Tímarit - 01.01.1871, Blaðsíða 35
35
6. Bjarni Ólafsson á Steinum í Svartárdal, haus faðir
7. Ólafur Tómásson á Hallgríinsstöðum, dó 1595,
hans faðir
8. Tómás Eirílísson, prestur á Mælifelli. Þóra Ólafs-
dóttir móðir Ólafs á Hafgrímsstöðum var dóttir
Helgu Sigurðardóttur, er seinna varð barna-
móðir Jóns biskups Arasonar.
13. TORFI EINARSSON, hreppstjóri á Kleyfum á Sel-
strönd, alþingismaður Strandasýslu; kona hans
Anna Einarsdóttir hreppstjóra frá Fagranesi,
norðan úr í’ingeyarþingi.
Föðurætt.
1. gr.
1. Einar Jónsson á Kollafjarðarnesi, dannebrogsmað-
ur, hans faðir
2. Jón Brynjólfsson í Miðdalsgröf, hans faðir
3. Brynjólfur Guðmundsson á Heydalsá, hans faðir
4. Guðmundur Snorrason, hans faðir
5. Snorri Ásgeirsson, prestur í Tröllatungu, dó 1717,
hans faðir
6. Ásgeir Einarsson, prestur í Tröllatungu, dó 1702,
aðrir segja 1706, hans faðir
7. Einar Sigurðsson, prestur á Stað í Steingrímsflrði,
dó 1670, hans faðir
8. Sigurður Einarsson, prestur á Breiðabólstað í Fljóts-
hlíð, albróðir Odds biskups Einarssonar, dó
1634, hans faðir
9. Einar Sigurðsson, prestur í Eydölura, dó 1626,
hans faðir
3