Morgunblaðið - 20.09.2000, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 20.09.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 45 FRÉTTIR AP Hans G. Andersen ræðir við Gerald Ford Bandaríkjaforseta í Hvíta hús- inu. Akveðið hefur verið að efna til söfnunar fyrir brjóstmynd af honum til að koma fyrir í húsakynnum fyrirhugaðrar Hafréttarstofnunar við Háskóla íslands. I Hyggjast gera brjóst- mynd af Hans G. Andersen MORGUNBLAÐINU hefur horist eftirfarandi fréttatilkynning: „Fyrir nokkru var tekin ákvörðun um að koma á fót Haf- réttarstofnun við Háskóla Islands. I tilefni þess ákváðu nokkrir vinir Hans G. Andersen heitins, þjóð- réttafræðings og sendiherra, að gangast fyrir gerð brjóstmyndar af Hans, sem komið verði fyrir í húsakynnum væntanlegrar Haf- (réttarstofnunar. Leitað hefur ver- ið til nokkurra stofnana, fyrir- tækja og einstaklinga við já- kvæðar undirtektir. Hans G. Andersen var einn fær- asti og þekktasti sérfræðingur heims á sviði hafréttarmála. Hann hafði jafnan þekkingarlega for- ystu fyrir sendinefndum Islands á alþjóðlegum hafréttarráðstefnum, hafði ómæld áhrif á inntak, texta- gerð og framþróun alþjóðlega Ihafréttarsáttmálans, Sakir þeirr- ar virðingar og trausts sem hann naut meðal erlendra sérfræðinga og annarra forystumanna í haf- réttarmálum, tókst honum öðrum mönnum fremur að móta og sníða þann sáttmála að hagsmunum Is- lendinga. Hans var aðalráðgjafi allra þeirra íslensku ríkisstjórna, sem unnu að setningu iaga og reglugerða um útfærslu fiskveiði- Iögsögunnar í 12, 50 og að lokum í 200 sjómflur. Ahrifavald Hans G. Andersen byggist ekki eingöngu á djúpstæðri fræðilegri þekkingu hans, heldur engu að síður hyggjuviti og hæfileikum til að vinna aðra til fylgis við góðan málstað, oft með stuttum, gagn- orðum og leiftrandi athugasemd- um, sem hittu beint í mark, sagð- ar á kíminn og kankvísan hátt. Velta mætti fyrir sér, hver staða íslensks sjávarútvegs og efnahags þjóðarinnar væri, ef ekki hefði notið manna á borð við Hans G. Andersen. Forystumenn í íslenskuin sjávarútvegi munu vafalaust eigi síst fagna að fá tækifæri til að heiðra minningu þessa velgjörðamanns síns. Listamanninum Helga Gíslasyni myndhöggvara hefur verið falið að annast gerð brjóstmyndarinn- ar. Söfnun framlaga til þessa verkefnis stendur enn yfir (reikn- ingur hjá Íslandsbanka-FBA hf., nr 515-14-603215). Þeir sem vilja ljá máli þessu lið er vinsamlegast bent á að hafa sambaud við um- sjónaraðila söfnunarinnar, Svein Aðalsteinsson viðskiptafræðing. Nöfn stuðningsaðila munu verða skráð á þar til gerða töflu (tabula).“ Snyrtistofa fiytur í Stúdíó hár og húð INGIBJÖRG Gunnarsdóttir snyrti- fræðingur hefur flutt snyrtistofu sína í húsnæði Stúdíós hár og húð, Fjarðargötu 17, Hafnarfirði. Ingibjörg vinnur með franskar snyrtivörur, Ella Baché, sem einnig eru seldar á stofunni ásamt amer- ískum förðunarvörum. Sjúkraþj álfarar vilja að há- markshraði velti á aðstæðum FELAG íslenskra sjúkraþjálfara hefur sent frá sér eftirfarandi álykt- un: „Stjórn FÍSÞ harmar þau mörgu alvarlegu umferðarslys sem orðið hafa á vegum landsins á þessu ári. Fjöldi dauðaslysa í umferðinni er alls óviðunandi og margir sem lifa af alvarleg umferðarslys horfast í augu við vai-anlega fötlun og þurfa langa og erfiða endurhæfingu til að komast út í þjóðfélagið á ný. Stjórnin vottar öllum sem eiga um sárt að binda Ivegna umferðarslysa sína innileg- ustu samúð. Stjórnin telur að stórátaks sé þörf til að draga úr tíðni alvarlegra um- ferðarslysa. Að mati stjórnarinnar er ljóst að víða þolir vegakerfi landsins ekki þann hámarkshraða sem í gildi er á þjóðvegunum. Löglegur hámarks- hraði verður að vera breytilegur eft- ir ástandi vega líkt og gerist í þétt- býli þar sem hámarkshraði getur I verið frá 30 km upp í 70 km hraða á klukkustund eftir aðstæðum. Stjórnin hvetur alþingismenn til ’ að beita sér fyrir breytingum á lög- um um hámarkshraða á þjóðvegum landsins þannig að hann verði breytilegur eftir ástandi vega. Stjórnin hvetur einnig til þess að samtímis breytingum á lögum um hámarkshraða verði stórlega bætt við merkingum og aðvörunarskiltum á vegum. Þá hvetur stjórnin dómsmálaráð- herra og samgönguráðherra til að vinna að því að hið fyrsta verði sett upp æfingasvæði þar sem ökumönn- um gefst kostur á kennslu og þjálfun. Stjórnin hvetur ökumenn til að sýna aðgát og ábyrgð við akstur. Líf og heilsa eru ómetanleg og mistök í akstri geta verið dýrkeypt. Úrlausnir í umferðarmálum lands- ins þola enga bið.Við megum ekki missa fleiri í umferðarslysum." Fyrirlestur um lýsingu í verslunum JANET Turner lýsingarhönnuður heldur fyrirlestur um lýsingu í versl- unum fimmtudaginn 21. september kl. 16 í Salnum, tónlistarhúsi Kópa- vogs. Hún er hingað komin í boði S. Guðjónson, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Janet Turner var lengi aðallýs- ingahönnuður hjá Concord SLI sem er eitt þekktasta fyrii’tækið á sviði lýsinga í Evrópu og hefur m.a. sér- hæft sig í verslunarlýsingu. Turner starfar nú sjálfstætt sem alþjóðlegur lýsingarhönnuður, ráð- gjafi og fyrirlesari. Hún hefur gefið út þrjár bækur um lýsingarhönnun og fjallar sú nýjasta um lýsingu í verslunum. Á fyrirlestrinum mun Turner sýna fram á mikilvægi réttr- ar lýsingar og skoðaðar verða skyggnur með dæmum um verslanir fyrii’ og eftir endurhönnun á lýsingu. Námskeið hjá Kvenfélaga- sambandinu NÁMSKEIÐIN verða haldin hjá Kvenfélagasambandi Islands í sept- ember og október á Hallveigarstöð- um og byrja þau öll kl. 10.00. Skrán- ing fer fram á skrifstofu K.í. og þarf að tilkynna þátttöku fyrir hvert nám- skeið með minnst 2ja vikna fyrirvara, segir í fréttatilkynningu. Fyrsta námskeiðið kemur inn á list- og sköpunargáfu. Hér verður föndrað og saumað, englar búnir til ásamt límklippilist. Jafnframt verður tekið fyrir mósaik og bútasaumur. Þátttakendur þurfa að koma með saumavél. Leiðbeinendur eru þiár, þær MargrétBjarnadóttir, Ingibjörg Hjartardóttir og Kristjana Möller. Námskeiðið nær yfir tvo daga og verður haldið laugardaginn 30. sept- ember og sunnudaginn 1. október. Næsta námskeið sem boðið verður upp á að þessu sinni ber yfirskriftina Með meiri styrk getur þú gefið meira. Leiðbeinandi er Sigurður Þorsteinsson. Námskeiðið verður haldið 7. október. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 22. september. Síðasta námskeiðið ber yfii’skrift- ina Gefum konum á öllum aldri tæki- færi til að vinna saman. Eflum kven- félögin. Leiðbeinandi er Sigurðm’ Þorsteinsson. Námskeiðið verður haldið laugardaginn 14. október. Þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi 29. september nk. Námskeiðin verða ekki haldin nema þátttakendur verði a.m.k. 10 en hámarkið er 20 manns. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu K.I. Skemmtisigling á milli hafnasvæða í TILEFNI af því að um þessar mundir eru átta ár liðin frá því að hafnagönguhópurinn hóf göngu- ferðir sínar á miðvikudagskvöldum verður slegið á létta strengi og siglt á milli gamalla og nýrra hafnasvæða og skipalægjanna á Kollafirði. Farið verður frá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin, kl. 20 í kvöld og gengið um borð í F/S Árnes við Æg- isgarð og siglt með ströndinni og hafnarmannvirkjum inn á Elliða- vog. þaðan fyrir Gufunes, Geldinga- nes og Þerney inn undir Leynivör í Kollafjai’ðarbotni. Síðan út með Brimnesi og Kjalarnesi og yfir fjörðinn í átt að Gróttu. Sjóferðinni lýkur með siglingu inn Engeyjar- sund og verður lagst að Ægisgarði og síðan gengið til baka að Hafnar- húsinu. Á leiðinni verður notið landsýnar og ljósadýrðar höfuðborgarsvæðis- ins af sjó. Léttar veitingar verða í boði um borð í skipinu og félagar úr Hafnagönguhópnum, HGH-tríóið, leikur. Allir eru velkomnir í ferð með Hafnagönguhópnum, segir í fréttatilkynningu. Sæmundur Bergmann Elimundarson frá Hellissandi nú til heimilis í Vistheimilinu Seljahiíð verður 85 ára hinn 6. október nk. í tilefni dagsins kemur út í takmörkuðu upplagi innbundin 184 bls. bók með minningabrotum, hugleiðingum og myndverkum hans, ásamt nokkru af Ijósmyndum. Þeir sem hafa áhuga á að eignast þessa bók á 2.500 kr. eru beðnir að hafa samband við Guö- mund son hans I netfanginu gsaem@ismennt.is eða í símum 487 8861 eða 861 6017. Verði afgangur af upplaginu verður það til sölu f Safnara- búðinni Frakkastíg 7 (opin kl. 14-19 mánud.-laugard.). Synir Sæmundar. r Tqjpa- tílboð Filtteppi Beige kr. 195 m: Verð áður"395 m2 HÚSASMIDJAN Sími 525-3(XM) • www.husa.is Clinique á allra vörum í nýrri og glæsilegri snyrtivörudeild Lyfju, Laugavegi 16 ILINIQUE 100% ofnæmisprófað Ráðgjafi frá Clinique verður í Lyfju Laugavegi 16 í dag og býður þér fría húðgreiningu á Clinique tölvuna og ráðleggingar um Clinique snyrtivörur og notkun þeirra. Að lokinni húðgreiningu færð þú varalit að gjöf frá Clinique. (Meðan birgðir endast) í3 LYFJA Fyrir útlitið Laugavegi 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.