Morgunblaðið - 20.09.2000, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Ljósmynd/Benjamin Baldursson
Aðalsteinn Guðmundsson og Jónas Jónasson hjálpast að við að setja síð-
ustu lömbin á bflinn en alls fluttu þeir 246 lömb í þessari ferð.
Allt sláturfé flutt
til Húsavíkur
TVEGGJA hæða fjárflutningabfll
frá Vörubflum Reynis Baldurs
Ingvasonar í Aðaldal sótti í gær-
morgun sinn fyrsta farm úr Öng-
ulsstaðadeild KEA í Eyjafjarðar-
sveit. Öllu sláturfé héðan er nú ekið
til Húsavíkur þar sem slátrun er
hætt á Akureyri. Þykir mörgum
fjárbóndanum það afleitt og hefðu
fremur kosið að endurbætur hefðu
verið gerðar á sláturhúsinu á Akur-
eyri. Sláturhúsið á Húsavík er talið
mjög fullkomið og hefur m.a. leyfi
til útflutnings. Þar sem bæði slátur-
húsin eru í eigu sama fyrirtækis,
Norðlenska matborðsins, þótti ekki
verjandi að eyða stórfé í upp-
byggingu sláturhússins á Akureyri
þar sem aðeins 90 kflómetrar eru á
milli staðanna. Einn bóndi úr Öng-
ulsstaðadcild fer með allt sitt fé til
Blönduóss en þorri fjárbænda í
Hörgár- og Öxnadal fer þangað
með sláturfé sitt.
Flugfélag íslands, Flugleiðir, Fosshótel KEA
og Sérleyfísbflar Akureyrar
Atak í sölu vetrar-
ferða til Akureyrar
FLUGFÉLAG íslands í samstarfi við Fosshótel KEA,
Sérleyfisbíla Akureyrar og fleiri sem annast ferðaþjón-
ustu á svæðinu auk Atvinnuþróunarfélags Eyjarðar hafa
sett saman pakkaferð til Akureyrar á komandi vetri. Um
er að ræða fiug frá Reykjavík til Akureyrar, mótttöku á
flugvellinum á Akureyri og gistingu á Fosshótel KEA.
Morgunblaðið/Kristján
Gunnar Guðmundsson, Sérleyfisbflum Akureyrar,
Steinn Lárusson, Flugleiðum, og Jón Karl Ölafsson,
Flugfélagi Islands, kynna átak sem miðar að því að
fá fleiri erlenda ferðamenn norður til Akureyrar.
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
Flauta og píanó
Flugleiðir hafa ákveðið
að taka þessa ferð upp í
vetrarferðabæklingum á
mörkuðum erlendis og
hafa nú þegar komið út
um 400 þúsund eintök af
honum, en bæklingnum
er dreift í Þýskalandi,
Frakklandi, Hollandi,
Belgíu, Austurríki, Sviss,
Ítalíu, Bretlandi, Banda-
ríkjunum og Kanada.
Ferðin er kynnt á heil-
síðu í bæklingnum en
auk áðurnefndrar grunn-
þjónustu sem innifalin er
í pakkanum verður boðið
upp á afþreyingarferðir,
s.s. dagsferð í Mý-
vatnssveit og gönguferð
um Akureyri.
Markaðssetning Akur-
eyrar verður sett til
jafns við ferðir til
Reykjavíkur þannig að
um er að ræða nýja nálg-
un á markaðssetningu
ferða til Akureyrar utan
háannatímans sem hefur
ekki áður verið gerð í
þessu formi.
Uppbygging
tekur tíma
Jón Karl Ólafsson
framkvaemdastjóri Flug-
félags íslands sagði að
mikils væri vænst af
þessari markaðssetn-
ingu, en nefndi að upp-
bygging slíkra ferð tæki
að jafnaði nokkurn tíma
eða allt að þrjú ár. „Við
byrjum á þessu átaki nú
í haust og byggjum þetta
smám saman upp, en
menn geta alveg gert ráð
fyrir að það taki um þrjú
ár þar til árangur verður
verulegur," sagði hann.
Hann sagði ferða-
þjónustu á Norðurlandi
sterka og fjölmarga
möguleika í boði, en
mikilvægt væri að skoða
svæðið sem heild og láta
hrepparíg lönd og leið,
það skilaði betri árangri.
Steinn Lárusson hjá
markaðsdeild Flugleiða
sagði að um nokkurra
ára skeið hefðu verið
seldar stuttar ferðir frá
útlöndum til Reykjavíkur
og hefði á síðustu árum
orðið ágæt aukning í
þeim. I tengslum við
verkefni sem hleypt var
af stokkunum síðasta
vetur og kallast Stefnum
norður hefði verið ákveð-
ið að bjóða upp á ferðir
til Akureyrar innan þess-
ara ferða. „Þetta er
fyrsta skrefið og ef fjöl-
breytnin eykst er ég viss
um að þessar ferðir geta
orðið vinsælar," sagði
Steinn.
MARGRÉT Stefánsdóttir
flautuleikari og Dewitt
Tipton píanóleikari halda
tónleika í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju í kvöld,
miðvikudagskvöldið 20.
september kl. 20.
Meðal verka á efnis-
skrá eru: Sónata í C-dúr
k. 14 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart, Kokopeli
Op.43 eftir Katherine
Hoover, Duo eftir Aaron
Copland, Suite de Trois
Morceaux Op.116 eftir
Benjamin Godard og Són-
ata Op. 23 eftir Lowell
Liebermann.
Margrét stundaði nám
við Tónlistarskólann á
Akureyri, en hélt til
framhaldsnáms til Banda-
ríkjanna árið 1991 og lauk
doktorsgráðu árið 1999.
Hún hefur komið fram
sem einleikari og spilað
með hljómsveitum á Is-
landi, Bandaríkjunum og
Þýskalandi. Hún er nú
flautukennari við Tónlist-
arskóla Kópavogs.
Dewitt Tipton lagði
stund á doktorsnám í
raddþjálfun og undirleik.
Hann hefur komið fram
sem einleikari, stjórnað
óperuuppfærslu og kórum
víða um Bandaríkjunum.
\
I
l
*
\
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Háskólinn á Akureyri
Bók um lífvænleika
samfélaga á vest-
norræna svæðinu
Morgunblaðið/Kristján
Jónas Gunnar Allansson og Ingi Rúnar Eðvarðsson frá Stofnun Vil-
hjálms Stefánssonar og ritstjórar bókarinnar kynna efni bókarinnar.
ÚT ER komið greinasafn á ensku
á vegum Stofnunar Vilhjálms Stef-
ánssonar og Háskólans á Akureyri
sem ber titilinn „Community Via-
bility, Rapid Change and Socio-
Ecologieal Futures". Greinarnar
eru flestar byggðar á fyrirlestrum
af samnefndri ráðstefnu sem hald-
in var í fyrra um lífvænleika sam-
félaga á vestnorræna svæðinu:
Færeyjum, Grænlandi og íslandi,
auk Skotlands. í bókinni eru 10
greinar sem allar fjalla um stöðu
og framtíðarhorfur byggða við
vestanvert Atlantshaf. Þetta er
fyrsta bókin sem Stofnun Vil-
hjálms Stefánssonar gefur út, en
útgáfan er í samstarfi við Háskól-
ann á Akureyri.
Hnattrænar breytingar og
staðbundin viðbrögð
Bókinni er skipt í þrjá undir-
kafla. í fyrsta hluta bókarinnar er
tekið á hnattrænum breytingum,
staðbundnum viðbrögðum og sjálf-
bærri þróun samfélaga. Þar fjallar
Bjarki Jóhannesson um byggða-
þróun á íslandi og ber hana stutt-
lega saman við stöðu mála í hinum
vestnorrænu ríkjunum. Mark
Nuttall frá Skotlandi tekur til um-
fjöllunar þær hindranir sem
standa í vegi fyrir sjálfbærri nýt-
ingu hafsins og áréttar að stefnu-
mótendur og stjórnendur þurfi að
taka tillit til sjálfbærrar samfé-
lagsþróunar strandhéraða við
norðanvert Atlantshafið'
Þróun jaðarbyggða og menn-
ingarleg samskipti
Unnur Dís Skaptadóttir greinir
frá viðbrögðum íslensks sjávar-
þorps við markaðsvæðingu og nið-
urskurði í sjávarútveginum. Þar
kemur fram að félagsleg samstaða
er lykilatriði til að tryggja árang-
ursríka lögun að breyttum aðstæð-
um. í lok fyrsta hluta skrifar Jónas
G. Allansson um reynsluþekkingu
heimamanna með skírskotun í
rannsókn meðal íslenskra sjó-
manna og færir rök fyrir því að
ríkari ástæða sé til þess að hlusta á
raddir reynslunnar.
I öðrum hluta bókarinnar birt-
ast greinar er taka á mikilvægi
menntunar fyrir þróun jaðar-
byggða og uppbyggingu mannauðs
í héraði. Fyrsta greinin sem skrif-
uð er af Þorsteini Gunnarssyni,
rektor HA, og Inga R. Eðvarðs-
syni skýrir frá hlutverki og þýð-
ingu Háskólans á Akureyri fyrir
byggðaþróun á Eyjafjarðarsvæð-
inu og víðar á landsbyggðinni.
Frank Rennie lýsir í grein sinni
hvernig staðið hefur verið að upp-
byggingu starfstengds háskóla-
náms í Skotlandi og hugmyndum
sem liggja til grundvallar þeim.
Ingólfur Á. Jóhannesson greinir
frá niðurstöðum rannsóknar á þró-
un nýrrar námskrár í íslenska
menntakerfinu. Þá skrifar Malana
Marensdóttir, rektor Háskóla
Færeyja, um Fróðskaparsetrið og
háskólamenntun í Færeyjum í nú-
tíð og framtíð.
Þriðji og síðasti hluti bókarinnar
er helgaður menningarlegum sam-
skiptum.
Fyrri greinin sem skrifuð er af
Wolfgang Kahlig fjallar á gagn-
rýninn hátt um stjórnun og sam-
starf Dana og Grænlendinga á
grænlenskum vinnumarkaði. I síð-
ustu greininni tekur Neil B.
Christensen á þeirri þrautseigu
goðsögn, með vísan í netvæðingu
Grænlands, að netheimar eigi
sjálfstæða tilvist utan við sjálfs-
mynd einstaklinga og samfélaga.
Þeir Jónas og Ingi Rúnar segja
ekki mikið til af bókum sem fjalla
um þetta svæði, þ.e. vestnorræna
svæðið, og ritið sé því eitt hið
fyrsta þar sem fjallað er um það
með þessum hætti. Sú þróun sem
orðið hefur í Evrópu hafi orðið til
þess að svæðið hefur nú nýrra
hagsmuna að gæta og efnahagsleg
og menningarleg tengsl innan
svæðisins séu sífellt að styrkjast.
Bókin er 156 bls. í pappírskilju
og kostar 1.500 kr. Bókin verður til
sölu í öllum stærri bókaverslunum,
og þá er hægt að panta eintök af
bókinni á Netinu í gegnum Stofn-
un Vilhjálms Stefánssonar,
stef@svs.is.