Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hægir á útlána aukning’u inn- lánsstofnana Útlán innlánsstofnana hækkuðu um 1,3% í siðasta mánuði, samkvæmt nýj- um tölum frá Seðlabankanum. ÚTLAN innlánsstofnana hækkuðu um 1,3% í síðasta mánuði, samkvæmt nýjum tölum frá Seðlabankanum. Tólf mánaða hækkun var 25% og hef- ur þá verið leiðrétt fyrir samruna Is- landsbanka og FBA, en áður var FBA ekki inni í þessum tölum. Tólf mánaða útlánaaukning í október var 26,6% og í september 26,8%. Birgir ísleifur Gunnarsson seðla- bankastjóri segir að útlánaaukning síðustu 12 mánaða sé mikil, en þó virðist sem byrjað sé að draga úr út- lánunum á undanfömum mánuðum. „Ég held þó að frekari staðfestingu þurfi á næstu mánuðum áður en full- komin vissa er fyrir því að farið sé að draga úr útlánaaukningunni," segir Birgir Isleifur, og bætir því við að engin ákvörðun hafi verið tekin um breytingu á vaxtastefnu, enn verði beitt því peningalega aðhaldi sem verið hafi. Spurður að því hvort sú ákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna á þriðju- dag að breyta væntingum sínum úr Samvinnuferðir -Landsýn Hlutafé lækkað til jöfn- unar taps SAMÞYKKT var að lækka hlutafé Samvinnuferða-Land- sýnar hf. um 80 milljónir til jöfnunar taps á hluthafafundi félagsins í gær. Jafnframt var samþykkt að auka hlutafé félagsins um 350 milljónir króna með útgáfu f nýrra hluta á genginu 1,0. Hlut- j hafar falla frá forkaupsrétti að ' 150 milljónum króna af aukn- ingunni. Fram hefur komið að fjárfestingarfélagið Gilding mun kaupa 150 milljónir króna af þessu nýja hlutafé. Eins var stjóm félagsins veitt heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 30 milljónir króna með útgáfu nýrra hluta í þeim til- gangi að bjóða starfsmönnum kauprétt að aukningunni. Hlut- hafar falla frá forkaupsrétti að þessari aukningu. Stjórn Samvinnuferða-Land- sýnar hf. hefur ákveðið sölu- tímabilið, þar sem sala til for- gangsréttarhafa stendur, frá 3. janúar 2001 til 12. janúar 2001. Ef til almennrar sölu kemur þá mun almennt sölutímabil hefj- ) ast 15. janúar 2001 og standa til I 16. janúar 2001. Stjómin hefur i falið Frjálsa fjárfestingarbank- anum að annast útboðið. vaxtahækkun í vaxtalækkun, án þess þó að lækka vexti, hafi áhrif hér segir Birgir ísleifur svo ekki vera. Hér sé töluvert meiri verðbólga en í Banda- ríkjunum þó að vonir standi til að verðbólgan sé á niðurleið hér. Verð- bólgan hafi verið um 6% í vor en sé nú um 4,5%. Ekki tilefni til breyttrar stefnu Samkvæmt upplýsingum frá fjái’- málaráðuneytinu í fyrradag segir að þróun í ríkisfjármálum sé skýr vís- bending um að þenslan í efnahagslíf- inu sé í rénun og endurspegli meðal annars minni eftirspum en í fyrra. Birgir ísleifur segir aðspurður að þetta þýði ekki að um skoðanaágrein- ing sé að ræða milli fjármálaráðu- neytis og Seðlabanka um það á hvaða stigi þenslan sé hér. En Seðlabankinn telji að vísbendingamar um að úr þenslu hafi dregið séu ekki það sterk- ar að tilefni sé til breytinga á vaxta- stefnu. Auk þess sé, svo dæmi sé tek- ið, enn um mikla útlánaaukningu að SAMHERJI hf. og BGB-Snæfell hf. verða sameinuð miðað við 30. des- ember nk., með fyrirvara um sam- þykki stjóma félaganna og samþykki hluthafafundar í BGB-Snæfelli hf., að því er segir í tilkynningu sem barst í gær frá Samherja hf. til Verðbréfa- þings Islands. Þar kemur fram að stofnefnahagsreikningur ásamt sam- runaáætlun muni ekki verða tilbúinn fyrr en í fyrsta lagi um miðjan febrú- ar næstkomandi og í Ijósi þessa hafi Samherji hf. ákveðið að senda Verð- bréfaþingi íslands 6 mánaða uppgjör BGB-Snæfells hf. til að veita þeim, sem áhuga kunna að hafa, innsýn í efnahag þess félags þann 30. júní síð- astliðinn. Fram kemur að samkvæmt sex mánaða uppgjöri hafi tap BGB-Snæ- fells hf. á fyrri hluta ársins numið 7,6 milljónum króna. Tekið er fram að það sé hins vegar ljóst að rekstur BGB-Snæfells hf. hafi verið erfiður síðara hluta ársins, m.a. vegna gengisþróunar og olíuverðs sem hafi reynst félaginu óhagstæðar. Þá hafi verið unnið að endurskipu- lagningu og tap af aflagðri starfsemi, niðurfærslu krafna ofl. nemi allt að 300 milljónum króna. Við mat á virði félagsins hafi verið tekið tillit til þessa kostnaðar við endurskipulagningu. í tilkynningu Samherja hf. segir að í umræðum á fjármálamarkaði að undanfömu hafi þess misskilnings gætt að nú þegar lægi fyrir samþykki um sameiningu BGB-Snæfells hf. og Samherja hf. og í framhaldi af því hafi félagið verið gagm-ýnt fyrir að birta ekki stofnefnahagsreikning samein- aðs félags. Þessi gagnrýni sé byggð á ræða, þó að hún kunni að vera á nið- urleið. Þá sé verðbólga einnig helm- ingi meiri en í helstu viðskiptalöndum okkar. Meðan svo sé sjái Seðlabank- misskilningi því staðreyndin sé sú að samrunaáætlun liggi ekki fyrir, en hins vegar hafi komið fram að stefnt sé að því að sameining félaganna taki gildi eigi síðar en um næstu áramót. Finnur Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings ís- lands, sagði aðspurður í samtali við Morgunblaðið að þingið hefði óskað eftir frekari upplýsingum frá Sam- heija hf. í kjölfar fréttar sem birtist í október um fyrirhugaða sameiningu við BGB-Snæfeli hf. Dráttur hafi orð- ið á því að félagið skilaði þessum upp- lýsingum til þingsins og þær í raun ekki legið fyrir fyrr en með tilkynn- ingunni sem barst í gær. „Það er ljóst að Verðbréfaþing þarf að skerpa vinnureglur sínar og grípa inn ekki tilefni til að breyta um stefnu að því er snertir aðhald í peningamál- um. Hins vegar sé fylgst grannt með og staðan metin mjög reglulega. fyrr til ráðstafana ef nauðsynlegt þykir til þess að knýja fram upplýs- ingar,“ sagði Finnur. Hann bendir á að ef félag sinnir ekki upplýsinga- skyldu sinni er unnt að setja hluta- bréf þess tímabundið á athugunar- lista, birta opinbera yfirlýsingu um vanrækslu félagsins, setja skilyrði um viðskipti með hlutabréfin eða stöðva þau, sekta félagið eða afskrá hlutabréfin tímabundið eða jafnvel varanlega. Þingið geti þvi gripið til ýmissa aðgerða ef félag tregðast við að veita markaðnum eðlilegar upplýs- ingar. Finnur sagði einnig að vart hefði orðið gagnrýni á Verðbréfaþing vegna hlutabréfakaupa Samherja hf. í Þýskalandi. Það virtist vera álit Oddi hf Afrýjar ákvörðun samkeppn- isráðs PRENTSMIÐJAN Oddi hf. undirbýr að áfrýja ákvörðun samkeppnisráðs frá síðustu viku, þar sem yfirtakan á Steindórsprenti-Gutenberg ehf. var ógilt, að sögn Þor- geirs Baldurssonar, forstjóra Odda. Hann segir að stjórn- endur prentsmiðjunnar hafi ráðfært sig við ýmsa aðila og telji að eðlileg þróun geti ekki orðið á prentmarkaði hér á landi ef ákvörðun samkeppn- isráðs verði ofaná. „Ég lít þannig á að með þessu sé ver- ið að koma í veg fyrir það al- mennt að fyrirtæki á okkar markaði geti stækkað og náð hagkvæmni til að keppa við margfalt stærri fyrirtæki er- lendis, sem ná mun meiri hagkvæmni en smárekstur framtíðarinnar hér, ef fram fer sem horfir,“ segir Þor- geir. sumra aðila á markaðnum að þingið hefði með einhverjum hætti átt að bregðast við í því máli. Það væri hins vegar skoðun sín og annarra starfs- manna Verðbréfaþings að um væri að ræða mál hluthafa í Samherja hf. „Telji einstakir hluthafar að stjóm félags sé að taka ákvarðanir sem hugsanlega séu ekki þóknanlegar öll- um hluthöfum, þá er það hluthafanna að grípa til þeirra ráðstafana sem þeim eru tryggðar í hlutafélagalögum og samþykktum viðkomandi félags. Hlutverk Verðbréfaþings er að sjá til þess að viðskipti fari fram eftir sett- um reglum og að félag sinni upplýs- ingaskyldu sinni þannig að fjái’festar geti byggt ákvarðanir sínar á traust- um grunni," sagði Finnur. Hlutabréfakaup Samherja hf. Hefði ekki fengið hagstæðara verð SAMHERJI hefði ekki fengið það mikla magn af hlutabréfum í félag- inu, sem það keypti nýlega, á hag- stæðara verði en greitt var fyrir þau, að sögn Finnboga Jónssonar, stjórn- arformanns félagsins, aðspurður um athugasemdir við þau viðskipti í Morgunkorni FBA í fyrradag. í Morgunkorni FBA sagði meðal ann- ars að það væri umhugsunarefni fyr- ir hluthafa Samherja og aðila á markaði hvemig framkvæmd við- skiptanna var. Félagið hafi farið þá leið að kaupa mikið magn af bréfum af einum hluthafa á verði sem var 8,5% yfir markaðsverði. „Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum ákvað stjórn Samherja hf. að auka ekki hlutaféð í félaginu jafn mikið og raunverulega hefði þurft til þess að mæta væntanlegri samein- ingu við BGB-Snæfell,“ segir Finn- bogi. „Ástæðan fyrir því að stjórnin tók þessa ákvörðun var sú að hún mat að þessi leið væri mun hagstæð- ari fyrir hluthafa félagsins heldur en að mæta sameiningunni að fullu með aukningu á hlutafé. Fyrir félagið sjálft hefði verið miklu einfaldara að nýta þær 1.100 milljónir sem farið hafa til kaupa á eigin bréfum í annað, t.d. að lækka skuldir. Það er því nokkuð sérstakt í mínum huga að fá slíka einkunnargjöf sem greiningar- deild íslandsbanka gaf félaginu í tengslum við þessa ákvörðun. Stað- reyndin er sú að við þurftum að kaupa mjög stóran hlut í félaginu og ég tel ljóst að við hefðum ekki fengið bréf á lægra verði en því sem við greiddum fyrir þau. Samtals höfum við keypt 118 milljónir króna að nafnverði og er meðalverðið í þeim viðskiptum 9,43. Við metum þetta verð mjög hagstætt miðað við mark- aðsaðstæður, innra virði félagsins og getu félagsins til arðgreiðslna í fram- tíðinni." KVENNA ATHVART Ofbeldi er aldrei réttlætanlegt Opið allan sólarhringinn • Sími: 561 1205 • Grænt númer: 800 6205 Rekstur BGB-Snæfells erfíður síðari hluta ársins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.