Morgunblaðið - 20.09.2000, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tekinn
með 1,1 kg
af hassi
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug-
velli handtók síðastliðinn sunnudag
26 ára gamlan íslending sem var
að koma frá Frankfurt með 1,1 kg
af hassi. Maðurinn var í yfirheyrsl-
um í fyrrinótt og langt fram á dag
og hefur viðui'kennt að vera eig-
andi að hassinu. Fíkniefnadeild
lögreglunnar tók við rannsókn
málsins sem nú telst upplýst og
hefur maðurinn verið leystur úr
haldi. Ekki þótti þjóna rannsókn
málsins að fara fram á gæsluvarð-
hald yfir honum. Gera má ráð fyrir
að söluverð hassins, hefði það kom-
ist á markað, væri á fjórðu milljón
króna. A þessari stundu er enginn
annar talinn tengjast málinu en
maðurinn kom frá Amsterdam með
millilendingu í Frankfurt.
A þessu ári hefur Tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli gert upptæk 10
kg af hassi, 1,5 kg af amfetamíni,
um 6.000 e-töflur og 400 g af kóka-
íni. AIls eru fíkniefnamálin sem
Tollgæslan hefur fengist við orðin
26 á þessu ári.
----------------
Meint fíkniefnamisferli
í varðskipum
Ekki rann-
sakað frekar
LÖGREGLUSTJÓRINN í
Reykjavík hefur komist að þeirri
niðurstöðu að fullyrðingar nafn-
lausra heimildarmanna í fjölmiðl-
um um neyslu fíkniefna um borð í
varðskipum Landhelgisgæslunnar
eigi ekki við rök að styðjast. Við
rannsókn lögreglunnar kom ekkert
fram sem studdi þessar fullyrðing-
ar, né heldur þær að áform hefðu
verið uppi um smygl á fíkniefnum
með varðskipunum. Því séu engin
tilefni til frekari rannsóknar.
Forstjóri Landhelgisgæslunnar
og Tollstjórinn í Reykjavík óskuðu
eftir lögreglurannsókninni 24.
ágúst sl. Að sögn Harðar Jóhann-
essonar yfirlögregluþjóns er óstað-
fest að svo stöddu með hvaða hætti
framangreindar upplýsingar kom-
ust til vitundar fjölmiðla.
Morgunblaðið/Jón Svavarason
Stundvísi Flugleiða
f júlímánuði
A réttum
tíma í 80%
tilvika
SAMKVÆMT niðurstöðum
rannsókna Evrópusambands
flugfélaga, AEA, á stundvísi í
millilandaflugi voru Flugleiðir
þriðja stundvísasta flugfélagið
í Evrópu í júlí síðastliðnum.
Vélar Flugleiða fóru í loftið á
réttum tíma í 80,7% tilvika en
meðaltalið hjá evrópskum
flugfélögum var 67,5%, að því
er fram kemur í tilkynningu
frá Flugleiðum. Þegar fyrstu
sjö mánuðir ársins eru skoð-
aðir verma Flugleiðir fjórða
sætið af 24 helstu flugfélögum
Evrópu, með 80,4% stundvísi.
Samkvæmt sömu rannsókn
voru Flugleiðir stundvísastar
af þeim 18 félögum sem flugu
yfir Norður-Atlantshafið í júlí.
Forsvarsmenn félagsins segja
að þessi árangur í mánuðinum
sé mikilvægur í ljósi þess að
þá hafi í tvígang orðið umtals-
verðar seinkanir sem töluverð
umræða hafi spunnist um hér-
lendis. Sú umræða hafi ef til
vill gefið villandi mynd af
heildarframmistöðu félagsins.
Öfaglært starfsfólk
felldi kjarasamning
Einn
og yfir-
gefinn
ÞETTA trippi stóð dálítið eitt og yf-
irgefið í Skaftafelli þegar ljósmynd-
ari Morgunblaðsins var þar á ferð.
Þótt veður liafi verið ágætt á
landinu í gær er nú að nálgast sá
tími ársins þegar allra veðra er von.
Samkvæmt nýlegum reglum um
meðferð dýra ber eigendum úti-
gangshrossa skylda til að sjá um að
þau eigi kost á skjóli sem ver þau í
verstu veðrum. Þetta trippi verður
hins vegar án efa í húsaskjóli í vet-
ur og losnar þvi við kaldan gustinn
sem berst frá jöklinum á köldum
vetrardögum.
ÓFAGLÆRT starfsfólk sjúkra-
hússins á Selfossi hefur fellt ný-
gerðan kjarasamning við ríkið með
miklum meirihluta. Allt stefnir því í
verkfall 29. þessa mánaðar.
Alls tóku 39 þátt í atkvæða-
greiðslu um samninginn og sögðu 10
já, 28 nei og einn skilaði auðu. Rúm-
lega 50 ófaglærðir vinna við sjúkra-
húsið og tilheyra þeir Verkalýðsfé-
laginu Bárunni/Þór á Selfossi.
Gunnar Björnsson, formaður
samninganefndar ríkisins, segir að
niðurstaðan í atkvæðagreiðslunni
komi sér mjög á óvart. Deilan hafi
verið í hnút þar til ríkissáttasemjari
hafi lagt fram tillögu sem síðan var
samið eftir. Hann telur ríkisvaldið
ekkert svigrúm hafa til frekari
launahækkana umfram það sem
samið hafi verið um við aðrar stéttir.
Gunnar sagðist telja boðun verk-
falls vera á mörkum þess að vera
lögleg, enda væru í gildi lög frá ár-
inu 1915 sem bönnuðu verkföll opin-
berra starfsmanna, væru þau ekki í
þágu almennings. Hann taldi hugs-
anlegt að samninganefndin léti
reyna á lögmæti verkfallsboðunar-
innar fyrir félagsdómi.
Ingibjörg Sigtryggsdóttir, for-
maður Bárunnar/Þórs, sagði hins
vegar að lögfræðingur félagsins
teldi ekkert athugavert við verk-
fallsboðunina. Hún sagðist að
óbreyttu ekki vera bjartsýn á lausn
deilunnar og taldi að kæmi til verk-
falls myndi það lama alla starfsemi
sjúkrahússins.
Ríkissáttasemjari hefur boðað til
samningafundar í deilunni á mið-
vikudag, eftir viku.
1,1% atvinnuleysi í ágúst
ATVINNULEYSISDAGAR í ágúst
sl. jafngilda því að 1.642 manns hafi
að meðaltali verið á atvinnuleysis-
skrá í mánuðinum, samkvæmt upp-
lýsingum Vinnumálastofnunar. Þar
af eru 537 karlar og 1.105 konur.
Þessar tölur jafngilda 1,1% af áætl-
uðum mannafla á vinnumarkaði,
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar.
Að meðaltali voru 18 fleiri atvinnu-
lausir en í júlímánuði, en um 770
færri en í ágúst í fyrra.
Síðasta virka dag ágústmánaðar
voru 1.735 manns á atvinnuleysis-
skrá á landinu öllu en það er um 232
færri en í lok júlímánaðar. Síðast-
liðna 12 mánuði voru um 2.069 manns
að meðaltali atvinnulausir eða um
1,5% en árið 1999 voru þeir um 2.602
, eða um 1,9%. Hlutfallslegt atvinnu-
leysi er það sama og í júlí sl. en það
var 1,7% í ágúst í fyrra.
Atvinnuleysi á landsbyggðinni
eykst nú í heild um 5,5% milli mán-
aða en er um 26,1% minna en í ágúst í
fyrra. Atvinnuleysið nú nemur 0,8%
af mannafla á landsbyggðinni eða
sama hlutfalli og í júlí sl. Atvinnu-
leysið á landsbyggðinni var um 1,1%
í ágúst í iyrra.
Atvinnuástandið batnar iðulega í
september frá því í ágúst. Undanfar-
in 10 ár hefur atvinnuleysið þannig
minnkað um 10,6% að meðaltali frá
ágúst til september. í fyrra minnkaði
atvinnuleysið um 17,6% milli þessara
mánaða og um 10% árið 1998. At-
vinnuleysið var 1,4% í september í
fyrra. Atvinnulausum í lok ágúst hef-
ur fækkað um 232 frá því í lok júlí.
Lausum störfum í lok mánaðar hefur
fjölgað talsvert frá því í júlílok, eink-
um á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða
því að verulega fækkai' á vinnumark-
aði í september er mikil spurn eftir
vinnuafli víða á vinnumarkaðinum.
Líklegt er því að atvinnuleysið
minnki í september. Búast má við að
atvinnuleysið í september verði
nokkuð minna en það var í ágúst og
geti orðið á bilinu 0,7% til 1,0%.
Atvinnuleysi frá júlí 1998 til ág. 200C
► í VERINU í dag er m.a. greint frá gloppóttri þorskveiði
út af Vestfjörðum, sagt frá viðbrögðum sjávarútvegsráð-
herra vegna aukins útflutnings á óunnum físki og farið
yfír stöðuna á smábátaflotanum.
Chelsea Clinton sá Jakob Jóhann
setja Íslandsmet/B6
Vala og Þórey Edda þurfa að setja
Íslandsmet/Bl
Þ Teiknimyndasögur
► Myndir
► Þrautir
► Brandarar
► Sögur
► Pennavinir