Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Blaðsíða 21
ATVINNUVEGIR.
21
fjárverzlun, sem fjelagið hafði fyrirhugað við Englendinga um
haustið, sökum fjársýki, er um þær mundir kom upp á Eng-
landi og hepti aðflutninga á fje þangað. Á aðalfundi fjelagsins
á Þingeyrum 24. júní lýsti forseti fjelagsins því, að það mundi
hafa 20 af hundraði í ágóða fyrir hið umliðna ár, eða 4 ríkis-
dali af hverjum hlut; á fundi þessum var og ákveðið að safna
um sumarið 800 nýjum hlutum (20000 rd.), og enn fremur að
fá bœndur til að lofa að Verzla í 5 ár eingöngu við fjelagið.
Báðum þessum ákvörðunum var vel tekið af bændum; hlulir
fjölguðu óðum, og fjöldi manna gekk i 5 ára samning við fjelagið,
og var það því mjög til eflingar. fess má og geta hjer, að frá
líaupmannahöfn kom prentað sendibrjef til Húnvetninga og Skag-
firðinga um fjelagsverzlunina, og hvatti höfundurinn þar bæði
þá og aðra íslendinga, sem unna verzlunarfrelsi, til að halda
nú sem fastast fram, leggja hluti í fjelagið, ganga í 5 ára samn-
inginn, og ryðja með því um mammonsmusterum Gyðinganna,
þ. e. bola með öllu burt verzlun hinna dönsku kaupmanna.
Brjef þetta er skrifað á eldfjörugu máli, og virðist það hafa haft
talsverð áhrif á marga íslendinga. Flateyjarfjelagið á
Breiðaflrði sendi mann til Björgvinar næstliðinn vetur til að
semja við Björgvinarmenn um verzlun við þá. Björgvinarmenn
flultu fjelaginu vörur á gufuskipi íslenzka samlagsins og lóku
aptur vörur í móti. Fjelagið keypti verzlunarhús í Flatey, og
byrjaði fasta verzlun; verzlun þess var mjög lítil í fyrstu, en
jókst brátt, en margir Dalasýslubúar gengu í fjelagið. R e y k j a-
v í k u r fj e 1 a g i ð komst einnig í samninga við hið íslenzka
verzlunarsamlag í Björgvin, fjekk vörur með gufuskipi þess, og
sendi aptur vörur með því; nú hefur það ráðið að fá sjer skip,
til að hafa í förum. Auk þessara verzlunarfjelaga hafa og mynd-
azt ýms önnur verzlunarfjelög, sem minna kveður að og litlar
sögur fara af, en geta orðið stór og merk þegar fram líða stundir.
Hið íslenzka verzlunarsamlag í Björgvin hefur
enn haldið áfram verzlun sinni næstliðið ár, og aukið hana tals-
vert. Samlagið keypti stórt gufuskip til íslandsferða fyrir 80000
rd., og nefndi það «Jón Sigurðsson» í sœmdarskyni við hinn
ótrauða forvígismann íslendinga. Það var hvorttveggja, að skipið
bar nafn þess manns, er vinsælastur er á öllu íslandi, enda tóku
íslendingar því fegins hugar, en hinir dönsku kaupmenn litu til