Morgunblaðið - 20.09.2000, Side 26

Morgunblaðið - 20.09.2000, Side 26
26. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ En það er önnur Njála NÝLEGA var haldin ráðstefna hér á landi um hag eftirlaunafólks á Norðurlöndum. Er- indin hafa verið birt í skýrslu „Retirement in the Nordic countries. Tema Nord 2000-548“ og að nokkru í Morg- unblaðinu. I skýrslunni er margt athyglisvert. M.a. kemur fram að mikil atvinnuþáttaka eldra fólks á Islandi virðist vera þjóðhags- lega hagkvæm. A hin- um Norðurlöndunum er talið að verg þjóðar- framleiðsla (GNP) minnki um 3% vegna snemma tek- inna eftirlauna, en á Islandi aðeins um 1% (bls. 123). Landlæknisem- bættið benti á þessa staðreynd fyrir 12 árum, er það lagði fram tillögu um „sveigjanlegan eftirlaunaaldur". Félög eldri borgara hafa stutt tillög- una. Vonandi hvetja þessar upplýs- ingar stjórnmálamenn til aðgerða í málinu enda standa m.a. útlendir reiknimeistarar að þessum útreikn- ingum! Fyrrnefnd skýrsla er vel unnin en tafla á bls. 119 um „lægstu eftirlaun“ á Norðurlöndunum þarfn- ast frekari skýringa við. Par kemur fram að „lægstu eftirlaun" þeirra sem ekki hafa aðrar tekjur fyrir skatta eru svipuð á íslandi og á hin- um Norðurlöndunum. Án frekari skýringa mætti ætla að hagur þess- ara eldri borgara á íslandi sé svipað- ur og félaga þeirra á hinum Norður- löndunum. Við nánari athugun kemur í ljós að í þessu dæmi er horft framhjá mörgum þáttum, sem ekki koma fram við útreikninga á „bein- um eftirlaunagreiðslum“ en hafa þó veruleg áhrif á lífskjörin. í eftirfar- andi athugasemdum styðst ég við fyrmefnda skýrslu, Þjóðhagsstofn- un og skýrslu norrænu tölfræðin- efndarinnar sem birtast árlega í „Social protection in the Nordic countries" (SPNC) nú síðast í ár- sskýrslu frá 1996. (Nososco. Nordic Soc- ial Stat. Commitee 9:1998). Samanburður á efnahagslegri afkomu þjóða er erfitt verk og flókið. Forsendur við- unandi útkomu er traust þekking á flest- um þeim þáttum er móta lífskjörin. Nor- rænu tölfræðinefndinni sem starfað hefur í tugi ára að þeim saman- burði er best treyst- andi til verksins. 1. Grunneftirlaun á Islandi og Finnlandi eru rækilega tekjutengd en aðeins að hluta til (tekjutrygging) Lífeyrismál Að öllu samanlögðu virðist eftirlaunafólk ---7------------------ á Islandi og ekki síst þeir er búa við lægstu tekjurnar, segir Olafur Olafsson, búa við lakari kost af hendi hins opinbera en félagar þeirra í hinum N orðurlöndunum. á hinum Norðurlöndunum (Retire- ment in the Nordic Countries bls. U9) , 2. Á íslandi og í Danmörku eru grunneftirlaun skattlöggð að fullu en mun vægar í hinum löndunum (S.P.N.C. bls. 94) Ólafur Ólafsson 3. Húsaleigubætur eru skattlagð- ar að fullu á Islandi en alls ekki í ná- grannalöndunum (S.P.N.C. bls. 94). 4. Húsaleigubætur mældar í Evr- um eru 2-6 sinnum lægri á haus á Islandi en meðal nágrannaþjóða. (S.P.N.C. bls. 131). 5. Endurgreiðslur vegna „ferða- þjónustu veikra aldraðra og öryrkja eru mun takmarkaðri á Islandi en á hinum Norðurlöndunum. 6. Meðallífeyrir á mánuði í ís- lenskum krónum og munur kaup- máttar lífeyrisgreiðslna er vegur þyngst við samanburð á lífskjörum sýna að Islendingar eru neðstir í Norðurlandariðlinum. (sjá töflu) Þess ber að geta að í þessum saman- burði er ekki tekið mið af heildar- lífeyrisgreiðslum af vergri lands- framleiðsu, heldur gi-eiðslum til einstaklinga, þar eð lífeyrisþegar eru hlutfallslega fæstir á íslandi. Medal lífeyrisgr. ein- stakl. á mán. (ísl. kr.) ísland 56.616 Noregur 78.939 Finnland 71.726 Svíþjóð 90.350 Danmörk 102.472 Munur kaupmáttar lífeyrisgr. á mán. 100 112 117 135 157 Þjóðhagsstofnun 1999, Búskapur hins opin- bera 1997-98 bls. 44-45 7. Full ástæða væri að nefna fleiri þætti er hafa veruleg áhrif á lífskjör og jafnvel fi’umþarfir fólks s.s. hæsta verð á matvörum, lyfjum, bif- reiðatryggingum, bifreiðum, og bensíni á Islandi. Miklar hækkanir hafa valdið búsifjum, sérstaklega meðal láglaunafólks þ.ám. margra eldri borgara og öryrkja og skerða viðnámsþrótt, og lífsgleðina. Tími er kominn til að þessir hópar sameinist til baráttu gegn frekari skerðingu lífskjara og hefji aðgerðir gegn aug- ljósu samráði stærstu fyrirtækja um verðlagningu á vörum og þjónustu. Að öllu samanlögðu virðist eftir- launafólk á Islandi og ekki síst þeir er búa við lægstu tekjurnar, búa við lakari kost af hendi hins opinbera en félagar þeirra í hinum Norðurlönd- unum. Þess ber að geta að meðal ráðstöfunartekjur (eftirlaun ásamt atvinnutekjum) 65-69 ára fólks á ís- landi vegna mikillar atvinnuþátttöku hér á landi eru svipaðar og sumra nágrannaþjóða. En það er önnur Njála. Höfundur er fyrrverandi landlæknir. Stuðmaður í stríði JAKOB Frímann, stuðmaðurinn sjónum- hryggi, tekur enn til máls um ritstjórnar- stefnu DV á síðum Mbl. og fjallar að þessu sinni um fyrirsagnagerð og fleira. Ljóst er af rit- smíð hans að hann hef- ur ákveðið að fara í stríð við DV. Af hjartnæmu píslarvætti lýsir hann því hvernig hann þeysir fram á rit- völlinn með brugðinn brand vitandi að hinn illvígi Þverholtsdreki mun spúa eldi og eim- yiju að vopnsmáum einstæðingi. Ótrauður mun samt hinn vaski riddari fara einn saman gegn þeirri mengun hugarfarsins sem birtist í tregðu ritstjómar DV til að leyfa hon- Bókhaldskerfi KERFISÞRÓUN HF. FÁKAFENI 11, s. 568 8055 http://www.kerfisthroun.isy um að skrifa viðtöl við sjálfan sig og bíta svo höfuðið af skömminni með því að biðjast ekki einu sinni afsökunar. Það er erfitt að finna glæpinn í þessu máli og enn erfiðara að sjá til- ganginn með vopna- skaki Jakobs annan en þann að forða nafni hans frá gleymsku og sjá Morgunblaðinu fyr- ir hæpnu skemmtiefni. Harmagrátur Jakobs vegna meintrar slæmr- ar meðferðar á sér byggist ekki á raun- veruleikanum heldur hans eigin ranghugmyndum um sam- skipti blaðamanna og viðmælenda. I grein sinni vitnar Jakob í rafpóst sem okkur fór á milli skömmu eftir birtingu viðtalsins og var af minni hálfu ekki talinn ætlaður til birtingar heldur var þessum línum ætlað að lægja reiðiöldur Frímannsins. Jakob sýnir með tilvitnun sinni að hann stendur oss mannorðsmorðingjum h'tt að baki í því að shta úr samhengi. Hér birtist því nóta mín til Jakobs í heild sinni: „Viðtalið sem birtist við þig í DV sl. laugardag var að mínu áliti gott og við áttum báðir þátt í að svo varð. Það gekk hins vegar ekki að fela þann hluta viðtalsins sem var virkilega fréttnæmur og áhugaverð- ur eins vandlega fyrir lesendum og þú vildir. Sú ákvörðun að gera það ekki, heldur kynna með' þeim hætti sem gert var á forsíðu blaðsins hvað hér væri á ferðinni, var alfarið mín og tek Blaðamennska Harmagrátur Jakobs vegna meintrar slæmr- ar meðferðar á sér byggist ekki á raun- veruleikanum, segir Páll Asgeir Asgeirsson, heldur hans eigin ranghugmyndum um samskipti blaðamanna og viðmælenda. ég fulla ábyrgð á henni. Hafi hún valdið þér og þinni fjölskyldu ein- hverjum sárindum og/eða vonbrigð- um þá finnst mér það leitt og bið þig hér með afsökunar á því.“ Jakob og félagar hans sungu eitt sinn um manninn sem vildi gera allt fyrh- frægðina nema kannski að koma nak- inn fram. Jakob hikar ekki við að fletta sig klæðum í þessu máli og sýna alþjóð hörundsáran poppara í heilögu stríði við DV út af smámunum. Hann kastar fram orðaleppum eins og mannorðsmorð sem hann virðist telja að séu stunduð af miklu kappi á rit- stjórn DV. Við myrtum ekki mannorð Jakobs Frímanns. Hann er sjáh'ur að basla við að murka lífið úr því. Höfundur er blaðamaður og umsjónarmaður Helgarblaðs DV. Páll Ásgeir Ásgeirsson Ævisagan byrjar ekki á grafar- bakkanum FLESTIR geta lík- lega verið sammála um að umræða um umhverfismál verði sí- fellt meira áberandi. Þó virðast sumir þætt- ir umhverfismála vera fólki mun hugleiknari en aðrir, og líklega er meðhöndlun úrgangs langvinsælasta um- ræðuefnið á þessu sviði. Sitji menn til dæmis á rökstólum og reyni að komast að niðurstöðu um það hvort þessi váran eða hin sé skaðlegri um- hverfinu, þá snýst um- ræðan alla jafna að mestu leyti eða eingöngu um skaðsemi vörunnar þegar hún hefur lokið hlutverki sínu og eigandinn vill losna við hana úr fórum sínum. En lífsferill vöru hefst ekki um leið og varan verður að úrgangi að lokinni mislangri notkun - ekki frekar en ævisaga okkar sjálfra hefst á grafarbakkanum. Sérhver vara á sér sína sögu eða lífsferil, og á öllum þessum ferli hefur varan haft einhver áhrif á umhverfið. Fyrst eru hráefnin unnin úr jörðu, og til þess þarf oftast að nota orku, vatn og ef til vill önnur efni, og að öllum líkindum verður til úrgangur við vinnsluna, sem sleppur að einhverju leyti út í and- rúmsloftið, jarðveginn eða vatna- kerfið. Síðan eru hráefnin flutt á framleiðslustað - eða framleiðslu- staði, því margar vörur sem við notum eru framleiddar í litlum ein- ingum á fleiri stöðum en okkur grunar. Við flutninginn er notað eldsneyti með þeim umhverfis- áhrifum sem því fylgir. Þá er kom- ið að framleiðslu vörunnar. Þar þarf aftur að nota orku, vatn og aukaefni, og auk vörunnar sjálfrar verða til aukaafurðir og úrgangur. Svo þegar varan er loksins tilbúin er hún væntanlega sett í umbúðir, sem líka eiga sína sögu. Því næst er varan flutt til okkar notendanna, oftast í mörgum áföngum - og gjarnan um langan veg. Hér gildir enn það sama og um flutning hrá- efnisins. Þegar hér er komið sögu er var- an loks komin í okkar hendur og þá hefst notkunarskeiðið, stutt eða langt eftir atvikum, kannski bara sú örskotsstund sem það tekur að hvolfa í sig einum kaffibolla úr ein- nota plastmáli, kannski áratugir í sögu Willys-jeppans sem hefur þjónað eigandanum frá því í lok seinni heimsstyi-jaldarinnar. Og þegar öllu þessu er lokið, stendur eigandinn loks frammi fyrir því síðasta, nefnilega að losna við draslið, eins og söguhetjan okkar er gjarnan kölluð á þessum tíma- mótum. Lífsferill vöru hefst ekki þegar varan verður að úrgangi. Þeim sem bera umhverfið og hag komandi kynslóða fyrir brjósti nægir ekki að líta á umhverfisáhrifin á þessu síðasta æviskeiði vörunnar. Við þurfum að spila vörnina miklu framar. Varnarleikurinn þarf að hefjast í síðasta lagi þegar við stöndum frammi fyrir ákvörðun um innkaup. Þá þegar er þörf á að spyrja gagnrýnna spurninga á borð við þessar: Er varan nauðsynleg? Þarf að nota svona mikið af henni? Eru umbúðirnar nauðsynlegar? Er til önnur vara sem gerir svipað gagn en spillir umhverfinu minna á lífsferli sínum? Valið er sjaldnast auðvelt. En sem betur fer eru til tæki til að hjálpa okk- ur við innkaupin. Þessi tæki eru m.a. umhverfismerki, sem fela í sér óháða vottun á því að viðkomandi vara standist tilteknar umhverfiskröfur. Slík merki eru einmitt byggð á rannsóknum sem taka tillit til allr- ar ævisögu eða lífsfer- ils vörunnar. En ef til vill er engin slík merki að finna í versluninni þar sem við erum stödd, eða þá að við vitum ekki hvað merk- in þýða. Þá er þjóðráð að spyrja starfsfólkið á viðkomandi stað. Það er nefnilega til lítils að fárast yfir Umhverfismál Lífsferill vöru hefst ekki um leið og varan verður að úrgangi að lokinni mislangri notkun, segir Stefán Gíslason, ekki frekar en ævisaga okkar sjálfra hefst á grafar- bakkanum. því heima hjá sér að þessi eða hin verslunin eigi t.d. ekki til einn ein- asta pakka af umhverfismerktu þvottaefni. Slík eftirspurn nær aldrei eyrum verslunareigandans, né þaðan til eyrna heildsalans, o.s.frv. En það eru ekki aðeins einstakl- ingar og heimili sem geta stuðlað að viðunandi lífsskilyrðum kom- andi kynslóða með því að ástunda umhverfisvæn innkaup, eða græn innkaup eins og þetta er gjarnan nefnt. Áð sjálfsögðu gilda öll sömu lögmálin um stærri kaupendur, svo sem fyrirtæki og opinbera aðila. Þannig má nefna að stofnanir ríkis og sveitarfélaga kaupa umtalsverð- an hluta allrar þeirrar vöru og þjónustu sem seld er hérlendis. Ef þessir aðilar kæmu sér upp sam- ræmdri grænni innkaupastefnu, þar sem gerðar eru kröfur um um- hverfislegt ágæti vörunnar, ásamt kröfum um upplýsingar um um- hverfisstefnu og umhverfisstarf þeirra sem selja vöruna, væri stig- ið stórt skref í þá átt að breyta samsetningu markaðarins um- hverfinu í hag. Græn innkaupa- stefna í opinberum rekstri er vel þekkt í nágrannalöndunum, en hér- lendis hefur frekað lítið verið að- hafst í þessa veru. Þarna er þó að verða breyting á, því að nú hefur umhverfisráðuneytið gefið út hand- bók um græn innkaup opinberra aðila. Boðskapurinn er sem sagt þessi: Ef umhverfið og hagsmunir kom- andi kynslóða skipta okkur máli, þá skulum við hugsa okkur vel um þegar við kaupum eitthvað. Og ef upplýsingar um umhverfislegt ág- æti vörunnar liggja ekki fyrir, þá skulum við spyrja. Ævisagan byrj- ar svo sannarlega ekki á grafar- bakkanum. Höfundur er umhverfísstjómunar- fræðingur (MSc) og verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á íslandi. Stefán Gíslason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.