Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Blaðsíða 2
2
TiANDSTJORN.
4. maí 1872 landshöfðingjadœmi yfir íslandi, er skyldi
byrja 1. apríl 1873. í erindisbrjefi landshöfðingjans, sem út var
gefið af lögstjórnarráðherranum 29. júní 1872, er svo ákveðið,
að landshöfðingi skuli framkvæma hið œðsta vald yfir hinum sjer-
staklegu málum Íslands undir umsjón hlutaðeigandi ráðherra í
Danmörku. Samkvæmt erindisbrjefi þessu skal landshöfðingi
gjöra uppástungur til hlutaðeigandi ráðherra f öllum þeim sjer-
stökum málum íslands, er þurfa að koma undir úrskurð kon-
ungs eða stjórnarinnar, og sömuleiðis gjöra uppástungur um ný
lög; hann skal og hafa umsjón yfir öilum embættismönnum á
íslandi og allri embæltisfœrslu þeirra, annast um skil á opin-
berum reikningum, jafna niður alþingiskostnaði, setja umboðs-
menn yfir konungsjarðirnar og tiltaka veð fyrir gjaldheimtum
embættismanna, hafa yfirstjórn og fjárráð íslenzkra póstmálefna,
leggja fullnaðarúrskurð á öll sveitamál, hafa forsætið í lands-
yfirrjettinum, gefa út nokkur konungleg leyfisbrjef, hafa umsjón
yfir landssjóðnum og umráð yfir helming þess fjár, sem ætlað er til
óvissra útgjalda íslands, skera úr ýmsum sjerstökum málum, er
áður hafa komið undir úrskurð stjórnarinnar, og staðfesta brauða-
veitingar þær, er konungur áður staðfesti o. s. frv. Þannig er
skipað fyrir um verkasvið landshöfðingja, og er það sumpart hið
sama verkasvið, sem stiptamtmaður hefur áður haft, en sumpart
er það nokkuð rýmkað. Landsmenn tóku illa breytingu þessari,
bæði fyrirþá sök, að hún væri svo lltil, að hún gæti eigi komið
að neinum notum, en væri þó jafnframt kostnaðarsamari en hið
eldra fyrirkomulag, en þó einkum fyrir þá sök, að sljórnin hefði
leyft sjer að stofna nýtt embætti og leggja fram fje úr lands-
sjóði án samþykkis alþingis.
IiÖg handa íslandi hafa allmörg verið gefin út næstliðið
ár. l’rá því er sagt i fyrra, að konungr ljet leggja 12 laga-
frumvörp fyrir síðasta alþingi; þingið rœddi þau, gjörði meiri
eða minni breylingar við þau öll og sendi síðan álitsskjöl um
þau til konungs. Nú eru flest af frumvörpum þessum orðin að
lögum, en breytingatillögur alþingis hafa að litlu verið teknar
til greina. Lögin eru þau, er hjer segir:
1, Tilskipun um sveitastjórn á íslandi, dagsett
4. maí 1872. Hjer hefur verið farið eptir tillögum alþingis
að því er snertir það, að hafa þrjú amtsráð sitt i hverju