Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ljósmynd/Pórður Pórðar Skógarsjóður gefur starfs- mönnum Isfélagsins jólatré Maður og ung kona slösuð eftir harðan árekstur Mildi þykir að ekki fór verr Morgunblaðið/Sigursteinn Fólkið í bílnum hafði stigið út áður en áreksturinn varð. Ljóst má telja að þau hefðu ýmist stórslastast eða látist hefðu þau verið í bflnum. SKÓGARSJÓÐUR afhenti í vikunni starfsmönnum ísfélagsins í Vest- mannaeyjum 117 jólatré að gjöf en mikið tjón varð sem kunnugt er á dögunum á húsnæði ísfélagsins í Eyjum af völdum eldsvoða. Að sögn Þórðar Þórðarsonar, formanns stjórnar Skógarsjóðsins, eru jólatrén úr Heiðmörk, stafafura og greni - allt falleg og góð tré. Björn afhenti trén í Vest- mannaeyjum í vikunni ásamt Jón- ínu Pálsdóttur starfsmanni sjóðs- ins. Bjöm Þorgrímsson tók við gjöfinni fyrir hönd starfsmanna ís- félagsins. TVENNT er með alvarlega áverka eftir harðan árekstur rétt austan við Þjórsá á fimmtudagskvöld. Maður og ung kona liggja á Landspítala - háskólasjúkrahúsi mikið slösuð. Þá voru tveir karlmenn fluttir á heil- brigðisstofnunina á Selfossi en þeir eru mun minna slasaðir. Tildrög slyssins eru þau að fólks- bíll hafði bilað í vegarkanti og var hann Ijóslaus. Jeppa hafði verið lagt fyrir framan hann til að lýsa upp svæðið. Ökumaður jeppans og far- þegi hugðust gefa bílnum rafstart þegar önnur fólksbifreið skall af miklu afli aftan á bilaða bílnum. Areksturinn var gríðarharður og þeyttist bilaði bfllinn á jeppann sem fór við það þvert yfír veginn og hafnaði ofan í skurði. Ökumaður jeppans varð á milli en farþeginn slapp á óskiljanlegan hátt að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Hann kenndi sér eymsla í hné en sagðist ætla að leita sér læknishjálpar sjálf- ur. Ökumaður jeppans og stúlka sem var farþegi í þriðja bílnum voru bæði flutt á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi mikið slösuð. Fjórir höfðu verið í bilaða bílnum en þau höfðu öll stigið út úr honum þegar slysið varð. Augljóst má telja að þau hefðu stórslasast eða látist hefðu þau verið í bílnum þegar áreksturinn varð. Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Felags framhaldsskólakennara Utspilið vonbrigði og naumast tilviljun ELNA Katrín Jóns- dóttir, formaður Fél- ags framhaldsskóla- kennara, segir að út- spil samninganefndar ríkisins á fundi í gær hafí verið mjög óvænt. Það valdi miklum von- brigðum og geti naum- ast verið tilviljun ein. „Viðræður undan- farinna daga höfðu snúist um fjölmörg at- riði sem varða til- færslur, atriði sem varða launabreytingar almennt og mikilvæga þætti um ákveðna ein- földun á vinnutíma- kafla kjarasamninganna, um mark- miðssetningu í nýjum kjara- samningi og hvemig megi hugsa sér nýtt samspil þessara þátta,“ segir Elna Katrín. Ekkert að því að einfalda kjarasamninginn „Kjarasamningur okkar er mjög ítarlegur og sundurliðaður og ekk- ert að því að leitast við að einfalda hann með einhverjum hætti. í því sambandi má vel velta þeirri spurningu upp hvaða hlutir era best komnir í kjarasamningi og hverjir í reglugerðum og stjórnvaldsfyrir- mælum eða hreinlega í sérstakri markmiðs- setningu kjarasamn- ingsins." Að sögn Elnu Katr- ínar var þessari um- ræðu alls ekki lokið, en í heild hafi samninga- viðræður gengið nokk- uð vel og jafnvel hafi hillt undir að saman næðist um gerð nýs kjarasamnings. „Þess vegna spyr ég mig, hvað getur komið samninganefnd ríkisins til að kasta óvænt inn á borð tillögu um að henda nánast vinnutímakafla kjarasamningsins út af borðinu? Þetta fer einfaldlega ekki saman við það sem áður hefur verið rætt. Þetta er í senn afar ódiplómatískt og eiginlega mjög undarlegt uppátæki. Það var ekki eins og samninga- nefndin byði upp á viðræður um málið, þetta var einhliða útspil og í engu samræmi við fyrri viðræður.“ Skilur ekki hvað mönnum gengur eiginlega til Elna Katrín segir að hún geti ekki ímyndað sér að samninganefnd rík- isins hafí komið hörð viðbrögð kenn- ara á óvart. „Mér er næst að halda að þetta útspil hafi því ekki verið til- viljun, en hins vegar get ég ekki skilið hvað mönnum gengur eigin- lega til með að leggja í þá áhættu að eyðileggja samningalotu þar sem hillti undir samkomulag. Það lá allt- af fyrir að niðurstaðan úr þessari lotu réði því hvort skólar fara af stað í byrjun janúar eða miklu seinna.“ Hún segist þó ekki trúa því að málin séu öll komin aftur á byrj- unarreit. „Þetta var hins vegar mikil afturför og hefur í för með sér gríð- arleg vonbrigði fjölmargra, ekki að- eins kennara. Ég vona að samning- urinn við Verslunarskólann verði hvati í þessum efnum, en sá samn- ingur er hins vegar ekkert tengdur samningum ríkisins og getur því að- eins verið til viðmiðunar." ÓVÆNT slitnaði upp úr viðræðum samninganefndar Félags framhalds- skólakennara og samninganefndar rödsins síðdegis í gær eftir langa og stranga samningalotu, þegar frekar var búist við að saman væri að nást eftir nærri sjö vikna verkfall fram- haldsskólakennara. Fulltrúar kenn- ara segja að rfldð hafí komið með óvænt og óaðgengilegt útspil á síð- ustu stundu í viðræðunum í gær og krafist þess að allur vinnutímakafli kjarasamninga framhaldsskólakenn- ara félli brott utan ákvæði um há- markskennsluskyldu. í yfírlýsingu, sem framhaldsskóla- kennarar sendu ft’á sér í gær, kemur fram að samningsaðilar hafi undan- fama daga átt samningaviðræður, sem kennarar litu á sem alvörutilraun tii þess að ná kjarasamningi og koma framhaldsskólunum aftur af stað. í þeim samningaviðræðum haíi að mati kennara miðað ágætlega og jafnvel talið að samningur væri í sjónmáli. „Meginlínur höfðu skýrst um möguleika varðandi launabreytingar, tilfærslur milli launaþátta og talsvert verið rætt um markmið í nýjum samningi, m.a. um einföldun kjara- samnings og breytingar á störfum til að mæta þörfum framhaldsskóla mið- að við breytt starfsumhverfi og nýja aðalnámskrá. Félag íramhaldsskólakennara lýsir miklum vonbrigðum með framkomu SNR og telur að með óvæntum og óaðgengilegum tillögum stefni fulltrúar ríkisins kjaradeilunni aftur í harðan hnút. Telja verður tvísýnt miðað við stöðuna í dag að kjarasamn- ingar náist í tæka tíð til þess að hefja megi skólastarf á eðlilegum tíma eftir áramót,“ segir í yfirlýsingunni. „Það voru fyrst og fremst erfið at- riði í tengslum við vinnutíma sem urðu til þess að við steyttum á skeri,“ sagði Þórir Einarsson rfldssáttasemj- ari við Morgunblaðið eftir fundarslit í gær. Hann boðaði strax fund að nýju þriðja í jólum. „Það var ekki gott fyrir málið í heild að svona fór. Það var búið að leggja mikla vinnu í þessar samninga- viðræður," sagði Þórir. Gunnar Bjömsson, formaður samninganefndar í-fldsins, kvaðst mjög undrandi á hörkulegum við- brögðum kennara, eins og hann orð- aði það. „Ég get ekki skilið þessi viðbrögð og útganga samninganefndarinnar kom okkur algjörlega í opna skjöldu," sagði hann. „Hugmyndir okkar um breytingu á vinnutímakaflanum eru í fullu sam- ræmi við það sem Verslunarskólinn hefur verið að bjóða. Við erum að reyna að auka sveigjanleikann í skóla- starfinu og erum meira að segja til- búnir að ganga lengra hvað varðar kennsluafsláttinn. Þessi einarða af- staða kennara kemur mér vægast sagt á óvart.“ Gunnar segir að samningur Versl- unarskólans og kennara hafi sem slík- ur ekki mikil áhrif á samninganefnd ríkisins. „Versló er að semja við 70 kennara en við 1300. í sjálfu sér gæt- um við náð sambærilegum samning- um ef við værum aðeins að semja fyr- ir hönd svipaðra skóla, eins og MA eða MR. Hins vegar er fjölbreytni skólanna svo mildl hjá okkur og fjöldi þátta sem þarf að taka tillit til. Ég nefni sem dæmi verknám og öldunga- deiidir," sagði hann. Eftir að hnýta lausa enda í viðræðum grunnskólakennara og sveitarfélaga að undirritun samn- milli jóla og nýárs Stefnt ings SAMNINGANEFNDUM grunn- skólakennara og sveitarfélaga tókst ekki það ætlunarverk sitt að ljúka kjarasamningum grunnskólans fyrir jól og var gert hlé á viðræðunum í gærkvöldi. I sameiginlegri yfirlýs- ingu kemur fram að samningsaðilar séu ásáttir um að gefa sér betri tíma til að hnýta alla lausa enda áður en nýr samningur verður undirritaður. Stefnt er að því að ljúka samninga- gerðinni milli jóla og nýárs. í yfiriýsingunni segir að lokið sé þriðja áfanga viðræðuáætlunar samningsaðila. „Samkomulag hefur tekist í stórum dráttum um þau at- riði sem aðilar stefndu að í þessum áfanga. Viðræður Skólastjórafélags íslands við launanefnd sveitarfélaga eru skemur á veg komnar. Samn- ingsaðilar eru ásáttir um að gefa sér betri tíma til að hnýta alla lausa enda áður en nýr samningur verður und- irritaður, taka sér jólafrí og stefna að því að ljúka samningsgerðinni milli jóla og nýárs,“ segir í yfirlýsingunni. Viðræðuáætlun hefur staðist Birgir Björn Sigurjónsson, for- maður samninganefndar launa- nefndar sveitarfélaga, sagði við Morgunblaðið, að til þessa hafi viðræðuáætlun aðila staðist. „í henni fólst að við myndum í fyrsta áfanga ljúka sameiginlegri stefnumörkun og það tókst. í næsta áfanga ætluð- um við að jarðtengja þessi stefnumið og það tókst. í þriðja áfanganum ætluðum við síðan að freista þess á einni viku að ljúka gerð kjarasamn- ings. Slíkt er afskaplega flókið verk og nú þegar við gerum stutt jólahlé á viðræðunum stöndum við upp með sameiginlegar hugmyndir og vitum í stórum dráttum hvað við ætlum okk- ur að gera. Aðeins er eftir að hnýta ýmsa lausa hnúta,“ sagði hann. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formað- ur samninganefndar Félags grunn- skólakennara, sagðist telja að aðilar þyrftu tvo til þijá daga í viðbót til að sigla málum endanlega í höfn. Ekki hafi þótt ástæða til að halda fólki frá fjölskyldum sínum á Þorláksmessu eða aðfangadag og því hafi sú leið verið valin að taka stutt hlé fyrir lokasprettinn. „Þau ágreiningsefni sem hafa komið upp í þessum viðræðum hafa verið leyst jafnharðan og við erum þess fullviss að jafn vel mun ganga í næstu viku. Þá ætlum við að semja,“ sagði Guðrún Ebba. Elna Katrín Jónsdóttir Óvænt slitnaði upp úr viðræðum framhaldsskolakennara og rikisins Afstaða kenn- ara kemur ríkinu á óvart
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.