Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 35 STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BLÓMSTRANDI BÓKAÚTGÁFA BÓKAÚTGÁFA hefur aukist jafnt og þétt hér á landi síð- astliðin ár. Allt bendir til þess að þetta ár hafi hún náð há- marki en endanlegar tölur eru ekki tiltækar. Að minnsta kosti er hin svokallaða jólabókaútgáfa meiri en hefur verið. Aukningin er mest í barnabókum og einnig heldur útgáfa fræðirita áfram að aukast. Væntanlega bend- ir aukin útgáfa barnabóka til meiri áhuga og lesturs. Oftlega hefur verið sýnt fram á hversu mikilvæg- ur lestur er fyrir málþroska barna. Ljóst má vera að kynni barna af bókum hafa einnig áhrif á getu þeirra til þess að tileinka sér efni námsbóka síðar meir. I þessu sam- hengi hefur verið lögð áhersla á að byrja snemma að lesa fyrir börn og halda því áfram þótt barnið sé sjálft farið að geta lesið, með því er áhug- anum haldið vakandi. Aukning í fræðibókaútgáfu end- urspeglar hækkað menntunarstig þjóðarinnar og breytingar í fræða- samfélaginu. Fólki með framhalds- menntun hefur fjölgað mikið und- anfarinn áratug og hefur það hleypt miklum krafti í íslenskt fræðasam- félag, sem hefur skilað sér í aukinni rannsóknarstarfsemi, bæði innan og utan hinna hefðbundnu háskóla- stofnana. Samhliða þessu hefur orðið sú breyting að fræðin skila sér betur til almennings en áður þegar fræðirit voru einkum gefin út á vegum háskólastofnana og oftast einungis ætluð öðrum fræðimönn- um til lestrar. Stafar þetta bæði af breyttu viðhorfi fræðimanna, sem telja nú mikilvægt að taka þátt í al- mennri umræðu, og því að tækniþróun hefur gert útgáfu viða- mikilla rita með myndum, gröfum, skrám og öðru ódýrari. Allt eru þetta verulega ánægju- legar fréttir úr bókaheiminum. En þó birtist kannski ánægjulegasta fréttin í bókalista Morgunblaðsins, Félags íslenskra bókaútgefenda og Félags bóka- og ritfangaverslana, sem sjá mátti í blaðinu í gær. Þar má sjá svart á hvítu þá þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár í bókakaupum landsmanna. Fyrr á þessum áratug, sem er að líða, voru erlendar spennusögur og svokall- aðar æviminningar og viðtalsbækur nær undantekningarlaust efstar á sölulistum. Nú er engin slík rit að finna á meðal söluhæstu bóka. Efst á lista tróna nú íslensk skáldverk, íslensk sagnfræðirit og vönduð er- lend skáldverk. Vonandi bendir þetta til raunverulegrar breytingar á menningaráhuga landsmanna. GEGN ÁFENGISNEYZLU IMORGUNBLAÐINU í gær var skýrt frá því, að unglingalands- liðið í handbolta og fleira ungt fólk hefði unnið að dreifingu á póst- kortum með ábendingum til for- eldra og annarra, þar sem þessir aðilar eru hvattir til að berjast gegn áfengisneyzlu unglinga á framhaldsskólaaldri. Á blaðamannafundi, sem efnt var til af þessu tilefni, kom fram, að talsvert hefði dregið úr ölvunar- drykkju unglinga í efstu bekkjum grunnskóla. Hins vegar væru vís- bendingar um að þegar unglingar komast á framhaldsskólaaldurinn aukist áfengisneyzla þeirra veru- lega. Ómar Órn Ólafsson, ármaður skólafélags Menntaskólans við Sund sagði af þessu tilefni: „Það er geysilega mikil áfengisnotkun hjá aldurshópnum frá 16 til 20 ára. Hún virðist hefjast um leið og unglingar koma í framhaldsskólana og þar virðist vera mikill félagslegur þrýstingur.“ Það er ánægjulegt að ungt fólk skuli standa að framtaki sem þessu. Áfengisneyzla er böl. Ungt fólk hef- ur áfengisdrykkju á unglingsárum og telur að engin hætta sé á ferð- um. Áratug seinna hefur einhver úr þeim hópi að öllum líkindum orðið áfenginu að bráð. Það er ótrúlegt hvað það getur gerzt á skömmum tíma, að unglingadrykkja breytist í ofdrykkju á ungum aldri með öllu því böli, sem af því hlýst, ekki bara fyrir þann, sem drekkur heldur alla hans nánustu. Dæmin um þetta blasa við hvert sem litið er. Þær fjölskyldur eru ekki margar á íslandi, sem ekki hafa orðið fyrir þeirri raun á einn eða annan veg, að áfengi hefur ver- ið drukkið í óhófi af einhverjum fjölskyldumeðlim. Þess vegna er ástæða til að fagna framtaki allra þeirra, sem taka höndum saman um að berjast gegn áfengisneyzlu. I eina tíð voru sam- tök bindindismanna þar fremst í flokki. Þau fylgdust ekki með tím- anum, þegar leið á öldina, og lög- uðu baráttuaðferðir sínar ekki nægilega fljótt að breyttum að- stæðum. Nú eru vísbendingar um að bindindishreyfingin ætli að taka upp nýjar starfsaðferðir á nýrri öld. Það er vel, því að fyrir hundrað árum voru góðtemplarar einhver öflugasta félagsmálahreyfing á landinu. Nýjar kynslóðir hafa lagt tölu- verða áherzlu á að taka upp nýja umgengnishætti með áfengi og er ekki ástæða til að gera lítið úr því. Það er alls ekki fráleitt að það sé hægt að kenna Islendingum að um- gangast áfengi á annan veg en hér hefur því miður tíðkazt og erum við ekki eina þjóðin á norðurslóðum, sem hefur átt við þann vanda að etja. Loks er ástæða til að minna á það um þessa helgi, að áfengi og jóla- hald fara ekki saman. Og foreldrar mættu gjarnan minnast þess, að óhófleg áfengisdrykkja, ekki sízt um jól, getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir sálarlíf ungra barna. „Bamabörnin hjálpa til við að skreyta tréð,“ sögðu Sigurður Már Gestsson og Anna Karelsdóttir. Vinimir Guðmundur Sigurjónsson, Njáll Vikar og Jónmundur Ingólfsson gátu vel hugsað sér mjúka jólapakka í ár. Til dæmis fannst þeim baðsloppur alveg koma tU greina. J ÓL AUNDIRBÚNIN GURINN stendur nú sem hæst enda ekki nema dagur til jóla. FuUorðna fólk- ið er á þönum við jólainnkaupin og finnst hver mínúta þjóta hjá á ógn- arhraða og allt of fáir klukkutímar í þessum síðasta sólarhring fyrir hátíðimar til að sinna því sem sinna þarf. Hjá bömunum er þessu ólíkt farið. Tíminn líður ekki neitt og virðist næstum því fara aftur á bak. En það var líf í tuskunum í sölum Verzlunarfélags Reykjavíkur þar sem krakkar á öllum aldri sátu ein- beittir við risastórt fundarborð og litu vart upp þegar blaðamann bar að garði. Fundarhöldin vora þó ekki stíf þar sem krakkaskarinn var að föndra jólaskraut, klippa út bústna snjókarla úr filtefnum, lima og Iita og skreyta piparkökur í öll- um regnbogans litum. „Við ákváðum að bjóða félags- mönnum okkar upp á þessa ný- breytni að böm þeirra gætu komið hingað og föndrað og leikið sér þessa sfðustu daga fyrir jól sem em einmitt svo annasamir hjá for- eldrunum," sagði Alda Sigurð- ardóttir, fræðslustjóri VR, sem hefur haft umsjón með krökkunum undanfama daga. En hvað skyldi vera efst á óskalista fóndursnill- inganna? Unnur Björk, lítil fimm ára snót, var fyrst til að svara: „Ég veit alveg hvað mig langar í,“ sagði Unnur en fékk tilhlökk- unarglampa í augun þegar hún sagði að hann Einar frændi hennar myndi ömgglega gefa henni Baby Born-dúkku, „en hann gaf mér líka einu sinni labbidúkku sem heitir María.“ Eldri krökkunum leist ekkert á dúkkur en Iangaði mikil býsn í geisladiska, fjarstýrða bíla en alls ekki bækur! „Nei ekki bæk- ur, égþoli ekki bækur," sagði Frí- mann Valdimarsson, 12 ára. Frí- mann var ekki alveg viss hvað hann langaði þá helst að fá en við- urkenndi að vera svolítið spenntur fyrir kassanum sem mamma hans og pabbi höfðu komið fyrir undir jólatrénu heima. „Ég er búinn að skoða pakkann mjög vel en ég er ekkert búinn að hrista hann.“ Eiga bágt með að bíða Vinkonumar og jafnöldrumar Margrét Nana og Kristrún, 11 ára, þurftu ekki að hugsa sig tvisvar um hvers þær óskuðu sér mest af öllu og sögðu í kór: „Sjónvarp í herbergið mitt,“ og listinn lengd- ist, „eða GSM-síma eða geisla- diska,“ sagði Margrét Nana, ,já, mig langar lika í geisladiskinn hennar Jóhönnu Vigdísar vinu- konu minnar,“ tók Kristrún undir og ljómaði. Þrátt fyrir ólíkar óskir gátu krakkamir verið sammála um að þau hlakkaði mikið til jólanna og ættu pínulítið bágt með að bíða. Samveran í föndrinu hefði þó hjálpað til við að stytta biðina og verið skemmtileg. „Þetta hefur tekist mjög vel og við vonum auðvitað að svona lagað verði til fyrirmyndar öðmm vinnu- stöðum," sagði Alda og tók aftur til við að lijálpa litlum fingmm að hnýta trefil á einn snjókarlinn enn. Jólaverslun virðist almennt hafa gengið mjög vel og kaupmenn eru og þegar allt lokaði klukkan fimm á daginn og búðimar vom stapp- aðar þennan stutta túna. Tímamir hafa breyst og það er krafa al- mennings að hafa rýmri opn- unartíma. Með breyttum opn- unartima hefur vinnnuskipulagið líka breyst og fólk vinnur á vöktum - enda held ég að það detti engum í hug lengur að bjóða starfsfólkinu sínu upp á tíu eða tólf tíma vaktir." Mamma fær besta pakkann Feðgamir Róbert Róbertsson og Þorri Hrafn spókuðu sig sallaró- legir í Kringlunni og alræmt jóla- stressið var víðsfjarri. „Ég er eig- inlega búinn að öllu,“ sagði Róbert, „enda fómm við feðgarnir óvenju snemma í jólagjafaleiðangur í ár og ætlum bara að hafa það rólegt og gott á Þorláksmessunni. Ætli við kíkjum ekki aðeins á miðbæj- arstemmninguna og höfum það bara svo gott saman fjölskyldan heima.“ Spurður hvort hann myndi gæða sér á skötu í tilefni dagsins hikaði hann við augnablik en svar- aði svo harðákveðinn: „Nei, ætli ég sleppi því nú ekki algerlega.“ Næsti viðmælandi var á allt öðm máli, Guðmundur Sigurjónsson af Akranesi, ætlaði að fá sér skötu „og borða vel af henni.“ Guð- mundur var ásamt félögum sínum þeim Njáli Vikari og Jónmundi Ingólfssyni í jólagjafaleiðangri og ætluðu að gefa „fáar en góðar gjaf- ir í ár.“ Spurðir hver fengi falleg- asta og veglegasta pakkann lá ekki á svari frá Jónmundi, „það er hún mamma mín - hún á það skilið." Sjálfir áttu piltamir draum sem litlar líkur em á að rætist, þá lang- ar alla í Playstation leikjatölvu en hún er uppseld á iandinu. Spurðir hvort þeir væm ekkert orðnir of gamlir fyrir slíkt horfðu þeir í for- undran á blaðamann og svömðu neitandi. „En fyrst það era litlar likur á Ieikjatölvu langar mig mest í baðslopp - hvítan og þykkan," sagði Njáll og gaf vinum sínum samstundis hugmynd að gjöfum, , já, það væri nú fínt að fá svartan siIkislopp,“ sagði Guðmundur og í einni svipan rann það upp fyrir þeim að mjúkur pakki væri nú ekk- ert slæm hugmynd eftir allt saman. Iljónin Anna Karelsdóttir og Sigurður Már Gestsson sögðu að jólaundirbúningurinn hefði gengið með eindæmum vel þetta árið. „Satt að segja höfum við aldrei byijað jafnsnemma og í ár en kunnum því vel og eigum ömgg- Iega eftir að gera það að hefð að klára innkaupin snemma svo við getum notið síðustu daganna fyrir jól í rólegheitunum," sagði Anna. Sigurður viðurkenndi að þau hjón- in hefðu áður fyrr oft verið á síð- ustu stundu á Þorláksmessukvöld og breytingin væri til mikilla bóta. „I dag ætlum við svo að setja upp jólatréð og bamabörnin koma í heimsókn og fá að skreyta allt hátt og lágt.“ Sigurður og Anna eru líka boðin í Qölmennt fjölskyldu- matarboð þar sem allir gæða sér á skötu, „eða svona næstum allir,“ segir Anna, „allra yngstu börnin halda sig nú mest frá blessaðri skötunni en við þessi eldri tökum vel til matar okkar.“ Morgunblaðið/Asdís Vinkonumar Margrét Nana og Kristrún voru einbeittar við jólaföndrið hjá V.R. ánægðir með sinn hlut. Haukur Þór Hauksson, formaður Samtaka verslunarinnar, sagðist hafa heyrt í fjölda kaupmanna og allir væm á sama máli um að verslunin væri með allra besta móti. „Já, þeir hafa verið nokkuð brattir. Verslunin hefur verið jöfn og góð og almennt mikil og þung umferð í búðunum.“ Að sögn Hauks hefur verslunin aukist mikið á milli ára, jafnvel þótt jólavertíðin í fyrra hafi verið mjög góð. „Ég hef heyrt um allt að 20% aukningu en fer samt varlega með þá tölu, ætli þetta liggi ekki á bilinu 5 til 10% þó að ekki sé hægt að segja til um þetta með fullri vissu enn þá. Þetta er mjög gott þar sem við erum að miða við mjög gott ár í fyrra." Ástæðu þessa taldi Haukur einkum mega relg'a til þess að stórlega hefði dregið úr versl- unarleiðöngmm íslendinga til út- landa þar sem fmynd verslunar hérlendis hefði batnað mikið und- anfarin tvö til þrjú ár. „Verðlag er betra og verslanirnar em orðnar stórglæsilegar, allt að því hátækni- staðir. Þar stöndum við mjög fram- arlega og við þurfum ekki að leita til Norðurlandanna til að sjá hvað íslenskar verslanir em samkeppn- ishæfar, bæði hvað varðar í verði, tísku og tæknistigi. Það er mikið lagt í þessar verslanir enda skilar það sér tvímælalaust í betri og aukinni verslun.“ Spurður hvort langur af- greiðslutími verslana ætti einnig þátt í aukningunni sagðist Haukur ekki telja að svo væri þar sem verslunin dreifðist bara meira yfir daginn. „Opnunartíminn hefur lengst mikið og eðli málsins sam- kvæmt fyllast búðirnar ekki eins I nógu að snúast þegar einn dagur er til jóla Þorri Hrafn Róbertsson undi sér vel í fangi Róberts pabba síns. * 282.845 einstaklingar eru búsettir á Islandi Mesta mann- fj ölgun frá árinu 1991 Islendingum fjölgaði um 1,48% á þessu ári sem er mesta fjölgun á einu ári frá 1991. Ibúum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Vesturlandi, Norðurlandi eystra og Suðurlandi fjölgaði, en fækk- un varð á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi. íSLENDINGUM fjölgaði um 4.128 á síðustu 12 mánuðum eða um 1,48%. Þetta er mesta fjölgun frá árinu 1991. Árið 1999 fjölgaði fólki um 1,26%. Síðustu tíu ár hefur fólki á landinu fjölgað um 27.137 eða 10,6% og er það 1,01% að meðaltali á ári. Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 1. desember 2000 voru 282.845 ein- staklingar búsettir á landinu, 141.593 karlar og 141.252 konur. Hinn 1. desember 1999 voru íbúar á landinu 278.717. Endanlegar tölur um fjölda fæð- inga, andláta og búferlaflutninga til og frá landinu árið 2000 liggja ekki fyrir enn. Bráðabirgðatölur benda til þess að um 4.300 böm hafi fæðst ffá 1. desember 1999 til loka nóv- ember 2000, að rúmlega 1.800 manns hafi látist á sama tíma og að um 1.600 fleiri hafi flust búferlum til landsins en frá því. Höfuðborgarbúum hefur fjölgað um 29.020 á tíu árum Árið 2000 fjölgaði fólki á höfuð- borgarsvæðinu um 3.485 eða um 2,0%. Á Suðumesjum fjölgaði fólki um 438 eða um 2,7%. íbúum á Vest- urlandi fjölgaði um 209 eða um 1,5%. Á Norðurlandi eystra fjölgaði um 109 eða um 0,4%. íbúum á Suður- landi fjölgaði um 280 eða uml,3%. Á öðmm landsvæðum fækkaði fólki. Mest varð fækkun á Austurlandi en þær fækkaði um 193 eða um 1,6%. Á Vestfjörðum fækkaði um 168 eða um 2,0%. Fólki fækkaði einnig á Norð- urlandi vestra um 32 eða um 0,3%. Síðastliðinn áratug hefur fólki fjölgað á höfuðborgarsvæðinu um 29.020 eða 19,9%. Fjölgun á Suður- nesjum er 1.289 (8,5%), Norðurlandi eystra 339, (1,3%) og Suðurlandi 717 (3,5%). íbúum á Vesturlandi hefur hins vegar fækkað um 274 (1,9%) á síðustu 10 áram. Á Vestfjörðum fækkaði á þessu tímabili um 1.648 (16,8%), á Norðurlandi vestra fækk- aði um 1.014 (9,7%) og á Austurlandi fækkaði um 1.292 (9,8%). Mesta fjölgxinin í Reykjavfk íbúum fjölgaði mest í Reykjavík eða um 1.506 (1,4%). í Kópavogi fjölgaði íbúum um 940 (4,2%) og er það minni fjölgun en árið 1999. Á Suðumesjum fjölgaði fólki á öll- um þéttbýlisstöðum, en mesta fjölg- un varð í Reykjanesbæ eða um 222. Á Vesturlandi fjölgaði íbúum á öllum þéttbýlisstöðum nema Heliis- sandi. íbúum fjölgaði mest á Akra- nesi eða um 78. Á Vestfjörðum fækkaði fólki á flestum þéttbýlisstöðum. íbúum fækkaði mest á Patreksfirði eða um 47 sem er 6,0% fækkun. í Súðavík fækkaði fólki um 15 eða um 12%. Ibúum fjölgaði mest á Suðureyri eða um18 sem er 5,7% fjölgun. Á Norðurlandi vestra fækkaði íbúum í þéttbýli mest á Hólum eða um 17. íbúum fjölgaði mest í Varma- hlíð eða um 14. Á Norðurlandi eystra fækkaði íbúum á flestum þéttbýlisstöðum. í Hrísey fækkaði um 30 og í Grímsey um 5. Á Kópa- skeri fækkaði um 24 sem er 14,5% fækkun. íbúum fækkaði mest á Ólafsfirði eða um 36 (3,4%). íbúum ijölgaði á Akureyri um 253 - eða um 1,7%. Á Austurlandi fækkaði íbúum á flestum þéttbýlisstöðum. íbúum fækkaði mest á Neskaupstað eða um 41. íbúum fjölgaði mest á Djúpavogi eða um 22. Á Suðurlandi fjölgaði íbúum í þéttbýli mest á Selfossi eða um 170 (3,8%). íbúum fækkaði mest í Vest- mannaeyjum eða um 60 (1,3%). 30 búa í fámennasta sveitarfélaginu Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunhar bjuggu 111.342 í - Reykjavík 1. desember sl. Næstfjöl- mennasta sveitarfélagið er Kópa- vogur með 23.527 íbúa. Þar á eftir koma Hafnarfjörður (19.644) og Ak- ureyri (15.396). Fámennasta sveitarfélag landsins er Mjóafjarðarhreppur með 30 íbúa. Þar fyrir ofan era Þingvallarhrepp- ur ogVindhæhshreppur með 43 íbúa hvor. fbúar í Öxnadalshreppi era 44 og íbúar í Skorradalshreppi era 47. Hlutfall íbúa 1. des. 2000 — MOSFELLSBÆR SELTJARNARNES KÓPAVOGUR GARÐABÆR BESSASTAÐAHR. HAFNARFJÖRÐUR 22,5% 1.906 manns fluttu inn 39,4% Hlutfallsleg fólksfjölgun á ári 1990-2000 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 REYKJAVÍK 1.579 manns fluttuinn > Hlutfallsleg skipting mannfjöldans eftir landsvæðum 1. des. 2000 og breyting mannfjöldans frá 1. des. 1999 NORÐURLAND EYSTRA 193 'L. fiuttué I brott ’— AUSTURLAND NORÐURLAND VESTRA SUÐURLAND 168 VESTFIRÐIR fluttu brott 32 , 109[j> fluttu brott VESTURLAND 5,8% . ««J SUÐURNES /;- \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.