Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Side 6
6
LANDSTJÓKN.
ár, þá voru þau mjög lík og árið áður. Alþingistollur-
i n n var, að því leyti sem þrír fjórðungar hans koma niður á
jarðaafgjöldunum, 3 skildingar af hverju ríkisdalsvirði í þeim; sá
fjórðungur, er kom niður á lausafjenu, var 1550 rd., en öll upp-
hæð þess, er fyrir lá til niðurjöfnunar, var 6200 rd. Jafnað-
ar s jóð s gj a 1 di ð var í suðuramtinu 16 sk., af hverju tíund-
arbæru lausafjárhundraði; um gjaldið í hiuum ömtunum er ó-
kunnugt; með gjaldinu til jafnaðarsjóðanna var talið gjald til
uppfrœðingar heyrnar- og málleysingja í hverju amtinu fyrir
sig. Eptir verðlagsskránum var meðalve rð allra
meðalverða á þessa leið: hundr. alinin
rd. sk. sk.
í Skaptafellssýslunum 25 83 20, T
- hinum öðrum sýslum suðuramtsins 29 30 23,5
- Mýra-, Snæfellsnes- og Hnappadals-
og Dalasýslum 31 70 25‘/i!
- Barðastrandar- og Strandasýslura . 33 8 26 V*
- ísafjarðarsýslu og Isafjarðarkaupstað 34 7 27 V«
- Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum . 29 32 23V*
- Eyjafjarðar- og ÍMngeyjarsýslum og
Akureyrarkaupstað 29 31 23 V*
- Múlasýslunum ....... 30 82 24s/«
Um leið og getið er um fjárhagsmál á 1 íslandi, má einnig
geta þess, að næstliðinn vetur í marzmánuði stofnuðu 12 menu
í Reykjavík sparisjóð, sem er geymdur í Reykjavík, en tek-
ur á móti samlagi úr öllu landinu; sparisjóður þessi geldur 3
af 100 í vexti á hverju ári; vextir eru útborgaðir 11. júní og
11. desember ár hvert, en þeir vextir, sem eigi eru útteknir 1.
júlí og 1. jánúar, eru lagðir við höfuðstólinn og svarað af þeim
renturenlu. Sparisjóðurinn er einnig lánssjóður, og verður lán-
að úr honum gegn áreiðanlegu veði og sjálfsábyrgð. Stofnend-
ur sjóðsins ábyrgjast hvern þann balla, er sjóðurinn kaun að
verða fyrir, með allt að 100 rd. hver. Ágóðanum, að frá dregn-
um kostnaði, er haldið samau í ábyrgðarsjóð, og stjórnendur
sjóðsins vinna kauplaust fyrst um sinn. Af stofuendunum voru
3 valdir stjórnendur fyrir næstliðið ár, nefnil. Árni Thorsteinson
landfógeti, llalldór Guðmundsson skólakennari og Magnús Jóns-
son, óðalsbóndi í Bráðræði. Sjóðurinn byrjaði starfa sinn 20.