Morgunblaðið - 20.09.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 47
I DAG
BRIDS
Umsjón Uuðmiiiiiliir
l’áll Ariiarsim
HELSTU keppinautar ís-
lands í D-riðli á ÓL í
Maastricht voru sveitir
Nýja-Sjálands, Suður-Afr-
íku og Kína. Þessar þjóðir
enduðu í 5.-7. sæti og rétt
misstu því af lestarmiðan-
um inn í 16 liða úrslit. ís-
land mætti Nýja-Sjálandi í
annarri umferð og vann
25-5, sem var ótrúlega
góður sigur gegn svo
sterkri þjóð. Margt var vel
gert í leiknum, en spilið
hér að neðan fær engin
fegurðarverðlaun. Hins
vegar má læra töluvert af
því:
Suður gefur; AV á
hættu.
Norður
A G3
¥ 98754
♦ D102
+ KG10
Vestur
A KIO
¥ 632
♦ 9653
* 8753
Austur
* 987
¥ GIO
* ÁG84
* ÁD96
Suður
a ÁD6542
¥ ÁKD
♦ K7
A 42
Geim var spilað í NS á
báðum borðum. Ný-Sjá-
lendingurinn Martin Reid
spilaði fjögur hjörtu í suð-
ur eftir sterka laufopnun
og gervisagnir í framhald-
inu. Hann fékk út tromp
og spilaði strax spaða að
gosanum. Matthías Þor-
valdsson fór upp með
kónginn og varð nú að
hitta á að spila laufí. En
hann valdi tígul og þegar
Þorlákur Jónsson iét gos-
ann á tíuna var sagnhafí
kominn með 11 slagi.
Á hinu borðinu varð
Magnús Magnússon sagn-
hafí í fjórum spöðum.
Hann opnaði á spaða,
Þröstur Ingimarsson svar-
aði á kröfugrandi og síðan
lá leiðin upp í fjóra spaða.
Vestur kom út með hjar-
tatvist.
Magnús átti slaginn og
spilaði strax spaðaás og
meiri spaða. Nú var vestur
í svipaðri stöðu og Matt-
hías - hann þurfti að hitta
á rétta láglitinn, en giskaði
á tígul. Lítið úr borði og
ásinn hjá austri. Magnús
lét sjöuna, en sagði sjálfur
að leik loknum að auðvitað
hefði hann átt að láta
kónginn undir! Þá getur
austur ekkert gert, og um
síðir verður tíguldrottning-
in innkoma á fríhjörtun.
En samt vann Magnús
spilið. Austur spilaði
hjarta og þegar Magnús
hafði tekið trompin og
þriðja hjartað, spilaði hann
laufí á gosann. Austur
drap á drottningu og spil-
aði af óskiljanlegum
ástæðum tígli!? Þar með
hvarf lauftapslagurinn og
ísland tapaði aðeins einu
stigi á spilinu.
Hér eru mörg mistök í
einu spili. En kannski er
lærdómsríkast að hugsa
um vörn vesturs. Hvernig
á hann að fínna það að
spila laufi en ekki tígli.
Það er í raun einfalt.
Þegar Magnús spilaði
spaðaás og spaða hefði
austur átt að fylgja lit í
röðinni 7-8 til að benda á
lægri litinn - lauf. Ef aust-
ur vill fá tígul, lætur hann
fyrst háan spaða og svo
lægri. Þetta er í raun hlið-
arkallsstaða. Matthías var
í erfiðari aðstöðu, því suð-
ur spilaði strax smáum
spaða að gosanum og það
var erfitt að túlka spaða-
sjöu Þorláks sem kall í
laufi.
Arnad heilla
AA ÁRA afmæli. í dag,
t/U miðvikudaginn 20.
september, verður níræð
Guðlaug Ólöf Stefánsdóttir.
Guðlaug var gift Guðmundi
Gunnlaugssyni, húsasmíða-
meistara, sem lést 1975.
Bjuggu þau lengi á Siglu-
firði en fluttust til Keflavík-
ur 1952. Guðlaug dvelur nú á
hjúkmnarheimilinu Garð-
vangi í Garði.
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 17. júní sl. í Hall-
grímskirkju af Samúel Ingi-
marssyni Bryndís Rut Stef-
ánsdóttir og Hafsteinn
Gautur Einarsson. Heimili
þeirra er að Fjölnisvegi 9,
Reykjavík.
SKAK
Umsjón llelgl Áss
Grótarssiin
STAÐAN kom upp á
milli - stórmeistaranna
Julian Hodgson (2640),
svart, og Colin McNab
(2416) á alþjóðlegu skák-
móti sem lauk í London
fyrir skömmu. 25...Rxd3!
26.Bd2 111
nauðsyn þar
sem 26.Hxd3
Hxd3 27.Dxd3
gekk ekki upp
sökum
27.. .Dxel.
26.. .Dc5 27.Hfl
Dxc4 28.Bg5
Rb2 29.Dxc4
Rxc4 30.Bxf6
gxf6 31.Bd7
Hd8 32.Bxc6
Hxa3 33.Hal
Hxal 34.Hxal
Hc8 35.Bxa4
Ha8 og hvítm-
gafst upp enda fátt um
fína drætti. Lokastaða
Ólympíuleika hugans í
skákinni varð þessi: 1.
Daniel Gormally, 714
vinningur af 9 möguleg-
um. 2. Aaron Sum-
merscale, 7 v. 3.-6. Al-
exander Cherniaev,
Mark Hebden, Julian
Hodgson og Amon Simu-
towe allir með 6 14 hver.
Svartur á leik.
Alþjoðlegt stærðfræðiár
Árið 2000 er alþjóðlegt stærðfræðiár. 27. september stendur
Flötur samtök stærðfræðikennara fyrir Degi stærðfræðinnar.
Þá munu vonandi sem flestir skólar landsins hafa stærð-
fræðina í fyrirrúmi. Flötur hefur gefið út rit sem í eru rúmfræði-
verkefni sem upplagt er að nota á Degi stærðfræðinnar og
verður hann sendur í alla skóla á næstunni. Einnig verða
kynningarfundir víða um land. ■■■■ mmam
Þraut 18
Fáni er hannaður eins og myndin sýnir. I
Krossinn er alls staðar jafn breiður og
fáninn er samhvefur bæði lárétt og lóðrétt. Ef hæð fánans er
3 metrar og breidd 4 metrar hvað ættu þá armar krossins að
vera breiðir ef flatarmál krossins á að vera helmingur af flatar-
máli fánans?
Svar við þraut 17.
B,
4
LiOÐABROT
KVOLDBÆN
Gyðja sælla drauma,
gættu að barni þínu!
Lokaðu andvaka
auganu mínu.
Bía þú og bía,
unz barnið þitt sefur.
Þú ein átt faðm þann,
sem friðsælu gefur.
Þú ert svo blíð og mjúkhent
og indælt að dreyma.
Svo er líka ýmislegt,
sem egvil gleyma.
Jóhann Gunnar Sigurðsson
STJÖRNUSPA
cftir Fram cs Hrake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú ertframsýnn ogferð
nærri um það hvaða stefnu
þú vilt að lífþitt taki.
Þér hættir þó til of
mikillar stefnufestu.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þótt þér finnist eigin rödd
hljóma best verður þú að
leyfa öðrum að komast að því
annars muntu bara einangr-
ast og sjónarmið þín sömu-
leiðis.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Forðastu allar skyndiákvarð-
anh- sérstaklega á sviði fjár-
mála. Gerðu þér far um að
halda hlutunum í jafnvægi
þegar til lengri tíma er litið.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) AA
Það er aldrei of seint að
brydda upp á nýjungum og
beina orku sinni inn á aðrar
brautir en þessar venjulegu.
Leyfðu hlutunum að hafa
sinn gang.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Láttu ekki einhver smáatriði
trufla einbeitingu þína. Haltu
þig við efnið og lejTðu þeim
hlutum sem þér koma ekki
við að hafa sinn gang.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Leyfðu ímyndunaraflinu að
njóta sín því það er aldrei að
vita hvenær brúkleg hug-
mynd dettur í þig og gerir þér
kleift að ná sérstökum ár-
angri í starfi.
Méyja
(23. ágúst - 22. sept.) (SSL
Þeir eru margir sem eiga allt
sitt undir því að þú getir lokið
þeim verkefnum sem þú hef-
ur tekið að þér. Sýndu kurt-
eisi og gerðu þitt besta.
Vog rrx
(23. sept. - 22. okt.)
Þótt vinsældir þínar sem
ræðumanns séu miklar verð-
ur þú stöðugt að hafa gætur á
því hvort tímabært sé að
rétta öðrum hljóðnemann.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er svo sem í lagi að taka
áhættu ef þú endilega þarft
en gættu þess að hún sé ekki
úr hófi fram og að þú eigir
alltaf örugga leið til baka.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) AiCr
Þú munt standa frammi fyrir
forvitnilegum nýjungum og
verður að ákveða þig hvort þú
vilt leggja nógu mikið á þig til
þess að nýta þær í starfi.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Það er margt spjallað í kring-
um þig og það virðist valda
þér einhveijum áhyggjum.
Láttu þér þetta þó í léttu
rúmi liggja og einbeittu þér
að þínu.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Þótt spennandi sé að halda á
ókunnar slóðir skaltu gæta
þess að sýna fyrirhyggju því-
það hefnir sín alltaf að ana út
í óvissuna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft að finna þér nýjar
verklagsreglur því annars sit-
ur þú bara uppi með óviðráð-
anleg verkefni. Gættu þess að
ofhlaða ekki verkefnaskrána.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöI. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaíegi'a staðreynda.
Nu er
Kuldaúlpurnar
eru komnar
Verð frá kr. 7.900
Nýbýlavegi 12,
Kóp., sími 554 4433.
EIG3NAMIÐUUMN
Slorhmenn: Sverrir Krístinsson lö ..________________T______............
k og lögg.fosteignasali, skjalagerð. Stefón Hrofn Stefónsson lö
uuJgeirsson, sölumoður, Jóhonno Voldimorsdóltir, ouglýsingor, gi
Steinorsdóttir, simavorsla og öflun skjalo, Rakel Dögg SÍgurgeirsd
n,B.Sc., sölum.,Guömundur Sigurjónsson
r R. Horðorson, sölumoður, Kiarton
eri, Inga Hannesdóttir, simovarski og ritori, Olöf £
r, simavarsla og öflun skjalo.
r
Sími 588 9090 * Fnx 588 9095 * SíAmiiiilu 2 I
SVIikil sala - vantar eignir
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar
stærðir og gerðir eigna, bæði íbúðar- og atvinnu-
húsnæði, á söluskrá. llm þessar mundir er verð
fasteigna hátt og sterkar greiðsiur í boði.
Sýnishorn úr kaupendaskrá: nokkur einbýlishús óskast til kaups. Flest
einbýlishús á söluskrá okkar hafa selst á síðustu vikum. Enn eru þó all-
margir kaupendur á kaupendaskrá. í mörgum tilvikum erum stað-
greiðslu að ræöa.
Sérhæð óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 120-160 fm sérhæð í
vesturborginni eða Þingholtunum. Sterkar greiðslur í boði.
Sérhæð í Rvík. óskast - eða hæð og ris. Höfum kaupanda að 120-160
fm sérhæð í Rvík. Hæð og ris kemur einnig vel til greina. Traustur
greiðslur í boði.
íbúð í vesturborginni óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 4ra herb.,
100-120 fm íbúð í vesturborginni. Fleiri stærðir koma til greina. Stað-
greiðsla í boði.
íbúð við Skúlagötu. Kirkjusand eða Neðstaleiti óskast. Traustur kaup-
andi óskar eftir 3ja-4ra herb. 80-120 fm íbúð á ofangreindum svæðum.
Staðgreiðsla í boði.
íbúð i Mosfellsbæ óskast. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að ut-
vega 3ja herb. íbúð í Mosfellsbæ til kaups.
íbúð í vesturborginni óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 3ja herb.
íbúð í vesturborginni. Staðgreiðsla í boði.
2ja-3ja herb. íbúðir óskast. Höfum trausta kaupendur að 2ja og 3ja
herb. íbúðum í Reykjavík og nágrenni.
ATVINNUHÚSNÆÐI ÖSKAST
Skrifstofuhæð og verslunarpláss óskast. Traustur kaupandi hefur
beðið okkur að útvega 500 fm skrifstofuhæð til kaups. Æskilegt er að
60-100 fm verslunarpláss á jarðhæð í sama húsi fylgi. Nánari uppi. veita
Óskar og Sverrir.
1500-2000 fm skrifstofupláss óskast. Traust fyrirtæki óskar eftir
1500-2000 fm skrifstofupiássi, gjarnan á tveimur hæðum. Góð bíla-
stæði æskileg. Plássið má vera fullbúið eða tilb. u. tréverk.
Atvinnuhúsnæði óskast. Traustur fjárfestir óskar eftir atvinnuhúsnæði
sem er i útleigu. Eignin má kosta allt að kr. 500.000.000,-.
Z
Brúðhjón
Allur boróbiínaöur Glæsileg gjaíavara Brúðhjdnalistar
/i- K^'vXyxV yerslunin
Laugnvegi 52, s. 562 4244.