Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Side 19
ATVINNUVKGIK.
19
S íldarveiði var næstliðið ár í meðallagi. í H a f n a r-
firði aflaðist nokknð í janúarmánuði. í Eyjafirði aflaðist
talsvert bæði að áliðnum vetri, en þó einkum i júní og aptur
nm haustið. ÁAustfjörðum var síldarafli hinn bezti í á-
gústmánuði og fram í septembermánuð.
Lax- og silungsveiði var í bezta lagi um sumarið í
öllum ám, einkum á suðurlandi.
Selafli var víða í allgóðu lagi. í maí og íjúní rak mikið
af sel á Hornströndum og Melrakkasljettu. 300 selir fengust í
Grímsey um sumarið.
Hvalrekar urðu allvíða næstliðið ár. í maímánuði rak
hval á Melrakkasljettu og annan í Kelduhverfi; í júní rak hval í
Mýrdal; í ágúst rak hval á Seltjarnarnesi; að áliðnu sumri rak
einnig nokkra hvali á Austfjörðum, tvo á Seyðisfirði, einn í Norð-
firði, einn í Mjóafirði og einn í Reyðarfirði; um haustið rak
einnig einn hval á Hjeraðsflóa.
Trjárekar voru í minna lagi á norðurlandi, en aptur í
meira lagi á suðurlandi; í Skaptafellssýslu rak allmikið af stór-
trjám að áliðnum vetri, einkum í Örœfum; í Grindavík rak einnig
talsvert fyrri hluta sumars. Trje þau, er rak, voru flest til-
höggvin, og ætluðu menn, að þau mundu vera timburfarmur af
strönduðum skipum. Annara strandreka er eigi getandi.
Bjargfuglaveiði misheppnaðist víða, einkum í Vest-
mannaeyjum, og ollu þvi mest stormar.
Erlendir aflamenn lágu einnig við strendur íslands
að vanda næstliðið ár. Hið f r a k k n e s k a fiskiveiðafje-
lag sendi nú miklu fleiri skip til landsins en árið áður, en þó
eigi svo sem þá er mest hefur verið. Þau öfluðu í minna lagi,
en þó að tiltölu miklu betur en íslendingar; þeim hlekktist og
lítið á. Næstliðið ár var minna kvartað undan ójöfnuði og yfir-
gangi frakkneskra fiskimanna en að undanförnu. Hinir norsku
síldarveiðamenn, er lágu fyrir Austfjörðura ura suraarið,
öfluðu lítið af síld, en mikið af fiski. Hinn hollenzki hval-
veiðamaður, er í nokkur ár hefur legið fyrir Austfjörðum,
aflaði mjög lítið af hval næstliðið sumar, og gjörði ráð fyrir að
hætta hvalaveiðum sínum hjer við land.
Námur á íslandi eru fáar og er fátt af þeim að segja; þó
mágeta þess, að kolanáraa sú, er fannst íMýrasýslu í fyrra,
2*