Morgunblaðið - 20.09.2000, Page 37

Morgunblaðið - 20.09.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 37 í Gróttu, framan af í sjálfboðavinnu en þegar svæðið var friðað var hann skipaður umsjónarmaður af Nátt- úruverndarráði. Par vann hann ómetanlegt starf og stóð oft í ströngu við að verja fugl- ana fyrir ágangi mannfólksins. Það segir sig nánast sjálft að fjöl- skyldan var Guðjóni allt eftir sára bernskureynslu og hún var bæði stór og samheldin. Þegar leiðir fjöl- skyldna okkar lágu saman fyrsta sinni fyrir um tveimur áratugum vora Guðjón og Bára með börnum sínum fjórum og fjölda barnabarna í útilegu í Skorradal, skammt frá sum- arbústað foreldra minna. Allur hóp- urinn, tápmikill og skemmtilegur, fyllti kofann í skóginum eitt kvöldið. Þá kynntumst við fyrst sagnagáfu Guðjóns. Lási kokkur, sem var skipsfélagi hans um tíma, og fleiri minnisstæðir samferðamenn birtust þar ljóslifandi. Þetta kvöld var slegin nóta sem haldist hefur tær og hrein síðan. Fjölskylda mín naut á svo margan hátt góðs af greiðasemi þeirra hjóna, vináttu og velvilja að aldrei verður fullþakkað. Þegar faðir minn, Guð- laugur Þorvaldsson, veiktist alvar- lega og lá síðan banaleguna leið vart sá dagur að Guðjón kæmi ekki í heimsókn til hans, hvort sem hann var heima eða á spítalanum. Ræktar- semin og vinarþelið var einstakt og uppörvunin mikil í spjalli hans. Það var líka notalegt að sjá þá þegja sam- an þegar þrekið þvarr og ljóst var hvert stefndi, í nærverunni einni fólst djúp vinátta sem entist til hinstu stundar. Fyrir fjórum áram reiddi maður- inn með ljáinn til höggs og lagði Guð- jón næstum að velli, en hitti þar fyrir ofjarl sinn og varð að láta undan síga. Guðjón lét sér fátt um fmnast þótt hann missti fingur og tær í þeirri rimmu. Það leið ekki á löngu uns hann var mættur í Gróttuna á nýjan leik að huga að skjólstæðingum sín- um. En enginn má sköpum renna. Ég er sannfærður um að kríurnar í Gróttu fylgja Guðjóni síðasta spöl- inn þegar við kveðjum hann í dag. Að hausti liggur fyrir þeim, eins og vini þeirra og velgjörðarmanni, langt ferðalag til himins og heim. Fyrir hönd móður minnar, Krist- ínar Kristinsdóttur, bræðra minna og fjölskyldna okkar flyt ég Báru og allri fjölskyldunni okkar innulegustu samúðarkveðjur. Minningin um einstakan mann mun ætíð lifa með okkur sem vorum svo lánsöm að kynnast Guðjóni Jóna- tanssyni. Guð blessi minningu hans. Styrmir Guðlaugsson. Árið er 1988, farið að síga á seinni hlutann. Við hjónin höfðum nýverið hafið atvinnurekstur á Austur- ströndinni og til okkar kemur maður til að ganga frá hlutum utandyra á vegum bæjarfélagsins. Að loknu verki kom hann til okkar, kynnti sig og spurði hvort hann gæti hjálpað okkur eitthvað. Þetta var Guðjón Jónatansson og myndaðist strax mikill vinskapur milli okkar. Hann var nánast daglegur gestur okkar í Veislunni upp frá þessu og næstum eins og einn af starfsfólkinu, enda gerðum við okkur ekki glaðan dag öðruvísi en Gaui og Bára væra með okkur. Fyrstu kynni okkar við Gauja voru lýsandi fyrir alla hans góðu eig- inleika, hjálpsamur með eindæmum, úrræðagóður svo eftir var tekið og einlægur svo af bar. Oft var hann störfum hlaðinn fyrir okkur og alveg sama hvað við báðum hann um - hann kláraði málið. Gauja verður ekki minnst öðravisi en að upp komi hversu barngóður hann var. Hann var þolinmóður við strákana okkar, fór með þá út í Gróttu og kenndi þeim margt um líf- ið og tilveruna, umhyggju fyrir fuglalífi, sem hann er löngu lands- þekktur fyrir, og báru þeir mjög mikla virðingu fyrir þessum hjarta- hlýja manni. Þegar við færðum þeim þau tíðindi að vinur þeirra hann Gaui gamli væri dáinn sást á viðbrögðum þeirra hve nánir þeir voru. Við sem nutum þeirra forréttinda að um- gangast Gauja vissum þó að hann gekk ekki heill til skógar eftir áfall sem hann fékk fyrir nokkram árum. Þá dró fyrir sólu, vinur okkar var lengi milli heims og helju, en með ótrúlegri seiglu komst hann til okkar að nýju. Það fór samt ekki milli mála að Gauja fannst hann varla nema hálfur maður eftir þetta og þótti hon- um afleitt að geta ekki sinnt okkur eins og hann vildi. Til marks um hjálpsemi hans vildi hann aldrei þiggja greiðslur fyrir, nema í mesta lagi eitthvað í gogginn, því matmaður var hann góður og gaman að gefa honum að borða. Kæri Gaui, við eram viss um að vel verður tekið á móti þér á nýjum vett- vangi, sökum verðleika þinna og alls þess góða sem þú hefur látið að þér leiða. Þú auðgaðir líf okkar allra sem fátækri sitjum eftir og hugleiðum - hversu erfitt verður að fylla skarð þitt. Kæra Bára og fjölskylda. Við hjónin, Helgi Rafn, Logi, Andri og starfsfólk Veislunnar vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi algóður guð styrkja ykkur í sorginni. Brynjar og Elsa. Stundirnar sem Gaui gamli eyddi með mér og Gauja litla vora ófáar. Dettur mér þá fyrst í hug þegar við keyptum okkur bát og nutum dyggr- ar aðstoðar Gauja gamla við lagfær- ingar og smíði hans. Einnig eru stundirnar í Skorradalnum ógleym- anlegar, þótt sérstaklega standi upp úr sú ferð þegar hann „kveikti í læknum“. Þegar fram liðu stundir var alltaf hægt að leita til Gauja gamla, því hann hafði alltaf ráð við öllu og nægan tíma, hvort heldur var mér til handa eða björgunarsveit- inni. Minning þín lifir. Þinn vinur, Ámi Kolbeins. Með nokkram orðum viljum við minnast eins af frumkvöðlum í starfi okkar, Guðjóns Jónatanssonar. Frá stofnun Björgunarsveitarinn- ar Alberts árið 1969 var Guðjón einn af okkar traustustu stoðum sem hvergi dró af sér í uppbyggingu björgunarstarfs á Seltjarnarnesi. Guðjón var einn af stofnendum björgunarsveitarinnar og einn helsti hvatamaður unglingastarfs innan raða okkar, enda gekk honum sér- staklega vel að umgangast ungu kynslóðina og lutu margir upprenn- andi björgunarsveitarmenn og -kon- ur leiðsögn hans. Aldrei var komið að tómum kofun- um hjá Guðjóni þegar gera þurfti við, breyta eða betrambæta hluti, enda var hann hagleiksmaður mikill. Það kom því ekkert annað til greina þegar ákveðið var að byggja nýja björgunarstöð á Seltjarnarnesi en að Guðjón tæki fyrstu skóflustunguna að henni, enda var með því komið að kaflaskilum hjá okkur, og honum að skila af sér góðu verki í hendur nýrr- ar kynslóðar. Innilegar samúðarkveðjur til að- standenda. Fyrir hönd Björgunarsveitarinn- ar Arsæls, Valgeir Eliasson. Kveðja frá Rotaryklúbbi Seltjarnarness Sunnudaginn 10. september lést Guðjón S. Jónatansson tæplega átt- ræður að aldri. Með Guðjóni er genginn góður fé- lagi og sannur Seltimingur. Mörgum Seltirningum fannst Guðjón vera óaðskiljanlegur hluti af umhverfi okkar hér á Nesinu enda starfaði hann um 25 ára skeið hjá Áhaldahúsi Seltjarnarnesbæjar. Guðjón var einn af stofnendum Rotaryklúbbs Seltjarnarness þegar klúbburinn var stofnaður 20. marz 1971. Þar var hann virkur félagi meðan heilsa hans leyfði. Rotaryklúbbur Seltjarnarness hefur séð um hreinsun strandlengj- unnar í Gróttu á hverju vori frá stofnun klúbbsins. Fyrstu áratugina kom það í hlut Guðjóns að vera í for- svari fyrir hópnum og stjórna að- gerðum enda hafði hann alla tíð mjög mikið dálæti á fuglunum sem höfðu viðkomu eða verptu í Gróttu. Fyrir tilstilli Guðjóns var öll umferð manna út í Gróttu bönnuð á tímabil- inu frá 1. maí til 30 júni ár hvert til að vernda varpfuglinn. Albert Þorvarð- arson, síðasti vitavörður í Gróttu, drakknaði 12. júní 1970 og í fram- haldi af því fór eyjan í eyði. Árið 1978 var svo komið að verbúð Alberts var að falli komin og að nokkra leyti hrunin og ákveðið var að rífa húsið og fjarlægja brakið úr eynni. Þegar Guðjón félagi okkar vissi hvað til stóð kom hann því til leiðar að hætt var við að rífa sjóbúð- ina og að Rotaryklúbbur Seltjarnar- ness gengist í að yfirtaka og eignast verbúð Alberts. Það var samþykkt, af systram Alberts, með því skilyrði að verbúðin yrði fljótlega lagfærð og endurbyggð svo það væri minning- unni um Albert og ættingjum hans ekki til vansa. Umsvif klúbbsins úti í Gróttu urðu umtalsverð og í fram- haldi af því stofnaði klúbburinn sér- staka Gróttunefnd til að annast mál- efni Rotaryklúbbs Seltjamarness í Gróttu. Guðjón, Gróttujarl, eins og hann var oft kallaður eftir þetta, sat í þeirri nefnd alla tíð síðan og hann var formaður Gróttunefndar í hálfan annan áratug. í virðingarskyni og sem viður- kenningu fyrir vel unnin störf í þágu Rotaryklúbbs Seltjarnamess var Guðjón gerður að Paul Harris-félaga árið 1992. Síðustu árin var Guðjón einn af tveim heiðursfélögum Rotaryklúbbs Seltjarnarness. Á kveðjustund erum við félagarnir þakklátir fyrir áratuga ánægjulegar samverastundir og minningarnar um ferskan, kröftugan og hreinskil- inn félaga mun gleðja okkur um ókomin ár. Um leið og Guðjóni era þökkuð góð og farsæl störf í þágu Rotary- klúbbs Seltjarnarness sendum við félagarnir Báru og fjölskyldu þeirra hugheilar samúðarkveðjur. Guðmundur Ásgeirsson, forseti. Mig langar að skrifa þér nokkrar línur í kveðjuskyni og þakka þér fyr- ir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína. Allar þær yndislegu og ljúfu stundir sem ég hef átt með þér og fjölskyldu þinni eru mér mjög dýr- mætar. Ég þakka guði fyrir að hafa fengið að kynnast svona hjartahlýj- um, gjafmildum, hjálpsömum og yndislegum manni, heimurinn er fá- tækari án þín, elsku Gaui minn. Ég minnist þess þegar þú komst vestur í Ólafsvík þegar ég var lítil, þá voru sko jólin hjá okkur systrum. Þú komst alltaf með fullt af góðgæti handa okkur og sagðir okkur fullt af skemmtilegum sögum. Einnig voru sumarbústaðaferðirnar í bústaðinn hjá pabba og mömmu yndislegar, þá var mikið hlegið og gantast. Elsku vinur, með þessum fáu orð- um kveð ég þig úr þessu jarðlífi en þú munt vera ofarlega í huga mér eftir sem áður og ég mun stolt minn- ast þín. Elsku Bára, Jonni, Otti, Valborg, Gaui og fjölskyldur, megi góður guð styrkja ykkur og leiða í sorgum ykk- ar. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þuríður Snorradóttir og Ijölskylda. Seltjarnarnesið er lítið og lágt. Allir vissu hver Gaui á Borg var. Okkur langar að minnast hans með örfáum orðum þótt fátækleg séu. Fyrir um það bil þrjátíu áram þegar ég gekk í Björgunarsveitina Álbert kynntumst ég og Steinunn honum af eigin raun þar sem mikil vinátta milli okkar og sonar hans, Jonna, og Ástu, tengdadóttur hans, hófust. Gaui var maður með stórt hjarta og mjög hjálpsamur, hann var alltaf mættur ef einhver þurfti á honum að halda, hann var allt í öllu, sá m.a. um að brennan norðan við Borg, svokölluð Borgarbrenna, yrði sæmilega stór. Ég minnist allrar hjálpar hans þegar ég var að gera við bílana okkar og síðast fyrir sex árum, þegar vélin í bílnum okkar sprakk, voru góð ráð dýr, og auðvitað var kallað í Gauja. Það var auðvitað sjálfsagt að bjarga þessu og aldrei tók hann greiðslu fyrir neitt sem hann gerði, sagðist bara eiga það inni þar til seinna. Hér á áram áður fannst okkur unga fólk- inu forréttindi að ferðast með Gauja og Bára því þar sem Gaui var, var alltaf nóg um að vera. Hann lék við krakkana, lét læki loga og sagði góð- ar sögur. Gaui var mikill barnavinur og börn hændust að honum þótt hann væri stórgerður maður og með þær stærstu hendur sem ég hef séð. Hjá börnunum gekk hann undir nafninu „afi prins-póló“ og hafa fáir átt eins mörg afabörn og Gaui. Gaui var mikill nátturuunnandi, hann sá um æðarvarpið og að allt fuglalíf í Gróttu fengi að vera í friði fyrir fólki og hundum á meðan varp stóð yfir. Með þessum fátæklegu orðum vilj- um við og börnin okkar þakka Gauja allt. Hver minning er dýrmæt perla að liðnum lífsins degi. Hin ljúfuoggóðukynni aðalhugþökkumþér þinn kærieikur í verki var gjöf sem gleymist eigi. Oggæfavarþaðöllum sem fengu að kynnast þér. (Ingibj.Sig.) Elsku Bára, Jonni, Otti, Bobba, Gaui og fjölskyldur ykkar, guð gefi ykkur styrk. Gunnar, Steinunn og börn. Hann er dáinn hann Gaui Jóna- tans sem hefur lengi verið fastur punktur í tilveranni hér á Seltjam- amesi. Þegar best lét var Guðjón bókstaflega allt í öllu hér á Nesinu og þeir era ófáir sem skulduðu hon- um greiða fyrir ýmis viðvik sem hann var alltaf boðinn og búinn að inna af hendi fyrir samferðafólk sitt. Guðjón hóf störf í Áhaldahúsi Sel- tjarnarnesbæjar í desember 1969 og starfaði þar óslitið þar til í desember 1993 þegar hann lét af störfum vegna aldurs. Við sem störfuðum með honum dáðumst að því hversu laghentur hann var og gat gert við fínlegustu hluti og vélverk með sín- um stóra höndum. Meðan Guðjón vann hjá Seltjarnarnesbæ fékk hann ^ mikinn áhuga á fuglalífinu hér á Nesinu og tók að sér gæslu Gróttu og Bakkatjarnar og reyndi eftir megni að halda hundum og minkum frá fuglinum meðan á varpi stóð. Eft- ir að hann fór á eftirlaun tók hann að sér vörslu svæðanna nokkur sumur og verður skarð hans vandfyllt. Guð- jón var mikill félagsmálamaður og var hann t.d. í hópi stofnenda Leikfé- lags Seltjarnarness, Slysavarnafé- lagsins og Rotary-klúbbsins svo eitt- hvað sé nefnt. Guðjón vann hjá Seltjarnameshreppi og -bæ í 24 ár_ og leysti öll sín verkefni vel af hendi, hélt misgóðum vélum og áhöldum gangfæram. Þegar menn eins og Guðjón falla frá fara menn að naga sig í handarbökin fyrir að hafa ekki sett allt á blað sem hann vissi t.d. um Vatnsveitu Seltjarnarness, þar sem hann var á heimavelli. Fyrir nokkr- um áram varð Guðjón mjög veikur og var vart hugað líf en hann reif sig upp úr því, að vísu verulega laskaður en samt var enn í honum krafturinn þegar tók að vora og fuglarnir fóru að hreiðra sig við Bakkatjöm og í Gróttu. Þetta ár höfum við kvatt fjóra starfsmenn Seltjarnarnesbæj- ar sem allir höfðu unnið með okkur í 20-30 ár og er þeirra sárt saknað. Þegar við kveðjum Guðjón er þakk- læti efst í huga fyrir að hafa verið honum samferða öll þessi ár og við samstarfsfólk hans kveðjum góðan félaga og sendum Báru og börnum þeirra og fjölskyldum innilegar sam- úðarkveðjur. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri. • Fleiri minningargreinar um Guð- jón Sigurð Jónatansson bíða birt- ingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga. + Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, FANNEY HERVARSDÓTTIR, Skarðsbraut 1, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 17. september sl. Útförin verður auglýst síðar. Guðmunda Eiríksdóttir, Hervar Gunnarsson, Alfa Ágústa Pálsdóttir, Guðmundur Ingi Gunnarsson, Elizabeth J. W. Gunnarsson, Hreinn Gunnarsson, Sólrún Jörgensdóttir, systkini, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRGVIN JÓNSSON frá Ási, Brennihlíð 1, Sauðárkróki, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 17. sept- ember. __________________ Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 23. september kl. 14.00. Jófríður Tobíasdóttir, Kristinn Tobías Björgvinsson, Jón Ingi Björgvinsson, Aðalheiður Sveina Einarsdóttir, Fríða Björg, Ingunn Elsa, Einar Örn og Hlynur Rafn. + Hjartkær móðir okkar, SÓLVEIG INDRIÐADÓTTIR frá Syðri-Brekkum á Langanesi, sem andaðist á Sjúkrahúsi Þingeyinga laugardaginn 16. september sl., verður jarðsungin frá Neskirkju í Aðaldal laugardaginn 23. september kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Börn hinnar látnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.