Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 47
+
MORGUNBLAÐIÐ
(MK1 tVMWA'JM Æ SUÖÁÖMÖUAJ o
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 47«
MINNINGAR
1
■
I
ANTON BIRGIR
JAKOBSSON
+ Anton Birgir
Jakobsson fædd-
ist 16. september
2000. Hann lést 18.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
eru Jakob Guðlaugs-
son, f. 7.2. 1981, og
Ragna Engilberts-
dóttir, f. 11. júlí
1981.
Útför Antons
Birgis fer fram frá
Ilafnarkirkju í
Hornafirði í dag og
hefst athöfnin klukk-
an 11.
m
■
ifH
+
Elsku afadrengurinn minn, nú
ertu farinn svo fljótt frá okkur. Þú
komst eins og sólargeisli inn í líf okk-
ar, svo hjálpai’þurfi og smár. Allir
sem sáu þig hrifust af þér. Við þráð-
um að fá að sjá þig vaxa og dafna, fá
að sjá þig taka á sprett, en fætur þín-
ir fengu aldrei að snerta þessa jörð.
Þó hefur þú verið mikill gleðigjafi og
maður mikilla sátta. Þín lífsbarátta
var hörð, og við höfum fengið að sjá
mörg kraftaverk, en þar kom að litli
líkaminn þoldi ekki meira.
Nú ert kominn í faðm Guðs og
þarft ekki að þjást meira, það þarf
ekki meiri slöngur og nálar og allar
þessar læknamaskínur. Þú áttir þó
góða foreldra sem elskuðu þig og
sýndu þér hlýju og eftir bestu getu.
Þeirra er söknuðurinn mikill núna.
Lífið er stundum harður skóli og sum
sár getur Guð einn læknað. Við
treystum honum.
Elsku Jakob og Ragna, því miður
gátum við ekki verið með ykkur
núna. Þið hafið sýnt mikið þolgæði og
þrautseigju. Við biðjum Guð að
styrkja ykkur og hugga.
Heiðar afi og Diane amma,
Nýja Sjálandi.
„Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir.“
Þetta máltæki á vel við þig, elsku
litli strákurinn minn.
Við fengum að njóta þín í þrjá
mánuði og alltaf skal ég vera þakk-
látur fyrir það. Við fengum að kynn-
ast þínum skapgerðareinkennum.
Við fengum að snerta þig, og við
fengum að elska þig. Þó svo ævi þín
hafi ekki orðið löng hér.
Meðgangan var öll ævintýri líkust
sem hefði getað orðið efni í heila bók
um þig. Sú bók verður aldrei skrifuð
en minningin er vel meitluð í huga
okkar.
Svo kom stóra stundin, fæðing þín,
það var nú kapítuli út af fyrir sig,
ekki síður merkilegur, þvílíkt sam-
einingartákn gagnvart fjölskyldu
þinni hefði ég aldrei trúað að til væri.
Já, það er öruggt að þín stutta dvöl
hér hafði mikinn og góðan tilgang.
Þrisvar átti að gefast upp við þig,
fyrst eftir að þú komst í heiminn en
röð af tilviljunum kom í veg fyrir það.
Kraftaverk og aftur kraftaverk,
því nú fórst þú öllum að óvörum að
hjarna við, já sérstaklega komst þú
öllum færustu læknum á óvart. Þú
fórst að dafna, opna augun og lifna
við fyrh’ alvöru.
Þá sást þú í fyrsta skiptið þína
ungu duglegu foreldra.
Mikið mátt þú nú vera hreykinn
elsku kallinn minn að hafa átt svona
foreldra. Þau stóðu sem klettar allan
tímann þér við hlið, þvílík ást og því-
lík umhyggja. Þau urðu líka þeirrar
gleði aðnjótandi að fá að sjá þig opna
augun, sjá þig brosa og hjala, sjá þig
leika þér að dótinu í kringum þig,
tóku þig upp og hugguðu er þú grést
og sáu þig sýna tilfinningar til sín.
Þessar stundir þínar og tjáning
þín til þeirra verða geymdar í hjört-
um foreldra þinna alla ævi.
Elsku Jakob og Ragna, þið eruð
hetjurnar mínar, þvílíkum dugnaði
og þvílíku ástríki gagnvart Antoni
Birgi verður eigi með orðum lýst.
Við elskum ykkur öllsömul og við
erum mjög stolt af ykkur. Guð launar
ykkur þetta þúsundfalt, það veit ég.
Munið það, þó svo að litli líkami
hans Antons hafi ekki þolað aðgerð-
ina, að það er einhver
tilgangur með þessu
öllu.
Gleymið því ekki að
þið eigið marga góða að
sem styðja ykkur og
elska af heilum hug.
Anton Birgir minn,
Guð geymi þig, við
geymum minninguna.
Þinn afi
Kristjón (Jonni).
Elsku hjartans litli
frændi. Af hverju þú?
Þú varst augasteinn
mömmu þinnar og
pabba þíns. Af hverju fengu þau ekki
að hafa þig lengur? Lífið getur verið
svo óskiljanlegt og óréttlátt, segir
mamma mín. Fleiri svör fáum við
kannski þegar við komum til þín,
elsku litli Anton Birgir. Ég hlakkaði
svo til að hitta þig og leika við þig, við
hefðum getað vaxið og þroskast sam-
an í faðmi foreldra okkar og ástvina
hér heima á Höfn. En það verður
ekki héma megin sem við leikum
okkur. Þér var víst ætlað að leika þér
og þroskast annars staðar. Mamma
segir að þér líði betur og þá er ég
ánægð fyrir þína hönd. Ég og
mamma biðjum góðan Guð að vemda
þig og blessa, elsku litli frændi minn.
Guð blessi og styrki Jakob, Rögnu
og aðra ástvini.
Ó, Faðir, gjör mig lítið ljós,
um lífs míns stutta skeið, tíl hjálpar
hveijum halogdrós,
sem hefur villst af leið.
(M. Joch.)
Legg ég nú bæði líf og önd,
(júfi Jesú í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer,
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr.Pét)
Sofðu rótt, elsku litli Anton Birgir.
Þín frænka,
Ásrún Fanný.
Dauðinnerlækur
lífiðerstrá
Skjálfandi starir það
straumfalliðá.
(M. Joch.)
Þegar von er á nýjum fjölskyldu-
meðlimi er mikil gleði og eftirvænt-
ing hjá verðandi foreldrum. Allir í
fjölskyldunni taka þátt í gleðinni og
vona af heilum hug að allt fari vel, en
svo er ekki alltaf. Stundum fer eitt-
hvað úrskeiðis strax í móðurkviði,
eins og hér átti sér stað.
Ung hjón eignast sitt fyrsta barn.
Strax eftir fæðingu kemur í ljós að
litli drengurinn er mikið veikur.
Reynt er af fremsta mætti að bjarga
litlu bami, en árangurslaust og litli
drengurinn er allur, þriggja mánaða
gamall.
Sorg ungu foreldranna er sár, ung
upplifa þau þessa sám sorg sem
fylgir bamsmissi. Nú era jólin fram-
undan, hátíð barnanna og við öll, sem
tengd eram ungu hjónunum, syrgj-
um með þeim.
Við þökkum hjúkranarfólki og
læknum fyrir alla þeirra aðstoð og
umhyggjusemi.
Kæra Jakob og Ragna, guð einn
getur mildað sorg ykkar, ég votta
ykkur innilega samúð mína.
Guðveig Bjamadóttir,
Skaftafelli.
Hér sit ég og reyni að skrifa nokk-
ur minningarorð um þig litli engill,
sem fæddist í þennan heim hinn 16.
september, heilum sex vikum áður
en þinn fæðingardagur var áætlaður.
Þín stutta ævi var braut þymum
stráð, oft vora sigrar en líka stríð
sem ekki tókst að vinna. En þegar
góðu tímamir vora, var mikil gleði
hjá foreldrum þínum, þeim Rögnu og
Jakobi því þá var hægt að halda á
þér, knúsa þig og kyssa. Svo komu
líka þeir dagai’ sem einungis var
hægt bara að halda í litlu höndina
þína, strjúka iitla kollinn og reyna að
gefa þér uppáhalds snudduna þína
sem einn hjúkranarfræðingur eyddi
heilli nótt í að sverfa til svo hægt
væri að koma henni meðfram slöng-
unni sem var tengd í nebbann.
Þú kenndir okkur heilmargt, okk-
ur héma sem eftir sitjum og söknum
þín, að ekkert er sjálfgefið í þessum
heimi og við skyldum ekki gleyma
því að allt hefur sinn tilgang hversu
erfitt sem er að trúa því.
Ég sé ljós í myrkrinu. Jólahátíðin
er um það bil að ganga í garð, hátíð
ljóss og friðar og ég bið þess að hún
færi foreldram þínum, þeim Rögnu
og Jakobi, ömmu og afa í Miðtúni,
Birnu Sólveigu frænku, Gústa og
eins honum Elvari Braga sem var
svo spenntur að bíða þess að þú
kæmir heim svo hann gæti kennt þér
fótbolta, birtu og frið á þessum erfiðu
tímum.
Ég kýs að trúa því að þú komir
fljótt til okkar aftur, þú fallega sál, og
þá í hraustum og heilbrigðum lík-
ama.
Ég bið guð að geyma þig.
Þín frænka
Ástríður (Systa).
t
Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi,
TRYGGVI STEINSSON,
lést mánudaginn 11
kyrrþey.
desember og hefur jarðarför hans farið fram í
Steinn Valdimar Tryggvason,
Guðjón Þór Steinsson, Valgerður Albertsdóttir,
Þorgerður Steinsdóttir, Ingimar Þór Gunnarsson,
Hrefna Steinsdóttir, Sigurður Hauksson,
Einar Steinsson, < Lena Hallgrímsdóttir,
Bryndís Steinsdóttir, Ingvi Ingvason
og fjölskyldur.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
AÐALBJÖRN Þ. BJÖRNSSON,
Hátúni 8,
Reykjavfk,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 22. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Lilja Hauksdóttir,
Sigurlaug Jónsdóttir,
Kristinn L. Aðalbjörnsson,
Ingólfur B. Aðalbjörnsson,
Rósa Aðalbjörnsdóttir,
Linda S. Aðalbjörnsdóttir, Örnóifur Lárusson,
Sólveig M. Aðalbjörnsdóttir, Árni Reynisson,
Björn V. Aðalbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG STEINUNN EYJÓLFSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Suðurgötu 8,
Sandgerði,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir góða og elskulega
umönnun.
Hjördís Kristinsdóttir, Þórður H. Hilmarsson,
Sigrún Kristinsdóttir, Leifur Helgason,
Magnús E. Kristinsson, Sigurlaug Eiríksdóttir,
Sólveig Kristinsdóttir, Sigurður Indriðason,
Halldór Aspar, Randver Ármannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
arhug við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Búrfelli,
Furugrund 68,
Kópavogi.
Tryggvi Eiríksson, Milla H. Kay,
Guðmundur Eiríksson, Anna Sigurðardóttir,
Flosi Eirfksson,
Jón Eiríksson,
Þórunn Eiríksdóttir,
Guðjón Eiríksson,
Helga Eiríksdóttir,
Guðjón Bjarnason
og ömmubörn.
Sigurbjörg Geirsdóttir,
Þorgeir Gunnlaugsson,
Harpa Jónsdóttir,
Jósef Pálsson,
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför okkar kæra sonar,
bróður, mágs og frænda,
HANNESAR ÞÓRS TRAUSTASONAR,
Vesturbergi 94.
Einnig viljum við færa starfsfólki gjörgæslu-
deildar Landspítalans í Fossvogi alúðarþakkir
fyrir alla umönnun og hlýhug og þá sérstaklega _______________
þeim Ólöfu Sigurðardóttur hjúkmnarfræðingi og séra Sigfinni Þorleifssyni.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir,
Sóldís Björk Traustadóttir, Hörður Pálmarsson,
Ríkharður Traustason, Hulda Karen Auðunsdóttir,
Fjóla Kristín Traustadóttir,Guðmundur Ás Birgisson,
Trausti Traustason
og systkinabörn.
V
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
BJÖRN FR. BJÖRNSSON
fv. sýslumaður og alþingismaður,
Hávallagötu 31,
Reykjavík,
andaðist fimmtudaginn 21. desember.
Ragnheiður Jónsdóttir,
Birna Björnsdóttir,
Grétar Björnsson,
Guðrún Bjömsdóttir,
Gunnar Björnsson,
Bjöm Friðgeir Björnsson.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
BJÖRNFRÍÐUR SIGRÍÐUR
BJÖRNSDÓTTIR,
Hjarðarholti 7,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn
22. desember.
Oddur Gíslason,
börn, tengdabörn
og fjölskyldur.