Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
296. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þingkosningar fara fram í Serbíu
Stj órnarflokk-
unum spáð af-
gerandi sigri
Belgrad. AFP.
AP
Pakkavandinn leystur
SERBAR ganga að kjörborðinu í
dag í annað sinn á þrem mánuðum
og kjósa að þessu sinni fulltrúa á
þing landsins. Forseti landsins frá
1987, Slobodan Milosevic, tapaði í
haust fyrir Vojislav Kostunica,
frambjóðanda DOS, bandalags 18
flokka sem áttu það sameiginlegt að
vera á móti Milosevic. Bandalaginu
er spáð stórsigri í þingkosningun-
um, í könnunum hefur það fengið
allt að 71% fylgi. Sósíalistaflokkn-
um, sem Milosevic fer enn fyrir, er
spáð 13% atkvæða.
Rússland
Nafn Wall-
enbergs
hreinsað
Moskvu. AFP.
RÚSSAR hafa veitt Svíanum
Raoul Wallenberg uppreisn
æru, 53 árum eftir að þeir tóku
hann af lífi án dóms og laga.
Talsmaður rússneskra sak-
sóknara sagði að Wallenberg
hefði verið úrskurðaður fórnar-
lamb pólitískra ofsókna sov-
éskra yfirvalda.
Wallenberg var starfsmaður
sænska sendiráðsins í Búda-
pest í seinni heimsstyrjöldinni.
Hann bjargaði þúsundum gyð-
inga frá fangabúðum nasista
með því að útvega þeim sænsk
vegabréf. Björgunarstarf Wall-
enbergs var unnið með vitund
og vilja sænskra og banda-
rískra yfirvalda.
Rání
Svíþjóð
Stokkhólmi. AFP.
VOPNAÐIR þjófar rændu síðdegis
í gær sjálfsmynd eftir hollenska list-
málarann Rembrandt og tveim
verkum eftir franska impressjónist-
ann Renoir úr ríkislistasafninu í
Stokkhólmi. Þjófarnir ganga enn
lausir.
Verðmæti verkanna mun vera ríf-
lega 2,5 milljarðar íslenskra króna.
Ræningjarnir fóru inn á safnið rétt
fyrir lokun, vopnaðir skammbyssum
og riffli. Fjöldi manns varð vitni að
því þegar þeir urðu á brott með
verkin. Fóru þeir um borð í lítinn
bát skammt frá safninu og hurfu út í
skammdegismyrkrið. „Þetta voru
fagmenn," sagði talsmaður Stokk-
hólmslögreglunnar. „Það lítur helst
út fyrir að einhver hafi samið við þá
um að ræna verkunum."
Kosningabaráttan þykir hafa ver-
ið daufleg. Hafa sósíalisUr kvartað
yfir því hjá skrifstofu Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu, ÓSE, í
Belgrad að þeir hafi verið hindraðir
í að kynna almenningi stefnu sína.
DOS hefur ákveðið að Zoran
Djindjic, einn af þekktustu leiðtog-
um bandalagsins, verði forsætisráð-
herra ef bandalagið myndar rík-
isstjóm. „Markmið okkar er að
losna við leifamar af stjórnarfari
Milosevic og að kosningunum lokn-
um munum við verða fær um það,“
sagði Djindjie í viðtali við vikuritið
NIN. Hann sagði að væntanleg rík-
isstjóm myndi styðjast mjög við
ráðgjöf sérstakrar nefndar sérfræð-
inga og gerð yrði gangskör að því
að berjast gegn spillingu.
Beittu hótunum til að
fá kosningunum flýtt
Forsetaembættið er valdalítið og
hafa því Kostunica og liðsmenn
hans litlu fengið áorkað í umbótum
í efnahagsmálum og fleiri mála-
flokkum. Pólitískt vald er aðallega
hjá þinginu en þar era sósíalistar
og öfgafullir þjóðernissinnar, er
studdu Milosevic, með meirihluta.
Kjörtímabil þingmanna rennur ekki
út fyrr en í september 2001 en DOS
tókst að þvinga leiðtoga sósíalista
til að samþykkja að kosningunum
yrði flýtt og hótuðu að ella yrði efnt
til nýrra götumótmæla. Var mynd-
uð samsteypustjórn DOS og sósíal-
ista til bráðabirgða fram að kosn-
ingunum.
■ Niðurstaðan ráðin/25
PALESTÍNUMAÐUR varð sjálfum
sér að bana og særði þrjá Israela
með því að sprengja sprengju á
kaffihúsi skammt frá ísraelsku land-
námssvæði á Vesturbakkanum í
gær, og þrír aðrir Palestínumenn
féllu fyrir byssukúlum annars staðar
á heimastjómarsvæðunum. í Wash-
ington sögðu palestínskir sátta-
fulltrúar, sem þar sitja fundi með
ísraelum fyrir milligöngu Banda-
ríkjamanna, að viðræðumar væra að
sigla í strand.
Haft var eftir ísraelskum sjúkra-
liðum að sjálfsmorðsárásin á kaffi-
húsinu hefði orðið með þeim hætti að
Palestínumaðurinn hafi komið inn og
Gloria Spaulding, sem býr í Hermon
í Maine-ríki í Bandar íkjunum, stillti
sér upp undir jólatrénu sem hún og
maður hennar hafa undanfarin ár
hengt neðan f loftið í stofunni hjá
sér. Gerðu þau þetta vegna þess að
jólapakkarnir voru svo margir að
sprengt sjálfan sig í loft upp. Annars
staðar á Vesturbakkanum felldu
ísraelskir hermenn palestínskan
dreng á táningsaldri þegar til átaka
kom skammt frá borginni Hebron.
Annar Palestínumaður var felldur
þar skammt frá.
Þá sagði fulltrúi ísraela að Palest-
ínumaður, sem hafi verið að störfum
í gróðurhúsi í landnámi gyðinga á
Gaza-svæðinu hafi fallið fyrir kúlum
Palestínumanna sem hefðu beint
skotum sínum að nærliggjandi her-
stöð. Palestínumenn segja aftur á
móti að ísraelar hafi skotið manninn.
í Washington sagði sáttafulltrúi
Palestínumanna að viðræður deilu-
þeir komust ekki allir fyrir undir
trénu ef það stóð á gólfinu.
Nú eru þjónin farin að láta tréð
snúast auk þess að hanga niður úr
loftinu. Þótt börnin séu flutt að
heiman hefur þessi siður haldist á
heimili Spaulding-hjónanna.
aðila væra að sigla í strand, og bæri
svo mikið í milli að Palestínumenn
hefðu gengið af fundi á fimmtudags-
kvöldið.
Fundur með Clinton í dag
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
mun funda með deiluaðilum í Hvíta
húsinu í dag. Madeleine Albright, ut-
anríkisráðherra, mun einnig sitja
fundinn. Hún tók einnig þátt í við-
ræðunum í dag, sem Dennis Ross,
sendifulltrúi Bandaríkjanna í Mið-
Austurlöndum, stýrði.
Formaður samninganefndar Pal-
estínumanna, Saeb Erekat, sagði
ágreininginn djúpstæðan. Annar
Bandaríkin
Ihaldsmaður
tilnefndur
dómsmála-
ráðherra
Austin. Reuters.
George W. Bush, verðandi forseti
Bandaríkjanna, tilnefndi í gær
íhaldsmanninn John Ashcroft, fyrr-
verandi öldungadeildarþingmann, í
embætti dómsmálaráðherra. Til-
nefningin verður
líklega umdeild
því Ashcroft hef-
ur beitt sér fyrir
ströngu banni við
fóstureyðingum.
Ashcroft tap-
aði sæti sínu í
öldungadeOdinni
í síðustu kosning-
um og beið þá
nauman ósigur
fyrir demókratanum Mel Camahan,
ríkisstjóra Missouri, sem lést
skömmu fyrir kosningamar. Ekkja
Camahans tekur við þingsætinu.
Ashcroft var áður ríkisstjóri
Missouri í tvö kjörtímabil. Hann
hefur getið sér orð fyrir að vera
mjög trúrækinn og er sonur prédik-
ara í hvítasunnukirkjunni. Hann
nam lögfræði og var ríkissaksóknari
Missouri. Ashcroft hefur tekið harð-
ari afstöðu gegn fóstureyðingum en
Bush og stutt tillögu um að þær
verði jafnvel bannaðar þegar um
sifjaspell eða nauðgun er að ræða.
Bush kvaðst hafa kannað feril
Ashcrofts vandlega og vera fullviss
um að hafa valið rétta manninn í
embættið. Ashcroft væri réttsýnis-
maður og myndi ekki láta pólitíska
hagsmuni repúblikana hafa áhrif á
störf sín. Repúblikanar hafa sakað
Janet Reno, fráfarandi dómsmála-
ráðherra, um að hafa dregið taum
demókrata, meðal annars í deilu-
málunum í tengslum við málshöfð-
unina á hendur Bill Clinton forseta.
■ Bush bíða/24
palestínskur fulltrúi, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, sagði: „Það lá
við handalögmálum milli ísraelsku
og palestínsku sáttafulltrúanna."
Báðir deiluaðilar höfðu verið mun
bjartsýnni á fimmtudaginn. Megin-
deiluefnin nú era framtíð Jerúsalem,
endanleg staðsetning landamæra og
framtíð landnáms gyðinga og palest-
ínskra flóttamanna.
MORGUNBLAЮ 23. DESEMBER 2000
Fjórir Palestínumenn falla í óeirðum á heimastiórnarsvæðunum
„Lá við handalögmál-
um“ við samningaborðið
Jerúsalem. Reuters.