Morgunblaðið - 31.08.2000, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103REYKJAVÍK,StMI 569)100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
-'ijp'
Eitt besta
berjaár
í manna
minnum
„ÞETTA er stórkostlegt berja-
ár,“ sagði Sveinn Rúnar Hauks-
son læknir og áhugamaður um
berjatínslu í samtali við blaðið í
gær. Sérfræðingar segja þetta
eitt besta berjaár í manna
minnum. Sveinn segir mikið um
bláber og góð krækiber um land
allt. Mikið sé einnig af aðalblá-
berjum þó aðeins meira þurfi að
hafa fyrir því að finna þau.
Sveinn segir sprettuna nú
mun betri en í fyrra en þá hafi
sumarið komið nokkuð seint.
„Það er hvergi langt að fara í
góð ber á þessu ári,“ segir
Sveinn. „Þau er víða að finna.“
Logi Helgason verslunar-
stjóri Vínbersins á Laugavegi
segir mikið framboð á íslensk-
um berjum, svo mikið að hann
hafi ekki getað tekið við öllu því
magni sem honum var boðið. í
Vínberinu er hægt að fá íslensk
krækiber, bláber, aðalbláber
sem og rifsber og sólber.
Verð er nokkuð misjafnt eftir
gæðum segir Logi. Verð á
krækiberjum er um 480 krónur
kílóið. Aðalbláber eru á um
1.200 krónur kílóið en handtínd
eru þau eilítið dýrari, þ.e. um
1.300 krónur kílóið. Bestu blá-
berin geta þó kostað allt upp í
1.600-1.700 krónur kílóið.
Logi tekur undir að berjaárið
sé mjög gott og segir framboð
töluvert meira nú en í fyrra.
Gæði berjanna telur hann mikil.
Logi segir íslensku berin vin-
sælli en þau erlendu.
Víruspest
► aðganga
í borginni
VÍRUSPEST er að ganga í
Reykjavík, að sögn Atla Arnason-
ar, yfirlæknis í Heilsugæslustöð-
inni í Grafarvogi. Hann segir að
hér sé ekki um hefðbundna in-
flúensu sé að ræða enda sá árstími
ekki kominn. Pestin lýsi sér í hita,
beinverkjum og kvefeinkennum og
jafnvel iðrakvefi. Einnig sé í gangi
talsvert mikið af matarsýkingum.
„Fólk er að koma erlendis frá
með salmonellu- og kampýlóbakt-
ersýkingar. Það er þó enginn far-
aldur í gangi,“ segir Atli.
Hann segir að undirbúningur sé
að hefjast fyrir bólusetningu fyrir
inflúensu og hefst bólusetningin
líklega um mánaðamótin septem-
ber-október.
Þjóðardag-
ur Islands á
Expó 2000
ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti
íslands og Dorrit Moussaief heit-
kona hans heilsuðu m.a. upp á ís-
lenska hestamenn og klára þeirra
á þjóðardegi íslands á Heimssýn-
ingunni í Hannover í gær. Dagskrá
þjóðardagsins hófst snemma í gær-
morgun með söng Karlakórsins
Heimis og við tók viðburðarík
menningardagskrá þar sem um
160 islenskir listamenn komu
fram. Meðal atriða var sýning
Þjóðleikhússins á Sjálfstæðu fólki,
Kammersveit Reykjavíkur hélt
tónleika og kvikmyndin Englar al-
heimsins eftir Friðrik Þór Frið-
riksson var frumsýnd í Þýskalandi.
Dagskránni lauk með tískusýningu
Futurice, sýningu Dansleikhúss
með ekka og tónleikum hljómsveit-
arinnar Sigur Rós. Mjög góð að-
sókn var að menningardagskránni
á þjóðardeginum.
■ „Eins og á... “/ 6
Ummæli utanrflrisráðherra í Jótlandspóstinum vekja athygli
Hlýtur að reyna á
vilja Evrópuþjóða
H AFT er eftir Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra í frétt sem .birt
var á forsíðu netútgáfu Jótlands-
póstsins í Danmörku í gær að um-
ræða væri innan Evrópusambands-
ins um að auka tilslakanir innan
þess. Hann sjái enga fyrirstöðu fyrir
því að Island gæti fengið sérlausn
frá sjávarútvegsstefnu ESB, með
sama hætti og sambandið hefði veitt
vegna fiskveiða í Miðjarðarhafi. Við-
talið var tekið við Halldór á fundi ut-
anríkisráðherra Norðurlandanna í
Middelfart í Danmörku, í gær og
hafa ummæli hans um hugsanlega
ESB-aðild vakið athygli. Er m.a.
vitnað til þeirra í netútgáfu Aften-
posten í Noregi í gær.
Morgunblaðið bar frétt Jótlands-
póstsins undir Halldór er hann kom
til landsins í gærkvöldi. Halldór
sagðist hvergi hafa sagt að ísland
myndi ganga í ESB. Tilvitnuð um-
mæli sem eftir honum væru höfð í
Jótlandspóstinum væru ekki röng
en viðtalið hefði verið stytt og ekki
að öllu leyti í réttu samhengi við það
sem hann hefði sagt.
„Ég sagði að það væri staðreynd
að það væru sérstakar lausnir fyrir
ákveðna aðila, bæði að því er varðar
Miðjarðarhafið og eins Azoreyjar og
Kanaríeyjar. Það eru einnig sér-
stakar lausnir varðandi landbúnað
norður við heimskautsbaug. Hvort
þær lausnir eru fullnægjandi er allt
annað mál,“ sagði Halldór.
„Það hlýtur að vera ljóst að ef ís-
Ljósmynd/Christian Augustin
SIF tapaði 575
milljónum króna
TAP af rekstri SÍF hf. fyrstu 6 mán-
uði þessa árs nam 574,9 milljónum
króna, en hagnaður á sama tíma í
fyrra var 50,9 milljónir króna.
Helztu skýringar þessa mikla taps
eru ijórar; mjög hátt verð á ferskum
laxi, gengistap, bæði vegna hás geng-
is krónunnar og hás gengis dollars
gagnvart evru, meiri kostnaður við
samruna IS við SIF en áætlað hafði
verið og erfitt rekstrarumhverfi í
Noregi.
Byijað að rofa til
í rekstrinum í Frakklandi
Gunnar Öm Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri SIF, segir að megnið
af tapinu megi rekja til aðstæðna í
Frakklandi, en þar sé þegar farið að
rofa til. Samruninn sé að byrja að
skila sér og verð á laxi til reykingar
hafi þegar lækkað verulega. Þá segir
hann að reksturinn í Bandaríkjunum
gangi vel og skili líklega hagnaði á ár-
inu og að starfsemi félagsins í Kan-
ada gangi nú betur en í fyrra.
Tapið er mun meira en gert var ráð
fyrir í rekstraráætlun félagsins, enda
var geftn út afkomuviðvörun fyrir
nokkru. Rekstrartekjur námu alls
26,2 milljöðrum króna, en 9,6 millj-
örðum á sama tíma í fyrra, en hinn 1.
júlí í fyrra sameinuðust SÍF hf. og ÍS
hf. Útflutningur SÍF jókst engu að
síður umrætt tímabil og hefur félagið
aukið hlutdeild sína í útflutningi og
er þá miðað við útflutning félaganna
beggja á þessum tíma á síðasta ári.
Starfsemi SÍF í Frakklandi bygg-
ist að stórum hluta á reykingu á laxi,
en þar rekur félagið eina fullkomn-
ustu reykingarverksmiðju Evrópu.
Verð á laxi til reykingar hækkaði um
tugi prósenta frá síðasta hausti og
fram á mitt þetta ár. Síðan hefur
verðið snögglækkað á ný og útlitið
því betra nú í haust að sögn Gunnars
Arnar.
■ Flest bendir til/B4
lendingar sækjast eftir aðild, sem ég
ætla ekki að fullyrða um á þessu
stigi, þá getur það ekki gengið upp
nema það finnist lausn sem er viðun-
andi fyrir íslenskan sjávarútveg.
Það hlýtur fyrst og fremst að reyna
á vilja annarra Evrópuþjóða í því
sambandi,“ sagði Halldór ennfrem-
ur.
Nánar aðspurður um þau ummæli
sem Jótlandspósturinn hefur eftir
honum að hann teldi að ekkert stæði
í vegi fyrir því að Islendingar gætu
samið um undanþágur frá sjávarút-
vegsstefnu sagði Halldór: „Ég tel að
það sé undir Evrópusambandinu
komið hvort það gerist eða ekki. Ég
get að sjálfsögðu ekki fullyrt um það
og hef engar vísbendingar um það af
eða á. Það er alveg ljóst að á það
mun ekki endanlega reyna fyrr en
og ef til viðræðna kæmi. En það er
of snemmt að segja til um það. Fyrst
þurfum við að gera það upp við okk-
ur. Ríkisstjórnin hefur ekki tekið
neina slíka ákvörðun og minn flokk-
ur hefur ekki heldur ekki tekið neina
slíka ákvörðun. Við erum að fara út í
þessa vinnu til þess að svara erfiðum
og krefjandi spurningum sem við
stöndum frammi fyrir.“
Hugsanleg aðild
Norðmanna sjálfstætt mál
Einnig er haft eftir Halldóri í frétt
Jótlandspóstsins að Island færðist
stöðugt nær ESB og hugsanlega
myndi Island verða á undan Noregi
til að leggja inn aðildarumsókn.
Halldór sagði við Morgunblaðið
að hann hefði lagt á það áherslu að
hann teldi að hugsanleg aðild Norð-
manna væri alveg sjálfstætt mál.
„Hins vegar tel ég að umræðan í
Noregi muni leiða til þess að það sé
líklegt að Norðmenn muni sækja um
aðild. En hvenær það verður get ég
ekki neitt fullyrt um. En umræðan í
Noregi er að breytast mjög mikið og
það er alveg ljóst að þjóðaratkvæða-
greiðslan í Danmörku getur haft þar
veruleg áhrif. Ef Danir og Svíar
verða aðilar að evrunni þá hefur það
áhrif bæði á stöðu Norðmanna í
Evrópusamstarfínu og jafnframt á
stöðu okkar,“ sagði hann.
í fyrirsögn fréttar Jótlandspósts-
ins segir að ísland stefni að aðild að
ESB. Halldór segir að þetta séu
ekki hans orð og þar gangi blaðið of
langt.
-------------------
Baldur
steytti
á skeri
FER JAN Baldur rakst á sker er hún
átti eftir fárra mínútna siglingu til
Flateyjar, rétt fyrir níu í gærkvöldi.
Að sögn Guðmundar Lárussonar,
framkvæmdastjóra Baldurs, kom
gat á stafnhólf skipsins og miklu verr
hefði getað farið. Var förinni þegar
haldið áfram til Flateyjar. Baldur
var kominn í höfn í Stykkishólmi
seint í gærkvöldi.
Guðmundur sagði að nokkrir
þeirra sem voru um borð hefðu slas-
ast við áreksturinn, hann hefði vitn-
eskju um þrjá, en hann vissi ekki
hversu alvarleg meiðsl fólksins voru.