Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Síða 23
2?
aldur. Engin samvöxtur sést utan á í saumunum á hauskúpunum ann-
arstaðar en í sut. coron. og sut. front. er opin (tafla III. 3. mynd).
Aí leggjum eru til
annað os femoris (vinstra) 440 mm. á lengd
-----— humeri (hægra) 317 — - —■
-----radius (vinstri) 238 — - —
----- ulna (vinstri) 260 — - —
í hlutfalli við lengdina eru allir þessir leggir mjög grannir og vöðva-
förin dauf — aftur kvenmannseinkenni Lærleggurinn er um niiðju 81
mm. að ummáli, en upphandleggsbeinið 63 mm. Ef farið er eftir
Manouvriers skrá1 samsvarar þessi leggjalengd c. 161 ctm. líkamshæð, ef
um konu er að ræða. Dr. Jörgensen hefír komist að því, að meðalhæð
mesocephal kvenmanna i Færeyjum er nú á dögum 158.9 ctm 2
Þannig komumst vér að þeirri niðurstöðu, að mannsbeinin, sem
fundust í Jökuldalnum, eru úr kvehmanni, sem hefir verið í stærra meðal-
lagi og dáið 40—50 ára að aldri. ef til vill nokkuru yngri eða þá litið
eitt eldri.
2. Kroppsjundnrinn.
Til samanburðar við hinn fundinn skal hér farið nokkrum orðmn
um þenna fund.
5. og 6. mynd á töflu III. sýnir aðra hauskúpuna (þá sem minst
er skemd).
Lárétt ummál hennar er 512 mm.
Diam autero-post. max. - 185 —
----transversa max. - 135 —
----basilo-bregm. - 122 —
----front. min. - 101 —
Að iögun til er þessi hauskúpa greinilega dolicho-cepnal (Index
cephalicus 72.9 ). Þessi hauskúpa er lika krypto-zyg og sut. front. opin
(tafla III. 5. mynd). Tennurnar eru mjög slitnar. Samvöxtur er i sut.
sagitt. milli foramina parietalia, en ekki i öðrum saumum.
Af mjaðmagrindunum er ekki annað til, en brot af einu (vinstra)
mjaðmarbeini (tafla III. 7. mynd), en það sést glögt, að þetta brot er úr
karlmanns mjöðrn.
Til eru tveir lærleggir og hlýtur annar þeirra að vera úr sömu
manneskjunni og hauskúpan, sem rnyndin cr af, því að leggirnir eru báðir
1) Testut 1. c. Pg. 4-—5.
2) E. Jiirgensen: Antbropologiske Uudersögelser paa Færöerne. 1902.
Pg. 213.