Morgunblaðið - 25.10.2000, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Þjónustumiðstöð kvenna á Netinu
Morgunblaöið/Þorkell
ÍSLENSK útgáfa af þjónustumið-
stöð kvenna í atvinnurekstri á
Netinu, www.onelinewbc.org, var
opnuð í gær af Barböru J. Griff-
iths, sendiherra Bandaríkjanna á
íslandi. Á síðunni kemur fram að
henni er ætlað að hjálpa konum til
þess að láta drauma sína um
þroska og velferð í einka- og við-
skiptalífi rætast. Markmiðið er að
veita þeim þá þekkingu og færni
sem þær þurfa til þess að geta
skipulagt fjárhagslegt sjáifstæði
sitt með því að eiga og reka sitt
eigið fyrirtæki.
Vefsíðan „Online Women’s Bus-
iness Center" er til komin vegna
hugsjónar bandarisku rikisstofn-
unarinnar SBA’s Office of Wom-
en’s Business Ownership sem og
„North Texas Women’s Business
Development Center" og þjónustu-
miðstöðva SBA fyrir konur sem
staðsettar eru víðsvegar um
Bandaríkin.
Síðan er íslenskuð að frum-
kvæði Impru - þjónustumiðstöðv-
ar frumkvöðla og fyrirtækja og
með stuðningi Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins. Samstarfsaðilar í
þýðingarstarfinu hafa verið Há-
skólinn í Reykjavík undir merkj-
um verkefnisins Auður í krafti
kvenna og samstarfsfyrirtæki þess
verkefnis, Deloitte og Touche.
Að sögn sendiherra Banda-
ríkjanna, Barböru J. Griffíths, þá
Útboð á GSM-leyfum
í Danmörku
Lítill áhugi
erlendra
fyrirtækja
SEX tilboð bárust í samtals fjögur
ný leyfi til rekstrar á neti fyrir
GSM-farsíma í Danmörku að því
er kemur fram í Politiken. Tilboðin
eru öll frá fyrirtækjum sem eru
starfandi á farsímamarkaðinum í
Danmörku. Búist er við að fyrstu
leyfin verði gefin út 31. janúar
2001. Tvö leyfi voru gefin út fyrir
900 MHz net og tvö fyrir 1800
MHz net. Fyrrverandi ríkissíma-
fyrirtækið Tele Danmark og elsti
og stærsti keppinautur þess Sono-
fon buðu í leyfi fyrir bæði netin og
fá þau úthlutað leyfi 1800 MHz
net.
Alls buðu fjögur fyrirtæki í 900
MHz leyfin, þar á meðal Tele
Danmark og Sonofon, en þar sem
hvert fyrirtæki getur aðeins fengið
eitt leyfi koma þau ekki til greina.
Því eru allar líkur á að Mobilix og
Telia fá úthlutað þessum leyfum.
Dönsk yfirvöld höfðu vonast eft-
ir því að stór erlend. símafyrirtæki,
til dæmis Deutsche Telekom,
myndu einnig reyna að komast inn
á markaðinn og auka þannig sam-
keppnina en þau reyndust engan
áhuga hafa á danska markaðinum.
var oneIinewbc.org opnuð í janúar
1998 og var hún fyrsta vefsíðan
sem stendur konum til boða án
gjalds til þess að þeim megi auð-
nast að ná góðum árangri í við-
skiptalífinu. Vakti vefsíðan strax
mikla athygli og eru heimsóknir
inn á vefsvæðið yfir eitt hundrað
þúsund í hverjum mánuði. Auk
þess að vera á ensku og íslensku
þá hefur hún verið þýdd á kín-
VERÐBRÉFAÞING íslands tekur
í notkun nýtt viðskiptakerfi mánu-
daginn 30. október næstkomandi
og í tengslum við það mun við-
skiptayfirlitum þingsins verða
breytt til samræmis við það sem
margar erlendar kauphallir gera.
Stærsta breytingin felst í því að
greint verður á milli veltumestu
hlutabréfanna og annarra hluta-
bréfa.
Nú hafa 11 félög verið valin í
flokk veltumestu bréfanna, að því
er fram kemur í tilkynningu Verð-
bréfaþings. Þau eru, raðað eftir
veltu: Íslandsbanki-FBA hf.,
Landsbanki íslands hf., Samherji
hf., Hf. Eimskipafélag íslands, Öss-
ur hf., Baugur hf., Olíufélagið hf.,
Marel hf., Búnaðarbanki Islands
hf., Tryggingamiðstöðin hf. og Opin
kerfi hf. Öll þessi félög voru með
samanlagða veltu á þingi og utan
þings yfir 5 milljörðum króna síð-
ustu 12 mánuði og markaðsverð
þeirra er yfir 10 milljörðum króna.
Valið verður endurskoðað tvisvar
á ári þannig að nýr listi taki gildi 1.
janúar og 1. júlí ár hvert. Litið
verður til veltu síðustu 12 mánaða
og markaðsvirðis á ákvörðunar-
degi, en skilyrðin eru eðli máls
versku, japönsku, spænsku og
rússnesku. Innan tíðar verður
opnuð frönsk og arabísk útgáfa
vefjarins.
I ávarpi Valgerðar Sverrisdótt-
ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
kom fram að til þess að ná forskoti
í samkeppni þá þurfi fyrirtæki að
vera virk í þekkingarsköpun og
miðlun ásamt þvf að nýta sér þá
þekkingu sem er til staðar.
samkvæmt breytileg og taka mið af
markaðsaðstæðum á hverjum tíma.
Gert er ráð fyrir að veltumestu
félögin verði ávallt u.þ.b. 8-12 tals-
ins. Mögulegt er að nýskráð félag
bætist í þennan flokk strax við
skráningu ef líkur eru taldar á mik-
illi veltu með félagið. Einnig er
hugsanlegt að félag skráð á Vaxt-
arlista komist á listann.
Ef hlutabréf félags teljast til
veltumestu hlutabréfanna er svo-
„Heimasiða sem þessi er virkt
tæki fyrir konur í atvinnurekstri.
Til þess að öðlast meiri þekkingu
á atvinnurekstri óháð búsetu. Slík
upplýsingamiðlun er ómetanleg."
Sagðist ráðherra vera þess
fullviss að þýðing síðunnar muni
leiða til fjölgunar fyrirtækja
kvenna en aukin þátttaka þeirra í
atvinnurekstri treystir stöðu ís-
lcnsks atvinnu- og efnahagslífs.
kölluð viðskiptalota bréfanna í við-
skiptakefí Verðbréfaþings um tvö-
falt stærri en hjá öðrum félögum.
Viðskipti verða þó möguleg með
smæstu fjárhæðir, en þau hafa ekki
áhrif á verðmyndun. Einnig má
geta þess að veltumestu félögin
verða hvött til að birta fréttir sínar
á ensku samtímis því að þau birta
þær á íslensku, til þess að auðvelda
erlendum fjárfestum að fylgjast
með þeim.
Norskur
sparisjóður
ákjósanleg-
ur kostur
Óslri. Morgunblaðið.
FJÁRFESTINGARBANKINN
Merrill Lynch mælir nú sérstaklega
með kaupum á hlutabréfum í norska
sparisjóðnum Sparebanken Nor og
spáir því að sparisjóðnum verði
breytt í hlutafélag á seinnihluta
næsta árs, að því er fram kemur í
Finansavisen. Sparebanken Nor
hefur sótt um leyfi til að breyta fé-
laginu í hlutafélag.
Breyting sparisjóðsins í hlutafé-
lag er forsenda fyrir góðri afkomu
hans og að mati Merrill Lynch getur
gengi hlutabréfanna hækkað um 30-
40% í kjölfarið. Hlutabréf í Spare-
banken Nor eru þau lægst verðlögðu
af bönkum í Evrópu, að sögn Denise
Holle, sérfræðings hjá Merrill
Lynch, og á bankinn það ekki skilið.
------*-*-*----
Tilboð MeritaNord-
banken í Kreditkassen
77% hafa
samþykkt
tilboðið
Ósló. Morgunblaðið.
MERITANORDBANKEN hefúr
fengið tilboð sitt í norska Kredit-
kassen samþykkt af handhöfum
67% hlutafjár og ræður nú yfir 77%
hlutafjár í bankanum þar sem Mer-
itaNordbanken átti áður 10%. Til-
boðið er bundið af því að samþykki
fáist frá handhöfum a.m.k. 90%
hlutafjár.
Dagens Næringsliv greinir frá
því að afkoma MeritaNordbanken
hafi verið í samræmi við væntingar
markaðssérfræðinga. Rekstarhagn-
aður eftir þriðja ársfjórðung nemur
1.962 milljónum evra eða tæpum
140 milljörðum króna.
------^--------
Boxman leggur
upp laupana
Óslð. Morgunblaðið.
NETVERSLUNIN Boxman sem
hefur aðsetur í Svíþjóð hefur nú end-
anlega hætt starfsemi og í vikunni
var 120 starfsmönnum sagt upp.
Þar með er enn eitt gjaldþrot net-
fyrirtækis orðið að veruleika, eins og
segir í Dagens Næringsliv.
Fyrir nokkrum vikum varð ljóst
að Boxman ætti við verulega erfið-
leika að etja en stjórn fyrirtækisins
var ávallt bjartsýn á að einhver
myndi vilja kaupa reksturinn. Ur því
varð ekki.
Boxman seldi geisladiska á Netinu
og óx hratt eftir stofnun fyrirtækis-
ins árið 1997. Rekstrarkostnaður var
alltaf mikill en tekjur ekki að sama
skapi.
Nýtt viðskiptakerfí tekið í notkun hjá Verðbréfaþingi íslands
Veltumestu hlutabréfin
greind frá öðrum bréfum
Félög á verðbréfaþingi með mestu veltuna
Velta í milljörðum kr. Markaðsvirði í milljörðum kr.
íslandsbanki - FBÁhf. 27,5 r 50,9
Landsbanki (slands hf. 12,7 30,7
Samherji hf., Hf. 12,6 12,4
Eimskipafélag íslands 12,6 27,0
Össur hf. 12,1 18,9
Baugur hf. 9,9 14,0
Olíufélagið hf. 7,1 11,8
Marel hf. 6,3 11,1
Búnaðarbanki íslands hf. 6,2 21,7
Tryggingamiðstöðin hf. 5,9 11,0
Opin kerfi hf. 5,8 10,5
*sameiginlegveltameðbréfíslandsbankahf., Fjárfestingarbankaatvinnulífsinshf.
og Islandsbanka - FBA hf.
Tðlur miðast við 29. september 2000. Heimild Verðbréfaþing íslands.
Stein-, flísa-, stál- og álklæðningar með eða án upphengikerfa.
Upphengikerfi fyrir ál- og stálklæðningar, ásamt múrboltum
og öðrum festingum.
Tp§:£ L t
tí—Lj