Morgunblaðið - 24.12.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000 B 31,
Salmonellu-sýking getur
reynst lífshættuleg
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
NÝ DÖNSK rannsókn hefur leitt í ljós að
salmonellusýking getur reynst lífshættuleg
jafnvel þótt tekist hafi að lækna þá sem sýkst
hafa af henni. Samkvæmt rannsókninni
aukast líkurnar á því að fólk látist innan
tveggja ára eftir að hafa sýkst af salmonellu
umtalsvert. Dönsku sérfræðingarnir sem
gerðu rannsóknina hafa ekki viljað segja um
hversu mikla aukningu er að ræða fyrr en
þeir hafa fengið niðurstöðurnar birtar erlend-
is, að því er segir í Politiken.
Einkum er um að ræða salmonellu af teg-
undinni DT 104 sem hefur fundist í æ rfkari
mæli í dönsku svínakjöti. Bakterían er ónæm
fyrir að minnsta kosti fimm tegundum sýkla-
lyfja en niðurstöður vísindamanna við Dönsku
rannsóknarstofnunina í ónæmisfræðum benda
til þess að því ónæmari sem salmonellubakt-
erían er, því hættulegri sé hún.
Augljós munur
Sérfræðingarnir hafa fylgst í tvö ár með
hópi fólks sem veikst hefur af salmonellu og
borið hann saman við úrtak fólks sem ekki
hefur fengið salmonellusýkingu. Reyndust
dauðsföll mun fleiri í hópnum sem fengið hafði
sýkinguna.
Sérfræðingarnir hafa sent niðurstöður sínar
til New England Journal of Medicine til birt-
ingar og viljaekki tjá sig frekar um þær fyrr
en þær hafa verið birtar þar.
Dönsk landbúnaðaryfirvöld hafa brugðist
við með því að herða eftirlit með svínakjöts-
framleiðendum þar sem salmonellusýking hef-
ur fundist, svo og hert kröfur um eftirlit í
sláturhúsum.
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-16
Færeyjar
Kosið á
ný vegna
íslenskr-
ar konu
Þórshöfn. Morgunblaðið.
ÍSLENSK kona, Margrét Jóhanns-
dóttir, sem búið hefur í bænum Hov á
Suðurey hefur nú orðið þess valdandi
að kjósa verður á ný í sveitarfélaginu.
í bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingum í síðasta mánði var Margrét í
framboði og náði kjöri. Frétt um mál-
ið í færeyska sjónvarpinu varð hins
vegar til að nefnd, sem hefur eftirlit
með kosningum, fór að kanna málið
og komst að þeirri niðurstöðu að
Margrét væri ekki kjörgeng þar sem
hún væri enn íslenskur ríkisborgari.
I samtali við færeyska sjónvarpið
segir Margrét að hún hafi talið að
hún væri kjörgeng í sveitarstjómar-
kosningunum þar sem hún hefði
kosningarétt í Færeyjum.
Hefur hún boðist til að falla frá
sæti sínu á listanum og láta aðra
manneskju koma í sinn stað. Það
mun hins vegar ekki duga til, ef full-
nægja á reglum og því verða íbúar
Hov að ganga til kosninga á nýjan
leik.
Ákveðið hefur verið að halda kosn-
ingar 6. febrúar á næsta ári og mun
einungis þeim er höfðu kosningarétt í
kosningunum í nóvember sl. verða
leyft að kjósa. Þeir sem flutt hafa til
bæjarins í millitíðinni verður ekki
leyft að kjósa.
------4-4-*------
Stundarsigur
HUGO Banzer, forseti Bólivíu, lýsti í
fyrradag yfir sigri í baráttunni við
kókaræktendur í landinu og sagði,
að búið væri að uppræta kókaakrana
að langmestu leyti. Hefðu kókaakrar
á 43.000 hekturum lands verið eyði-
lagðir á síðustu þremur árum. Sendi
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
honum heillaóskaskeyti í tilefni af
sigrinum í baráttunni við kókarækt-
endur, eiturlyfjabaróna og annan
óþjóðalýð en á sama tíma efndu
kókaræktendur til mótmæla í borg-
inni Chimore, sem er 580 km suður
af höfuðborginni, La Paz. Þar fórn-
uðu þeir kókalaufum til að leggja
áherslu á, að kókarækt væri eftir
sem áður einn af undirstöðuatvinnu-
vegum landsins að þeirra mati.
Aðsendar greinar á Netinu
^mbl.is
-ALL.TAf= en-TH\SA£J A/ÝTT
Ætlar þú að gera samning
um lífeyrissparnað
fyrir úramót?
Hjá VIB getur þú valið á milli
eftirtalinna ávöxtunarleiða.
ALVÍB, séreignarsjóður (aldurstengd verðbréfasöfn)
Ævileiðin. Inneign sjóðfélaga færist milli
aldurstengdra verðbréfasafna eftir aldri
Ævisafn I (hentar fyrir 44 ára og yngri)
Ævisafn II (hentar fyrir 45 ára til 64 ára)
Ævisafn III (hentar fyrir 65 ára og eldri)
Eftirlaunareikningur VÍB
Sjóður 1 - innlend markaðsskuldabréf
Sjóður 5 - innlend ríkisskuldabréf
Sjóður 6 ' innlend hlutabréf
Sjóður 10 - úrval innlendra hiumbréfa
Astra - Grunnsafnið ALVÍSerfjölmennastiséreignarsjóðurinnmeðrúmlega
Astra - Heimssafnið l3-2,5? sjóðféiaga
a \/ fn’X A Eftirlaunareikningi getasjóðfélagarbúiðtil
CVStra ' VaXtarSatniÖ sinneiginséreignasjóðmedinnlendumog/eðaeriendum
Astra -21 öidin verðbréfum, eftír því sem hentar hvetjum og einum.
Hiutabréf, einstök félög skráð á aðallista Verðbréfaþings íslands sem
hafa verið rafvædd.
Hvað á að gera?
era samnmq um lífe
iyrissparnað þarft þú
fy,air 1
Ef þú vilt qera samnínq
bara að fylla út eyðubíað sem tyiair með bæklingi
um lífeyrissparnað sem þú getur fengið hjá VÍB, eða
I næsta útibúi islandsbanka. Þú getur lika sótt
samningseyðublaðið á vib.is eðahringt til okkar og við
sendum þér það. Svona einfalt er það!
• Þú fyllir út samning um lífeyrisspamað og sendir hann til VÍB
á Kirkjusandi.
• Við sjáum um að tilkynna launagreiðanda um samninginn.
• Launagreiðandi greiðir viðbótaríðgjöldin til VÍB.
Tækifæri sem
enginn má missa afl
Q
VÍB er hluti af Ísiandsbanka-FBA hf.
Kirkjusandi • Simt 560-8900 • www.vih.is • vib@vih.is