Morgunblaðið - 31.08.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.08.2000, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ í Blýantar KOMNIR eru á markaðinn Faber Castell Grip 2001 blýantar. f frétta- tilkynningu frá Andvara ehf segir að blýantarnir séu þríhyrndir og al- settir gúmmíörðum sem eigi að gera það að verkum að þeir renni ekki til við skrift. Þeir eru fram- leiddir í 5 blýhörkum og fást í bóka- og ritfangaverslunum um allt land. Fingur- tannbursti Kominn er á markaðinn einnota fingurtannbursti. í fréttatilkynn- ingu frá Húsalind ehf. segir að flúburstinn sé lítill hringlaga púði úr nælon-lykkjum og með líman- legu baki. Flúor-tannkrem er á burstanum. Púðinn er límdur á fingurgóminn og þannig notaður til tannburstunar. Púðinn er seldur á veitingastöðum, í apótekum, versl- unum Hagkaups og í íslenskum markaði. Skjávarpi HANS Petersen hefur nú hafið inn- flutning á og sölu á Kodak V600 Zoom Digital skjávörpum. í frétta- tilkynningu segir að skjávarpinn sé hannaður fyrir smærri iyrirtæki og menntastofnanir. Skjávarpinn er 3,4 kg, 1000 ANSI Lumens, með aðdráttarlinsu og tengingu fyrir tölvu, myndbandstæki og DVD- spilara. Líftími perunnar er 4000 klukkustundir. Taska fylgir með. Skjávarpinn verður fyrst um sinn á kynningarverði en hann fæst hjá Hans Petersen á Laugavegi. Sveppatiminn er í hámarki um þessar mundir Furusveppur algeng- asti matsveppurinn Sveppir hafa töluvert verið í umræðunni undanfarið, sérstaklega vegna hins baneitraða svepps viðarkveifar sem nýlega fannst á skógarstíg í Kjarnaskógi. Hrönn Indriðadóttir slóst í för með Eiríki Jenssyni líffræðingi í sveppatínsluferð 1 Heiðmörk. Lerkisveppur Morgunblaðið/Halldór Kolbeins „VAXANDI áhugi er á sveppa- tínslu hér á landi,“ segir Eiríkur Jensson líffræðingur. „Hér á landi vaxa þúsundir villtra sveppa en ein- ungis á milli 10 til 20 tegundir er vert að tína til matar. Helstu sveppatínslusvæðin í nágrenni við Reykjavík eru í Heiðmörk og um- hverfis Rauðayatn. Mjög gott er að ganga göngustígunum í Heiðmörk og stinga sér aðeins inn í skóginn en annars þarf yfirleitt ekki að fara langt því sveppir vaxa gjaman við stígkantinn.“ Helsti sveppatíminn er í ágúst og fram í september eða þangað til frysta tekur. Hattsveppir eru lang- mest áberandi í náttúr- unni og að sögn Eiríks má skipta þeim í tvennt: pípusveppi og fan- sveppi. „Best er íyrir byrjendur að átta sig á pípusveppum því auð- velt er að þekkja þá og þeir era flestir góðir matsveppir. Af pípu- sveppum má til dæmis ~ nefna lerkisvepp, furusvepp og kúalubba." Lerkisveppur er svokallaður þriggja stjarna sveppur sem þýðir að hann sé mjög góður matsveppur, að sögn Eiríks. „Hatturinn er gul- brúnn og mjög slímugur í raka en annars þurr. Stafurinn er frekar stuttur. Sveppurinn fylgir lerki- trjám og best er að tína einungis unga sveppi.“ Furusveppur er einnig þriggja stjarna sveppur og algengasti Hattsveppir eru mest áber- andi í náttúr- unni og má skipta þeim í tvennt: pípu- sveppi og fan- sveppi jÉf' * Eiríkur Jensson líffræðingur lyktar að amssveppi eða dmtreklu sem lyktar eins og lakkrís og er m.a. notaður í krydd. Slimstautuli matsveppurinn í Heiðmörk. „Hatturinn er súkkulaðibrúnn en upplitast með tímanum. Það er eins með furu- sveppi og aðra sveppi að ungu ein- tökin eru betri en þau eldri því þegar þeir eldast kemur oft maðkur í þá. Gott getur þá verið að skera sveppinn í tvennt til að ganga úr skugga um það. Hatthúðin á furusveppnum er seig og slímug. Best er að draga hana af um leið og sveppurinn er tíndur." Slímstautull nýr hér á landi Kúalubbi er tveggja stjama sveppur sem þýðir að hann er góð- ur matsveppur. Kúalubbi er ýmist ljósgrábrúnn eða dökkbrúnn. Hold- Furusveppur ST0R HUMAR Glæný laxaflök 890 kr. kg. Vestfirskur harðfiskur Stórlúða - Skötuselur - Stórar rækjur Fiskbúðin Vör! - Gæðanna vegna Höfðabakka 1 sími 587 5070 Best er að tína sveppi í körfu eða kassa þannig að loft leiki um þá. Ef túit er í plastpoka verða sveppimir að mauki. Engin ein aðferð er betri en önnur, að sögn Eiríks, þegar sveppir eru tíndir, sumir nota hnífa, aðrir slíta þá beint upp og enn aðrir snáa upp á stilk- inn þangað til hann losnar. ið er hvítt og þétt á ungum svepp- um en svampkennt á þeim eldri. Kúalubbi íylgir birkitrjám og fjalldrapa. „Þess ber að geta að hann maðk- ar fljótt og því er gott að skera hann í sundur til að ganga úr skugga um það. Slímstautull er líkt og kúalubbi tveggja stjama sveppur. Hann er nýliði í sveppafjölskyldunni en sí- fellt fleiri sveppir eru að koma fram á sjónarsviðið eftir að trjá- tegundum fjölgar hér á landi. Slím- stautull er dökkgrár og verður svartflekkóttur. Hann er þakinn þykku slímlagi og eitt af ein- kennum hans er að hattur hans hallast. Margir slímstautlar vaxa oft saman í hóp og það er hálfgert rabarbarabragð af honum.“ Loðglætingur er dæmi um óætan svepp en hann hefur brennandi beiskt bragð. Sveppurinn er rauð- bleikur og er hatturinn loðinn. Holdið er hvítt og mikið ber á honum í skógum og kjarri. Að sögn Eiríks er í langflestum tilvikum óhætt að borða bæði hattinn og stilkinn af matsveppum en hun- angssveppur er þó dæmi um svepp þar sem ein- göngu hatturinn er borðaður. Þrjár verulega eitraðar tegundir hérlendis Eiríkur ráðleggur þeim sem eru byrjendur í sveppatínslu að leita sér ráða hjá þeim reyndari fyrst. Gott sé að læra að þekkja nokkrar tegundir, t.d. nokkra pípusveppi, og bæta svo fleiri tegundum við smátt og smátt. Þá er gott að fylgja þeirri reglu að borða aldrei sveppi nema að vita nákvæmlega hvað um- ræddur sveppur heitir. „Til eru þrjár verulega eitraðar tegundir á Islandi. Viðarkveif, sem nýlega fannst í Kjamaskógi, topp- hæringur og mótrektla. Annars eru sveppir misjafnlega eitraðir. Sumir Æfleiri sveppategund- ir hafa komið fram á sjónar- sviðið eftir að trjátegundum hefur fjölgað hér á landi hafa áhrif á meltingarfæri fólks, aðrir verka á miðtaugarkerfið og enn aðrir eyðileggja nýru fólks. Lummusveppurinn, sem er algengur í lim- gerðum í Reykjavík, er dæmi um svepp sem eyðileggur nýru fólks ef hans er neytt í lengri tíma.“ Vex best í votviðri Sveppir vaxa best í “votviðri en illa í kulda og þurrki og það tekur þá einungis í kringum viku að vaxa. Aðspurður segir Eiríkur að flest- ir matsveppir séu bragðgóðir en þungmeltir og því ekki ráðlagt að hafa sveppi meirihluta matarins. Margar góðar aðferðir eru til við matreiðslu þeirra, gott er að hreinsa þá vel og steikja í smjöri og nota þannig í sósur og súpur. Hvað varðar geymslu er algeng- asta aðferðin að frysta þá en einnig er hægt að þurrka þá og salta. Nokkrar bækur eru ^ til um sveppi, meðal annars Islenskir matsveppir og Villtir matsveppir á Islandi sem gott getur verið að hafa við höndina til að leita nánari upp- lýsinga. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.