Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fundur um upplýsingatækni í Menntaskólanum á Akureyri
Ljósmynd/Sverrir Páll
Skólafundur um upplýsingatækni í Menntaskólanum á Akureyri var vel sóttur en þar var gerð grein fyrir notkun upplýsingatækni í kennslu og nem-
endur fjölluðu um sína reynslu af upplýsingatækni í námi i skólanum.
Skólinn verði betri námsstofn-
un og námið innihaldsríkara
Ljósmynd/Gunnar Salvarsson
Ámi Sigfússon, framkvæmdastjóri Tæknivals, og Tryggvi Gíslason
skólameistari skrifuðu undir samstarfssamning um tækni nýrra tíma.
STAÐA upplýsingatækni í Mennta-
skólanum á Akureyri var til um-
fjöllunar á fundi sem haldinn var á
sal skólans í vikunni.
Tryggvi Gíslason skólameistari
lýsti á fundinum hvílík breyting
væri orðin á skólastarfí á stuttum
tíma, en það hefði breyst meira á
síðustu fímm árum en fímmtíu ár-
um þar á undan. Stefnu Mennta-
skólans á Akureyri sagði hann vera
þá að drukkna ekki né drekkja
neinum í tækni- og tækjaflóði, með
þróunarstarfi skólans væri verið að
kanna hvort og þá hvernig unnt
væri að nota nýja tækni til að gera
skólann að betri námsstofnun og
nám nemenda innihaldsríkara.
Sverrir Páll Erlendsson, ritstjóri
vefs MA, gerði grein fyrir vefnum
og benti m.a. hversu nauðsynlegt
væri að endurnýja hann reglulega.
Vefurinn gegnir veigamiklu hlut-
verki í daglegu starfí skólans.
Níels Karlsson, deildarstjóri í
stærðfræði, fjallaði um upplýsinga-
tækni í stærðfræðinámi, en gerði
m.a. grein fyrir nýjum stærðfræði-
vef sem hann hefur hannað til hlið-
ar við kennslubók í stærðfræði 103.
Sigrún Aðalgeirsdóttir, deildar-
stjóri í þýsku, gerði grein fyrir fyrir
verkefnum sem unnin hafa verið í
þýsku, m.a. um borgir og staði í
þýskumælandi löndum og tónlist af
sömu slóðum. Selma Hauksdóttir,
deildarstjóri í dönsku, sagði frá
upplýsingatækni í dönsku, m.a. vef-
leiðangri um H.C.Andersen og verk
hans og ævintýrinu um Pippa sem
fæddist sem myndasaga í dönsku-
tíma, en varð að vef sem endaði sem
kennsluefni í bandarískum barna-
skólum. Loks sagði Gígja Gunnars-
dóttir, deildarstjóri í íþróttum, frá
því hvernig upplýsingatækni er
beitt í íþróttanámi, bóklegum hluta
námsins, um heilsu og heilbrigði
auk þess sem nemendur glímdu við
að finna og kynna öðrum ólíkleg-
ustu íþróttir framandi landa.
Fartölvur hafa
reynst nemendum vel
Ásrún Ösp Jónsdóttir í 4. bekk og
Lára Sóley Jóhannsdóttir nemandi
í 3. bekk gerðu grein fyrir reynslu
sinni af námi þar sem tölvur eru
mikið notaðar og Hannes Árdal í 4.
bekk sagði einnig frá sinni reynslu
en hann hefur notað fartölvu í námi
sínu í eitt ár. Eftir að hann náði tök-
um á þeirri tækni sem vélin hefur
að bjóða, sagði hann að hún hefði
stórlega auðveldað sér námið í skól-
anum. Stúlkurnar studdu þá stefnu
skólans að fara hægt í fartölvumál-
um og leggja ekki á nemendur
kvaðir á borð við kaupleigusamn-
inga sem kæmu í bakið á fólki síðar
meir.
Örlygur Hnefill Örlygsson í 1.
bekk og vefstjóri vefs Hugins,
skólafélags MA, fjallaði um þær
vonir sem nemendur hefðu bundið
við bjartsýnislegar yfirlýsingar
menntamálaráðherra um að öllum
nemendum yrði gert kleift að eign-
ast fartölvur, en reyndin orðið önn-
ur og við núverandi aðstæður væri
sú hætta fyrir hendi að fartölvueign
og upplýsingatækninám færi eftir
ríkidæmi foreldra nemendanna og
slíkt misrétti væri hættulegt.
Tækni nýrra tíma
Á fundinum skrifuðu þeir Árni
Sigfússon, framkvæmdastjóri
Tæknivals, og Tryggvi Gíslason
skólameistari undir samstarfs-
samning um tækni nýrra tíma, en í
honum er m.a. fólgið að kanna
hvernig samskiptum menntastofn-
unar og tölvufyrirtækis verður best
fyrir komið. Rómaði Árni samstarf-
ið við MA og gat þess að skólinn
væri óefað í fremstu röð þróunar-
skólanna í upplýsingatækni.
Drullupollur á ldð
Landsbankans
Bærinn
að eignast
lóðina
VIÐRÆÐUR hafa staðið yfir milli
Landsbanka Islands og Akureyr-
arbæjar um að bærinn kaupi hluta
af lóðinni austan við útibú bankans
í miðbænum og sjái jafnframt um
frágang og skipulag svæðisins, að
sögn Sigurðar Sigurgeirssonar úti-
bússtjóra Landsbankans á Akur-
eyri.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu sl. laugardag hafa vegfarendur
sem leið eiga um lóð bankans átt
erfitt um vik, þar sem þar hefur
myndast stór og mikill drullupoll-
ur. Hákon Stefánsson bæjarlög-
maður sagðist reikna með að bær-
inn eignaðist umrædda lóð. Hins
vegar hafi ekki verið gengið form-
lega frá samningi við bankann og
því hvíldi engin skylda enn á bæn-
um að ganga frá svæðinu.
Sigurður sagði að þarna væri
m.a. gert ráð fyrir bílastæðum en
Landsbankinn heldur eftir þeim
hluta lóðarinnar sem ætlaður var
fyrir viðbyggingu bankans. Hins
vegar hafa byggingaráform bank-
ans verið lögð til hliðar, í bili að
minnsta kosti.
Sigurður sagði þetta ástand á
svæðinu óviðunandi, en ekki hafi
tekist að ganga frá málum við
bæinn áður en ráðist var í frágang
utan við nýbygginguna að Strand-
götu 3. Sigurður sagðist jafnframt
vonast til að gerðar yrðu lagfær-
ingar á lóðinni sem allra fyrst og
undir það tók bæjarlögmaður.
--------------------
Akurey rarkirkj a
Opið hús
fyrir eldri
borgara
OPIÐ hús verður fyrir eldri borgara
síðasta fimmtudag hvers mánaðar í
vetur verður í safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju.
Þessar samverustundir hafa verið
vel sóttar undanfarin ár. Boðið er
upp á fjölbreytta dagskrá og veiting-
ar. Akstur tH kirkjunnar er einnig í
boði og fer bíll frá Sérleyfisbílum
Akureyrar frá Kjarnalundi, Víði-
lundi og Hh'ð. Fyrsta samverustund
vetrarins verður nú á fimmtudag, 26.
október kl. 15. Ræðumaður verður
Þráinn Karlsson, leikari, blokk-
flautusveit frá Tónlistarskólanum
kemur í heimsókn og séra Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir flytur bænarorð, þá
verður almennur söngur og veiting-
ar. Bíll fer frá Kjarnalundi kl. 14.15,
Víðilundir, 14.30 og Hlíð 14.45.
Formaður atvinnumálanefndar Akureyrarbæjar segir að bæjarbúum muni fjölga
Sóknarfæri skapast í
verslun o g þjónustu
VALUR Knútsson, formaður at-
vinnumálanefndar Akureyrarbæj-
ar, sagði að hlutfall þjónustustarfa
á Akureyri hefði verið lágt miðað
við Reykjavík og því alls ekki frá-
leitt að ætla að það væru sóknar-
færi í þjónustugeiranum á Akur-
eyri og þá í verslun eins og öðru.
„Við sjáum það líka í tölvufyrir-
tækjunum, sem hafa verið að
spretta upp í bænum, að við erum
að auka hlut okkar í þjónustu og
það er vel.“
Valur sagði að í þeirri umræðu
sem átti sér stað fyrir fáum árum
um lágt hlutfall þjónustustarfa á
Akureyri miðað við höfuðborgar-
svæðið, hefðu menn viljað gera því
skóna að á Akureyri væri verið að
kaupa svo mikið af þjónustunni að.
„Því það er alls ekki þannig að við
hér fyrir norðan þurfum ekki á
þjónustunni að halda.“
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu telur Ragnar Sverrisson, for-
maður Kaupmannafélags Akureyr-
ar, að störfum í verslun á Akureyri
muni fjölga um allt að 100 hundrað
á næstunni, m.a. með tilkomu
verslunarmiðstöðvarinnar Glerár-
torgs, nýrrar verslunar Bónuss og
lengds afgreiðslutíma. Valur sagði
að Ragnar hefði að sínu mati alveg
rétt fyrir sér, það væru sóknarfæri
í verslun í bænum sem verið væri
að nýta núna.
Verslunareigendur horfa til þess
að íbúum bæjarins hefur verið að
fjölga á árinu og eigi eftir að fjölga
enn frekar og með því að lengja af-
greiðslutíma vonast þeir eftir því
að fá fleiri viðskiptavini frá ná-
grannasveitarfélögunum og nálæg-
um landshlutum.
Engin stóriðjutækifæri í hendi
Spurður um sóknarfæri á fleiri
sviðum sagði Valur að í þjónustu-
geiranum hefði tækni- og hugbún-
aðargeirinn verið að vaxa. „Við hjá
atvinnumálanefnd ætlum að kanna
starfsemi þessara fyrirtækja sem
hafa verið að koma hingað. Ég vil
meina að þau séu töluvert í við-
skiptahugbúnaðarlausnum en að
við getum vaxið í annars konar ráð-
gjöf, t.d. í rekstrar- og tækni-
ráðgjöf.“
Varðandi orkufrekan iðnað og
stóriðju sagði Valur að unnið væri
að því að ljúka ákveðinni undirbún-
ingsvinnu varðandi lóðina á Dys-
nesi. Með því standi menn betur að
vígi, þótt ekki séu nein stóriðju-
tækifæri í hendi. Kynningar- og
markaðsátak Akureyrarbæjar, sem
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
og Valur, formaður atvinnumála-
nefndar, kynntu í sumar hefur far-
ið rólega af stað.
Átaksverkefni að fara af stað
Markmiðið með átakinu er að
auka atvinnuframboð og fjölga eft-
irsóknarverðum störfum í bænum
og þar með íbúum. Stefna bæjaryf-
irvalda er að fjölga störfum um 2%
árlega, sem jafngildir um 150 störf-
um og að árleg fjölgun íbúa bæjar-
ins verði 150-300.
„Það hefur dregist að koma
þessu átaki af stað en við reiknum
með að geta farið að koma því í
fullan gang,“ sagði Valur. Bæjaryf-
irvöld samþykktu að veita 13 millj-
ónir króna til verkefnisins á næstu
tólf mánuðum.