Tímarit - 01.01.1871, Blaðsíða 49
49
11. Þorsteinn Finnbogason í Reykjahlíð, hans faðir
12. Finnbogi Jónsson, lögmaður, hans faðir
13. Jón Pálsson, ofTicialis á Grenjaðarstöðum, dó 1471.
Nokkrir segja að Jón Einarsson í I’reslhvammi
hafi verið bróðir Jóns höfuðsmanns á Oddstöð-
um, og telja hann eigi meðal barna síra Ein-
ars; en Jón höfuðsmaður var Jónsson, svo það
getur eigi verið rétt. Espólín segir að næsta
fólk Jóns í Presthvammi hafl verið mjög stór-
mannlegt. Það er almennt talið svo, að síra
Jón Pálsson á Grenjaðarstöðum hafl verið bróðir
Ingibjargar, konu Lopts ríka Guttormssonar, en
hún var dóttir Páls á Eyðum Þorvarðarsonar;
Páll var hirðstjóra umboðsmaður og dó 1403;
en Þorvarður faðir hans heflr annaðhvort verið
sonur, sonarson eða dóttnrson herra Þorvarðar
Þórarinssonar, er dó 1296, og kominn var að
langfeðgum frá fornkonungum. Af máldaga
Eyðakirkju er það ljóst, að búið hafa á Eyð-
um, hver eptir annan, Karl Arnðrsson, svo
Þorvarður, og síðan Páll, og hefir þá Iíarl
þessi annaðhvort átt dóttur Þorvarðar Þórarins-
sonar, og Þorvarður ýngri verið son þeirra, eða
Karl hefir haft umboð Þorvarðar ýngra hafi hann
verið son eða sonarson í'orvarðar hins eldra,
meðan Þorvarður var í ómegð. Annars kynni
það vera nokkuð aðgæzluvert, hvort síra Jón
Pálsson og Ingibjörg kona Lopts hafl verið syst-
kini; hafi svo verið, þá hafa þau Sveinn Sum-
arliðason og kona hans, er var dóttir Finnboga
lögmanns, verið þriðja og fjórða, og hefðu þau
þá eigi mátt eigast án leyfis.
4