Morgunblaðið - 31.08.2000, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 31.08.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 31 Bylgjandi form og’ samruni við umhverfið Arkitektinn Zaha Hadid var búin að vinna tii verðlauna og koma með margar athyglisverðar hugmyndir áður en farið var að byggja eftir teikningum hennar. Nú spretta byggingar henn- ar upp víða um heim eins og Sigrún Davíðs- dóttir sá á sýningu hennar í ICA í London. HÚN er þekkt sem arkitektirm er vann hverja keppnina á fætur annarri fyrir stórbrotnar hugmyndir sínar sem enginn vildi síðan byggja eftir. Sumir héldu því jafnvel fi'am að það væri ekki hægt að byggja eftir þeim. En það er ekki rétt. Nú rísa bygging- ar Zaha Hadid í gríð og erg. Hún er ein fárra í hópi kvenna, sem hafa náð alþjóðlegri frægð. Á fyrstu stóru sýn- ingunni á verkum hennar, sem stend- m- yfír í Institute for Contemporary Art, ICA, í London til 11. september má sjá hvers vegna verk hennar vekja oft svo sterkar tilfinningai'. Hadid er sannarlega kona sem dregur að sér athygli hvar sem hún birtist og reynir heldur ekkert að láta fara lítið fyiir sér. Þegar hún hélt fyr- irlestur hjá The Royal Geographical Society í London í sambandi við opn- un sýningar hennar sást glöggt að sá kraftur sem geislar af verkum hennar er í raun endurskin af þeim krafti og styrk sem skín af henni sjálfri. Hrafnsvart, grásprengt háriö niður á axlir þyrlast um á svörtum, þunnum og víðum opnum Issey Miyake frakka yfir svörtum nælonsamfesting. Hún er mikil um sig og bylgjandi form hennar fljóta yfir háhæluðum skón- um. Augnaráð hennar er gætt skop- skyni, en flugbeitt, umkringt skörpu arabísku andlitsfalli. Hadid fæddist í Bagdad og sem dóttir stjómmálaleiðtoga fékk hún uppeldi markað forréttindum og vest- rænum áhiifum. Hún var heilluð af kortagerð frá því hún var barn, teikn- aði kort af borgum og stöðum og frá því hún var tíu ára var hún ákveðin í að vera arkitekt. Hún lagði stund á stærðfræði við Bandaríska háskólann í Beirút áður en hún fór í nám í bygg- ingarlist við The Architectural Association í London. Hún vann í þrjú ár með hollenska arkitektinum Rem Koolhaas á Office of Metropolitan Architecture í Amsterdam, en hefur rekið eigin stofu í London frá miðjum níunda áratugnum. Endurómur frá svifgörðum Bab- ýlon og persneskum teppum Sýningunni er skipt 1 tvennt, skiss- ur og myndbönd niðri, málverk og módel uppi. Það er strax hið hadiska rými sem blasir við gestinum, því salnum er skipt í tvennt með bylgj- andi formum til að marka af rými þar sem sýndar eru teikningar hennar eins og teiknimyndir á vídeói. Það er skiljanlegt að einhverjfr hafi álitið ómögulegt að byggja nokkurn skap- aðan hlut eftir kvikum línum hennar, hvað þá hús sem standa. En vídeó- myndirnar, sem streyma í sífellu yfir einn vegginn, sýna að línur hermar eru í raun skissur, sem hægt er að leiða áfram yfir í áþreifanlegan heim byggingarefna og haldbærra bygg- inga. Formin sem Hadid er upptekin af vísa í margar áttir. Hún hefur sjálf sagt frá því hve upptekin hún var sem bam af mynstrunum á persnesku teppunum sem hún ólst upp á. Hug- urinn leitar einnig til svifgarðanna í Babýlon, sem til foma töldust eitt af Nútímalistasafnið í Cincinatti. sjö mestu furðuverkum heims. Það er oft eitthvað svífandi yfir byggingum Hadid, þar sem það era frekar lárétt- ar línur er fanga athyglina en lóðrétt- ar jarðtengdar línur. Annað sem einkennir Hadid einnig er hvemig byggingai- hennar eins og renna saman við jörðina. Þær eiga ekki að vera eins og límdar inn í um- hverfið, heldur eiga að renna inn í það. Það er eins og hún flái yfirborð jarðar frá því sem undir er og snúi því og vefji svo úr verða hús. Sjálf hefur hún sagt að byggingum hennar megi líkja við appelsínubörk, sem flett sé af í einu lagi. Samskeytalaus form sem era snúin og undin. Skissumar era innblástur og úr- vinnsluefni fyrir samstarfsfólk Hadid. Sjálf gei-ir hún gjai-nan grín að því að það sé ekki auðvelt að vinna með henni og því er auðvelt að trúa. Það er engin lognmolla í kringum hana. Henni finnst hópvinna of flókin, en hún undirstrikar að verk hennar verði til í náinni samvinnu við samstarfs- menn hennar. Þeir koma skissunum á þrívítt form, þannigað þæe fá yfirborð og áferð og verða að lokum áþreifan- legar byggingar. Málverk hennar era af öðram toga. Á þeim bregðm- fyrir sýn hennar á Berlín, London og aðrar borgir. Á þá staði sem hún hefur í huga sem bygg- ingarstaði málar hún inn byggingar ætlaðar þeim stöðum. Það er hins vegar ekki svo að málverk hennar séu natúralískar myndir í ætt við póstkort af þeim byggingum sem hún hefur í huga. Málverkin era sýn Hadid á það hvemig byggingamar gætu virkað á viðkomandi stöðum. Byggingarlist hennar hefur verið lýst sem frosnum dansi og málverkin styrkja þá skynj- un. Þau endurspegla þann kraft og hreyfingu sem byggingar hennar gætu fært umhverfinu og minna mest á rússneska framúrstefnumálara í byrjun síðustu aldar eins og Malev- itsj. Skissumar og myndbandsverkin sem sýnd era gefa glögga mynd af formhugsun Hadid. En það era mál- verkin hennar sem bræða formin og umhverfið saman. Hún sér bygging- amar greinilega ekki sem einingu er takmarkast af útlínum sínum, heldur sér hún fyrir sér það samhengi sem hún skapar með því að setja bygging- ar í samhengi við umhverfið. Þá sam- bræðslu og orkusvið sem þá verður til tjáir hún í málverkum með sprengi- krafti, þar sem yfirborð rifnar, þýtur í burtu og þyrlast út í loftið eins og splundrað gler. Margar byggingar í bígerð Eftfr að hafa unnið í mörg ár að verkefnum sem ekki náðu því að vera byggð virtist tækifærið til að koma nú loksins fram á sviðið með stórbrotna byggingu vera nærri þegar Hadid vann samkeppni um byggingu ópera- húss í Cardiff 1994. En þó hún fengi verðlaunin þóttu hugmyndimar of Brúin í Abu Dhabi. djarfar og bæjarstjómin valdi á end- anum annan arkitekt til að teikna hús, sem enn er ólokið. En byggingar Hadid era famar að rísa, mest á meginlandi Evrópu. Tvö af þekktustu verkum hennar era Vitra slökkviliðsstöðin frá 1993 í Weil am Rhein í Þýskalandi, þar sem ýmsir aðrir þekktir arkitektar hafa verið fengnir til að byggja, og bæjaríbúðir í Berlín sem voru byggðar eftir teikn- ingum Hadid árið 1993. I hinni um- deildu Þúsaldarhvelfingu í London hefur hún teiknað eitt sýningarsvæð- ið, The Mind Zone. Hún hefur einnig hannað sýningar í Guggenheim safn- inu í New York og Hayward Gallery í London, gert innsetningai’ fyrir tvíæiinginn í Feneyjum og Villa Medici í Róm, sviðsmynd fyrh- hljóm- sveitina Pet Shop Boys og hannað húsgögn. Nokkur þeitra verkefna sem hún vinnur að um þessar mundir og sem kynnt eru á ICA sýningunni era tvö söfn fyrir nútímalist, annað í Róm, hitt í Cincinnati. I Abu Dhabi er verið að reisa brú eftir Hadid og í byijun september verður opnuð bflageymsla, sem hún hefur teiknað í Strassborg. Af framtíðarverkefnum má nefna vís- indamiðstöð í Wolfsburg í Þýskalandi og ferjuhöfn í Salerno á Suður-Ítalíu. Þar sem sýningin beinist að verk- efnum sem enn era á teikniborðinu er þai' ekki mikið af myndum frá húsum, sem hafa þegar verið reist. Það er nokkur missir að þeim, því myndfr af þeim húsum Hadid, sem hafa þegar verið reist, sýna hve mikið líf bygg- ingamar fá í samspili byggingarefna og Ijóss. Formin eru aðeins upphaf að heilu ævintýri skynjana. En sýningin gefur glögga mynd af því að djarfleiki Hadid og hugmyndaflug eiga sér fáar hliðstæður. Nýjar bækur • Hvað ungur nemur...Fróðleikur fyrir foreldra til að örva þroska og námshæfni barna frá fæðingu til skólaaldurs er eftir Dorothy Einon. í bókinni er útskýrt hvað það er sem barnið tileinkár sér á hverju þroskastigi. Rætt er hvernig það skynjar umhverfi sitt á ólíkan hátt eftir aldri og sýnt hvernig það rannsakar umheiminn. Bókinni er ætlað að hjálpa foreldrum til að öðl- ast sjálfstraust til áð hjálpa barninu til að þroska hæfileika sína eftir megni. Stungið er upp á leikjum og alls kyns athöfnum. Skilningur á hlutverkum leikjanna hjálpar til við að örva barnið til dáða. Dorothy Einon kennir sálfræði við University College í London og hef- ur sérhæft sig í þroska barna. Hún lærði námssálfræði við Columbia University í New York og hefur kennt og numið barnasálfræði á ýmsum menningarsvæðum, allt frá Japan til Kanada. Útgefandi er Mál og menning. bókin er 239 bls., unnin í Portúgal. Bókin er bók mánaðarins í septem- ber og kostar 3.130 kr. Ný tímarit • Axið, tfmarit Krýsuvfkursam- takanna, er komið út. Meðal efnis í blaðinu má nefna greinar eftir Sig- rúnu Aðalbjarnardóttur prófessor og Helga Gunnlaugsson dósent, kvæði eftir Þórarin Eldjárn og þýð- ingu Gyrðis Eliassonar á bréfi sem bandaríski rithöfundurinn Raymond Carver skrifaði vini sínum um aftur- batann frá alkóhólismanum. Þá eru þar viðtöl við starfsmenn stofnunar- innar og greinar eftir Pálma Bene- diktsson meðferðarfulltrúa, Þorgeir Ólason, forstöðumann í Krýsuvík og Ólaf R. Eggertsson hjá Lions- klúbbnum Fjölni, sem skrifar um hitaveituframkvæmdir á staðnum. Þá birtist skýrsla um starfið í Krýsu- vík fyrir árið 1999 eftir Sigurlínu Davíðsdóttur, lektor og formann samtakanna. Útgefandi er Takmark ehf., Eitt N sá um umbrot og hönnun og Odd Stefán tók myndirnar. Ritstjóri er Ragnar Ingi Aðalsteinsson. Blaðið, sem er litprentað, er 48 blaðsíður og prentað í Isafoldarprentsmiðju. mbl.is Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Flokkur Lokagjalddagi Innlausnarverð* á kr. 10.000,00 1985-2.fl.B 10. 09. 2000 kr. 31.727,20 * Innlausnarverð er höfuðstóll og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Reykjavík, 31. ágúst 2000 SEÐLABANKIÍSLANDS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.