Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Qupperneq 9
MANNFJÖLQDN.
9
Mannfjölgun.
Um mannfjölgun á íslandi nœstliðið ár er fátt að
segja, með því að fullkomnar skýrslur vantar enn um þau efni;
eptir því, sem sjeð verður af blöðunum, þá virðist ástœða til að
ætla, að fólki hafi fjölgað að mun á þessu tímabili og talsvert
meira en næsta ár á undan, með þvi að tálmanir þær, er helzt
eru vanar að hnekkja mannfjölguninni, það er að segja sóttir
og slysfarir, hafa verið í minna lagi; en eptir skýrslum þeim,
sem komnar eru, virðist hið gagnstœða eiga sjer stað, og að
fólki hafi fremur fækkað en fjölgað næstliðið ár.
Af hinum almennustu sóttlim má nefna barnaveiki, kvef-
sótt, lungnabólgu, taugaveiki o. s. frv., en allarþessar sóttirvoru
mjög sjaldgæfar og ómannskœðar næstliðið ár. Barnaveikin
gjörði einkum vart við sig í Múlasýslum að áliðnum vetri, en
var hvergi nærri eins skœð og hún var viða undanfarin ár.
Kvefsótt gekk víða um land flesta tíma ársins, en víðast var
hún fremur væg; á suðurlandi gekk hún helzt um vorið, á vest-
urlandi helzt um sumarið, á norðurlandi einkum um miðjan vet-
ur og aptur um mitt sumar, en á austurlandi um vorið og apt-
ur um haustið. Lungnabólga og taksótt gengu í Húna-
vatnssýslu og á Austfjörðum, einkum síðari hluta vetrar. Tauga-
veiki stakk sjer sumstaðar niður, einkum í Skagafjarðarsýslu
og Austur-Skaptafellssýslu að áliðnum vetri, og á Austfjörðum
að miðju sumri. Bólgusóttar varð enn fremur sumstaðar
vart um haustið, einkum á vesturlandi. Soghósti eða andar-
teppuhósti var víða samfara kvefsóttinni og lungnabólgunni, á
norðurlandi einkum um veturinn, en á austurlandi við og við á
öllum árstimum. Þegar á allt er litið, má kalla, að heilsufar
manna hafi verið gott um allt land, nema á Austfjörðum.
Af slysfomm má nefna nokkrar hinar helztu, sem
getið er í blöðunum, en það eru einkum drukknanir í sjó:
20. apríl drukknuðu 2 menn við Vatnsleysuströod. Sama dag
drukknuðu 4 menn við Eyrarbakka. 3. maí drukknuðu 3 menn
í Njarðvík. 4. júní drukknuðu ó menn á Hvalfírði. 13. júní
drukknuðu 11 menn á Landeyjasundi. 22. september drukkn-
uðu 10 menn á Djúpavogi. 17. október drukknuðu 3 menn við
Brákarey. 16. nóvember drukknuðu 8 menn fyrir utan Stykkis-