Morgunblaðið - 31.08.2000, Page 26

Morgunblaðið - 31.08.2000, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ NÁTTHAGI GARDPLÖNTUSTÖD Tilboð: Allar plöntur í pottum!!! Sitkagrenl 50- 70cm 500,- Alparifs 450,- Blótoppur 450,- Aspir lOOcm 300,- Evrópulerki 600,- Víðir 140,- Fjölpottaplöntur 35-40 stk á 1950,- af lerki, stafafuru, hvítqreni, bergfuru. Á 1700,- ösp (Salka og Keisari). Á 1500,- loövíðir, jörfavíðir og fl. vlðitegundir. „Specialpl.": Hlynur, Loökvistur, Gultoppur, Álmur, Bersarunni, Broddgreni, Askur, Hvítgreni, Gulur bambus, Ryöelri Svartelri, l^arrelri frá Kamtschatka, Klifurplöntur, Alparósir,, Gullklukkurunni frá Hokkaidó, Japanskvistur 'ÓLI', Pallir, Einir 'Kapella' o.m.fl. Uppl. s. 4834840. Heimasíða: www.natthagi.is Er allt í lagi að gróðursetja núna? Já, fram í októberl Opið virka daga OG HELGARfrá 10.00 - 19.00 S kr i fstof u tækn i 250 sttuuiir! Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj- andi störf á vinnumarkaði. Helstu námsgreinar eru: ■ Handfært bókhald ■ Tölvugrunnur ■ Ritvinnsla ■ Töflureiknir ■ Verslunarreikningur ■ Glærugerð ■ Mannleg samskipti ■ Tölvubókhald ■ Internet STARFSMENNTUN fjárfesting til framtíðar Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í öllum almennum skrifstofustörfum og eftir vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word- ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði hand- og tölvufært bókhald, glærugerð, verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum í mannlegum samskiptum og Interneti. Námið er vel skipulagt og kennsla frábær. Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjól. Steinunn Rósq, þjónustu- fulltrúi, (slenska Útvarpsfélaginu Öll námsgögn irmifalin Opið til kl. 22.00 ’ i__ y Tölvuskóli Islands Bíldshöfða 18, sími 567 1 466 \ 1 0mbl.is LLTSif2 L t T TH LT TJ Ýr r | ERLENT Indverjar láta til sín taka í heimsviðskiptum eftir Jeffrey D. Sachs © The Project Syndicate. FYRIR tuttugu árum bundu Kín- verjar enda á sjálfskipaða efna- hagseinangrun sína og breyttu gangi mála í heimsviðskiptum. Hinn mannfjöldarisinn í heiminum, Indland, hóf eigin efnahagsumbæt- ur áratug síðar. Umbætumar á Indlandi hafa verið meira smám saman, áhrifm ekki eins áberandi til að byrja með, en eftir hátt í ára- tug eru Indverjar einnig að taka sögulegt skref. Vel má vera, að á fyrsta áratug 21. aldarinnar muni meðaltekjur hvers Indveija tvö- faldast og hlutverk Indlands í heimsviðskiptum stækka verulega. Einn milljarður manna - einn sjötti af öllu mannkyni - býr á fjöl- breyttum Indlandsskaganum, á svæði sem nær frá Himalayafjöll- um yfir eyðimerkur til frjósamra dala og stórra hafnarborga, og því duga engar alhæfingar um Indl- and. Það er land sem nær yfir allt viðskiptasviðið frá upplýsinga- tækninni - þar sem Indland leggur til nokkra af heimsins bestu verk- fræðingum og forriturum - til dreifbýlisörbirgðar sem er verri en víðast annars staðar. En þrátt fyrir þessa Breidd má sjá nokkra grunn- þætti: Hagvöxtur á Indlandi hefur auk- ist síðan hafnar voru markaðsum- bætur við upphaf tíunda áratugar- ins. I marga áratugi var hagvöxturinn um 3,5% á ári, þar af hurfu 2% vegna íbúafjölgunar, en núna er hagvöxturinn 6% á ári, þar af innan við 2% vegna íbúafjölgun- ar. Með frekari umbótum gæti hag- vöxturinn farið í 9% á ári sem myndi leiða til 7% tekjuaukningar á mann, en það myndi duga til að tvöfalda tekjur hvers og eins á ein- um áratug. Þegar Indland varð sjálfstætt ríki fyrir hálfri öld kom forsætis- ráðherrann, Jawaharlal Nehru, á fót mjúkri, lýðræðislegri gerð sós- íalisma. Ríkið hélt um stjómtaum- ana í efnahagslífinu með áætlana- gerð, umfangsmiklum fjárfest- ingum og eignarhaldi á lykiliðnfyrirtækjum. Eins og alls staðar þar sem sósíalismi var reyndur var þetta ávísun á kreppu í ríkisfjármálum og hægan vöxt. Niðurstaðan kom í ljós 1991, sama ár og Sovétsósíalisminn leið undir lok. Það ár hófu Indverjar að leggja niður áætlanagerð ríkisins, opna fyrir alþjóðaviðskipti og hvetja til samkeppni á milli einkafyrirtækja. Síðan þá hafa alþjóðaviðskipti Ind- verja vaxið hröðum skrefum og heildarhagvöxtur aukist. Indverj- um tókst að sleppa alveg við fjár- málakreppuna í Austur-Asíu 1997- 99., í þriðja lagi tók einn þátturinn í arfleifð Nehrus - þróun á vísinda- Lykilatriðið er fyrir ■ndverja að halda áfram á sömu braut. Opna hagkerfið bet- ur fyrir markaðsöf I- unum og gera stór- átak í fjárfestingu í opinberu heilbrigðis- kerfi, menntun, vis- indum og tækni. legum forsendum - að bera ávöxt í frjálslyndara viðskiptaumhverfi. í fjörutíu ár fjárfestu Indverjar gíf- urlega í fjölmörgum háskólum sem eru framarlega í vísindum, sérstak- lega Indian Institutes of Techno- logy (IITs). Margii- efuðust um þessar fjárfestingar. Hvers vegna, spurðu þeir, þarf land, þar sem ólæsi er útbreitt, á að halda vísind- astofnunum á heimsmælikvarða, sérstaklega í ljósi þess að stór hluti útskriftamema flutti til Bandan'kj- anna? { Ijós kom á tíunda áratugn- um að efasemdarmennimir höfðu rangt fyrir sér. Nemendur sem út- skrifuðust frá IIT, og fóra til starfa bæði á Indlandi og Bandaríkjunum - og sérstaklega í samvinnu beggja landa - tóku forystuna í upplýs- ingabyltingunni. Indverskir verkfræðingar og frumkvöðlar era ein helsta driffjöð- urin í vexti Sflíkondalsins; þessi tengsl áttu þátt í því, að upplýs- ingatækniiðnaður á heimsmælik- varða skaut rótum á Indlandi. Út- flutningur á upplýsingatækni- afurðum frá Indlandi, einkum hugbúnaður frá upplýsingatækni- miðstöðvunum á Suður-Indlandi (Bangalore, Hyderbad og Chenn- ai), er sá þáttur útflutnings frá landinu sem vex hvað hraðast. Skínandi, nýjar skrifstofubygging- ar, með breiðbandstengingar við Net heimsins, er hvarvetna að sjá á Suður-Indlandi, og skapa gífurleg viðskiptatækifæri fyrir landið. I litlum þorpum á landsbyggðinni era þúsundir veggspjalda og skflta þar sem auglýst era námskeið í tölvuvinnslu, Netkaffihús og tæki- færi gefast í tölvuverkfræði. Þús- undir kflómetra af ljósleiðurum hafa verið lagðir um Indland þvert og endilangt og milli Indlands og annarra landa. í fjórða lagi er íbúaskipan Ind- lands að breytast í rétta átt. Ind- land var lengi frægt fyrir hraða íbúafjölgun, mikla fijósemi, mikinn ungbarnadauða og hættu á hung- ursneyð. íbúatalan hefur reyndar fimmfaldast á þessari öld, úr 200 mifljónum manna í einn milljarð. Útbreitt ólæsi og mikill ungbama- dauði stuðla að örri íbúafjölgun, með því að hvetja fjölskyldur til að eignast mörg böm til að „auka lík- umar“ á að einhver barnanna nái fullorðinsaldri. Hver móðir eignað- ist að meðaltali sex böm. Þessi íbúafjölgun gróf undan efnahagsþróun á Indlandi. Engin leið var til að fjárfesta nógu mikið í menntun og heflsugæslu fyrir hvert einasta barn. Á þessu er að verða breyting með auknu læsi meðal mæðra, bættri heilsugæslu og auk- inni lækningatækni, fjölskyldur eignast færri börn og er mun meira fjárfest í menntun hvers og eins barns. Afleiðingin er sú að dregið hefur úr fijósemi á stóram svæðum á Indlandi, og eignast hver móðir þar nú að meðaltali innan við þrjú börn, og jafnvel innan við tvö böm á sumum svæðum á Indlandi. Það dregur úr íbúafjölguninni; mennt- un bamanna eykst að meðaltali; og meðalaldur íbúa hækkar, frá því að vera mjög lágur, sem í sjálíu sér á þátt í að hækka meðaltekjur hvers einstaklings. Þessir þættir myndu styrkjast ef stjórnvöld legðu meira að mörkum til heilbrigðis- og fjöl- skyldumála. í landi sem er eins víðfemt, fjöl- breytilegt og fátækt og lndland er, og vegna þeirrar freistingar að grípa til lýðskrams fremur en raun- veralegra efnahagsumbóta, er slagkrafturinn í efnahagslegri framtíð Indlands alls ekki tryggð- ur. Engu að síður era ástæður til bjartsýni. Suðurhluti Indlands hef- ur gripið á lofti anda efnahagsum- bóta. Sprækir leiðtogar á borð við Chandrababu Naidu í Andhra Pradesh hafa sýnt öðram Indverj- um hvaða árangri er unnt að ná með góðri efnahagsstefnu. Sögur um árangur í upplýsingatækni á borð við þann sem náðst hefur í suðurhéraðunum Tamil Nadu, Kamataka og Andhra Pradesh hef- ur laðað að sér stóra, erlenda fjár- festa. Grundvallaríbúaskipan og efnahagsþróun munu ýta undir þessa þróun. Lykilatriðið er fyrir Indverja að halda áfram á sömu braut. Opna hagkerfið betur fyrir markaðsöfl- unum og gera stórátak í fjárfest- ingu í opinbera heilbrigðiskerfi, menntun, vísindum og tækni. Ef þessir frjóangar breytinga fá að vaxa mun Indland verða, líkt og Kína, einn af leiðtogum heimsvið- skiptanna, og driffjöður efnahags- framfara í heiminum. Og Indland mun gera þetta með glæsibrag - og sýna og sanna að sprækt og opið lýðræði getur verið grundvöllur efnahagsþróunar og friðar, jafnvel í mjög fjölbreyttum, fjölmennum og fátækum ríkjum. Jeffrey D. Sachs er Galen L. Stone- prófessor í hagfræði ogyfirmaður Alþjóðaþróunarmiðstöðvarinnar við Harvard-hiskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.