Morgunblaðið - 31.08.2000, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Hj dlr eiðastígar í Garðabæ í
slæmu ásigkomulagi
Morgunblaðið/Arnaldur
Frostlyftingar eru víða í hjólreiðastígum í gömlum
hverfum.
„Eins og að hjóla
yfír mólendi“
Garðabær
BÆJARYFIRVÖLDUM í
Gai’ðabæ barst fyrr í þess-
um mánuði bréf frá Önnu
Maríu Geirsdóttur, íbúa í
Garðabæ, þar sem bent er
á að göngu- og hjólreiða-
stígar í bænum séu víða í
slæmu ásigkomulagi og
sárlega vanti stíga frá
bænum yflr til nærliggj-
andi sveitarfélaga, Hafnar-
fjarðar og Kópavogs.
Bréf hennar var tekið
fyrir á fundi bæjarráðs
þann 8. ágúst og var meðal
annars samþykkt að fela
bæjarstjóra Garðabæjar að
taka upp viðræður við
bæjarstjóra Hafnarfjarðar
og Kópavogs um stíga milli
bæjarfélaganna auk þess
sem Vegagerðin yrði höfð
með í ráðum.
Hjólað á malbikinu
Anna segir í samtali við
Morgunblaðið vonast til að
stígar verði fljótlega lag-
færðir þar sem ekki ein-
ungis sé bagalegt fyrir
hjólreiðafólk að hafa enga
eða slæma stíga til þess að
hjóla á heldur geti gang-
andi vegfarendur og fólk
með barnavagna og kerrur
einnig lent í vandræðum
vegna þessa. „Það er eng-
inn hjólreiðastígur yfir í
Kópavog. Maður hjólar
helst á malbikinu vegna
þess að úti á kantinum er
malarundirlag með grjóti
yfir og þar getur verið
hættulegt að hjóla, til
dæmis ef maður þarf að
bremsa og rennur til í möl-
inni,“ segir Anna. Hún seg-
ir að til Hafnarfjarðar liggi
göngustígar en brúnirnar á
þeim séu mjög háar og geti
það farið illa með gjarðir á
hjólum.
Frostlyftingar
í göngustígum
Anna segist einnig hafa
vakið athygli á því í bréfi
sínu að víða í bænum séu
frostlyftingar í göngu- og
hjólreiðarstígum en í bréfi
frá bænum hafi hún fengið
þær útskýringar að stígar
hafi verið lagðir án undir-
byggingar til þess að hægt
væri að nýta fjárveitingu
hverju sinni til þess að
leggja lengri stíga. ,Að
mínu viti eru þessir stígar
svo vondir að maður hjólar
ekki á þeim, maður hjólar
heldur á götunni. Ef ég tek
Silfurtúnið sem dæmi þá er
hægt að ganga eftir stígun-
um þar en á hjóli er þetta
eins og að fara yfir mó-
lendi,“ segir Anna.
Guðjón E. Friðriksson,
bæjan-itari í Garðabæ, seg-
ir viðræður hafa staðið yfir
í nokkurn tíma við Vega-
gerðina um lagningu stíga
milli Garðabæjar og nær-
liggjandi sveitarfélaga en
skiptar skoðanir séu um
það hvort Vegagerðinni
beri skylda til þess að sinna
lagningu göngustíga. Hann
segir þó fordæmi fyrir
slíku og nefnir sem dæmi
göngustíga yfir Ölfusárbrú
og víðar á landsbyggðinni
auk stíga fyrir hestamenn.
Guðjón segir að í nýjum
hverfum sem hafa verið að
byggjast upp í Garðabæ
hafi göngustígar verið
lagðir jafnóðum og þar séu
þessi mál í betra horfi en í
eldri hlutum bæjarins. Að
sögn Guðjóns er unnið að
því að lagfæra eldri göngu-
stíga í Garðabæ.
Umferðarljós sett upp við Hofsvallagötu og Hagamel
Fyrsti
skóla-
dagur án
göngu-
ljósa
Vesturbær
UMFERÐARLJÓS verða sett
upp á mótum Hagamels og
Hofsvallagötu á laugardag
að sögn Stefáns Hermanns-
sonar borgarverkfræðings.
Framkvæmdir við upp-
setningu Ijósanna hófust í
júní og voru gönguljós yfir
göturnar þá tekin niður.
Dregist hefur að setja upp ný
Ijós og er ástæðan meðal
annars sú að fyrir mistök
hófust framkvæmdir áður en
borgarráð hafði samþykkt
uppsetningu nýrra ljósa.
Gatnamótin hafa þvf verið
gönguljósalaus um nokkra
Morgunblaðið/Sverrir
Framkvæmdir eru loks hafnar við gatnamót Hagamels og Hofsvallagötu,
hríð en nú hafa nýju ljósin
verið samþykkt.
Að sögn Stefáns stóð til að
ljúka uppsetningu ljósanna
fyrir 1. september þegar
skólarnir hefjast en því mið-
ur getur ekki orðið af því
fyrr en degi síðar. Biður
hann fólk að sýna sérstaka
varúð þegar ekið er eftir göt-
unum þennan fyrsta skóla-
dag.
Hofsvallagata og Haga-
melur eru innan skólahverfis
Melaskóla og þurfa börn sem
búa vestan Hofsvallagötu að
fara yfir þá götu þegar þau
ganga í og úr skólanum.
Þróunarverkefni Hafnarfjarðarbæjar í upplýsingatækni
Skólatorg í
Oldutúnsskóla
Hafnarfjörður
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Leifur Garðarsson í tölvukennslustofu Öldutúnsskóla en
þar eru um 20 borðtölvur.
í ÖLDUTÚNSSKÓLA er nú
unnið að því að setja upp svo-
kallað skólatorg á Netinu.
Skólatorgið tekur við af
heimasíðu skólans en að sögn
Leifs Garðarssonar, forstöðu-
manns skólatorgs, verður þar
hægt að nálgast sérhæfðari
upplýsingar en á hefðbundinni
heimasíðu. „Torgið mun þjóna
foreldrum, kennurum og nem-
endum með gagnvirkari hætti
en hefðbundin heimasíða ger-
ir. Til dæmis verður hægt að
skrá foreldra og nemendur á
póstlista, foreldrar geta farið
inn á torgið og náð í stunda-
töflur bamanna og ef til vill í
framtíðinni, þegar við erum
komin yfir þessa hræðslu við
upplýsingar, verður hægt að
fylgjast þarna með mætingu
og öðru slíku,“ segir Leifur.
Upplýsingatækni
fyrir alla
Uppsetning skólatorgsins
er hlutiaf þróunarverkefni
sem Hafnarfjarðarbær
hleypti af stokkunum í vor og
nefnist Upplýsingatækni fyrir
alla en verkefnið er unnið í
samvinnu við Icecom, Opin
kerfi og Skýrr. Flensborgar-
skóli hefur einnig tekið þátt í
verkefninu og fengu nemend-
ur þaðan afhentar fartölvur
með þráðlausri nettengingu í
fyrradag. Annar angi verkefn-
isins var tenging fjölbýlishúss
í Hafnarfirði við LoftNet
Skýrr í sumar en íbúar gátu þá
verið í sítengdu netssambandi
án þess að það hindraði símtöl
þeirra. Fleira er í bígerð, m.a.
uppsetning allsherjar upplýs-
ingavefjar fyrir Hafnfírðinga
og stofnun sérstaki-ar mið-
stöðvar upplýsingatækni í
nýju bókasafni bæjarins.
Verkefnið tekið
upp í öðrum skólum
Að sögn Leifs verður skóla-
torgið að öllum líkindum tekið
inn í aðra grunnskóla Hafnai’-
fjarðar með einhverjum hætti
ef reynslan af því verður góð
hjá Öldutúnsskóla. „Við ætl-
um að gefa okkur tíma til ára-
móta til þess að koma skóla-
torginu upp í Öldutúnsskóla.
Næstu vikur og jafnvel mán-
uðir fara í að hlaða inn sér-
hæfðum upplýsingum um okk-
ar skóla og þá höfuðþætti sem
við viljum hafa á torginu," seg-
ir Leifur.
Að sögn Leifs munu kenn-
arar í skólanum verða með
heimasíður sínar inn á torginu
og geta þeir sent frá sér upp-
lýsingar sem gagnast nem-
endum og foreldrum þeirra
beint inn á torgið. Leifur segir
starfsfólk skólans vera já-
kvætt gagnvart tölvuvæðing-
unni.
„Það tekur þó tíma fyrir
starfsfólk að koma sér inn á
þessar vinnuaðferðir,“ segir
Leifur.
Að sögn Leifs er verið að
safna netföngum foreldra um
þessar mundir til að koma upp
öflugum póstlista. „Þannig
geta foreldrar fengið allar
upplýsingar frá skólanum í
sína tölvu, hvort sem það er í
vinnunni eða heima. Einnig
geta þeir haft samband við
kennara í gegnum tölvu ef
vandamál koma upp,“ segir
Leifur.
Auk Hafnai’fjai'ðarbæjar,
Icecom, Opinna kerfa og
Skýrr hafa Strik.is, Ismennt
og Tæknival einnig styrkt
uppsetningu skólatorgsins.
Selásskóli í Reykjavík er um
þessar mundir að hefja sams
konar verkefni og Öldutúns-
skóli og munu þeir vera einu
skólarnir á höfuðborgai-svæð-
inu sem setja upp skólatorg á
Netinuívetur.
rzasff
Reykjavíkurborg hyggst bæta æfíngaaðstöðu KR við Suðurgötu og Fylkis við Viðidal
™“ KR fær varanlega æfinga-
aðstöðu við Suðurgötu
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
fjallaði á þriðjudag um æf-
ingaaðstöðu knattspyrnu-
deilda KR og Fylkis og sam-
þykkti að leggja 6,6 m.kr. í að
láta ganga frá grasflöt fyrir
sparkvelli milli Starhaga og
Suðurgötu fyrir KR og að láta
gera áætlun um æfingasvæði
fyrir Fylki þar sem gerð voru
sérstök bílastæði vegna
landsmóts hestamanna í Víði-
dal í sumar.
KR hefur haft æfingavelli
til bráðabirgða á svæðinu
milli Suðurgötu og Starhaga
síðan í fyrra en samkvæmt
skipulagi er gert ráð fyrir að
þar hjá fari væntanlegt götu-
stæði framlengingar á Ægi-
síðu að Suðurgötu. í sam-
þykkt borgarráðs er gert ráð
fyrir að heimilað verði að
skipuleggja æfingar fyrir
yngri flokka félagsins á svæð-
inu þótt það verði að öðru
leyti nýtt sem almennt leik-
svæði og sparkvöllur í umsjá
Reykj avíkurborgar.
Takmarkaðir möguleikar
Samþykktin var gerð í sam-
ræmi við tillögu borgarverk-
fræðings en forsvarsmenn
KR höfðu skrifað borginni er-
indi þar sem rætt var um að
nauðsynlegt væri að bæta úr
æfingaaðstöðu félagsins til að
það gæti þjónað íbúum vest-
urbæjarins þar sem 13,9%
Reykvíkinga undir 19 ára al-
dri búa.
„Aðstaða sú sem knatt-
spyrnudeild KR hefur til æf-
inga er mjög takmörkuð,
hvort sem litið er til þeirra
þarfa sem fyrir eru, eða til
samanburðar við önnur félög.
Möguleikar KR til að þróa
starfsemina og bæta við iðk-
endum í greininni eru mjög
litlir eins og staðan er í dag,“
segir í bréfinu. „Það ástand
sem knattspyrnudeild KR
býr við gerir það að verkum
að grasvellir félagsins eru
undir miklu yfirálagi með til-
heyrandi skemmdum. Þegar
litið er til möguleika á æfing-
um fá yngri flokkamir sáralít-
ið að æfa á almennilegum
grasvöllum og félagið getur
ekki beitt sér í því að þjóna
börnum og unglingum á
svæðinu sómasamlega,“ segir
ennfremur.
Forsvarsmenn félagsins
föluðust eftir því að fá til um-
ráða svæðið milli Starhaga og
Suðurgötu við enda flugvall-
arins þar sem félagið fékk
bráðabirgða æfingavelli í
fyrra. Þetta svæði ásamt
grasflötinni við Sundlaug
Vesturbæjar gæti að nokkru
komið til móts við allra brýn-
ustu þarfir yngri flokka.
Skipulags- og umferðar-
nefnd borgarinnar hafði sam-
þykkt að heimila að gengið
yrði frá grasflöt fyrir spark-
velli við Suðurgötu. Svæðið
yrði nýtt sem almennt leik-
svæði og sparkvöllur í umsjá
Reykjavíkurborgar en lagt til
að heimilað yrði að skipu-
leggja æfingar fyrir yngri
flokka KR þar. Kostnaður er
áætlaður 6,6 m.kr. Þessa
áætlun samþykkti borgarráð.
Fylkir vill tyrfa bílastæði
Jafnframt var á fundinum
fjallað um erindi frá Fylki um
að lagt yrði torf yfir hluta bif-
reiðastæðanna sem gerð voru
vegna landsmóts hestamanna
í Víðidal í sumar og að félagið
fengi þar æfmgaaðstöðu fyrir
knattspyrnudeild sína. „Æf-
inga- og keppnissvæði Fylkis
er um 22.000 m2 en þörf fé-
lagsins er trúlega þrefalt
meiri eða um 60.000 m2,“ segir
í bréfi félagsins þar sem fram
kemur að það er líklega ein af
þremur fjölmennustu knatt-
spyrnudeOdum landsins. Fé-
lagið segir nauðsynlegt að fá
við bílastæðin um 100x100
metra svæði og að með þessu
fái félagið m.a. nauðsynlega
aðstöðu fyrir mikið og öflugt
bama- og unglingastarf og
nýti fjármuni betur.
Borgarráð samþykkti til-
lögu borgarverkfræðings um
að heimilt verði að láta gera
áætlun um æfingasvæði fyrir
Fylki þarna þannig að unnt
verði að veita fé til fram-
kvæmda á næsta ári.