Morgunblaðið - 31.08.2000, Síða 28

Morgunblaðið - 31.08.2000, Síða 28
28' FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000’ MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Ár liðið frá blóðbaðinu í Austur-Tímor Þj óðaratkvæða- greiðslimnar minnst Dili, Jakarta. AP, AFP. ÍBÚAR Austur-Tímor minntust þess í gær að ár var liðið frá þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem samþykkt var að ríkið skyldi hljóta sjálfstæði frá Indónesíu, og óeirðunum sem fylgdu í kjölfarið. Mikil öryggisgæsla var vegna hátíð- arhaldanna og vöruðu Sameinuðu þjóðimar við því að uppreisnarliðar, sem hlynntir voru Indónesíustjóm, hefðu aukið ofbeldisaðgerðir sínar. Efnt var til bænastundar í stærstu dóm- kirkju Dili, höfuðborgar Austur-Tímor, og báðu þúsundir fyrir þeim hundrað sem létust í óeirð- um síðasta árs. Það var friðarverðlaunahafinn og biskupinn Carlos Belo sem stjórnaði athöfn- inni og sagði hann þetta ekki bara gleðistund, heldur einnig tíma til að minnast þeirra sem drepnir vora í 24 ára stjómartíð Indónesa. „Við unnum sigur - ég vona að fólk láti ranglæti for- tíðar ekki endurtaka sig,“ sagði Belo og hvatti íbúa Austur-Tímor til að fyrirgefa óvinum sín- um og hefjast handa við uppbyggingu landsins. Jose „Xanana" Gusmao, einn helsti leiðtogi þeirra sem barist hafa fyrir sjálfstæði Austur- Tímor, tók einnig til máls. Auk kirkjugesta biðu þúsundir fyrir utan og vora sumir uppáklædd- ir, aðrir bára blóm og enn aðrir sungu. „Við munum sýna öllum að hér ríkir lýðræði," sagði Gusmao sem hafði stuttu áður verið endurkjör- inn leiðtogi bandalags sjálfstæðissinna. Uppbygging mikil Talið er að um 1.000 manns hafi látið lífið í óeirðunum sem fylgdu í kjölfar þjóðaratkvæða- greiðslunnar í fyrra. í henni kusu fjórir fimmtu hlutar íbúa sjálfstæði ríkinu til handa, en Aust- ur-Tímor hafði þá verið undir stjóm Indónesíu frá því her þeirra síðamefndu réðst inn í landið árið 1975. Úm 200.000 manns era sagðir hafa farist á þessu 24 ára tímabili — ýmist sökum hungurs, sjúkdóma eða vegna undirokunar hersins. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Austur-Tímor frá því alþjóðlegar friðarsveitfi- stilltu til friðar í september í fyrra og segir fréttastofa BBC töluverða bjartsýni nú ríkja meðal íbúa. Skólastarf hefur hafist á nýjan leik, byggingar era reistar og unnið er að því að koma á lýðræðislegri stjóm með aðstoð Sam- einuðu þjóðanna. Jose Ramos-Horta, sem deildi friðarverð- launum Nóbels með Belo árið 1996 flutti í gær tölu í Santa Craz-kirkjugarðinum í Dili, þar sem blóðbað varð árið 1991. „Við eram við hvflustað þeirra sem létu lífið svo Austur-Tímor gæti öðlast sjálfstæði," sagði Ramos-Horta. Mikil öryggisgæsla var í Austur-Tímor í gær af ótta við að uppreisnarliðar myndu reyna að trafla hátíðarhöldin og í Kupang í Vestur- Tímor mótmæltu um 2.000 uppreisnarliðar fyr- ir utan skrifstofur Sameinuðu þjóðanna af- skiptum stofnunarinnar. AP Austur-tímoríski sjálfstæðisleiðtoginn Jose Ramos-Horta, t.v., og bandaríski öld- ungadeildarþingmaðurinn Tom Harkin fylgjast með dansskemmtun í Dili í gær. íslandsbanki óskar Strákunum á Borginni hjartanlega til hamingju með frábæra frumsýningu og gríðarlega aðsókn á sýninguna Vegna metaosoknar og fjöWa askoranna mun "Tveir fyrir esnr" tíiboð isíandsbanka giida a skemmtunína 5 oktober og 19. oktober, Nánari uppíýsinqar má finna á www.isfcank.is 1. Sept. Uppselt 2. sept. Uppselt 8. Sept. Uppselt 9. Sept. Hótel KEA 16. Sept. Uppselt 21.Sept. Uppselt 22. Sept. Uppselt 28. Sept. Uppselt 30. Sept. Uppselt 14. 19. 20. 21. 26. 27. 28 Okt. Okt. Okt. Okt. Okt. Okt. Okt. Okt. Okt. Okt. Okt. nokkur sæti laus Uppselt Hótel KEA nokkur sæti laus Uppselt nokkur sætl laus örfá sæti laus örfá sæti laus nokkur sæti laus nokkur sæti laus nokkur sæti laus ÍSLANDSBANKI - hluti af Íslandsbanka-FBA BOSS HUOO B O 8 8 Ósóttar pantanir eru seldar á sýningardag milli 19:00 og 22:00 á Hótel Borg slmi 551 1247 Suu Kyi enn haldið í herkví Rangoon. AP. AUNG Suu Kyi, leiðtogi lýð- ræðissinna í Burma, var enn í gær staðráðin að halda áfram ferð sinni um landið, en herforingja- stjórn Búrma hefur hindrað för hennar sl. viku. Herfor- ingjastjórnin meinar Suu Kyi að ferð- ast út fyrir Rangoon, höfuðborg Búrma, og hefur frá því sl. fimmtudag haldið Suu Kyi og föruneyti hennar í eins konar herkví á vegi við smábæinn Dala. Stjórnvöld krefjast þess að Suu Kyi haldi aftur til Rangoon og saka hana um að stefna hagsmun- um þjóðarinnar í hættu til að hljóta samúð erlendra ríkja. „Lýðræðishreyfing hennar ætti að sýna samvinnu á ábyrgan hátt til að vinna að hagsmunum þjóðarinnar í stað þess að vera með tákn- rænar athafnir sem ekki era til annars gerðar en að draga að athygli,“ sagði í yfírlýsingu stjórnarinnar. Annan áhyggjufullur Fred Eckhard, talsmaður Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær Kofi Annan, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, hafa lýst yfir áhyggjum vegna málsins. Herstjórn Búrma hefur einn- ig verið gagnrýnd fyrir her- kvína af stjórn Taflands og þá hafa utanríkisráðherrar Norð- urlandanna sent frá sér álykt- un þess efnis að brotið sé á lýðræðislegum réttindum Suu Kyi. Talsmenn Suu Kyi, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1991 fyrir lýðræðisbar- áttu sína í Burma, segja hana hins vegar ekki munu gefa eftir. Suu Kyi hefur átt í bar- áttu við herstjórnina frá því hún stóð fyrir uppreisn gegn henni árið 1988.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.