Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ ^8 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 MINNINGAR t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR, Lönguhlíð 3, (áður Granaskjóli 21), Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti að kvöldi fimmtudagsins 21. desember. Sigurður Jónsson, Kristín Beck, Guðjón Jónsson, Þorgerður Traustadóttir, ömmu- og langömmubörn. t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför GESTS KRISTJÁNSSONAR frá Hreðavatni, Snorrabraut 56. Guðríður Helgadóttir, Guðrún H. Gestsdóttir, Viðar Þorsteinsson, Sigurlaug Gestsdóttir, Fanney Gestsdóttir, Páll Pálmason, Kristján Gestsson, Hjördís M. Agnarsdóttir, Heiða Gestsdóttir, Jón Kári Jónsson, barnabörn og langafabörn. t Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýju og vinarhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BENEDIKTS BJARNASONAR, Hraunbæ 194. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild B-4 Landspítala Fossvogi og L-1 Landspítala Landakoti fyrir fráþæra umönnun og aðstoð. Soffía H. Sigurgeirsdóttir og börn. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar þróður okkar og frænda, ÓSKARS SÆMUNDSSONAR frá Grundarfirði. Við erum þakklát Grundfirðingum og öðrum þeim, sem reyndust honum vinir á vegferð lífsins. Þórdís Sæmundsdóttir, Elín Sæmundsdóttir og systkinabörn. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför EMELÍU SIGURGEIRSDÓTTUR. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Sjúkra- úss Þingeyinga á Húsavík. Guð veri með ykkur. Gunnþórunn Guðrún Þorsteinsdóttir, María Halldóra Þorsteinsdóttir, Stefán Jakob Hjaltason og aðrir aðstandendur. r 4 4 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Í,896 8242 Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is ■N J BERGLJOT SIGRÍÐUR RAFNAR + Bergljót Sigríður Rafnar fæddist í Reykjavfk 20. sept- ember 1922. Hún lést á Landspitalanum 11. desember síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Bú- staðakirkju 18. des- ember. Ég hrökk við þegar ég frétti andlát Berg- Ijótar Rafnar. Eftir stutt veikindi sem ég vissi ekki af var þessi skemmtilega, fróða og góða vinkona mín farin. Ég man þegar hún heimsótti mig í Skálholt síðla sumars með Jónasi bróður sín- um. Við ákváðum að hittast eins og svo oft áður í stofunni hennar og eftirlifandi eiginmanns, Bjarna Rafnar, drekka kaffi og borða sam- an eplaköku sem enginn gat gert eins vel og hún og ræða framhald á skrifum. Vinir urðum við Bergljót þegar ég hóf að skrifa um séra Har- ald Níelsson prófessor, föður henn- ar, og hún sá svo um að allt skjala- safn hans, ræður, handrit, bréf og fleira barst mér eins og það lagði sig og hann hafði skiiið við það. Margar stundir sátum við saman og spjölluðum um þessar heimildir og handrit og ekki spillti þegar Jón- as Haralz, bróðir hennar, gat verið með. Þá var einnig rætt um heima og geima, pólitík og persónusögu og ekki komið að tómum kofunum þar sem þau systkin voru enda þau fróð, skemmtileg bæði og fluggreind. Greinilegt var að Bergljót hafði marga eiginleika foreldra sinna. Móðir hennar, síðari kona Haralds, var Aðalbjörg Sigurðardóttir sem Birting afmælis- og minning- argreina M0RGUNBLAÐIÐ tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í sím- bréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsyn- legt er, að símanúmer höfund- ar/sendanda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöð- ugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstak- ling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa skfrnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII-skráa sem í dag- legu tali era nefndar DOS- textaskrár. Þá era ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. lifði mann sinn og starfaði mikið að félags- og menningar- málum. Þennan áhuga erfði Bergljót, tók um tíma þátt í bæjarmála- pólitíkinni á Akureyri og þekkti vel menn og málefni þar. Það var sama hvort hún talaði um stóra málin eða hin smáu, áhuginn á því að leggja gott til mál- anna, finna úrræði og gefa af sér var sá sami. Hún var mikil fjöl- skyldumanneskja og bamabörnin vora henni kær og mildð yndi og um þau vildi hún tala - en hún fylgdist einnig vel með öðra, landsmálapólitíkinni, og hún var vel lesin á mörgum sviðum og betri prófarkalesara hef ég aldrei kynnst. Bergljót var skapmikil eins og faðir hennar og hún lá ekki á skoðunum sínum þegar svo bar undir. Réttlætiskennd hennar var rík og hún sat ekki hjá þegar hún sá eða skynjaði ranglæti og fals. Samstarf okkar að útgáfu ræðusafns föður hennar, „Það er yfir oss vakað“, var farsælt og aldrei bar skugga á það. Vinátta okkar og trúnaður átti sér í raun langa sögu sem rekja má, ekki aðeins eina kynslóð til baka, heldur tvær. Með foreldram mínum og þeim hjónum var mikill vinskap- ur og samvinna. Bjarni læknir og Jónas bróðir hans vora skólabræð- ur föður míns, Péturs Sigurgeirs- sonar, prests á Akureyri, og vin- áttusamband varð milli þeirra. Ég man eftir Bergljótu og Bjarna í fermingarveislunni minni og stúd- entaveislunni einnig og þær mamma og Bergijót vora saman í saumaklúbbi. Þannig var að langömmusystir mín, Kristín Guðmundsdóttir, sem aldrei giftist, þjónaði fjölskyldu Bergljótar ævilangt. Fyrst Aðal- björgu sem átti holdsveikan föður og síðan heimili Aðalbjargar og Haralds í Reykjavík. Segja má að hún hafi verið fóstra Bergljótar. Heyrt hef ég að hún hafi alltaf vakað eftir Haraldi á kvöldin þegar hann kom seint heim úr fyrirlestrarferðum eða af fund- um. Móðuramma mín hét Kristín og systir mín einnig. Yngsta dóttir Bergljótar ber einnig þetta nafn. Ég, systur mínar og foreldrar mínir, Pétur Sigurgeirsson biskup og Sólveig Asgeirsdóttir, sendum Bjarna og bömum þeirra Bergljót- ar og Jónasi bróður hennar okkar eihlægustu samúðarkveðjur. Góður Guð blessi minningu þessarar merku konu og styrki og huggi að- standendur, fjölskyldu og vini henn- ar. Pétur Pétursson. Heimleið upp brekkurnar ofan við Þórshöfn í Færeyjum. Úthaginn er dökkur og steinarnir gráir. Uti í hafsauga glampa Ijóstýrar og trill- urnar era á leið til hafnar með takt- föstu duni. Ég trítla heldur en geng, því ég er í helgiskapi og er að koma frá því að setja bréf í póstkassann. Inni í mér era aðventa og jól, gamlir tímar og barnaár. Ég sé vini mína fyrir mér, sé þá opna bréfin, lesa línumar og eiga tóm og tíma með hugsunum sínum og minningum. Spegla mér í andliti og augum og á ósnortið andartak í endalausri vídd. - Svo hringir síminn, hávær og vægðarlaus langt út á götu. Því miður hef ég ekki góðar fréttir að færa, Þóra mín, segir rödd móður minnar, hún Begga vinkona okkar er dáin. Inni í húsinu er þögn. Fyrst að- eins þögn, myrkur og tóm. Síðan tár og tregi. Að lokum birta og þökk. Bergljót Rafnar var kynslóð eldri en ég og mjög náinn vinur foreldra minna. Þetta var traust og gagn- kvæm vinátta sem byggði meðal annars á því, að þau reyndu aldrei að breyta hvort öðra né færa sig og sína í annan ham, og átti sér forna rót allt frá mennta- og háskólaáram þeirra Bjama og pabba. Saman vora þeir bara stórir strákar og byggðu vináttu sína í tímalausri vídd. Fjölskyldumar tvær eignuð- ust þannig athvarf og skjól sem var mikil nauðsyn í erli og ábyrgð sem fylgdi lífi þeirra og starfi og oft skutust þessar fjölskyldur þvers yf- ir lóðimar í Ásabyggðinni, styttu sér leið milli snúrastauranna í kvöldkaffi og notalegt spjall. Bját- VILBORG JÓNSDÓTTIR OGJÓNRÚNAR ÁRNASON + Vilborg Jóns- dóttir fæddist í Keflavík 28. ágúst 1955. Jón Rúnar Árna- son fæddist í Nes- kaupstað 19. mars 1951. Þau létust af slys- forum 30. nóvember sfðastliðinn og fór útfor þeirra fram frá Keflavíkurkirkju 8. desember. Enn eitt dauðsfallið á Keflavíkurveginum, nú þrefalt. Hringing snemma á föstudagsmorgni! Þetta vora Rúnar og Vilborg! Onotin frá því kvöldið áður staðfest. Rúnar og Vilborg sem vora alltaf svo kát og hress, sam- hent og ánægð hvort með annað og lífið og tilverana, sem áttu þrjá mannvænlega syni og tengdabörn og barnaböm, sem vora nýbúin að kaupa sér ferð til Mexíkó á næsta ári í tilefni af fimmtugsafmæli Rún- ars. Láta einu sinni eftir sér al- mennilegan munað, eins og þau sögðu þegar þau litu inn fyrir stuttu. Rúnar og Vilborg dóu í einu af þessum skelfilegu slysum ársins. Slysum þar sem enginn veit hver næst á um sárt að binda og fyrr eða síðar snerta alla persónulega, ef ekki sjálfa, þá ýmist vegna fjöl- skyldutengsla eða kunningsskapar. Tilviljun ræður hver fyrfr verður en tilviljun er tölfræðileg, fyrr eða síð- ar nær dreifing atburða til allra með einum eða öðram hætti, nú var það vensla- og kunningjafólk mitt. Fólk sem hafði margt til branns að bera, var sátt við lífið og tilverana, ánægt hvort með annað og naut þess aug- ljóslega að vera til. Þeim mun sárara er að sjá á eftir fólki þegar þannig háttar til en eigi má sköpum renna. Blessuð sé minning þeirra Jóns Rúnars og Vilborgar. Guðjón Ármann Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.