Morgunblaðið - 31.08.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 67
-r
FÓLKí FRÉTTUM
Skemmtilega
frek krútt
Einleikurinn Stormur og Ormur fjallar um
mann sem hittir ánamaðk sem vill vera vin-
ur hans. Manninum líst auðvitað ekkert á
það. Þó maður sé einmana leggur maður
ekki lið sitt við hvern sem er... eða hvað?
I DAG kl. 17 verður frumsýndur ein-
leikurinn Stormur og Ormur í Kaffi-
| leikhúsinu. Þetta er bamaleikrit,
Íbyggt á sögu með myndum eftir
Barbro Lindgren og Ceceliu Torudd,
og er annar einleikurinn í einleikja-
röðinni „í öðrum heimi“ sem Kaffi-
leikhúsið stendur fyrir á þessu ári.
Leikgerðin er eftir Þjóðverjann
Thomas Ahrens og naut hún mikilla
vinsælda í Þýskalandi og ferðaðist í
sex ár um allt Þýskaland, til Banda-
ríkjanna, Indlands ogPakistan.
Vináttan er kjaminn
ÍÞað er leikkonan Halla Margrét
Jóhannesdóttir sem leikur Storm og
Orm í uppsetningu Kaffileikhússins
og leikstjóri er einmitt fyrmefndur
Thomas.
Halla Margrét útski'ifaðist árið
1994 frá Leiklistarskóla íslands og
hefur síðan leikið bæði norðan heiða
og sunnan og fengist við allmikið af
leiksýningum fyrir böm, auk þess að
tala inn á bamaefni og lesa fyrir böm
íútvarp.
„Vináttan er kjaminn í Stormi og
Oimi,“ útskýrir Halla Margrét.
„Leikritið er um mann sem heitir
Stormur, sem lifir mjög reglusömu
lífi, þar sem lítið óvænt gerist. Þennan
dag sem við sjáum leikritið á hann frí í
vinnunni, sem er erfitt fyrir hann því
hann vantar regluna. Hann fer út að
ganga og hittir orm sem leitar ásjár
hjá honum og Stormur hjálpar hon-
um. Við það tekst með þeim vinskap-
ur og þessi ormur breytir miklu í lífi
Storms og kemur með áður óþekkta
óvænta hluti inn í það. En ormurinn
gerir kröfur eins og lítið barn og allt í
einu er lífið gjörbreytt þótt það hafi
ekki verið ætlunin. Leikritið sýnir
manni hvemig vináttin getur tekið á
sig ýmsar myndir og hvemig það er
ekki alltaf vandalaust að rækta vin-
skapinn."
Morgunblaðið/Jim Smart
Ormur og Stormur verða góðir vinir.
- Hvað fínnst þér best við þetta
leikrit?
„Mér finnst þetta mjög falleg saga,
það er svo vel talað um vinskapinn.
Fyrir mig sem leikara er mjög gaman
að fá að leika öll hlutverkin í sýning- ■
unni. Það er bæði skemmtilegt og
krefjandi að fá að segja þessa sögu
með öllum þeim myndum sem hún
tekur á sig og ég þarf að koma til
skila.“
Pælingar barnanna
mikilvægar
- Taka bömin einhvem þátt í sýn-
ingunni?
„í rauninni ekki svo virkan þátt en
sögumanneskjan talar beint við þau
og það kemur líka inn í að þeim er gef-
inn kostur á því að svara. Og sagan er
þannig sögð að maður hleypur ekkert
fram hjá athugasemdum sem koma
utan úr sal. Maður verður samt að
svara þeim á skeleggan hátt svo böm-
in taki ekki alveg yfir,“ segir Halla
Margrét og hlær. „En þessar pæling-
ar hjá krökkunum eru mjög mikils-
verðai’ fyrir þeirra sMlning.“
- Hvernig viðbrögð hafa þau sýnt?
„Það er alltaf mjög spennandi að fá
fyrstu áhorfenduma og þá lifna sumir
hlutir sem maður tengdi ekki endi-
lega við, því það myndast þetta ósýni-
lega samtal milli bamanna og mín.
Það er til staðar þó það sé ekki alltaf í
orðum.
Bömin vom mjög ánægð og héldu
einbeitingu alveg í þessar 50 mínútur
sem leikritið tekur í flutningi og i
fundu til bæði með Stormi og Ormi.“
- En eru ánamaðkar skemmtilegir?
„ Jáhá,“ svarar Halla Margrét strax
án þess að hugsa sig um. „Þeir em
mildl krútt, svona dálítið skemmtilega
frek krútt.“
-AiRkar R.r.
Filmundur sýnir A River Runs Through It
Bróðurkærleiki
og fluguveiði
A RIVER Runs Through It eftir
Robert Redford er mynd vikunnar
hjá Filmundri en hún skartar þeim
Brad Pitt, Craig Shaiffer og Tom
Skerrit í aðalhlutverkum. Myndin er
gerð eftir skáldsögu Norman
Maclean og fjallar um predikara
nokkurn sem kennir sonum sínum að
fóta sig í lífinu og að meta gildi þess;
ástina, vinskap og sæmdina í gegn-
um fluguveiðina. Bræðui’nir eru afar
ólíkir, annar rótlaus og leitandi en
hinn jarðbundinn og staðfastur, en
hið eina sem þeir eiga sameiginlegt
er yndið af því að veiða saman.
Robert Redford hefur löngum
verið eitt af óskabörnum Hollywood.
Ljóshærður og þokkafullur hefur
hann brætt kvenmannshjörtun í
rúma þrjá áratugi og það sem meira
er þá getur hann líka leikið. Arið
1980 kom hann síðan öllum á óvart
með því að sýna fantagóð tilþrif í
leikstjórastólnum er hann gaf út sína
fyrstu kvikmynd, Ordinary People,
og fékk meira að segja Óskarsverð-
launin fyrir sem besti leikstjórinn
það árið. Ekki slæm byrjun á leik-
stjóraferli það. Síðan liðu ein átta ár
þar til næsta mynd kom út, Milagro
Benefit War, en hún stóð ekki undir
þeim væntingum sem gerðar voru til
Redfords eftir frumraunina sterku.
Hann kippti því hins vegar í liðinn
rneð sinni næstu mynd, A River
Runs Through It, sem fékk lofsam-
lega dóma er hún var frumsýnd árið
1992. Redford þykir takast listilega
vel upp að fanga fegurð náttúrunnar
og tignarleika fluguveiðinnar.
Myndin einkennist af ljúfsárri for-
tíðarþrá - lönguninni eftir tímum
þegar allt var miklu einfaldara og
maðurinn í nánara sambandi við
náttúruna. Þar eiga stærstan þátt
listileg vinnubrögð kvikmyndastjór-
ans Phillippe Rousselot sem fékk
enda Óskarsverðlaunin fyrir en hún
var einnig tilnefnd fyrir bæði tónlist
og handrit. Áhugamönnum um kvik-
myndatöku er sérstaklega bent á að
kynna sér myndina sökum þessa.
Robert Redford
hefur gert tvær
myndir síðan hann
gerði A River Runs
Through It; hina
bráðsmellnu Quiz
Show árið 1994 og
nú síðast Horse
Whisperer árið 1998. Síðar á þessu
ári er síðan væntanleg ný mynd frá
kallinum, Legend of Bagger Vance
með Will Smith og Matt Damon, en
Redford hefur undanfarin ár snúið
sér æ frekar að leikstjóminni á
kostnað kvikmyndaleiksins.
Það má til sanns vegar færa að
myndin hafi þar að auki sýnt fram á
að Brad Pitt væri leikari sem gefa
bæri nánari gaum í framtíðinni og
um margt komið honum á kortið
meðal þungavigtarleikara í Holly-
FILMUNDUR
Brad Pitt er með ólæknandi
veiðideillu í A River Runs
Through It.
wood. Fyrir hafði hann vakið athygli
í Johnny Suede og fyrir lítið hlut-
verk í Thelma And Louise en hér lék
hann í háalvarlegu hlutverki undir
stjórn sjálfs Roberts Redfords og
leysti það aldeilis vel úr hendi. I
framhaldi rigndi líka yfir hann til-
boðunum þannig að hann gat í fyrsta
sinn á ferlinum valið milli hlutverka.
^ Börhur Jónsson
myndlistarmaður
6 Hispurslausi
sextettinn
Föstudaginn 1. septeraber hl. 21 álO
á Haffi 9 í Listasafni ReyhjauíHur - Hafnarhúsinu.
cafeQ.net
TfiLsímgjörningurinn Telefónían
flsmundur flsmundsson 6 Ingi Rafn Steinarsson steikjast á
1 000 kallinn- 800 fyrir Tfllsmenn. Forsata í 12 Tónum.
TftLsmenn fá 20% afslátt
Frescahanastél á uægu
Aðsendar greinar á Netinu
ci> mbi.is
J\LLTAf= £/TTH\SA£2 A/ÝT7