Morgunblaðið - 20.09.2000, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 19
Framkvæmdastjórn ESB óttast samstarf EMI og Time Warner
Vilja ekki samruna Time
Warner o g AOL
Reuters
Steve Case (t.v.), forstjóri AOL, og Gerald Levin, forstjóri Time Warner, brostu breitt þegar
þeir tilkynntu um samruna félaganna fyrr á árinu.
FRAMKVÆMDAST J ÓRN
Evrópusambandsins hefur
lagt fram uppkast að tillögu
þess efnis að samruna Am-
eriea Online (AOL) og Time
Warner verði hafnað, segir í
grein í The Wall Street
Journal. Meginástæðan fyr-
ir andstöðu sambandsins við
samruna félaganna eru
áform Time Wamer um að
taka upp formlegt samstarf
á tónlistarsviðinu við EMI
Group á Bretlandi.
Yfirburðastaóa
í dreifingu
tóniistar á Netinu
Stjórnendur Time Warn-
er tilkynntu um samvinnuna
við EMI skömmu eftir sam-
runann við AOL og mun við-
skiptanefnd Bandaríkjanna
einnig hafa sitthvað að at-
huga við samstarfið við EMI
auk þess sem hún á eftir að
taka formlega afstöðu til
samruna AOL og Time
Warner. Nefndin hefur, líkt
og Evrópusambandið, áhyggjur af
því að til verði risafyrirtæki í tónlist-
ariðnaði með um 20 milljarða dala
veltu; saman myndu EMI og Time
Warner mynda stærsta tónlistarút-
gáfufyrirtæki í heiminum sem
myndi geta náð algerri yfirburða-
stöðu í dreifingu tónlistar á Netinu,
þ.e.a.s. ef sameiningin við AOL
gengur eftir. I Evrópu hafa menn
fyrst og fremst áhyggjur af fyrir-
huguðu samstarfi við EMI og sér-
fræðingar segja að ef Time Warner
hætti við eða breytti fyrirhuguðu
samstarfi við EMI myndu líkumar á
því að Evrópusambandið leggi
blessun sína yfu- samrunann við
AOL aukast til mikilla muna.
Viðskiptanefnd Bandaríkjanna
hefur skýrt AOL og Time Warner
frá athugasemdum sínum, bæði
vegna samrunans og eins vegna fyr:
irhugaðs samstarfs Time við EMI. I
Bandaríkjunum hafa menn einkum
áhyggjur af aðgengi samkeppnis-
aðila AOL að dreifikerfi Time Warn-
er. Time Warner rekur dreifikerfi
sem nær til 20% af banda-
rísku þjóðinni og hefur því
mjög sterka stöðu fyrir
háhraðanettengingu og
saman gætu AOL og Time
Warner náð algerri yfir-
burðastöðu í þeim borgum
þar sem dreifikerfi Time
Warner hefur mesta út-
breiðslu. Stjómendur AOL
og Time Warner hafa átt í
viðræðum við viðskipta-
nefndina í Bandaríkjunum
og þeir telja sig geta leyst
þau vandamál sem upp hafa
komið.
Heimildarmenn innan
Evrópusambandsins taka
fram að fyrirtækin tvö hafi
frest fram á næsta sunnu-
dag til þess að leysa ágrein-
ingsmálin við Evrópusam-
bandið. Þá var og haft eftir
einum heimildarmannanna
að með því að leggja fram
bráðabirgðatillögu um bann
við samruna félaganna líkt
og framkvæmdastjómin
hefur nú gert, sé einfaldlega
verið að knýja fyrirtækin til þess að
leggja fram tillögur sem fullnægi
samkeppnisreglum betur; þetta sé
aðferð sem framkvæmdastjórnin
hafi oft notað áður og raunar hefur
einn talsmanna Evrópusambandsins
sagt að viðræðurnar við bæði Time
Warner og EMI og Time Warner og
AOL stefni í rétta átt.
NRK vill
greiðslur
fyrir
áhorf í
tölvum
Ósló. Morgunblaðið.
NORSKA ríkissjónvarpið,
NRK, mun krefjast þess að
eigendur tölva sem notaðar
eru til að horfa á sjónvarps-
útsendingar greiði fyrir leyfi
eins og sjónvarpseigendur.
Forsvarsmenn upplýsinga-
tæknifélaga segja það ekki
koma til greina. Þetta kemur
fram í Dagsavisen.
Með hraðri uppbyggingu
breiðbandskerfis verður ofan-
greind notkun á tölvum æ al-
gengari. Talsmaður Telenor
reiknar með að innan tveggja
ára nái breiðbandskerfi fyrir-
tækisins yfir allan Noreg.
Með hliðsjón af þessari
þróun þykir Freddy Lysfjord,
forstöðumanni leyfisskrifstofu
NRK, það fullkomlega eðli-
legt að NRK skrái alla tölvu-
kaupendur og geri þeim að
borga leyfisgjald.
Per Morten Hoff, talsmað-
ur hagsmunasamtaka upplýs-
ingatæknifyrirtækja (IKT-
Norge), segir að erfitt verði
að hafa stjórn á til hvers tölv-
ur séu notaðar. Rangt sé að
krefja tölvukaupendur um
gjald fyrir sjónvarpsleyfi.
Samkvæmt upplýsingum
Dagsavisen hefur sala á
sjónvarpskortum í tölvur auk-
ist verulega undanfarið.
Sniðiö tryggir aö SLIPIDU falla vel að
Ifkamanum.
Mjúkt frotte innlegg
SLIPIDU línan er með þægilegu mjúku
frotte innleggi.
Sérstaða SLIPIDU er að efnið er hring-
prjónað og þess vegna engir óþægilegir
saumar.
Teygjubryddingar
Nýr frágangur á teygju gerir bryddingar
sléttar og mjúkar. Pær tryggja fullkomið
snið. Ný gljáandi áferð á teygjunni gefur
SLIPIDU aðlaðandi útlit.
UaupK P
forðV*'
Ceres Snyrtistofan Snót
Kópavogi Kópavogi
Perla Heimahornið KVH
Akranesi Stykkishólmi Hvammstanga
Palóma Fatabúðin Vísir
Grindavík Isafiröi Blönduósi
KÁ Tanginn
Vestmannaeyjum
ísold
Sauðárkróki
Grund
Flúðum
Anney
Akureyri
Amaró-Mýrar Dalakjör
Akureyri Búðardal
KEA Hrísalundl KÁ
Akureyri Höfn Hornafirði
Hagkaup Hagkaup Hagkaup
Kringlunni Skeifunni Smáratorgi
H-búðin Fjarðarkaup Embla
Garðabæ Hafnarfirði Hafnarfiröi
Apótekið
Ólafsvík
Hellu Selfossi
KÁ Esar verslun
Hvolsvelli Húsavlk
Eru SLIPIDU þægilegustu buxur
sem þú færð? Prófaðu!