Morgunblaðið - 31.08.2000, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.08.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 47 sorgar og trega ykkar allra kæru vinir, sem sjáið á bak föður, vini og afa. Bænir mínar og hugur dvelja við ykkur nú. Þórdís R. Malmquist. I Sviðið er í Vogum í Mývatnssveit. Tveir menn standa „suður við hús“ hjá refaveiðistjóra Skútustaða- hrepps, Sigfúsi Hallgrímssyni. Þetta eru bróðursynir hans þeir Jón og Stefán Jónassynir, oftast nefndir Stebbi og Nóni. Tveir reiðhestar bíða þeirra, svo og klyfjahestur með vist- um til vikudvalar við grenjaleit. -Tvær haglabyssur áberandi í farangrinum. Sigfús setur þeim bræðrum fyrir og býst við þeim að viku liðinni til baka. Dýrbítur hafði valdið Vogabændum miklum skaða þetta vor, 1938, svo mikil áhersla var lögð á að vinna þau tvö greni, sem álitið var, að væru heimkynni jafnvel þeirra illvígustu refa í afréttinni, en þar voru annálaðastir þeir „Litli- Skakkur“ og „Stóri-Skakkur“, sem báðir höfðu helst af völdum skot- manna og hugsuðu manninum þegj- andi þörfina. Síðan er lagt upp frá Vogum um hádegisbil. Sólarhring síðar koma þeir bræður aftur heim í Voga, klyfjahesturinn hlaðinn yrðl- ingapokum, öll dýrin unnin á báðum grenjum, fjögur talsins. Sigfús geng- ur „sunnan úr húsi“ til móts við frændur sína og fagnar þeim mjög, er hann heyrir fréttimar, en svo undrandi var hann yfir þessum af- köstum frænda sinna, að hann mátti í fyrstu ekki mæla, þótt mælskur væri. Yrðlingamir vom síðan aldir upp í refabúri „út á engjum“, sem kallað var í Vogum og höfðum við unglingarnir þann starfa að afla þeim fæðu. II Ég sem þetta rita dvaldi í Vogum í sex sumur, 1936-1941. Mér var það þá óskiljanlegt, að tveir menn gætu unnið vikuverk á einum sólarhring, en við síðari kynni við þá Stebba og Nóna komst ég að því, að þannig vora öll þeirra störf. Ég fullyrði, að heldur vildi ég hafa annan þeirra í starfí en fjóra meðalmenn. Bú þeirra Vogabræðra, en þar var þríbýli, þeirra Jónasar Hallgrímssonar (1877-1945), Þórhalls Hallgrímsson- ar (1879-1941) og Sigfúsar Hall- grímssonar (1883-1966) vora ekki nein stórbú, þetta 80-110 ær, 2-3 kýr og 10-12 geitur. Lífsbaráttan var því hörð, 23 börn þeirra bræðra vora á lífi þau sumur, er ég dvaldi þar. En hlunnindin vora mikil. Silungur og andaregg vora það nýmeti, sem drjúgt var. Reyktur silungur seldur til KE A á Akureyri. Stebbi var nokk- ur sumur kaupamaður hluta úr sumri hjá séra Hermanni Hjartar- syni á Skútustöðum (1887-1950) og þá aðallega við heyskap úti í Mikley. Kristján Þórhallsson, þá í Vogum, nú í Björk, frændi Stebba var tíðum með honum í Mikley og kunnu þeir margar sögur af presti, er hann gekk um eyna og mælti: „Þorsteinn minn og Gunnlaugur minn,“ en gallinn var bara sá, að þeir vora aðeins þrír í eynni. Þeir sem prestur ávarpaði voru ekki þessa heims. Sr. Hermann var eins konar landsfaðir Mývetn- inga, engum ráðum þótti vel ráðið, nema leitað væri álits hans. Hann kunni oftast þau úrræði sem dugðu, er menn leituðu til hans með sín vandamál. Sr. Hermann var stór- menni, sem verður mér ávallt ógleymanlegur. III Það var um nónbil, að heyskap var lokið hjá Jónasi bónda í Vogum, síð- ustu baggamir komnir í Fjóshlöð- una, töðugjöld undirbúin, en nú var frí hjá hinum níu barna hópi Jónasar og Guðfinnu Stefánsdóttur frá Önd- ólfsstöðum. Þrátt fyrir fullan vinnu- dag ákveða þeir Stebbi og Nóni að þreyta sund yfir Mývatn, frá VogUm að Dauðanesi í landi Ytri-Neslanda. Sigfús föðurbróðir þeirra var sá eini, sem synt hafði þessa leið, en nú skyldu þeir bræður leika þetta eftir, svo hann gæti ekki einn hælt sér af sundkunnáttu og þoli. Bræðurnir Hallgrímur og Pétur Jónassynir fylgdu þeim á báti ásamt okkur Har- aldi bróður. Ekki er að orðlengja það, að Stebba og Nóna tókst að ná landi í Dauðanesi, en þar var stutt viðstaða. Stungið sér þegar til sunds aftur og áformað að synda til baka í Voga. Stefáni tókst þetta, en Jón kom upp í bát okkar er leiðin var hálfnuð til baka. Stebbi var orðinn eitthvað blár á fótum af kulda, svo við móðir hans háttuðum hann ofan í rúm og lögðum flöskur klæddar ull- arsokkum við fætur hans með eins heitu vatni og hann framast þoldi. Jafnaði Stebbi sig von bráðar. Það skal tekið fram að þeir bræður syntu báðir ósmurðir. IV Nú skellur síðari heimsstyrjöldin á 1939 um haustið og ísland hernumið 10. maí 1940. Snemma á stríðsáran- um ákveða þeir Stebbi og Nóni að halda til Reykjavíkur í atvinnuleit, því þar hafði frést af nægri vinnu, en lítil verkefni fyrir þá í Vogum. Þá var að leita til Jókabræðra á Strönd (Jó- hannesarsona á Geiteyjarströnd), því þeir vora einu menn í sveitinni, sem áttu peninga. Þeir bera upp er- indið og segjast þurfa farareyri til Reykjavíkur. Siggi á Strönd, sem hafði alla forystu á hendi fyrir þá Jókabræður, „fór í gamla kistilinn" og tók þar fram þá seðla, sem um var beðið, en bætti við: „Þurfið þið ekki meira?“ Jókar vora engum líkir, ógleymanlegir öllum, sem þeim kynntust. Síðan leggja þeir bræður af stað til Húsavíkur, taka þar Esj- una austur til Seyðisfjarðar og knýja þar dyra hjá frænku þeirra Hólm- fríði Jónsdóttur frá Múla (1890- 1970) og manni hennar Gesti Jó- hannssyni verslunarfulltrúa (1889- 1970). Þannig lýsti Stebbi heimsókn- inni til þeirra hjóna: „Við höfðum aldrei séð heimili, sem var þessu líkt. Þetta var svo glæsilegt og innbúið svo framandi, að við urðum orðlaus- ir.“ Guðfinna móðir þeirra bræðra hafði verið þónustustúlka hjá frænd- fólki sínu á Seyðisfirði áður en hún giftist föður þeirra. Þeim var því staðurinn ekki alls ókunnur. Ekki mátti sigla Esjunni nema í björtu vegna stríðsástandsins. Hernámslið- ið ákvað það. En til Reykjavíkur komust þeir bræður að lokum og réðu sig í vinnu hjá Kristni vagna- smið, þeim merka manni. Starfsstöð hans var á Grettisgötu 21. Nóni réð sig síðan til Vélsmiðjunnar Héðins, og lauk þar námi í vélsmíði, en Stefán var áfram hjá Kristni. Ég spurði hann eitt sinn að því, hvi hann hefði ekki líka farið í iðnnám, eins og Nóni bróðir hans. „Það var af því að ég kom alltaf á réttum tíma í vinnuna," var svar Stebba. Nóni hafði komið einu sinni of seint í vinnuna hjá Kristni og það var regla hjá honum að segja mönnum upp við fyrsta brot. Sveinn í Héðni kunni aftur á móti vel að meta kosti Nóna og þóttist þar hafa náð í af- burða starfsmann. Leið Stebba lá hins vegar til Mjólkursamsölunnar, þar sem varð hans aðalstarfsvett- vangur um ævina. Hinn 19. júlí 1943 gengum við Stefán Jónasson á Bláfjall í Mývatnssveit. Við voram í sumar- leyfi í Vogum og voram einstaklega heppnir með veður. Reit ég grein í Lesbók Morgunblaðsins um þennan dag, sem birtist í 59. árg., 15. tbl., hinn 14. apríl 1984, bls. 2: „Dagur sem aldrei gleymist". Við Stefán höfðum verið ágætir vinir fram að þessu, en er við litum suður af hinum 1222 metra háa toppi Bláfjalls suður yfir víðáttur Ódáðahrauns, þá geng- um við í eins konar fóstbræðralag. Ævarandi vinátta innsigluð á fjall- inu. Þó varð það svo, að á langri ævi er oft langt milli funda og svo varð einnig hjá okkur Stefáni. En fyrir nokkram áram urðu þáttaskil í lífi Stefáns. Hann, þessi gallaharði framsóknarmaður, hringir í Harald bróður minn, sem þá var fram- kvæmdastjóri Árvakurs hf., útgáfu- félags Morgunblaðsins, og pantar áskrift að Mogganum. Stefán bætir síðan við: „Segðu Leifi bróður þínum að hafa samband við mig.“ Þessu var komið til skila og síðan hófst nýr þáttur í sambandi okkar Stefáns. Tíðar heimsóknir mínar að Gull- smára 9, þar sem ég naut hinna bestu veitinga hjá konu Stefáns, Aðalheiði Hannesdóttur frá Melbreið í Stíflu. Hjónaband þeirra var fallegt, eins gerólík og þau vora að allri gerð. Stefán stórorður og oft ýkinn, en hún hógværðin sjálf og ljúfmennskan og reyndi að draga úr stóryrðum manns síns, en við Stefán áttum mjög vel saman, því ýkjur hafa jafnan verið mín sterka hlið. VI Andlát Stefáns frá Vogum kom mér ekki á óvart. Ég hafði talað við Heiðu um miðjan ágúst sl. og hún tjáð mér að nú væri heilsa hans alveg á þrotum og hann á spítala. En nú er Stebbi í Vogum allur. Þessi fágæti drengskaparmaður, sem nú heldur til Ijóssins landa, meira að starfa Guðs um geim, þarf engu að kvíða, því þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti. Ég óska honum heilla í nýjum störfum í fullri vissu þess, að er hann gengur inn um andans fögra dyr, verður við hann sagt: „Dyggi þjónn, gakk inn til fagn- aðar herra þíns.“ Blessuð sé minning Stefáns Jónas- sonar. Fjölskyldu hans sendum við hjónin okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Leifur Sveinsson. Legsteinar í Lundi 5ÓLSTE1NAR við Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 jc x x x i ixx miixiir Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 tírrx'r iiiiniiiiirt UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útf ararþj ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Baldur Frederiksen úlfararsljóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÞÓRUNN ÁSGEIRSDÓTTIR, dvalarheimílinu Höfða, áður til heimilis á Bárugötu 17, Akranesi, sem lést þann 26. ágúst sl., verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 1. september kl. 14.00. Ásgeir Samúelsson, Guðrún F. Samúelsdóttir, Samúel Þ. Samúelsson, Reynir M. Samúelsson, Sigríður K. Samúelsdóttir, Guðmundína Þ. Samúelsdóttir, Magnús Guðmundsson, Óiöf G. Kristmundsdóttir, Svanhvít E. Einarsdóttir, Guðjón Sólmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, PÁLL FRIÐFINNSSON byggingameistari, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Hlíð, Seljahlíð 13a, Akureyri, sem lést á FSA þriðjudaginn 22. ágúst verður jarðsunginn frá Glerárkirkju föstudaginn 1. september kl. 14.00. Anna Ólafsdóttir, Björgvin L. Pálsson, Anna Eiðsdóttir, Þór S. Pálsson, Ólöf J. Pálsdóttir, Tryggvi Pálsson, Bragi V. Pálsson, Hrefna Sigursteinsdóttir, Jóhannes Hjálmarsson, Aðalbjörg Jónsdóttir, Hafdís Jóhannesdóttir, Friðfinnur S. Pálsson, Inga Tryggvadóttir og fjölskyldur. t Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, FRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Fjarðarási 9, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu- daginn 1. september kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélagið Bergmál. Sigurgeir Jóhannsson, Jóhann Sigurgeirsson, Sigurður Öm Sigurgeirsson, Guðmunda Bima Ásgeirsdóttir, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, Kristín Kristjánsdóttir, Gauti Sigurgeirsson og barnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÚN JÓNSDÓTTIR, Hafrafelli, Feílum, sem andaðist 24. ágúst sl., verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju föstudaginn 1. september kl. 14.00. Jarðsett verður í heimagrafreit á Hafrafelli. Brynjólfur Bergsteinsson, Margrét Brynjólfsdóttir, Gunnar S. Björgvinsson, Jón Rúnar Brynjólfsson, Bergsteinn Brynjólfsson, Anna Heiða Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Hjartkær bróðir okkar, mágur og frændi, MAGNÚS GUÐMUNDSSON, Böðvarsgötu 2, Borgarnesi, lést á sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 25. ágúst. Útför hans verður gerð frá Borgarneskirkju laugardaginn 2. september kl. 14.00. Jarðsett verður á ökrum. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir, Ólafur Egilsson, Þórunn Bergþórsdóttir, og systkinabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.