Morgunblaðið - 31.08.2000, Síða 45

Morgunblaðið - 31.08.2000, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 45 spennandi. Þetta var allt svo ótrú- legt. Þú hafðir meira að segja lært að synda í sjónum. Síðan hafðir þú siglt til útlanda og dvalist í Danmörku. Og farið í Menntaskólann í Reykja- vík og orðið stúdent. Og átt tíu börn. Fyrir mér varstu sko alvörukona. Þegar maður kveður ömmu sína deyr hluti af manni sjálfum. Æskan verður minni, hluti af henni brotnar af eins og strönd sem sjórinn skolar í burtu á flóði. Stóri sjór eins og Lóa litla dóttir mín segir er kominn til að bera þig á aðra strönd, óþekkta og spennandi. Ég held að við hittumst þar seinna og þá segi ég þér frá því sem á daga mína mun drífa. Elsku amma, hreiðraðu nú vel um þig með- al englanna. Þín Þdrdís Erla. í dag kveð ég ömmu mína, Ásdísi Guðbjörgu, og mig langar að minn- ast hennar í nokkrum orðum. Amma Dídí átti viðburðaríka ævi, sem ung stúlka í Vestmannaeyjum og sem móðir tíu barna, og seinna sem amma og langamma. Hún var yndis- leg amma, alltaf sallaróleg í öllum látunum og hávaðanum sem okkur krökkunum tókst að framkalla. Hún fylgdist þó með öllu sem fram fór í kringum hana en lét það þó kyrrt að skipta sér að. En það voru ekki bara við krakkarnir sem létum í okkur heyra, fullorðna fólkið var lítið skárra þegar hópurinn var saman kominn á Laugarásveginum á jólun- um eða í afmælum. Amma sat þá oft- ast í miðri stofunni, í miðjum skarkalanum, og hlustaði og fylgdist með öllu fólkinu sínu. Já, henni tókst að fylgjast með flestöllu sem fram fór hjá þessari stóru fjölskyldu og án efa naut hún þess að fylgjast með henni stækka og dafna. Amma var fjölhæf kona með hæfíleika á mörg- um sviðum og afí var duglegur að segja sögur af henni sem sífellt komu manni á óvart hvort sem um var að ræða sundafrek, leiklistar- eða teiknihæfileika, hvernig þau kynntust í Menntaskólanum og margt fleira. Amma hló stundum að þessum afrekssögum, leiðrétti þær eða samþykkti. Við sem erum af þriðju kynslóð höfum þurft að styðj- ast við og treysta á þær frásagnir sem foreldrar okkar og afi hafa sagt okkur um ömmu til að skapa heildar- mynd af þessari mögnuðu konu og þá mynd munum við alltaf geyma í hjarta okkar. Með þessum orðum kveð ég ást- kæni ömmu mína, Asdísi Guð- björgu, og þakka samfylgdina. Heiða Steinunn Olafsdóttir. Mig langar að kveðja ömmu Dídí með nokkrum orðum. Æskuheimili mitt var á Laugarás- veginum. Við nutum þess vel, ég og systkini mín, að búa svo nálægt ömmu Dídí og alltaf gátum við leitað til hennar. Frá því ég var ársgömul passaði hún mig og strax sem barn fann maður vel ró hennar og hlýju. Skært er í minningunni kaffítímarn- ir þar sem við barnabörnin hópuð- umst um kræsingarnar hennar. Nú þegar ég hef sjálf eignast barn, skil ég fyrst hve mikil hetja amma Dídí var. Ég reyni að gera mér í hugarlund hvernig daglegt líf hennar var sem húsmóðir á stóru heimili með mikinn fjölda barna og ég dáist að henni því ég veit hve vel henni fórst það úr hendi. Guð blessi þig, amma mín. Ágústa Hrönn Gísladóttir. Að sitja á ullarteppi úti í Hvammi síðdegis á sólríkum sumardegi. Drekkandi Egils djús og borðandi Frón kremkex með. Ræða garðsins leiki, gagn og nauðsynjar við frænd- systkini, afa og ömmu. Reyna enn og aftur að borða sólber, ná sér í græn- kál og enn meira djús. Þetta er sambland af hátíð og reglufestu, uppskeruhátíð hins óhverfula heims. Fyrir sjö ára polla er kaffitími í grasbala í bakgarðinum endanleg sönnun þess að heimurinn sé til fyrir hann, svona og alltaf. Þetta var hinsvegar ekki bara minn heimur, heldur okkar barna- barnanna allra, né heldur var hann alltaf. Takk fyrir heiminn okkar, amma. Megum við vera þér, afi, stuðning- ur og þátttakendur í sorginni. Halldór. Undarlegt með eilífðina hvað hún er orðin hverful og stutt í annan end- ann. Fyrir ekki svo ýkja löngu virtist hún óendanleg, óræð en þó svo ein- föld. Ég var ég og yrði alltaf, líkt og þeir sem tilheyrðu veröldinni minni, þeir voru og yrðu alltaf. Byrgið um heim minn var órofið, eilífðin nær óátekin og endalaus. Smám saman skarðast úr - þeir sem voru og yrðu eru ekki lengur. Eftir ævilanga sam- fylgd, vinarþel og traust við fjöl- skyldu okkar systkina er hér kært kvödd Dídí „mágkona". Dídí og móð- ir okkar voru reyndar ekki mágkon- ur heldur svilkonur, giftar bræðrun- um Ólafi H. og Þorsteini Einarssonum. Dídí var alla tíð mág- konan góða, öllu heldur vinkonan sem jafnan lagði gott til málanna, var hvers manns hugljúfi og einstak- lega prúð í fasi. En ótrúlega gátu þær skraflað svilkonurnar. Dídí var gullfalleg, fínleg og hljóðlát, hæverskan uppmáluð, af góðum komin og bráðgreind. Hún var Vest- mannaeyjamær og bar það með sér alla tíð, hafði til dæmis ómþýðan upptakt eða sönglanda í röddinni sem var sérstakur og einkennandi. Ásdísi var margt til lista lagt um- fram mannleg samskipti, var bók- hneigð, drátthög og fim til kvenlegr- ar iðju svo sem handavinnu sem oft er talin dútl en er oftar en ekki listi- legt handverk og á stundum hrein list. Flestu er Dídí sjálfa varðaði hélt hún þó illu heilli fyrir sig eins og margra kvenna er háttur. Þau fylgd- ust að í námi í Menntaskólanum í Reykjavík, Dídí og Steini föðurbróð- ir. Upp frá því voru þau samferða í lífinu, eins og ein manneskja, þótt hann væri farfugl að flengjast um landið en hún staðfuglinn í heima- ranni. Fljótlega eftir að þau felldu saman hugi fórú þeim að fæðast makalaust falleg og mannvænleg böm sem urðu að endingu tíu talsins. Að hugsa sér annað eins framlag til þjóðarbúsins. Varla getur það talist ígripa- eða áhlaupaverk að ala af sér, ala önn fyiir og vera fyrirmyndin í lífi tíu barna. Dídí beitti öllu sínu hugviti og kunnáttu til að kenna skaranum á lífið, en rólega og með áherslu á góða siði og fágun í fram- komu. Þessi stórmóðir hafði ekki mikinn tíma aflögu til að sinna eigin hugðarefnum, svo sem frekara námi, listhneigð sinni eða öðru viðlíka. Af- rek á sviði uppeldis eru sjaldan á torg borin hvað þá verðlaunuð af hinu opinbera. Á kveðjustund birtast ljósbrot bemskuára. Eitt slíkt greyptist í hugann, vakti undmn og virðingu og stelpuanga öðm fremur til umhugs; unar um konur og tilvem þeirra. í heimsókn á Guðrúnargötu er Dídí að finna niðursokkna í lestur franskra tímarita. Þetta var upplifun, enga konu þekkti ég þá aðra sem las frönsku sér til ánægju. Augnablikið sannaði baminu að mömmur þurftu líka sinn tíma og gátu tekið sér hann. Þessa mynd af Ásdísi Jesdóttur, ungu stúdínunni að sinna hugðarefn- um sínum, hef ég geymt. Eg sá og skildi þessa konu i nýju ljósi og man aðdáun bamsins á þessari frökku móður sem sat og las frönsku í miðj- um indjánahasar frænda minna. Þessi mamma var ekki bara mamma heldur einnig manneskja, það var málið. Börnin þeirra öll em einstak- lega mannvænleg og vom móður sinni vinir og gleðigjafar. Þorsteinn reyndist Dídí góður förunautur og rómuð er ræktarsemi hans og natni þegar heilsu hans trygga lífsfömnautar hrakaði. Ég votta Steina, frændum öllum og frænkum auk tengdafólks samúð og bið þess að allar góðar vættir geymi hana Dídí. Hennar ætti sannarlega að bíða sæluvist í huliðsheimum. Elín G. Ólafsdóttir. BJÖRN HÓLM ÞORSTEINSSON + Björn Hólm Þor- steinsson fæddist á Akureyri 1. apríl 1980. Hann lést af slysförum 9. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Seljakirkju 17. ágúst. Elsku bróðir minn, nú ertu farinn þótt erfitt sé að viðurkenna það. Ég hugsa að ég eigi aldrei eftir að gleyma því er mamma sagði mér hvað hefði skeð, það var eins og heimurinn hefði hrunið og það væri enginn tilgangur lengur. En það eina sem ég get gert er að muna allt það góða er í þér bjó og halda fast í minning- arnar sem ég á um þig. Alltaf varstu til staðar fyrir mann og gerðir allt fyrir mann alveg sama hvað það var, ef eitthvað bjátaði á varst það þú sem hjálpaðir manni í gegnum það. En ég vona að þér líði vel þar sem þú ert nú, Bjössi minn. Þín verður sárt saknað hér. Megi guð gefa okkur öllum styrk til að sætta okkur við orðinn hlut. Lokast brá, linast þrautin líkn þá hlýtur þú sem gafst svo margt, ég veit að góður guð þig geymir nú. Nú er morgunroðinn mildur Kyssir ennið kalt. Engin orð megna að lýsa Okkar ást til þín. Nú er lokuð brá, linuð þrautin Ljósið lífs þíns dvín. (Oddur Bjarni Þorkelsson.) Þín systir, Brynhildur Ösp. Elsku Bjössi. Ég spyr mig sömu spurningarinnar aftur og aftur, af hverju þú? Þú sem varst svo ham- ingjusamur og í blóma lífsins. Ég man þegar ég kom alltaf í heimsókn til Gullu systur þinnar, þá spurði ég alltaf hvar þú værir, svo beið ég alltaf eftir að þú kæmir inn úr dyrunum og þá hljóp ég á móti þér og faðmaði þig því að mér þótti svo gam- an að sjá þig. Þú varst góður vinur og vinur vina þinna. Alltaf var hægt að leita til þín ef eitthvað amaði að. En ég kveð þig nú í bili elsku frændi og við munum hittast aftur á ný., Ég votta fjölskyldu og öðrum að- standendum mína dýpstu samúð og megi guð styi-kja ykkur á þessum sorgartíma. Saknaðarkveðjur. Þín frænka, Erna Ragnarsdóttir. Elsku Bjössi besti frændi og vin- ur þá er komið af því að kveðja, ekki bjóst ég við því að þú færir svona fljótt frá okkur. Ég trúði því ekki að það hefðir verið þú sem lentir í þessu hræði- lega slysi. Ég man þegar ég kom suður og var hjá Jónda og þú fórst oft með mig í bíltúr og sýndir mér margt og gafst mér marga hluti sem ég geymi hjá mér. Ég sakna þín sárt elsku frændi. Hafið ervettvangur orku og anda, athafnasvæði og fyrirheit. Auðlindin mikla, huga og handa, hrikalegt oft - eins og margur veit. (Hjalti Friðgeirsson) Þinn frændi Aron Brimir. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR H. KRISTINSSON f.v. hitaveitustjóri, Stekkjarflöt 15, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 1. september kl. 13.30. Gunnar I. Birgisson, Þórarinn Sigurðsson, Kristinn H. Gunnarsson, Sigrún B. Gunnarsdóttir, Karl Á. Gunnarsson, Guðrún J. Gunnarsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Hafsteinn H. Gunnarsson, Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, Vigdís Karlsdóttir, María Sif Sveinsdóttir, Elsa Friðfinnsdóttir, Hjörleifur Ingólfsson, Guðlaug Bernódusdóttir, Bjarki V. Guðnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐFINNUR EINARSSON fyrrv. framkvæmdastjóri í Bolungarvík, lést sunnudaginn 27. ágúst síðastliðinn. Minningarathöfn verður í Hólskirkju í Bolung- arvík laugardaginn 2. september kl. 14. Útför fer fram frá Víðistaðakirkju ( Hafnarfirði þriðjudaginn 5. september kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga í síma 533 1088 eða minningar- sjóð sr. Páls Sigurðssonar í síma 456 7218 og 456 7195. María Haraldsdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Sigrún J. Þórisdóttir, Haraldur Guðfinnsson, Anna Rós Bergsdóttir, Guðrún Kr. Guðfinnsdóttir og barnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTfN BJÖRG GUNNARSDÓTTIR frá ísafirði, Safamýri 40, Reykjavík, lést mánudaginn 28. ágúst á Droplaugar- stöðum. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 1. september kl. 10.30. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlegast láti Barnaspítala Hringsins njóta þess. Gunnar A. Baarregaard, Katrín Guðmundsdóttir, Harald B. Alfreðsson, Ingibjörg Bergmundsdóttir, Björn B. Alfreðsson, Laura Bergs, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur sonur minn, faðir, bróðir okkar og mágur, SIGURÐUR FRÍMANN REYNISSON (SKAGAN), andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut að morgni mánudagsins 28. ágúst. Eyrún Auðunsdóttir, Aníka Eyrún Sigurðardóttir, Auðbjörg Reynisdóttir, Einar Gautur Steingrímsson, Viktor Þór Reynisson, Anna Kristín Kristófersdóttir, Jóhann Reynisson, Ingibjörg Stefánsdóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Marbæli, verður jarðsungin frá Glaumbæjarkirkju laugardaginn 2. september kl. 14. Guðrún Sigurðardóttir, Guðmundur Magnússon Guðbjörg Sigurðardóttir, Haraldur Magnússon Jón Sigurðsson, Sigurlína Sigurðardóttir, Árni Sigurðsson, Ragnheiður Guðmundsóttir Sigrún Sigurðardóttir. Hjörleifur Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. 4-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.