Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Fágun
fagmennska
Gullsmiðir
Barnamyndatökur
Svipmyndir
Hverfisgötu 18, sími 552 2690
V ....... ■
ÚRVERINU
Bjartsýni ríkjandi á sjávarútvegssýningunni í Kína
I boði Utflutningsráðs á sjávarútvegssýningunni'. Frá vinstri: Wu Hongbo, aðstoðarforstöðumaður Evrópuskrif-
stofu utanríkisráðuneytis Kína. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Islands, Ma Canrong, að-
stoðarutanríkisráðherra Kína, Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra, Ólafur Egilsson sendiherra og Banda-
ríkjamaðurinn Peter Redmayne, forsljóri Sea Fare Expositions, sem skipuleggur sýninguna í Kína.
Geðheilbrigðisvika barna 10.-17. nóvember.
HádegisfyrirIestrar milli 12:00-13:00 í Iðnó — Veitingahúsi 2. hæð.
Fimmtudagur 16. nóvember
Ævintýrameðferð - Þegar leikur er meira en
skemmtun.
SigríðurAsta Eyþórsdóttir, iðjuþjáifi.
Súpa dagsins kr. 450-,
Tagliettelle með beikon og sveppum kr. 990-.
Saman kr. 1.100-.
Unnið i samvinnu við Foreldrpfélag geðsjúkra barna og unglinga,
Barnaheill, BUGL, Stórstúku Islands, Samfok, Umboðsmann barna
og Barnaverndarstofu.
www.delta.is
og geðsviðs Landspítala Háskólasjúkrahúss
Útflutningur
hefur
MIKIL bjartsýni ríkti á Sjávarút-
vegssýningunni í Peking í Kína á
dögunum, China Fisheries and Sea-
food Expo, en þetta er stærsta sýn-
ing sem tengist sjávarútvegi í Asíu.
Sýningin fer fram árlega og var
þetta í fímmta skipti sem hún fór
fram.
Þeir sem sækja sýninguna eru
ýmist tengdir viðskiptum með sjáv-
arafurðir eða framleiðslu sjávar-
afurða. Gestir á sýningunni í ár voru
um 10.000, en sýnendur voru u.þ.b.
450 frá 29 löndum.
Sex fyrirtæki á bás
Útflutningsráðs
Utflutningsráð Islands hefur
skipulagt þátttöku íslenskra fyrir-
tækja á sýningunni, en að þessu
sinni voru sex íslensk fyrirtæki á bás
Útflutningsráðs. Það voru Sæplast,
SH í Tókýó, Sameinaðir útflytjend-
ur, Islenska útflutningsmiðstöðin,
Marel hf. og E. Ólafsson.
aukist
Ami M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra, flutti ávarp við opnunar-
athöfn sýningarinnar, en í tengslum
við heimsókn Árna var einnig haldin
fjölsótt móttaka á vegum Utflutn-
ingsráðs Islands og Sendiráðsins í
Peking þar sem um 250 boðsgestir
brögðuðu m.a. á íslenskum sjávar-
afurðum, en að sögn Vilhjálms Arna-
sonar hjá Útflutningsráði er óhætt
að segja að hið íslenska sjávarfang
hafi mælst vel fyrir.
Markaðurinn að opnast
Auk þess sem þátttaka íslenskra
fyrirtækja hefur verið skipulögð á
óhina Fisheries and Seafood Expo
hefur Útflutningsráð allt frá árinu
1995 ásamt sendiráði íslands í Pek-
ing unnið að ýmsum verkefnum í
Kína í þeim tilgangi að auka viðskipti
milli landanna. „Meðal annars haldið
tvær viðskiptaráðstefnur í Kína, tek-
ið á móti viðskiptasendinefndum
hingað til lands að ógleymdri útgáfu
vöf/
aðeins 1.900 kr.
Nýir bolir í
MOGGABÚÐINNI
f Moggabúðinni eru margar skemmtilegar vörur. Þú getur m.a.
keypt boli, töskur, klukkur o.fl. beint af Netinu með öruggum
haetti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og færð þær
sendar heim til þín eða á vinnustað.
EINFALT OG ÞÆGILEGT!
Þú getur líka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1, skoðað
vörurnar f sýningarglugganum og verslað.
héðan
mikið
á vönduðu kynningarefni á kín-
versku," segir Vilhjálmur.
Framleiðsla Kínverja á fiskafurð-
um er yfir 40 milljónir tonna og er
hvergi meiri í heiminum. Auk þess er
þar stór markaður fyrir innfluttar
sjávarafurðir. Fyrir sjávarútvegs-
þjóð eins og ísland hlýtur Kína því
að vera nokkuð spennandi viðskipta-
land, að sögn Vilhjálms. Hann segir
þó að í kjölfar sýningarinnar í fyrra
hafi verið uppi ákveðnar efasemda-
raddir um framhaldið. Verðlag á af-
urðum hafi ekki verið íslensku fyrir-
tækjunum hagstætt og einnig hafi
tollamál sett strik í reikninginn auk
þess sem vöxtur á innflutningi sjáv-
arafurða hafi verið fremur hægur.
„Á þessari sýningu virtist gæta mun
meiri bjartsýni og það ber ekki á
öðru en að markaðurinn sé óðum að
opnast,“ segir hann. „Eingöngu sú
staðreynd að Kínverjar munu verða
meðlimir að WTO nægir til að sjá
fyrir verulega aukningu á innflutn-
ingi til Kína og þá sérstaklega á sjáv-
arafurðum til innanlandsneyslu. Yf-
irvöld hafa þegar lýst því yfir að
samhliða inngöngunni í WTO muni
þau lækka tolla á sjávarafurðum
verulega, en í samingaviðræðum við
APEC, Ásia Pacific Economic Coop-
eration, eru sjávarafurðir einn af níu
flokkum sem munu strax njóta inn- I
göngunnar í WTO.“
Aukinn útflutningur
Vilhjálmur segir að tollalækkunin
ein muni án efa stuðla að auknum
viðskiptum með sjávarafurðir inn í
landið, en auk þess megi ætla að
ákveðnir erílðleikar Kínverja í
tengslum við fiskveiðar og -eldi muni
valda því að spurn eftir inníluttum
sjávarafurðum muni aukast. Þetta
endurspeglist gi-einilega þegar skoð-
aðar eru tölur um útflutning til Kína
á fyrstu sex mánuðum þessa árs, en
þá var búið að flytja út vörur fyrir
tæpar 500 milljónir til Kína frá ís-
landi, en allt árið í fyrra nam útflutn-
ingurinn rúmum 360 milljónum.
Sama er upp á teningnum þegar
skoðaðar eru samsvarandi tölur frá
Bandaríkjunum, en útflutningur
jókst þaðan með tilliti til verðmæta
um 43% fyrstu fimm mánuði þessa
árs, að sögn Vilhjálms.