Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR aði eitthvað á á öðru heimilanna, stóð hitt opið með ráðum og dáð. A stjórnmálavettvangi voruð þið vinirnir á öndverðum meiði en aldr- ei létuð þið það skyggja á samveru ykkar og mættu margir taka það til mikillar fyrirmyndar. Mér er til dæmis í fersku minni þegar Begga tilkynnti okkur, að nú færi hún í bæjarstjórnarframboð fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Man ekki sjálfa um- ræðuna en sé ykkur öll ljóslifandi fyrir mér og heyri rödd föður míns: Bergljót Rafnar er öðlingur í hjarta sínu, og henni er hægt að treysta, sama hvað flokkurinn heith-. Pess- um eiginleikum gædd bjóst Begga til starfa og eyddi ómældum tíma og kröftum í þágu félagsmála, þar sem hún sannaði sí ofan í æ ummæli vinar síns í næsta húsi. Begga sýndi vinum sínum aldrei yfirborðskennt viðmót né lét sér á sama standa 'um líðan þeirra og dagfar. Hún var gædd þeim eig- inleika, að hafa áhuga á manneskj- unni, sama hver flötur sneri upp, og þannig öðluðumst við, yngri kyn- slóðin, hana einnig sem vin. Hún sýndi okkur ætíð virðingu og virtist standa á sama þótt við værum á versta gelgjuskeiði með uppreistri og alls konar mannalátum. Þau vóru því ófá, unglingarnir og börnin sem fengu athygli og yl og áttu athvarf í Ásabyggð númer fimm. Nú eru orðin allmörg ár síðan þið Bjarni kvödduð Syðri-Brekkuna á Akureyri og lögðuð land undir fót til að njóta áfram nálægðar barna, barnabarna og barnabarnabarna. Annað kom aldrei til greina því að hugur ykkar, hjarta og daglegt amstur var óskipt helgað þeim. Við fengum samt að eiga ykkur áfram. Okkur var tekið með opnum örmum þegar við kvöddum dyra í Efstaleiti. Fundum þar þel og þokka sem ein- ungis eru milli sannra vina og hafa ekkert með tíma né rúm að gera. _ Við sáumst síðast í sumar er leið. Attum stutta ánægjustund með spjalli, bolla og ljómandi augum. Kvöddumst með kossi og innilegu faðmlagi uppi í íbúðinni, þar sem hægt er að horfa af svölunum heim til allra barnanna ykkar og áfram suður í fjarskann. Handan við nesin og sundin blá taka við óravíddirnar sjálfar, og þangað líður nú hugurinn með djúpum söknuði. Efst í huga er þó innileg samúð í garð ykkar allra, er stóðu Beggu allra næst, og þökk fyrir mig og mína, fyrir samveru- stundirnar allar, nærveru og enda- lausa hlýju. Þóra Þóroddsdóttir. Zontakúbbur Akureyrar sér á bak góðum félaga og vini þegar Bergljót Rafnar kveður. Hún var ötul Zontakona, skemmtileg og ósérhlífin. Frásagnalistar Bergljót- ar nutum við ríkulega þegar hún tók sig til og lyfti líðandi stund á flug með hnyttnum sögum, þar sem þau hún og Bjarni voru aðalpersón- urnar sem grínið snerist um. Aðrir fengu sinn græskulausa skammt. Málshættir, Ijóð og orðatiltæki léku á vörum hennar. Starfsheiti Berg- ljótar við inngöngu í Zontaklúbbinn var húsmóðir með stúdentspróf úr stærðfræðideild. Þetta var óspart notað þegar þurfti að reikna út hagnað eftir flóamarkað sem við héldum á flötinni framan við Zonta- húsið. Minningarnar frá þeim góðu dögum verða enn verðmætari nú þegar ljóst er að samverustundirn- ar verða ekki fleiri. Eftir að Berg- ljót flutti suður sendi hún okkur hlýjar kveðjur á jólum og var með hugann við bæjarlífið og starfið hjá okkur Zontakonum. Sjálf var hún búin að vinna samfélaginu ómælt með allri þátttöku sinni í nefndum og ráðum, bæði á vegum Zonta- klúbbsins og Akureyrarbæjar. Eg átti því láni að fagna og við hjónin að eignast þau að kunningjum Bergljótu og Bjarna þegar við flutt- um til Akureyrar og eftir á að hyggja er trygglyndi þeirra og stuðningur eitt af því sem hefur gert Akureyri að svona góðum bæ til að búa í. Bergljót bauð mér á fyrsta Zontafundinn fyrir meira en tuttugu árum, samt er svo stutt síð- an. Eg sat með henni í stjórn klúbbsins og lærði margt af henni þar. Bjarna Rafnar, börnum hans og fjölskyldum þeirra sendum við Zontakonur innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Berg- ljótar Rafnar. Fyrir hönd Zontaklúbbs Akur- eyrar, Kristín Sigfúsdóttir. JÓN ELÍS GUÐMUNDSSON + Jón Elís Guð- mundsson fædd- ist í Reykjavík 20. janúar 1973. Hann lést í Mexíkó 9. des- ember síðastliðinn og fór útfór hans fram frá Fossvogs- kirkju 21. desember. Elsku Jón Elís, við vitum að þér líður vel á þeim stað sem þú ert nú kominn á. Við sökn- um þín mikið og getum ekki hugsað okkur lífið næstu árin án þín. Þú varst svo stór þáttur í lífi okkar og bjóst þú nokkrum sinnum á þinni stuttu ævi heima hjá okkur. Minn- ingarnar eru svo ótalmargar um frá- bæran strák fullan af orku og gleði. Þú varðst alltaf að vera að afreka eitthvað, jafnvel sem smá polli. Þó lífið hafi stundum verið þyrnum stráð hjá þér, þá varstu alltaf sá yndislegi bróðir sem ég mun minn- ast alla tíð. Þú varst vinur í raun og alltaf hafðir þú tíma til að hlusta. Það sem er mér, og verður, alveg ógleymanlegt er þegar þú gafst mér vissa bók og sagðir: „Fjóla, eitt faðmlag getur breytt deginum fyrir þann sem þú faðmar og líka hjá þér og það kostar ekkert." Þessa bók fékkst þú svo aftur lánaða og notaðir mikið og hef ég ekki séð hana síðan en það verður næsta verk mitt að kaupa þessa bók og hafa hana hjá mér. Þú gafst öllum svo mikið af þér og stundum of mikið svo þú varst út- keyrður og hafðir enga orku handa sjálfum þér en þannig varst þú. Þú varst óspar á faðmlagið og ef þú heyrðir að manni leið ekkert of vel þá sagðir þú alltaf: „ Gerðu þig klára, ég kem og tek þig í bíltúr.“ Og svo komstu. Þú varst besti vinur minn og finnst mér að hluti af mér hafi dáið með mér. Við biðjum Guð að geyma þig, elsku vinur, og kveðjum þig með þessu ljóði: Nóttin er dimm og ég skelf því ekkert heyrist, í nóttinni býr eitthvað óþekkt og ég finn lyktina af óttanum. Skyndilega skín sólin á andlit mitt ég finn, já ég finn hve húð mín lifnar við Hún sendir geisla sína inn í augun mín og hita sinn inn í hjarta mitt. Þegar sólin skín verð ég aftur lifandi ég stækka og hugur minn blómstrar jörðin opnast og ég hleyp um einsogkálfurávorin. Éghlæogéggrætafgleði, þetta er hans ríki. Hann er loksins kominn, hann sem gefur svo margt, hann gefur af gleði en heimtar ekkert til baka. Augun eru spegill sálarinnar. Ef þú leist í mín: Hvað sást þú? Lífið er leikur, já leikur sem þeir heiðarlegu vinna. Ég lít í hjarta mitt: Erégeinnafþeim? (Fjóla Hrönn Guðmundsdóttir.) Fjóla systir og Pálmi. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 4fa Anand tekur forystuna gegn Shirov SKAK T e h e r a r HEIMSMEISTARA EINVÍGI FIDE 20.-27.12 2000 í lokahrinu heimsmeistaraein- vígisins verða tefldar sex skákir. í fyrstu einvígisskákinni milli þeirra Anands og Shirov kom upp frönsk vöm og lauk þeirri skák með jafnt- efli eftir nokkrar sviptingar. I ann- arri skák þeirra tefldi Shirov sama afbrigði og Adams tefldi í einvíginu á móti Anand um daginn. Anand var að sjálfsögðu öllum hnútum kunnugur og kom með athygils- verða nýjung strax í áttunda leik. Eftir mistök Shirovs í 14. leik náði Anand yfirhöndinni, en í framhald- inu varðist Shirov vel. Eftir mikil uppskipti kom upp mjög flókið hróksendatafl og eru menn ekki á einu máli um hvort endataflið sé unnið eðajafntefli. Hvítt: Viswanathan Anand (2.762) Svarrt: Alexei Shirov (2.746) Spænski leikurinn [C78] 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5.0-0 Bc5 Adams lék einnig þessum leik á móti Anand í annarri skákinni, en það bar ekki tilætlaðan árangur. 6. c3 b5 7. Bc2 d5 Athygilsverð peðaframrás sem byggist á hugmyndinni 8. exd5 Dxd5! 9. Bb3 Dd3 og drottningin heftir framgöngu hvítu mannanna. 8. a4!? Nýjung. Áður hefur teflst 8.d4 dxe4 9. Rxe5 (9. dxc5 Dxdl 10. Bxdl exS3 11. BxíS Bb712. b4 e4 13. Be2 0-0 staðan er óljós Row- son-Benjamin, Edmenton 2000 ) 9. ...Rxe5 10. dxe5 Dxdl 11. Hxdl Rg4 12. Bxe4 Rxf2 13. Bc6+ Ke7 14. Hd5 Bb6 15. Bxa8 Rd3+ 16. Kfl Rxcl 17. Ra3 Be6 18. Hxcl Hxa8 19. Hd3 Bf5 20. Hddl Be3 21. Hal Bf4 22. g3 Bxe5 23. Hd2, en þannig tefldist skákin Shirov-Onic- huk, Þýskaland 2000, og Zhang Zhong-Onichuk, Bejing 2000, og hvítur heldur vinningsmöguleik- um. Þó ætti svartur að halda jafnt- efli. 8. ...dxe4 Til greina kom 8. ...Hb8, en eftir 9. d4 dxe4 10. dxcö Dxdl 11. Bxdl hefur hvítur hagstæða útgáfu á skákinni Rowson-Benjamín hér að ofan. 9. axb5 Bg4 Ekki 9. ...exf3 10. Dxf3 e4 11. Bxe4 Re5 12. De2 og vinnur því ekki gengur 12. ...Bg4 vegna 13. Bc6+. 10. Bxe4 Rxe4 11. bxc6 0-0 Sjá stöðumynd 1. Byrjuninni er lokið hvítur er peði yíir, en á móti kemur að c6 peðið er veikt og eins er svartur langt á undan í liðskipan. 12. d4 Til greina kom 12. d3 Rxf2 13. Hxf2 e4 ( ef 13. ...Bxí2+ 14. Kxí2 e4 kemur 15. Ha4! og hvítur stend- ur betur ) og eftir 14. d4 exf3 15. E ■? jT á JJJ A ÍH ÍH ! & %sm & iMi mrn & § §§§(§ 1 i HHI n m Stöðumynd 1 Rd2 Bd6 16. Rxf3 De8! er staðan í jafnvægi. 12. ...exd4 13. cxd4 Bb6 14. Rc3 He8?! Hér missir Shirov af gullnu tækifæri: 14. ...Rxc3 15. bxc3 Dd5 16. h3 Bh5 17. g4 Bg6 18. Re5 f6! 19. Rxg6 (slæmt erl9. Rd7 Hfe8 20. Rxb6 cxb6 21. c7 Dd6 og svart- ur stendur betur) hxg6 20. Dd3 f5! og svartur hefur góð gagnfæri. 15. Be3 Dd6 Nú er 15. ...Rxc3 ekki eins sterkt vegna 16. bxc3 Dd5 17. h3 Bh5 18. g4 Bg6 19. Re5 og nú gengur ekki 19. ...f6 vegna 20. c4. 16. d5! Sennilega hefur Shirov misst af þessum leik. 16. ...Bxe3 17. fxe3 Had8 Eftir 17. ...Rxc3 18. bxc3 Hxe3 19. Dd4 Bxf3 20. Dxe3 Bxd5 21. Hfdl Dxc6 nær hvítur að skipta upp í hagstætt endatafl 22. Dd4! Bc4 23. Dd8+ De8 24. Dxe8+ Hxe8 25. Hd4 og hvítur hefur mjög góðar vinningslíkur. 18. Hxa6 Rxc3 19. bxc3 Dxd5 20. Dxd5 Hxd5 21. Rd4 Eftir að storminn hefur lægt heldur Anand góðum vinnings- möguleikum. Samt er ekki einfalt að notfæra sér umframpeðið vegna þess hversu veik peðin eru á e3 og c3. 21....g6! Undirbýr að búa til griðland fyr- ir biskupinn á e4. 22. Hf4 Eftir 22. Kf2 kemur 22. ...Hd6! með hótuninni Hf6+. 22. ...Bf5 23. Ha7 Hxe3 24. c4 Hc5 25. Hxc7 He4! Slæmt væri 25. ...Hxc4 26. Hxf5 Hxd4 ( ef 26. ...gxf5 27. Hc8+ Kg7 28. Rxf5+ og vinnur ) 27. Hfxf7 og hvítur vinnur. 26. Hxe4 Bxe4 27. He7 Bf5 28. c7 Kf8? Nú bregst Shirov bogalistin. Eftir 28. ...Kg7! 29. Rb5 (29. Rxf5+ gxí5 30. KÍ2 Hxc4 er steindautt jafntefli ) 29. ...Rf8 30. Hel Hxc4 er staðan jafntefli. 29. Rxf5 gxfð 30. Hd7 Kg7 31. Hd4! ■ A í 31. ...Hxc7 Við fyrstu sýn mætti ætla að svartur ætti ekki að vera í vand- ræðum með að ná jafntefli, en við nánari athugun kemur í ljós að hvítur hefur góðar vinningslíkur sem byggjast á því hversu veik peðastaða svarts er á kóngsvæng. Staðan er það flókin að til að kom- ast til botns í henni þarf margra klukkutfma eða jafnvel margra daga vinnu! 32. Kf2 Kf6 33. Ke3 Ke6 34. g3 f6 35. Kd3 Ha7 36. Kc3 Ke5 37. Hh4 Hb7! Svartur mátti ekki hleypa kóngnum á b4 38. Hf4 Hbl 39. Hf2 Eftir þetta verður taílinu ekki bjargað. Eini möguleikinn fólst í 39. ...Hhl! 40. Kb4 ( ekki 40. c5 f4 41. Hxf4 Hxh2 42. Hc4 Ha2 og svartur heldur jafntefli ) 40. ...f4 41. gxf4+ Kd6 með jafnteflismögu- leikum. Lok skákarinnar teflir An- and óaðfinnanlega og er fróðlegt fyrir lesendur að fara yfir lok skák- arinnar. 40. Kb4 Ke6 41. Kb5 Kd6 42. Hxf5 Hbl+ 43. Ka4 Hb2 44. Hxf6+ Kc5 45. Hh6 Kxc4 46. Hh4+ Kd5 47. Hxh7 Ke5 48. Ka3 Hb8 49. Hh5+ Kf6 50. Hh4 Kg5 51. Hb4 Hh8 52. h4+ Kh5 53. Hb5+ Kh6 54. g4 He8 55. Hb4 Kg6 56. Hb6+ Kf7 57. Hb7+ Ke6 58. Hh7 Hb8 59. g5 Kf5 60. Hh6 Ke5 61. h5 Kf5 62. g6 Kf6 63. Hh7 Hg8 64. Kb3 1-0 Mót á næstunni 26.12. TK. Jólahraðskákmót 27.12. TR. Jólahraðskákmót 28.12. SA. Jólahraðskákmót 29.12. SA. Jólamót 15 ára og y. 29.12. Hellir. Jólamót 30.12. TR. Skeljungsmótið 30.12. SA. Hverfakeppni Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson Nýtt - nýtt Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frákl. 11-16 2 Kampavírj kr. 1.530 , ■K—KmK— Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.