílasýningu. Á leiðinni lenda þau í
hverjum vandræðunum á fætur
öðrum og reynist þessi barátta við
tímann og bílaumferðina erfiðari
biti að kyngja en þau bjuggust við
í upphafi. Það sem er sérlega
skemmtilegt við myndina er
hversu vel Tati tekst að gera sam-
töl sögupersóna að algjöru auka-
atriði, enda tala þær í sumum til-
vikum ekki einu sinni sama
tungumálið. I
myndinni hleður
Tati hverri spaugi-
legri senunni ofan á
aðra sem eru oft á
köflum sérstaklega
sjónrænar. Það
ætti því að vera sér-
stakt ánægjuefni fyrir kvikmynda-
áhugamenn að fá færi á því að sjá
myndina á breiðtjaldi því auðvelt
er að ímynda sér að á níðþröngum
ramma sjónvarpsskjásins verði
myndin eins og fugl í búri.
Á bak við allan ærslaganginn
má þó greina uppsafnaðan pirring
leikstjórans á tækjaþróun sam-
tíma hans - þá sérstaklega á bílum
og því óargadýri sem getur mynd-
ast þegar margir þeirra eru saman
komnir. í myndinni nýtur hann
þess t.d. að fínna sameiginleg ein-
kenni bíla og eigenda þeirra og
einnig eru atriði í myndinni sem
sýna hvað mannfólkið getur verið
undarlegt á bak við stýri.
Myndin verður sýnd í Háskóla-
bíói klukkan 22.30 í kvöld og á
mánudagskvöld.
Strákarnir á leiðinni á Borgina
Mætumst á miðri leið
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kjartan Valdimarsson, Bergþór og Helgi vel heitir fyrir
kvöldin á Borginni.
Leið Strákanna á
Borginni liggur frá
Italíu til New York.
Þeir koma víða við
og rifja upp marga
af gullnustu slögur-
um aldarinnar Hildi
Loftsdóttur til
ánægju og yndis-
auka.
AÐ eru kröftugar raddir
og engar smámelódíur
sem mæta blaðamanni í
æfingahúsnæði Strák-
anna á Borginni, eins og þeir kalla
sig nú.
Það eru stórsöngvararnir Berg-
þór Pálsson og Helgi Björns sem
eru að hita sig upp fyrir næstkom-
andi vikur þar sem þeir munu
leiða gesti Gullna salarins á Hótel
Borg um kunnugar slóðir klass-
ískra slagara, fram og tilbaka í
tíma og minningum tengdum þess-
um gullnu lögum.
Þeir standa saman á sviðinu og
rúlla upp úr sér Volare, My Way,
Sole Mio, New York, New York og
fara létt með. Þeir eru greinilega í
góðum gír, og ekki spillir kröftug-
ur píanóundirleikur Kjartans
Valdimarssonar fyrir, en kontra-
bassaleikarinn Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson og trymbillinn Pétur
Grétarsson munu svinga með þeim
á Borginni nk. laugardagskvöld
þegar söngskemmtunin verður
frumfíutt á sjálfri menningarnótt.
Helgi og Bergþór eru ólíkir töff-
arar, það fer ekki á milli mála. Og
áreiðanlega ekki sjálfgefið fyrir
flesta að rokkarinn hrjúfi og
óperusöngvarinn fágaði syngi sam-
an.
Helgi: Við fundumst hjá Stanga-
veiðifélagi Reykjavíkur.
Bergþór: Skemmtanastjórum
þar datt í hug að leiða okkur sam-
an.
Helgi: Þetta er nefnilega utan-
aðkomandi hugmynd sem gekk
svona vel upp. í framhaldi af því
hefur síminn ekki stoppað og við
höfum mikið verið að syngja á árs-
hátíðum og í alls konar veislum
síðan.
Bergþór: En okkur langaði svo,
og fannst tími til kominn, að víkka
þetta út og búa til heila tónleika-
dagskrá.
- Hvernig veljið þið lögin?
Helgi: Ég hef valið lög sem mér
hafa fundist skemmtileg í gegnum
tíðina, svona uppáhaldslögin mín.
- Þú ert dálítíð í aðaIgæjunum:
Tom Jones, Frank Sinatra, Dean
Martin.
Helgi: Já, þetta eru mjög
skemmtileg lög og ég hef allaf
hugsað með mér að einhvern tim-
ann ætti ég eftir að syngja þau og
nú er það að gerast og mér finnst
það alveg rosalega gaman.
- Hvaðan koma þín uppáhalds-
lög, Bergþór?
Bergþór: Þau koma svona úr
ýmsum áttum, allt frá safaríkum
stórum ítölskum sönglögum, sem
allir þekkja, til Memory.
Helgi: Saman erum við t.d. með
ítalska
nýklassík, ítölsk sönglög sem
hafa orðið vinsæl á síðustu árum,
eins og Boccelli-lögin. Allt mjög
falleg lög sem passa líka mjög vel í
tvísöng og fyrir okkur því við
mætumst svona...
Bergþör: ...á miðri leið.
Helgi: Hráleikinn sem ég kem
með og bel canto-söngurinn hans
Bergþórs steypast í skemmtilegt
form.
Höfðar til
margra kynslóða
- Var ekki skrýtin tilhugsun að
vinna saman, þar sem þið eruð svo
ólíkir?
Bergþór: Jú, mér fannst það
rosalega skrýtin tilhugsun, en ég
vildi það samt alveg. En svo kom
það bara í ljós að við styrkjum
hvor annan, því fólk hefur gaman
af þessi blöndu. Hún er jafnvel
svolítið skondin, eins og í sumum
ítölsku lögunum.
- Mér fínnst þið í meira stuði
þegar þið syngið dúett, en einir.
Helgi: Það er mjög skemmtilegt
samband sem myndast, enda er
rosalega gaman að syngja með
Bergþóri, og alltaf stuð hjá okkur
strákunum.
- Fylgja einhver gamanmál lög-
unum?
Helgi: Ja, ef okkur dettur eitt-
hvað skemmtilegt í hug þá látum
við það flakka, annars er þetta
söngskemmtun. En þar sem við
erum tiltölulega opnir getur ýmis-
legt gerst á sviðinu ef við erum í
stuði, sem við erum yfirleitt!!
Bergþór: Fyrst þegar við vorum
að æfa þá var Helgi svo alvarlegur
yfir þessu og ég hugsaði: „Vá,
hann ætlar að vera eins og spýtu-
karl,“ en svo opnaðist sviðið og
gæinn bara fór hamförum! Nýr
maður. Stundum hef ég misst
hann upp á borð!
- Það verður stuð?
Bergþór: Við sjáum til með það í
hvert skipti, það verður allt að
fara eftir stemmningunni.
- Hverjir munu hafa mest gam-
an af skemmtuninni?
Bergþór: Ég held að það sé al-
veg rosalega breiður hópur.
„Það hafa allir hlustað á Frank
Sinatra, Tom Jones, Dean Martin
og þessi nýju ítölsku lög, þetta eru
allt standardar og höfða til margra
kynslóða og bara allra sem hafa
gaman af því að heyra skemmtileg
lög,“ segir Helgi Björns að lokum,
og snarar sér upp á svið fyrir
næsta lag.
BRUNKA AN SOLAR!
[ TAN WIPE
brúnkuklútar
Fljótlegt
og einfalt
YX' í notkun.
Jafn litur - engir flekkir.
Utsölustaðir:
Lyf og heilsa
og helstu snyrtivöruverslanir
HeildsÖludreifing:
‘SfeCosmic ehf. Sími 588 6525
skifanJé
AUK k