Morgunblaðið - 20.09.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.09.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 23 5 gerðir - margir litir 60 ára t'rábær reynsla. Einar ________Farestvert & Co hf Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900 LISTIR Vísindin efla alla dáð KVIKMYNDIR Háskólabfó, Stjiirnubfó „BATTLEFIELD EARTH“* Leikstjóri: Roger Christian. Handrit: Corey Mandell byggt á vísindaskáldskap L. Ron Hubbards. Aðalhlutverk: John Travolta, Barry Pepper, Forest Whitaker, Kim Coates, Richard Tyson. Franchise Pictures. 2000. ÞRIGGJA metra háar geimverur með nefklemmur ráða jörðinni eftir að hafa lagt mestallt líf í eyði. Það tók þær níu mínútur að gjöreyða jörðinni og sigrast á mannkyninu en reka þá fáu sem eftir lifðu upp til fjalla. Núna eru mennirnir þrælar geimveranna og þar á meðal efnilegur uppreisnar- foringi sem fær að vita allt um risana og notar þekkingu sína til þess að ráðast gegn þeim. Þannig er söguþráðurinn í „Battle- fíeld Earth“, furðulegri samsuðu upp úr samnefndri bók L. Ron Hubbards, föður Vísindakirkjunnar svokölluðu í Bandaríkjunum. John Travolta til- heyrir henni víst og mun hafa haft nægan áhuga á því að kvikmynda veridð til þess að gerast einn af fram- leiðendum þess auk þess að fara með eitt aðalhlutverkið. Hann leikur aðal- öryggisvörð geimveranna á jörðinni ef rétt er skilið og hefur líklega ekki verið eins furðulega lélegur síðan hann var í „Look Who’s Talking too“. Boðskapurinn í myndinni er að sjálfsögðu sá að vísindin efli alla dáð. Uppreisnarforingi mannanna kjaftar sig inn á öryggisvörðinn, sem á í óskiljanlegu leynimakki, og kemst að öllu því sem hann þarf að vita um drottnara sína til þess að leggja þá að velli. Hann notar ræður úr „Brave- heart“ um frelsi til þess að hvetja menn sína áfram, fær villimenn úr fjöllunum til þess að stýra árásarþot- um af óvenjulegri snilld og tekst að eyða plánetu innrásarliðsins sem er í ljósára fjarlægð. Leikstjóranum, Roger Christian, tekst ekki að búa til nokkra einustu spennu úr efniviðnum þrátt fyi-ir til- raunir í þá átt. Það er sjálfsagt nokkrum erfíðleikum bundið að koma bók Hubbards fyrir í tveggja tíma bíómynd. Niðurstaðan af þess- ari tilraun er eins konar furðuverk. Myndin er gloppótt mjög, tæpt er á ýmsu en engu gerð nein almennileg skil og það vantar í hana raunveru- lega persónusköpun. Travolta hlær og skemmtir sér sem illmennið en það stafar aldrei nokkurri ógn frá honum, miklu fremur að hann veki endalausa undrun. Barry Pepper er uppreisnarforinginn og sérstaklega litlaus sem slíkur. „Battlefield Eai-th“ er dæmi um Hollywood-bruðl af verstu sort. Arnaldur Indriðason Þjóðleikhúsið Astkonur Picassos IETM-þing í Reykjavík Forystuafl nýrra hugmynda KitchenAid Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! ✓ Isaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! Amgrímsd., Lilja Guðrún Þor- valdsd., Helga E. Jónsdóttir, Guð- rún S. Gísladóttir, Helga Bachm- ann, Margrét Guðmundsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir. Leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir og leikmynd og búninga hannar Rebekka Ingimundardóttir. Þýð- endur verksins eru Ingibjörg Hara- Idsdóttir, Ingunn Ásdísardóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Iðunn og Kristín Steinsdætur og Hrafnhildur Hagalin. Frumsýning er fyrirhuguð í lok október. SJÁLFSTÆÐU leikhúsin, SL, verða, ásamt samstarfsaðilum gest- gjafar evrópska listaþingsins IETM Reykjavík dagana 5.-8. október nk. Verkefnisstjórn þingsins kynnti verkefnið á blaðamannafundi í gær en þetta verður eitt stærsta listaþing sem haldið hefur verið hériendis. IETM stendur fyrir „the Informal European Theatre Meeting" og er tengslanet menningarfrömuða og skipuleggjenda menningarviðburða í Evrópu á sviði leiklistar, tónlistar og dans. í netinu eru yfir 450 stjómend- ur listahátíða, leikhúsa og menning- arstofnana auk fjölda framleiðenda, leikskálda, tónskálda, danshöfunda, leikara og hugsuða. Búast má við að 150 IETM-félagar sæki þingið en jafnframt verður um 100 Islending- um boðin þátttaka. Evrópska listaþingið IETM er í senn listahátíð, þar sem gestgjafa- landið býður upp á kröftuga listadag- skrá, og ráðstefna, þar sem flutt eru erindi og fólk alls staðar að úr Evrópu, frá Grænlandi til Úkraínu, vinnur saman í hópum og miðlar hug- myndum og upplýsingum. Auk þessa er IETM-þing gríðarlegt tækifæri til kynningar; dagar þar sem samtök, stofnanir, hsthópar og einstaklingar geta komið á framfæri upplýsingum um störf sín og verkefni, komið á tengslum og fundið samstarsfaðila. Sjálfstæðu leikhúsin, SL, eru sam- tök 27 starfandi leikhúsa og dans/ listhópa. Samtökin gengu til liðs við IETM í lok síðasta árs og eru fyrstu íslensku félagamir. IETM er eitt elsta og öflugasta menningartengslanet í Evrópu og er það. staðreynd að stór hluti samstarfsverkefna og listaskipta í Evrópu fer, með beinum og óbeinum hætti, fram á vettvangi þeirra. Auk þess hefur IETM verið forystuafl nýrra hugmynda og staðið fyrir út- gáfu, menningarumræðu og dreif- ingu upplýsinga til handa öllu menn- ingarlífi í Evrópu. Verkefnisstjóm þingsins skipa Asa Richardsdóttir stjórnandi, Hallur Helgason, Jómnn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórð- arson, Ólöf Ingólfsdóttir og Þórarinn Eyfjörð. Innlendir samstarfaðilar em Reykjavíkurakademían, Listahá- skóli íslands, íslenski dansflokkur- inn, Hitt húsið og Norræna húsið. Erlendir samstarfaðilar em IETM Secratariat, Brussel Nordisk Ide Fomm, Kaupmannahöfn og Kultur- konzepte, Vínarborg. Morgunblaðið/Golli Leikstjóri, þýðendur og leikkonur sem æfa Astkonur Picassos. Morgunblaðið/Ásdís Forsvarsmenn IETM-þingsins. Þórarinn Eyfjörð í ræðupúlti, Ása Richardsdóttir og Hallur Helgason. ÆFINGAR eru nú hafnar í Þjóð- leikhúsinu á írska leikritinu Ást- konur Picassos eftir Brian Mc- Avera. Þar stíga fram sjö ástkonur listamannsins og segja sögu sína, hver með sínum hætti, en höfund- urinn tengir saman á næman hátt ástir Picassaos og listsköpun hans. Leikritið er að hluta til byggt á ein- tölum kvennanna sjö en þær eiga einnig samtöl sín á milli þar sem þær skiptast á skoðunum um lífið með listamanninum. I hlutverkum ástkvennanna eru Anna Kristín Einhver í dyrunum Sýningin fær frábæra dóma; ATH! Takmarkaður sýningarfjöldi. Næstu sýningar-. Fim 21.09 kl. 20 Sun 24.09 ki. 19 Mið 27.09 kl. 20 Sun 01.10 kl. 19 Miðasala: 568 8000 Miðasalan cr opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is www.borg3rleikhus.is BORGARLEIKHUSIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.