Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
DAGBOK
MORGUNBLAÐIÐ
í dag er laugardagur 23. desem-
ber, 258. dagur ársins 2000.
Þorláksmessa Orð dagsins: Þess
vegna skulum vér, meðan tími er til,
gjöra öllum gott og einkum
trúbræðrum vorum.
(Gal. 6,10.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Blackbird kemur og fer
í dag. Ako fer í dag.
Faxi, Freri, Skafti og
Örfirisey koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
■* Ymir og Rán koma í
dag. Ako fer í dag.
Bókatiðindi 2000. Núm-
er laugardagsins 23.
desember er 40756.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
er í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Frímerki. Kristniboðs-
sambandið þiggur með
þökkum alls konar not-
uð frímerki, innlend og
útlend, ný og gömul,
kiippt af með spássíu í
-■>- kring eða umslagið í
heilulagi. Útlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Móttaka í húsi
KFUM og K, Holtavegi
28. Reykjavik, og hjá
Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni, Glerárgötu
1, Akureyri.
Áheit. Kaldrananes-
kirkja á Ströndum á
150 ára afmæh á næsta
ári og þarfnast kirkjan
mikilla endurbóta. Þeir
' sem vildu styrkja þetta
málefni geta lagt inn á
reikn. 1105-05-400744.
Mannamót
Félag eldri borgara í
Félagi eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Ath. Skrif-
stofa FEB verður lokuð
á milli jóla og nýárs.
Opnum aftur þriðjudag-
inn 2. janúar kl. 10.
Línudanskennsla Sig-
valda verður miðviku-
daginn 27. desember kl.
19.15. Upplýsingar á
skrifstofu FEB í síma
588-2111 kl. 10-16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Miðvikudag fimmtudag
og fóstudag milli jóla og
nýárs er opið kl. 9-
16.30, frá hádegi spila-
salur opinn Veitingar í
fallega skreyttu kaffi-
húsi Gerðubergs.
Gullsmári Gullsmára
13. Starfsemi Gull-
smára, verður sem hér
segir um jólin. Lokað
verður dagana 23., 24.,
25., 26., 27 og 28. des-
ember. Föstudaginn 29.
desember verður mat-
arþjónustan opin eins
, og venjulega, það þarf
að panta mat fyrir kl.
10. Fótaaðgerðastofan
verður opin 27., 28 og
29. desember. Hár-
greiðslustofan verður
opin 28., 29. og 30. des-
ember. Starfsemi Gull-
smára hefst aftur að
nýju þriðjudaginn 2.
janúar 2001. Leikfimi
byrjar miðvikudaginn 3.
janúar á venjulegum
tíma. Kynningardagur
verður miðvikudaginn 3.
janúar kl. 14-16. Skrán-
ing á námskeið fer fram
á sama tíma. Fólk er
hvatt til að mæta og
koma með tillögu um
hvað hægt er að gera í
félagsheimilinu. Heitt á
könnunni og heimabak-
að meðlæti.
Vesturgata 7. Tré-
skurðarnámskeið hefst í
janúar, leiðbeinandi
Sigurður Karlsson.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Jóla-
gleðin verður 28. des. í
Hjallakirkju kl. 14.
Söngur, gleði og jóla-
happdrætti.
Breiðfirðingafélagið.
Jólatrésskemmtun fyrir
böm á öllum aldri verð-
ur í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14. þriðjudag-
inn 26. des. kl. 14.30.
Skaftfellingafélagið.
Jólatrésskemmtunin
verður í Skaftfell-
ingabúð, Laugavegi 178,
miðvikudaginn 27. des-
ember kl. 17.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja: Nánari
uppl. á skrifstofu GI, s.
530 3600.
Minningarkort
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru fá-
anleg á eftirfarandi
stöðum: A skrifstofu
Flugfreyjufélags ís-
lands, s. 561-4307/fax
561-4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s. 557-
3333 og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s. 552-
2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið i Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: í Byggðasafninu
hjá Þórði Tómassyni, s.
487-8842, í Mýrdal hjá
Eyþóri Olafssyni, Skeið-
flöt, s. 487-1299, í
Reykjavík hjá Frí-
merkjahúsinu, Laufás-
vegi 2, s. 551-1814 og
hjá Jóni Aðalsteini
Jónssyni, Geitastekk 9,
s. 557-4977.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1,110 Reykjavík. S. 570
5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is
Minningarkort Hvfta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562-1581 og hjá Krist-
ínu Gísladóttur, s. 551-
7193 og Elínu Snorra-
dóttur, s. 561-5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16, Reykja-
vík. Opið virka daga kl.
9-17. S. 553-9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils. Minning-
arkort Kvenfélagsins
Hringsins í Hafnarfirði
fást í blómabúðinni
Burkna, hjá Sjöfn s.
555-0104 og hjá Ernu s.
565-0152.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnamess hjá
Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlegast hringi í
síma 552-4994 eða síma
553-6697, minning-
arkortin fást Iíka í
Kirkjuhúsinu Lauga-
vegi 31. Minningarkort
Kvenfélags Langholts-
sóknar fást í Langholts-
kirkju s. 520-1300 og í
blómabúðinni Holta-
blóminu, Langholtsvegi
126. Gíróþjónusta er í
kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju
sími 520 1300 og í
blómabúðinni Holta-
blómið, Langholtsvegi
126. Gíróþjónusta er í
kirkjunni
Minningakort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í
Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í
blómabúðinni Burkna,
hjá Sjöfn s. 555 0104 og
hjá Emu s. 565 0152
(gíróþjónusta).
Minningarkort ABC-
hjálparstarfs em af-
greidd á skrifstofu
ABC-hjálparstarfs í
Sóltúni 3, Reykjavík, í
síma 561-6117. Minning-
argjafir greiðast með
gíróseðli eða greiðslu-
korti. Allur ágóði fer til
hjálpar nauðstöddum
bömum.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum bama fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspít-
alasjóðs Hringsins fást
hjá Kvenfélagi Hrings-
ins í síma 551-4080.
Kortin fást í flestum
apótekum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru
til sölu á Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4,
s. 551-3509.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði em afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 669 1166,
sérblöð 5691222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 668 1811, gjaldkeri 6691115. NETFANG: RIT-
V STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið.
\i:iA\k\\m
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudeg’i til föstudags
Okkur
er spurn
ÞAÐ var ömurlegt að lesa í
Morgunblaðinu 21. des-
ember sl., þremur dögum
fyrir jól, viðtal blaðamanns
við Mæðrastyrksnefnd.
Fólk stendur í löngum röð-
um úti í kuldanum í leit að
mat og nauðþurftum.
Þarna vom meðal annars
öryrkjar, aldrað fólk, ein-
stæðir foreldrar og fleiri.
Hvers vegna er þessi fá-
tækt í landi allsnægtanna?
Félagsþjónustan vísar fólki
stanslaust á hjálparstofn-
anir. Fólk kemur svangt og
grátandi og sumir hafa ekki
borðað almennilegan mat í
marga daga. Hvers vegna
er veikburða og öldruðu
fólki boðið upp á að standa
úti í kuldanum? Við krefj-
umst þess að hluti af þvi
skattfé, sem við emm búin
að greiða, sé notað til þess
að hjálpa þessu fólki. Okk-
ur ofbýður ástandið.
Tólf skattborgarar.
Jólin 2000
í GEGNUM árin hafa
margir íslendingar komið
við hjá okkur. Fyrstu kynni
okkar af Bændaferðum var
árið 1982, þegar hús Stef-
áns G. Stefánssonar var
opnað við hátíðlega athöfn
sem byggðasafn. Það kom
mjög stór hópur frá Islandi
og ferðaðist alla leið til
Vancouver. Vorum við
hjónin þá svo lánsöm að
geta tekið á móti öllu þessu
fólki og átt smástund með
þeim á heimili okkar.
Þannig atvikaðist það, að
við kynntumst Agnari hjá
Bændaferðum.
Það hafa komið nokkrir
ferðahópar við hjá okkur
yfir árin, en í sumar feng-
um við tækifæri til að
ferðast með þremur ferða-
hópum frá Vancouver til
Calgary og var það einstak-
lega gaman. Kynntumst við
hjónin mörgu skemmtilegu
fólki og ekki nóg með það,
heldur hefur íslenskan h'ka
liðkast og trúlega hefur
hún málfræðilega lagast.
Til félaga Karlakórs
Reykjavikur og Diddúar,
það var alveg ógleymanlegt
að hlusta á ykkur í Winni-
peg og Gimli og að fá að
vera með ykkur þessa
daga. Þetta hefur verið
ákaflega minnisstætt sum-
ar.
Okkur langar að senda
öllum þeim, sem við höfum
hitt frá íslandi í gegnum
árin og landsmönnum öll-
um óskir um gleðileg jól og
farsælt nýtt ár.
Bestu jólakveðjur,
Auður og Sumarliði
Ingvarsson, Kelowna,
B.C. Kanada.
Góða nótt -
nægur svefn
ÓLAFUR hafði samband
við Velvakanda vegna aug-
lýsingar frá Landlæknis-
embættinu sem birtist i
Morgunblaðinu 19. des-
ember sl.
Auglýsingin „Góða nótt“
er varðandi nægan svefn. I
auglýsingunni er fólki bent
á að leita sér frekari upp-
lýsinga á Netinu en ekki
gefnir upp aðrir mögu-
leikar á að leita sér nánari
upplýsinga. Sagði Ólafur að
ekki væru allir með Netið
og þyrfti að gefa upp aðra
leið til að afla sér upplýs-
inga. Sagðist Ólafur hafa
fengið bréf frá Reykjavík-
urborg vegna fasteigna-
gjalda. í bréfinu er einnig
vísað á Netið til að fá nánari
upplýsingar en í því bréfi
var fólki einnig bent á aðra
leið til að fá upplýsingar og
fannst honum það mjög
gott.
Tapad/fundid
Svart pils
tapaðist
SVART hnésítt pils tapað-
ist einhvers staðar á leið al-
menningsvagna Kópavogs
nr. 140 og 63, þriðjudaginn
19. desember sl. Vinsam-
legast hafið samband í síma
554-3646.
Mirra er týnd
TÍKIN Mirra hvarf frá
Lækjarbotnum við Suður-
landsveg fyrir hálfum mán-
uði. Mirra er skosk-íslensk,
brún, hvít og svört. Hún er
ekki mannfælin. Ef einhver
hefur orðið hennar var á
þeim tima, vinsamlegast
hafið samband við Birgittu
í síma 692-0267 eða 554-
3253.
Krossgáta
LÁRÉTT:
1 orsaka, 4 streyma, 7
ásynja, 8 Ijósgjafinn, 9
blóm, 11 brún, 13 konur,
14afkvæmi, 15 vitlaus, 17
iþyngd, 20 liðamót, 22
mergð, 23 áma, 24 kasta,
25 tijágróðurs.
LÓÐRÉTT:
1 braut, 2 um garð geng-
in, 3 flanar, 4 vatnsfall, 5
lætur af hendi, 6 fugls, 10
uppnámið, 12 atorku, 13
burt, 15 þjalar, 16 nógu
mikinn, 18 mjúkan, 19
jarða, 20 ósoðna, 21
snæðir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 glysgjarn, 8 útveg, 9 lofar, 10 ill, 11 tosar, 13
Arnar, 15 hlass, 18 fauti, 21 Týr, 22 lokki, 23 öndin, 24
grannkona.
Lóðrétt: 2 lævís, 3 segir, 4 julla, 5 rófan, 6 búnt, 7 hrár,
12 ats, 14 róa, 15 hóU, 16 askur, 17 stinn, 18 frökk, 19
undin, 20 inna.
Víkverji skrifar...
HEITU pottarnir eru oft upp-
spretta merkilegrar umræðu
og kæmi það Víkverja ekki á óvart að
margar af veigameiri ákvörðunum í
þjóðfélaginu væru teknar þar. Vík-
verji lagði við hlustir einn morgun-
inn þegar verið var að ræða fram-
göngu lögreglunnar í ýmsum málum.
Einn pottavinurinn sagði frá því að
kona hans hefði auglýst gamla inn-
réttingu til sölu í smáauglýsinga-
dálki DV fyrir skömmu. Auglýsingin
bar engan árangur og að frekar en
að henda henni ákvað hún að gefa
hana.
Skömmu eftir að hún var búin að
afhenda innréttinguna fékk hún ann-
að símtal í GSM-símann sem vakti
tortryggni hennar. Það var eitthvað
á þessa leið:
„Góðan dag,“ sagði karlmanns-
rödd sem kynnti sig ekki, „er það
rétt að þú hafir verið að auglýsa eld-
húsinnréttingu fyrir nokkru?“
„Það er rétt,“ sagði frúin, „en hún
er því miður farin.“
„Jæja, já,“ sagði röddin, „svo hún
er farin?“
„Já,“ sagði frúin, „þú er of seinn.“
„Það er nefnilega það,“ sagði
röddin, „ég verð nú samt að spyrja
þig um þessa eldhúsinnréttingu."
„Þú verður það ekki neitt, þetta
var gömul innrétting og það er ekk-
ert um hana að segja,“ sagði konan
og kvaddi. Tónninn í þessu samtali
var þó þannig að konan varð ergileg
og vildi komast að því hver þetta hafi
verið.
XXX
GSM-síminn geymdi upplýsingar
um símtalið og í Ijós kom að
hringt hafði verið úr aðalnúmeri lög-
reglunnar í Reykjavík. Frúin hugs-
aði með sér að líklega væru löggum-
ar búnar að horfa á of margar
spæjaramyndir og kæmust ekki úr
hlutverkinu, því samtalið hjómaði
eins og þriðju gráðu yfirheyrsla. Við
kvöldverðarborðið sagði hún fjöl-
skyldunni hálfhlæjandi frá þessu.
Pottverjinn upplýsti eiginkonu sína
þá um að hann hefði séð í fréttunum
að lögreglan væri að rannsaka inn-
réttingastuld úr nýbyggingahverf-
um, og hefði líklega verið að kanna
alla hugsanlega möguleika á því
hvernig þjófarnir losuðu sig við góss-
ið. Þetta vakti mikla kátínu hjá fjöl-
skyldunni.
XXX
POTTVERJAR brostu líka að
sögunni og veltu fyrir sér hvort
ekki væri þörf á að lögreglan sendi
rannsóknarmenn sína á leiklistar-
námskeið, svo þeir gætu leikið hlut-
verkið skammlaust, en vektu ekki
grun hjá saklausum konum um að
einhver væri að villa á sér heimildir.
Annar Pottverji sagði að lögreglan
mætti endurskoða ýmislegt fleira í
vinnubrögðum sínum. Hann hefði
orðið fyrir því að finna reiðhjól úti í
móa fyrir nokkrum árum. Hann
hringdi til óskilamunadeildar lög-
reglunnar og spurði hvort þeir gætu
slegið lýsinguna inn í tölvu og athug-
að hvort þeir fyndu einhverja sam-
svörun. Þeir sögðu ekki vera með
þessa muni tölvuskráða, en hvöttu
Pottverjann til að koma með hljólið.
Hann var tregur til þess og spurði
hvað þeir gerðu til að koma hjólinu á
framfæri. Ekki neitt, var svarið, en
fólk getur alltaf hringt og spurst fyr-
ir eða litið á munina. Pottverjinn
spurði hvemig starfsmenn lögregl-
unnar gætu lagt á minnið og lýst öll-
um hlutum, þ.m.t. hjólum, sem lög-
reglunni bærust, ef þeir hefðu ekki
tölvuskráðan lista yfir þá. Þá kvað
við föðurlegan tón og lögreglumað-
urinn tjáði Pottverjanum að sem
borgara bæri honum að koma því
sem hann fyndi til lögreglunnar. Og
þá gerðist það sama og hjá konunni
með innréttinguna, Pottverjinn fyrt-
ist og sagðist ekki ætla að henda
hjólinu inn í einhvem haug hjá þeim,
sem síðar yrði seldur á uppboði.
Hann auglýsti síðan hjólið í Velvak-
anda, eigandann gaf sig fram og allir
urðu ánægðir.