Fréttir frá Íslandi - 01.01.1872, Side 24
24
ATVINNUVEGIR.
allt að 400 nautgripa, og hjer um bil 3500 hrossa. Gufu-
skip voru á ferðiuni því nær allt sumarið milli Granton og
Reykjavíkur til gripaflutninga þessara, og komu þau stundum
við á Austfjörðum. Þó að gripasala þessi haíi orðið einstökum
mönnum og ef til vill einstökum sveitum að tjóni, þá er það ó-
efað, að hún hefur orðið þeim velmegunarvegnr, er seldu hyggi-
lega, og hagur fyrir landið í heild sinni. Á peningaekl-
unni, sem að undanförnu hefur legið svo þungt á, hefur mikið
minna borið næstliðið ár, og er það efalaust nokkuð að þakka
gripasölunni, því að fyrir selda gripi hefur á árinu komið inn
í landið svo hundrað þúsundum ríkisdala skiptir.
Um innanlandsverzlunina er fátt að segja. í*ó má
geta þess, að s a u ð f j á r s a 1 a h j e r a ð a í m i 11 i var í minna
lagi. Það hefur vcrið altítt, að sjávarbœndur og kaupstaðabú-
ar á suðurlandi hafa á haustin keypt sauðfje af sveitabœndum
til að leggja í bú sitt. Nú höfðu sveitabœndur þeir, er vanir
voru að selja fjeð, bundizt samtökum um það, að láta enga
sauðkind inn á hið grunaða kláðasvæði, en á því svæði eru marg-
ar sjávarsveitir sunnanlands og kaupstaðirnir Reykjavík, Hafnar-
fjörður og Keflavík. Sveitamenn hjeldu samtökin að miklu leyti,
og næstliðið haust var mjög lítið um fjársölu hjá því sem vant
er að vera. Fjártaka hjá kaupmönnum syðra var einnig í minnsta
lagi.
Til þess að bœta samgöngur manna í milli var mjög
lítið gjört næslliðið ár. Að vegabótum kvað mjög lítið; hin
helzta vegabót, er gjörð var, var stígur gegnum Hafnar-
fjarðarhraun, er áður var mjög illt yíirferðar; þessa vega-
bót gjörðu Hafnfirðingar á eiginkostnað og með frjálsum sam-
skotum. Þess má og geta hjer, að Rangvellingar og Árnesing-
ar tóku saman ráð sín um að leggja brýr yfir Þjórsá og
Ölfusá með frjálsum samskotum landsmanna; það er stór-
kostlegt fyrirtœki og verður til ómetanlegs hagnaðar fyrir þá, er
sœkja eiga yflr stórár þessar, ef það tekst; áætlun um kostn-
aðinn er enn þá eigi fengin. Samgöngur innanlands á sjó voru
í greiðasta lagi, þar sem gufuskip Björgvinarmanna
fór svo opt um sumarið rnilli margra hafna; fjöldi manna lók
sjer far með hverri ferð, og sparaði það mörgum mikinn ferða-
kostnað, þar sera landferðir í fjarlæg hjeruð eru svo örðugar og