Tímarit - 01.01.1871, Blaðsíða 71
71
Guðmundur sýslumaður var fæddur 1748,
útskrifaðist 1767, fór síðan til Iíaupmanna-
hafnar háskóla sama ár, lagði sig þar eptir
. bókmentum, en tók þó ekki latínskt em-
bættispróf í lögum, varð samt 1772 settur
föður sínum til aðstoðar með von um að fá
sýsluna eptir hann, sem hann og fékk 1786.
Árið 1806 tók hann Pál son sinn sértilað-
stoðar í embættinu, og árið eptir sagði hann
af sér sýslunni. Guðmundur hafði opt siglt
og í 5. sinni fór hann utan 1807, en sök-
um ófriðar þess, er þá var, fór skipið til
Norvegs; árið eptir komst hann til Kaup-
mannahafnar og 1810 til Edinborgar á Skot-
landi; þar dó hann sama ár1. Ferð þessi
varð honum mjög kostnaðarsöm og mæðu-
full, hann braut fót sinn, og margt annað
gekk honum mótdrægt2.
Páll Guðmundsson.
Faðir: Guðmundur sýslumaður Pétursson, nýnefndur.
Móðir: Þórunn Pálsdóttir.
Kvinna: Malena Örum3.
1) ASrir segja 12. ágúst 1811.
2) Gníminndur var ríkismaíinr mesti og bjú í Krossavik.
3) Jens Orum var verzlnnarmatmr eystra, var kona hans og
móSir Malenu, Sigrítinr, systir .Geirs biskups Vídalíns.