Morgunblaðið - 25.10.2000, Síða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Nýr og krassandi Kjallari
SKEMMTISTAÐIR koma og fara,
Skipta um eigendur og útlit. Einn
þeirra lífseigustu er Kjallarinn,
sem áður var Leikhúshúskjallarinn
og þar áður Þjóðleikhúskjallarinn.
Nú er sem sagt alveg búið að má
burt leikhússtimpilinn af þessum
gleðisamkomustað í kjallara Þjóð-
leikhússins.
Á laugardagskvöldið var Kjallar-
inn, eins og staðurinn heitir nú
formlega, opnaður eftir gagngerar
breytingar á húsakynnum og með
nýja skemmtanastjóra við stjórn-
artaumana þá Ásgeir Kolbeinsson
og Guðmundur Arnar Guðmunds-
son. Að sögn Ásgeirs verða
nokkuð breyttar áherslur, ald-
urstakmarkið orðið 22 ár, en
tónlistin verði áfram á svipuð-
um nótum, þ.e. vinsælasta
danstónlistin hverju sinni þar
sem R’n’B er jafnan fyrirferð-
armikið. Salsastemmningin
verður síðan aldrei langt undan
og til þess að ýta undir hana
mun framvegis verða boðið upp
á lifandi bóngóslátt. Ásgeir segir
mikið fjör hafa verið í Kjallaranum
á opnunarkvöldið og troðið út úr
dyrum. Hann vildi síðan endilega
koma því á framfæri að næsta
■=tass5Si
laugardag verður sérstakt Shaft-
kvöld til heiðurs endurgerðinni á
glæpamyndinni svölu.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þessar stúlkur eru saman í saumaklúbbnum „Rottumar" en þær tóku
allar þátt í Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur og Islands 1999: Katrín,
Dagný, Angela, Bryndís Björg, Christina, Ásbjörg, Henný og Hlín.
íkiafti mannúóaí
irar
Tðlf miUjónir barna í Afríku hafa misst foreldra
sína í helgreipar alnæmis. Með tveggja tíma göngu
á laugardaginn 28. október bjargar þú mannslifum!
Landssöfnun. , . , . .
Rauða kross Islands
gegn alnæmi í Afríku
28. október 2000
Alnæmi er alvarlegasta heilbrígðisvandamál
sem Afríkubúar standa frammi fyrír. Reynslan
sýnir að með markvissrí fræðslu er hægt að
draga verulega úr smiti og bjarga fðlki þannig frá
bráðum dauða.
Rauði kross íslands gengst fyrir landssöfnun
28. október til að beijast á móti þessum mikla
vágesti. Þetta góða fólk ætlar að ganga í hús og
safna framlögum meðal landsmanna.
Okkur vantar fleiri sjálfboðaliða.
Átt þú stund aflögu?
Baröarstaðlr
í Staöahverfi
Starengf
í Qrafarvogi
Knarrarvogur
Bæjarlind
í Kópavogi
-ma
Arnarsmári ;
( Kópavogi
Viö Fjaröarkaup
í Hafnarfiröi
Holtanesti
f Hafnarflröi
Ný Bítlasafnplata kemur út 13. nóvember
Öll topplögin á
einni plötu
NÝJA safnplatan
með Bítlunum hef-
ur loksins fengið
útgáfudag, 13.
nóvember. Um er
að ræða fyrstu
„alvöru" safnplöt-
una sem gefin er
út með Liverpool-
drengjunum síðan
bláa og rauða
platan kom út árið
1973. Platan mun
heita 1 og dregur
nafn sitt af því að
hún inniheldur
hvorki fleiri né
færri en 27 lög
sem náð hafa
fyrsta sæti á
breska og banda-
riska vinsældalist-
anum, og það á
einni plötu. Þetta
eru lögin: „Love
Me Do“, „From
MeToYou", „She
Loves You“, „I
Want To Hold Your Hand“, „Can’t
Buy Me Love“, „A Hard Day’s
Night“, „I Feel Fine“, „Eight Days
A Week“, „Ticket To Ride“, „Help!“,
„Yesterday", „Day Tripper", „We
Can Work It Out“, „Paperback
Writer“, „Yellow Submarine“, „El-
eanor Rigby“, „Penny Lane“, „All
You Need Is Love“, „Hello Good-
bye“, „Lady Madonna", „Hey Jude“,
„Get Back“, „The Ballad Of John
And Yoko“, „Something", „Come
Together", „Let It Be“ og „The
Long and Winding Road“. Gripur-
inn er yfir 79 mínútna langur og spá
menn því að hann muni seljast í bíl-
förmum líkt og annar Bítlavarn-
ingur og jafnvel enda, þegar fram
líða stundir, í flokki söluhæstu
platna sögunnar. Það var ákveðnum
vandkvæðum bundið að velja lögin
á plötuna því að margir vinsælda-
listar voru í gangi á sjöunda
áratugnum lfkt og nú og álitamál
hver þeirra er marktækastur. Nið-
urstaðan var að styðjast annars veg-
ar við vinsældalista breskra hljóm-
plötusala (sem var eini hlutlausi
vinsældalistinn á sjöunda ára-
tugnum) og hinsvegar bandaríska
Billboard-listann. Bítlamir áttu ein
17 topplög á breska listanum frá
maí 1963 til júlí 1969 en vestanhafs
voru topplögin 20 á Billboard-list-
anum frá febrúar 1964 til júní 1970.
Nokkuð hefur borið á gagnrýni-
röddum í garð þessarar útgáfu.
Annars vegar að yfir höfuð sé verið
að gefa út nýtt safn í ljósi þess að
bláa og rauða platan standi fullkom-
lega fyrir sínu enn í dag og hins
vegar hefur mönnum fundist það
vafasöm ráðagerð að gripurinn
skarti einungis topplögunum þvi
það þurfi ekkert endilega að þýða
að viðkomandi lög séu vinsælustu
bítlalögin. í því sambandi benda
menn á að ekkert lag sé af Sgt.
Pepper’s Lonely Hearts Club Band
vegna þess að engin smáskífa var
gefin út af þeirri plötu og undarlegt
sé að „Strawberry Fields Forever"
sé ekki með vegnaþess að smáskíf-
an (sem einnig innihélt „Penny
Lane“) náði einhverra hluta vegna
einungis öðru sætinu á breska list-
anum.
Hinsvegar hefur verið bent á það
á móti að safnplatan 1 sé einkanlega
góð heimild um afrek sveitarinnar
og einstakt tækifæri fyrir unnendur
hennar til þess að eignast loksins
einfaldan disk, smekkfullan af ótví-
ræðum bítlasmellum.
Auðvelt!
■I o
Hreinn sparnaður!
Starfsmaður okkar verður við bensínsjálfsalann
á ÓB stöðinni við Bæjarlind í Kópavogi og leiðbeinir
þér frá kl. 10-20 alla daga. Lærðu að spara og þú
færð ókeypis bílþvott í Glans bílaþvottastöðinni að launum.
Þetta er því hreinn sparnaður fyrir þig!
Ab
9 stöðvar - opnar allan sólarhringinn! ódýrtbensin
V
HREIN ORKA!
Orkan í Leppin er öðruvísi samsett en orka í
hefðbundnum orkudrykkjum. Hún er samsett úr
flóknum kolvetnum (fjölsykrum) sem fara hægt
út í blóðið og halda þannig magni blóðsykurs
jöfnu og löngun í sykur minnkar. Líkaminn vinnur
sérlega vel úr Leppin-orkunni og því veitir hún
raunverulegt og langvarandi úthald.
Leppin hentar öllum
Leppin er bragðgóður svaladrykkur sem hentar
öllum aldurshópum. Allir geta neytt þessa svalandi
drykkjar til að þæta athyglisgetuna og til að auka
og viðhalda orku í lengri eða skemmri tíma.